Morgunblaðið - 21.10.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1983
Salome Þorkelsdóttir:
„Heimilisnauðsvnjar eiga
ekki að vera hátollavara“
— Tollaflokkanir lækka verð búsáhalda um 20%
Fyrr í vikunni fór fram í efri deild
Alþingis umræöa um lækkun tolla af
búsáhöldum, boröbúnaði, komvöru
o.fl. Töldu stjórnarandstæðingar ráð-
herra gera úlfalda úr mýflugu, er
hann tíundaði þessar tollalækkanir.
Salome Þorkelsdóttir (S), forseti efri
deildar, brást við, ríkisstjórninni til
varnar, og sagði m.a.:
„Það má segja það, að tollskráin
er heill frumskógur og þess vænti
ég, að háttvirti fimmti landskjörni
þingmaður þekki eins og ég. Þegar
ég fór fyrir löngu eftir að ég kom
hér á hæsttvirt Alþingi að skoða
tollskrána, þá komst ég fljótt upp á
lagið með að nota nokkurs konar
þumalputtareglu til þess að átta
mig á því hvað væru búsáhöld eða
nauðsynjavörur heimilanna. Og
hún er mjög einföld. Ef maður
rennir fingri niður eftir dálkunum
með tollaprósentunni, sem er lögð á
vörur og staldrar við töluna
80—90%, þá er þar örugglega
eitthvað sem tilheyrir heimilunum
og nauðsynjavörum heimilanna.
Það gerðist einnig þegar verið var
að vinna í þessu máli, varðandi þær
matvörur, sem hér hafa verið til
umræðu og lítið hefur verið gert úr
á þessu sumri, að tollar hafi verið
lækkaðir á, eins og döðlur og fíkjur,
sykraðir ávextir, spaghetti, Corn
flakes, o.s.frv. Nú er ég handviss
um það, að þingmaðurinn þekkir
það eins vel og ég, að þetta eru
einmitt vörur sem eru notaðar
næstum daglega á hverju einasta
heimili, a.m.k. hjá ungu fólki í
landinu í dag, þó í litlum mæli sé,
og þarna var eingöngu verið að
hreinsa út úr tollskránni þær vör-
ur, sem í raun og veru sátu eftir
varðandi háa tollaflokka, þegar
verið er að tala um matvörur, því
að sem betur þá hafa fyrri ríkis-
stjórnir einnig fundið hvöt hjá sér
til þess að reyna að koma til móts
við þessa þætti með því að lækka
tolla á matvörum. Það má segja, að
þarna hafi verið um nokkurs konar
hreinsun að ræða, sem þótti eðli-
legt og sjálfsagt að láta fylgja með.
Það vegur kannske ekki þungt hjá
ríkissjóði, en áreiðanlega munar
hvern mann um, ef lækkað er verð
vöru einnig í þessum þáttum.
Það hefur undrað mig i raun og
veru á þessu sumri, hversu litla
umfjöllun þessi ráðstöfun ríkis-
stjórnarinnar hefur fengið hjá al-
menningi í landinu og sama má
segja um fjölmiðla, fréttamenn,
sjónvarp og aðra. Þarna var kær-
komið tækifæri til þess að kynna
fyrir almenningi, fyrir heimilun-
um, fjölskyldunum, hvað þarna
hafi verið gert, til að koma til móts
við þær.
Það má segja, að öll búsáhöld og
nauðsynjavörur heimilanna, sem
Bandalag jafnaðarmanna:
Ríkisbönkum breytt í
almenningshlutafélög
Fjármálaráðherra telur lög um Seðlabanka þurfa endurskoðunar við
Guómundur Ginarsson (BJ) mælti í gær í Sameinuð þingi fyrir tillögu til
þingsályktunar um að fela rfkisstjórninni að afla lagaheimildar til að selja
Landsbanka íslands, Útvegsbanka Islands og Búnaðarbanka íslands til hlutafé-
laga, enda verði eftirfarandi skilyrðum fullægt: 1) Kaupandinn sé hlutafélag
með meira en 1000 hluthöfum og má enginn hluthafi eiga meira en tvo af
hundraði hlutafjár. 2) Kaupandi setji fullkomnar tryggingar fyrir skuidbinding-
um bankans. 3) Söluverð sé viðunandi fyrir ríkissjóð. 4) Kaupanda verði
einungis heimilt að kaupa einn banka.
• Guðmundur Einarsson (Bj)
taldi það bjóða spillingu heim að
stjórnmálaflokkar hefðu áhrif á
stjórn banka í hlutfalli við kjörfylgi
í kosningum. Hér af leiði að arð-
semismat ráði of litlu um lánsfjár-
stýringu. Bandalag jafnaðarmanna
líti á það sem meiriháttar þrifnað-
arráðstöfun að losa þessar stofnan-
ir undan stýrimennsku stjórn-
málamanna. Það er ekki oftrú á
einkaframtaki sem ræður þessari
tillögu. Hún er nauðvörn fólksins í
landinu.
• Guðrún Helgadóttir (Abl.) taldi
tillöguna engan vanda leysa. Orsök
vandans væri hjá Seðlabanka, í
„ónothæfum lögum um Seðlabaka
Islands". Það er nauðsynlegt að
taka af Seðlabanka það pólitíska
vald sem hann hefur, en hann ræð-
ur beinlínis yfir ríkisstjórnum í
landinu. Hún nefndi til varhuga-
verðustu lagagrein alls lagasafsins,
að hennar mati, 4. gr. laga um
Seðlabanka. Guðrún sagði við-
skiptabankana og hvergi nærri
sinna þjónustuhlutverki við al-
menning, sem þó ætti fjármuni sína
þar, bæði launareikninga og inn-
legg lífeyrissjóða, en þyrfti að koma
skríðandi í bankana, ef hann þyrfti
einhverrar fyrirgreiðslu með. Mikið
skorti á háttvísi banka við fólkið í
landinu.
• Jón B. Hannibalsson (A) kvaðst
sammála markmiðum tillögu-
manna, en hafa athugasemdir um
leiðir og verklag. Hann væri hins-
vegar ósammála Guðrúnu um aukin
pólitísk bönd á bankakerfið. Gera
þarf skörp skil á milli stjórnmála
og stýringar lánsfjár. Hann minnti
á að Eyjólfur Konráð Jónsson hefði
nokkuð á annan áratug talað fyrir
hliðstæðum leiðum; að laða al-
menning til þátttöku í atvinnulífinu
með almenningshlutafélögum. Hér
er lagt til að breyta ríkisbönkum í
almenningshlutafélög.
Jón Baldvin sagði þingflokk Al-
þýðuflokks vinna að frumvarps-
smíð, annarsvegar um afnám
Framkvæmdastofnunar, Fram-
kvæmdasjóðs og Byggðasjóðs,
hinsvegar um uppstokkun sjóða-
kerfis og samruna og möguleika á
að koma því fyrir innan bankakerf-
isins.
• Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, taldi lög um Seðlabanka
þurfa endurskoðunar við. Af máli
ráðherra mátti ráða efasemdir
hans um lögrétt Seðlabanka til
sumra þátta vaxtaákvörðunar.
Hann minnti og á að Seðlabankar
skili víða hagnaði til viðkomandi
ríkis.
Fjármálaráðherra sagðist hafa
tekið ríkisbanka (viðskiptabanka)
inn í tillögur sínar um ríkisfyrir-
tæki, sem selja mætta, en ríkis-
stjórnin ætti eftir að fjalla um þær
hugmyndir.
• Stefán Benediktsson (Bj) taldi
ríkisstjórnir ekki hafa framfylgt
lögum um raunvexti frá 1979. Hann
vitnaði til greina Ólafs prófessors
Björnssonar í Mbl., þar sem lýst
væri, hvem veg hagstjórn landsins
Guðmundur Einarsson
færi forgörðum, m.a. vegna þess að
Seðlabanki tæki fé inn um fram-
dyrnar til festingar, sem út af fyrir
sig væri hægt að réttlæta, en iánaði
það síðan út um bakdyrnar, þann
veg að stjórnunin færi úr böndum.
Varðandi ummæli Guðrúnar
Helgadóttur, sagði hann efnislega:
Bandalag jafnaðarmanna ætlar sér
ekki það hlutverk að útrýma spill-
ingu í eitt skipti fyrir öll, en það vill
sýna heiðarlega viðleitni í að
þrengja kost þess fyribæris.
Salóme Þorkelsdóttir
hér hafa verið taldar, hafi lækkað
um 20—22%. Við getum nefnt einn
pott, eina pönnu, ef hún kostaði
1500 kr. fyrir, þá lækkaði hún um
a.m.k. 300 kr. og mér er kunnugt
um verslun í Reykjavík, sem selur
slíkar vörur eingöngu að eftir að
þessi bráðabirgðalög voru sett, þá
voru allar vörur í þeirri verslun
lækkaðar um 20%.
Ég get ekki séð að það sé hægt að
gagnrýna svona aðgerðir. Það er
sjálfsagt að gagnrýna, þegar
ástæða er til, en mér finnst einnig
sjálfsagt að þakka það, sem vel er
gert. Og ég er sannfærð um að
heimilin í landinu, það fólk sem fer
í verslanir og þarf að viða að sér
einhverjum vörum til heimilanna,
kann vel að meta þetta.
Ég er hér með lista og ég gæti
talið upp þær verðlækkanir, sem
áætlað var að yrðu á útsöluverði
þessara vara, sem hér eru nefndar.
Ef við tökum vörur eins og þurrk-
aðar döðlur og nýjar þurrkaðar
fíkjur, sem Eiður Guðnason gerði
heldur lítið úr í blaðagrein í Dag-
blaðinu Vísi, þá lækkuðu þær um
17%.
Borðbúnaðurinn og aðrar slíkar
vörur hafa lækkað í söluverði um
21—22% og ég held að það hljóti
allir að gera sér grein fyrir því, að
þetta var virkilega þess virði, að
gert væri, þegar svo stendur á í
þjóðfélaginu, eins og nú er. Og við
skulum heldur ekki gleyma því,
hvernig málin hefðu staðið, ef ekk-
ert hefði verið að gert, verðbólgan
hefði fengið að blómstra áfram, ef
við getum talað um það að hún
blómstri, við skulum segja bólgna,
þá getum við rétt hugsað okkur,
hve margir dagar hefðu liðið þang-
að til að öll sú kauphækkun sem
átti að koma 1. júní og mikið hefur
verið talað um að ekki hafi komið,
hefði verið uppbrunnin."
Þingkjörin nefnd sérfræðinga:
Kanna þarf orsakir
hins háa orkuverðs
Jóhanna Sigurðardóttir:
Réttur heimavinn-
andi til lífeyris
Jóhanna Sigurðardóttir (A)
mælti sl. fimmtudag fyrir tillögu til
þingsályktunar um rétt heimavinn-
andi til lífeyris, gagnkvæman
makalífeyri og upplýsingaskyldu
lífeyrissjóða.
Tillagan miðar að:
• í fyrsta lagi að komið verði á
samræmdum ákvæðum allra líf-
eyrissjóða um makalífeyri á
þann hátt að bæði kynin njóti
sambærilegra réttinda til maka-
lífeyris.
• 2) í öðru lagi að þann veg
verði farið með lífeyrisgreiðslur
hjóna og sambúðarfólks að frá-
skildir og heimavinnandi fari
ekki varhluta af áunnum lífeyri.
• 3) í þriðja lagi að lífeyris-
sjóðir sendi sjóðsfélögum árlega
greinargerð um meginatriði, er
varða viðkomandi sjóð og rétt
sjóðsfélaga.
— sagöi Eiður Guðnason á Alþingi í gær
Eiður Guðnason (A) mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar, þessefnis,
að ríkisstjórnin skipi nefnd 3ja óháðra sérfræðinga til að kanna og skila
Alþingi skýrslu um orsakir hins háa raforkuverðs til almennings hér á landi
og tillögum til úrbóta.
• Eiður Guðnason (A) kvað raf-
orkuverð hér verulega hærra en
erlendis, þar sem skilyrði til raf-
orkuframleiðslu væru þó víðast
verri. Það væri alvarlegt mál ef
raforka framleidd með afli ís-
lenzkra fallvatna standist ekki
verðsamkeppni við innflutta orku,
svo sem olíu og gas. Veitingahús í
Reykjavík noti, sum hver, gas til
eldunar. Er orsakanna að leita í
óhóflegri skattlagningu orkunn-
ar? Er virkjunarkostnaður óeðli-
lega hár? Ér yfirbygging orku-
kerfisins (Orkustofnun, Lands-
virkjun og RARIK) of mikil? Er
tvíverknaður algengur í kerfinu?
Liggur ástæðan í umfangsmiklu
og dýru dreifikerfi? Og hvað um
allan þann kostnað, í þágu heima-
manna, sem til er orðinn í Húna-
þingi, áður en Blönduvirkjun er
komin á raunverulegt fram-
kvæmdastig?
• Hjörleifur Guttormsson (Abl)
Eiður
saknaði þess að ISAL kæmi ekki
við sögu Eiðs af orkuverði. Hann
velti fyrir sér, hver ætti að kanna
umspurða orsakaþætti, og staldr-
aði við Orkustofnun.
• Sverrir Hermannsson, orkuráð-
herra, kvað ýmsa þætti þessa máls
hafa verið og vera í könnun.
Sjálfsagt væri að gefa viðkomandi
þingnefnd, sem málið fengi til um-
fjöllunar, allar upplýsingar, sem
og Alþingi, eftir því sem rannsókn
gengi fram. Telji Alþingi þörf á
því, að fengnum tiltækum upplýs-
ingum, að setja sérstaka nefnd í
málið, hef ég fyrir mitt leyti ekk-
ert við það að athuga, sagði ráð-
herrann efnislega.
• Páll Pétursson (F) sagði samn-
inga um Blönduvirkun óhagstæða,
bæði fyrir landeigendur og virkj-
unaraðila.
• Ólafur Þ. Þórðarson (F) OG Karl
Steinar Guðnason (A) lýstu yfir
stuðningi við tillöguna.
• Eiður Guðnason þakkaði já-
kvæðar undirtektir. Hann sagði
orkuverð til álvers horfa betur nú
en verið hefði um sinn. Ekki
mætti gleyma því að Búrfells-
virkjun hefði aldrei verið reist af
þeim stórhug, sem raun varð á,
nema vegna þess að markaður
fyrir framleiðsluna var tryggður
með tilurð álversins.