Morgunblaðið - 21.10.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1983
19
25.000 manns hafa
séð „Nýtt líf ‘
Undirbúningur hafinn aö gerð tveggja næstu mynda
Frá því að kvikmyndin „Nýtt líf“
var frumsýnd fyrir 16 dögum hafa
25.000 manns séð hana.
„Fólk á öllum aldri virðist hafa
gaman af myndinni, og einkanlega
er hún vinsæl í sjávarplássum,"
sagði Jón Hermannsson 1 samtali
við Mbl. í gær. „Sýningum á mynd-
inni er lokið í Keflavík og Vest-
mannaeyjum og var metaðsókn á
báðum stöðum. Myndin verður
sýnd á þremur stöðum út á landi
næstu helgi auk þess að vera sýnd í
Reykjavík. Við reiknum með að
tæplega 40.000 manns þurfi að sjá
myndina til að hún beri sig, og er-
um við bjartsýnir á að það náist.
Við erum byrjaðir að undirbúa
næstu tvær myndir, en þær áætl-
um við að taka fyrir næsta vor.
Þráinn Bertelsson leikstjóri mynd-
arinnar, ásamt kvikmyndatöku-
manninum Ara Kristinssyni, er nú
á ferðalagi til að leita að stað fyrir
næstu mynd, sem við köllum
Skammdegi. Það verður spennu-
mynd og ætlum við að notafæra
okkur vetrarveðrið i söguþráðinn.
Verður hún tekin í febrúar-mars,
og næsta mynd strax á eftir i apríl-
-mái. Þá mynd köllum við sem
stendur „Heilbrigt líf“ og verður
hún í stíl við „Nýtt líf“, og mun
fjalla um sömu eða svipaðar per-
sónur. Hugmyndirnar að þessum
myndum liggja fyrir, en handrit
eru ekki tilbúin. Við reiknum með
að „Heilbrigt líf“ verði sýnd á þess-
um tíma að ári, en „Skammdegi"
fyrir áramótin ’84—5.
Skemmtikvöld
í Þórscafé
á til-
friðarmál
tíðarinnar séu hér að nota friðar-
þrá fólksins til framdrattar sjón-
armiðum sínum og ég við ekki
stuðla að því að kirkjan hjálpi til
þess.“
f svipaðan streng tóku þeir Hall-
dór Finnsson, Hermann Þor-
steinsson og séra Halldór Gunnars-
son, en séra Bernharður Guð-
mundsson hvatti til rækilegrar
umræðu um þessi mál. Sömuleiðis
gerði framsögumaðurinn, séra Lár-
us Þorvaldur Guðmundsson, sem
varaði við flokkspólitískum við-
brögðum í friðarumræðunni.
Kirkjuþingi íslensku Þjóðkirkj-
unnar verður fram haldið í dag.
Sinfóníuhljóm-
sveitin
í Borgarnesi
í KVÖLD kl. 21.00 heldur Sinfóníu-
hljómsveit íslands tónleika í fþrótta-
húsinu í Borgarnesi. Stjórnandi verð-
ur tiuðmundur Kmilsson, einsöngvari
Sigríður Klla Magnúsdóttir og ein-
leikari Kinar Jóhannesson.
Efnisskráin verður: Páll ísólfs-
son: Hátíðarmars, Ingi T. Lárus-
son: Tveir sumarsöngvar, F. Mend-
elssohn: Sinfónia nr. 4 í A-dúr (It-
alska sinfónían), G. Rossini: For-
leikur að óperunni „Rakarinn í
Sevilla" — Aría úr óperunni „ösku-
buska“. Inngangur, stef og tilbrigði
fyrir klarínettu og hljómsveit, R.
Sieczynski: Vínarljóð, Joh. Strauss
yngri: Tritsch Tratsch, hraður
polki.
Subaru í 8. sæti
í frétt Morgunblaðsins um toll-
afgreidda bíla fyrstu níu mánuði
ársins féll niður eitt nafn, Subaru,
en alls voru tollafgreiddir 212 bíl-
ar af þeirri gerð á umræddu tíma-
bili, sem jafngildir um 4,61%
markaðshlutdeild. Subaru er því i
8. sæti yfir mest tollafgreiddu og
seldu bílana á fyrstu níu mánuð-
um ársins.
dórsdóttir og Arnar Jónsson, en
alls munu um 60 manns taka
þátt í undirbúningi uppfærsl-
unnar, sem er afar viðamikil og
er í tilefni af 10 ára afmæli at-
vinnuleikhúss félagsins. Sýn-
„My Fair Lady“ á Akureyri
Akureyri, 19. október.
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýnir á föstudaginn í þessari
viku söngleikinn My Fair Lady.
Leikstjóri sýningarinnar er
Þórhildur Þorleifsdóttir og aðal-
leikendur Ragnheiður Stein-
ingar eru áætlaðar fimm daga í
hverri viku, sunnudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga. Leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar er Signý
Pálsdóttir.
VEITINGAHÚSIÐ Þórscafé er nú að
fara af stað með skemmtikvöld í nýju
formi og verða fyrstu skemmtanirnar
í húsinu nú um helgina. Á skemmti-
kvöldunum koma fram leikararnir
Randver Þorláksson og Sigurður Sig-
urjónsson, söngtríóið „Stjúpsystur"
og breski söngvarinn Bobby Harri-
son. llndirleik á skemmtununum ann-
ast hljómsveit hússins, Dansbandið
undir stjórn Þorleifs Gfslasonar, sem
einnig leikur með á saxófón.
Að sögn forráðamanna Þórscafé
verður sem fyrr lögð áhersla á
þjónustu við matargesti, sem að
jafnaði sitja fyrir með borð á
skemmtikvöldunum, en auk þess
gefst gestum kostur á að kaupa sig
sérstaklega inn á skemmtikvöldin
meðan húsrúm leyfir.
Skemmtikvöldin eru byggð upp á
söng „Stjúpsystra" sem syngja lög í
anda gömlu „Andrews-systranna"
og inn á milli fara þeir Randver og
Sigurður með gamanmál. Að lokum
syngur Bobby Harrison nokkur lög
Kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar:
Skiptar skoðanir
lögum varðandi
Leikararnir Randver Þorláksson og
Sigurður Sigurjónsson koma fram á
skemmtikvöldunum í Þórscafé ásamt
söngtríóinu „Stjúpsystrum" og breska
söngvaranum Bobby Harrison.
og að því loknu verður dans við
undirleik Dansbandsins og söng-
konunnar Önnu Vilhjálms.
MIKLAR umræður voru um friðar-
mál á kirkjuþingi í gær er séra Lárus
Þorvaldur Guðmundsson mælti fyrir
þremur tillögum varðandi þau mál.
Tillögurnar lagði hann fram ásamt
biskupi, vígslubiskupum og séra Jóni
Kinarssyni. Séra Þorbergur Krist-
jánsson lagði hinsvegar til að tillög-
unum yrði vísað frá, þar sem þær
Morgunbladið/ Ol.K.M.
Forsvarsmenn iðnfyrirtækja í Vík utan við Kjarvalsstaði í gær, þar sem iðnsýning þeirra verður um helgina.
Iðnsýning Víkurfyrir-
tækja á Kjarvalsstöðum
IÐNAÐARFYRIRTÆKI í Vfk í
Mýrdal, átta talsins, efna um helg-
ina til kynningar á framleiðslu sinni
á Kjarvalsstöðum í Reykjavík. Hefst
sýningin í dag kl. 14 og lýkur á
sunnudagskvöld, 23. október. Þetta
er í fyrsta skipti, sem öll fyrirtæki í
plássi utan Reykjavíkur kynna fram-
leiðslu sína á þennan hátt í höfuð-
borginni.
Vaskur hópur kvenna úr Vík
mun syngja létt lög og frískandi
við setningarathöfnina í dag.
Kalla þær sig „Bláu dísirnar", að
sögn Árna Johnsen, alþing-
ismanns Sunnlendinga, sem átti
frumkvæði að þessari iðnsýningu
Víkurbúa.
Sýningin er öllum opin. Fyrir-
tækin sem kynna eru: Prjónastof-
an Katla, sem kynnir peysur og
jakka; Trésmiðja 3K, sem kynnir
skrifstofuhúsgögn og hurðir; Vík-
urprjón, stærsta sokkaverksmiðja
landsins; Víkurvagnar, sem kynna
sturtuvagna og kerrur; Skálafell,
sem kynnir rafmagnstöflur; Slát-
urhúsið í Vík, sem kynnir slátur
og sviðasultu; Hrafnatindur, sem
kynnir Telemaster rafofna, og
Einar Sverrisson, Kaldrananesi,
sem kynnir rafhitunarkatla.
Meðan á sýningunni stendur
verður viðstöðulaus litmyndasýn-
ing frá Vík í gangi á Kjarvalsstöð-
um. Þórunn Sigríður Þorgríms-
dóttir leikmyndateiknari annaðist
uppsetningu sýningarinnar.
lægju utan verksviðs kirkjuþings skv.
lögum þess. Var tillögunum vísað til
nefndar með dagskrártillögu og verð-
ur fjallað um þær síðar á þinginu.
í fyrstu þingsályktunartillög-
unni er fjallað um stuðning is-
lensku kirkjunnar við hugsjón frið-
arins, hérlendis sem erlendis. Er
þar vitnað til yfirlýsinga Presta-
stefnunnar árið 1982 og einnig til
heimsþingsins „Líf og friður" sem
haldið var í Uppsölum á liðnu vori.
í ályktun þar var sagt, að sporna
yrði við þeim fáránleika að þjóðir
geti skapað sér öryggi með her-
styrk og ennfremur að tilvist
kjarnorkuvopna væru andstæð
vilia Guðs.
I ályktuninni er einnig lögð
áhersla á að kirkjan verði leiðandi
afl í allri friðarumræðu á kristnum
grundvelli, flytji boðskap sáttar-
gjörðar milli þjóða og stuðli að
uppeldi til friðar. Er bent á að
framleiðsla og notkun kjarnorku-
vopna séu ósamrýmanleg kristnum
sjónarmiðum og að afvopnum eigi
að vera liður í nýskipan efna-
hagsmála í heiminum, svo og aukið
réttlæti í samskiptum þjóða.
1 annarri tillögu á kirkjuþinginu
í gær var skorað á ríkistjórn Is-
lands að styðja ályktun ráðstefn-
unnar „Líf og friður“. Þar er m.a.
þrýst á ráðstafanir til útrýmingar
kjarnorkuvopna innan 5 ára og að
stuðlað verði að kjarnorkuvopna-
lausum svæðum í Evrópu og friðar-
lýsingu Norður Atlantshafsbanda-
lagsins. Þá er hvatt til þess að út-
gjöldum vegna hernaðar verði
beint að friðsamlegri framleiðslu,
sérstaklega með þarfir hinna fá-
tækustu í huga.
I þriðju tillögunni er lýst yfir
virðingu fyrir hinum nýstofnuðu
friðarsamtökum kvenna, lista-
manna og lækna hérlendis.
Sem fyrr segir mælti séra Þor-
bergur Kristjánsson fyrir því að
tillögurnar yrðu teknar af dagskrá,
þar sem þær lægju utan verksviðs
þingsins samkvæmt lögum þess. „I
fyrstu tillögunni" sagði séra Þor-
bergur, „er lýst stuðningi við ótil-
teknar friðarhreyfingar. I þeirri
annarri eru ákveðnar herfræði-
legar tillögur og í þeirri þriðju er
lýst yfir stuðningi, af handahófi,
við tiltekin samtök."
„Hér eru flókin pólitísk deilu-
mál“ sagði séra Þorbergur enfrem-
ur, „flókari en svo að hægt sé að
ræða þau á þessum vettvangi. Ég
óttast að viðsjárverðustu öfl sam-