Morgunblaðið - 26.10.1983, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
„Allt of mikið byggt af versl-
unarhúsnæði í Reykjavík“
— segir Sigurður E. Haraldsson formaður
Kaupmannasamtaka íslands í viðtali við Mbl.
KAUPMANNASAMTÖK íslands hafa lýst yfír áhyggjum sínum með þá
þróun sem átt hefur sér stað undanfarið í höfuðborginni og nágrenni, að
hver stórverslunin á fætur annarri sprettur upp og aðrar eru í undirbún-
ingi. Sagði formaður Kaupmannasamtakanna, Sigurður E. Haraldsson, í
stamtali við Þjóðviljann fyrr í þessum mánuði, að þessi mikia aukning
verslunarrýmis gæti leitt til þess að kaupmenn þyrftu að taka upp
„skrapdagakerfí" eins og tíðkaðist í sjávarútvegi. Hafa Kaupmanna-
samtökin beint þeim tilmælum til borgarstjórnar að úthlutun lóðar undir
verslunarhúsnæði, sem Hagkaup hyggst reisa í Kringlumýri, verði frest-
að. í viðtalinu í Þjóðviljanum lýsti Sigurður því yfír að það viðbótarhús-
næði undir verslanir sem fyrirhugað væri að reisa í Kringlumýri væri
10% aukning alls verslunarrýmis í Reykjavík eins og það var árið 1981.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur-
borgar, ritaði grein í DV þann 12. þessa mánaðar, þar sem hann mót-
tnælir þessari tölu Sigurðar og segir að aukningin sé 4,5% en ekki 10%.
Mbl. ræddi nýlega við Sigurð um þetta mál og eins um afstöðu KÍ til
hugmynda um breytingu á afgreiðslutíma verslana í Reykjavík, sem
mjög hefur verið til umræðu undanfarið.
Sigurður E. Haraldsson, fonnaður Kaupmannasamtaka íslands, í verslun
sinni Elfur á Laugaveginum. Morgunbiaðið/ köe
Gífurleg aukning stór-
verslana veldur okkur
áhyggjum
„Það er rétt, við í Kaupmanna-
samtökunum höfum af því þungar
áhyggjur hve mikið er byggt af
húsnæði undir smásöluverslanir,"
sagði Sigurður. „Við skrifuðum
borgarstjóra bréf í lok júnímánað-
ar þar sem óskað var eftir viðræð-
um við borgaryfirvöld um þessa
þróun. Við höfum nú kynnt borg-
arstjóra okkar sjónarmið og með-
al annars haldið með honum fjöl-
mennan fund þar sem þessi mál
voru rædd.
Það er einkum þessi mikla
aukning stórverslana sem setur að
okkur beyg. Innan skamms verður
opnaður stórmarkaður í Holta-
görðum sem SlS og KRON standa
að. Vörumarkaðurinn hefur ný-
lega opnað stórverslun á mörkum
Reykjavíkurborgar og Seltjarn-
arnesskaupstaðar. Stórt verslun-
arhús er í byggingu inni i Mjódd
og síðast, en ekki síst, er nú rætt
um að reist verði í Kringlumýr-
inni verslunarhúsnæði samtals að
flatarmáli um 30 þúsund fermetr-
ar, að minnsta kosti samkvæmt
skipulagstillögum sem Teiknistof-
an hf. í Ármúla sendi frá sér.
Þetta allt samanlagt er gífurlega
mikil aukning.
í riti sem borgarskipulag gaf út
1981 segir, að á árinu 1981 hafi
húsnæði undir verslanir í Reykja-
vík verið samanlagt um 311 þús-
und fermetrar. Eftir því að dæma
virðist sem þessar byggingar-
framkvæmdir í Kringlumýrinni
þýddu um 10 prósenta aukningu
verslunarrýmis í höfuðborginni.
Formaður skipulagsnefndar hefur
hins vegar haldið því fram í blaða-
grein að þetta sé ekki svo mikil
aukning. Ef það er rétt hjá hon-
um, er það gott, því við hjá Kaup-
mannasamtökunum teljum að
alltof mikið sé byggt af verslunar-
húsnæði í Reykjavík.
Ég hef látið það koma fram
opinberlega að ég telji að verslun-
areigendur á Laugaveginum og í
miðbænum geti haft af því ærnar
áhyggjur, ef svokallað verslun-
arhverfi verði reist í Kringlumýr-
inni. Það hefur verið talað um að
þar gætu risið á milli 30 og 40
smáverslanir í einni þyrpingu. En
ég vil benda á, að síðastliðinn
sunnudag voru þrjár verslanir við
Laugaveginn auglýstar til sölu. Ég
minnist þess ekki að í langan tíma
hafi verið eins mikið af lausu
verslunarhúsnæði við Laugaveg
eins og einmitt núna. Það er því
alveg ljóst að tilkoma verslunar-
þyrpingar í Kringlumýrinni getur
haft hinar alvarlegustu afleið-
ingar fyrir kaupmenn í grónu
verslunarhverfunum."
Leitum eftir stuðningi hjá
pólitískum andstæðingum
jafnt sem samherjum
„Ég hef séð látið liggja að því í
blaðagrein að það sé ámælisvert
að sjónarmið Kaupmannasamtak-
anna komi fram í Þjóðviljanum. I
því sambandi vil ég taka það fram
að Kaupmannasamtökin eru ópóli-
tísk samtök og fulltrúar þeirra
loka ekki á sér munninum ef óskað
er eftir því að þeir láti sjónarmið
samtakanna í ljósi, hver svo sem
fjölmiðillinn er sem f hlut á. Við
sem höfum verið kjörin til trúnað-
arstarfa fyrir kaupmannastéttina
þurfum að leita eftir stuðningi við
hagsmuni okkar stéttar og reynsl-
an hefur kennt okkur að athafnir
fylgja ekki alltaf orðum stjórn-
málamanna þegar reynir á stuðn-
ing þeirra við kaupmenn. Einmitt
þessa dagana hef ég verið að blaða
í minningabók um Sigurbjörn f
Vísi, sem var virtur kaupmaður á
sínum tfma og heiðursfélagi
Kaupmannasamtakanna. Hann
segir frá því á einum stað þegar
hann fór ásamt fleirum úr stjórn
Félags matvörukaupmanna á fund
Eysteins Jónssonar, þáverandi
ráðherra. Allir vita að Eysteinn
var fyrst og fremst stuðn-
ingsmaður samvinnuhreyfingar-
innar, en engu að siður leitaði Sig-
urbjörn og hans meðstjórnarmenn
til hans til að ræða aðkallandi
vandamál kaupmanna á þessum
tfma. Þetta sýnir að þeir sem axla
þá ábyrgð að vinna að hagsmuna-
málum kaupmanna verða að súa
sér til pólitískra and-
stæðinga jafnt sem samherja þeg-
ar þeir leitast við að gæta hags-
muna stéttarbræðra sinna. En úr
þvi Þjóðviljinn var nefndur, er
þess skemmst að minnast að ýms-
ir forystumenn í launþegahreyf-
ingunni, svo sem Magnús L.
Sveinsson, Björn Þórhallsson og
Bjarni Jakobsson, hafa sett fram
skoðanir sínar á síðum þess
blaðs."
Erum á móti meiriháttar
breytingum á afgreiöslu-
tíma verslana
„Varðandi hugmyndir um
breyttan afgreiðslutíma verslana
er afstaða Kaupmannasamtak-
anna skýr,“ sagði Sigurður. „Við
erum á móti meiriháttar breyting-
um í þessum efnum. Þessi afstaða
mótast af tvennu. I fyrsta lagi
finnst okkur ekkert vit í því að á
meðan þróunin í þjóðfélaginu er
almennt í þá átt að vinnutími
fólks styttist, þá séu settar fram
kröfur um að kaupmenn auki sinn
vinnutíma. Þeir sem um þessi mál
fjalla, þurfa að átta sig á þvi að
leyfilegur verslunartími í Reykja-
vík er nú 62 tímar á viku. Á sama
tíma eru barikar, sem eru að
nokkru leyti hliðstæðar þjónustu-
stofnanir, opnir 35 tíma á viku. Og
ýmsar opinberar skrifstofur hafa
opið allt niður f 25 tfma á viku. En
svo er rætt um það að lengja af-
greiðslutíma verslana upp í 70
tíma á viku, sem er tvöfalt lengri
tími en bankar hafa opið. Þetta
verða menn að hafa i huga.
Nú kynnu sumir að benda á, að
ekki sé verið að tala um að skylda
kaupmenn til að hafa lengur opið,
aðeins gefa þeim kost á því. En
staðreyndin er sú, að í fram-
kvæmd vill þetta verða þannig að
sá sem lengst hefur opið dregur
hina á eftir sér. Á þetta sérstak-
lega við um matvörukaupmenn,
enda brennur þetta mál heitast á
þeim. Og sporin hræða í þessu
efni. Menn muna þann tíma þegar
verslanir í Reykjavík voru opnar
næstum því ótakmarkað, og ég
held að fæstir vilji að sá tími
renni upp aftur.
I annan stað erum við í Kaup-
mannasamtökunum mótfallnir
lengingu verslunartíma vegna
þess að það hlýtur að hafa í för
með sér aukinn tilkostnað. Launa-
kostnaður eykst og fyrr eða síðar
kemur þessi hækkun fram í vöru-
verði.
Ég held að krafa manna nú um
lengri verslunartíma sé byggð á
röngum forsendum. Annars vegar
stafar hún af þvi að verslanir í
nágrannasveitarfélögum Reykja-
víkur sjá sér hag f þvf að hafa opið
þegar lokað er í Reykjavík. Þessi
ávinningur dytti niður, ef alls
staðar væri opið á sama tíma.
Hins vegar er krafan fram komin
vegna þess að neytendum er ekki
gerð grein fyrir því að lenging
verslunartíma hlýtur að koma
fram í hækkuðu vöruverði. Ég á
bágt með að trúa þvf að almenn-
ingur vilji kaupa lenginguna svo
dýru verði,“ sagði Sigurður E.
Haraldsson að sfðustu.
Kaupmannasamtök íslands
Kaupmannasamtök Islands eru
þriðju stærstu samtök atvinnu-
rekenda í landinu, með um 600 fé-
lagsmenn. Aöeins Vinnuveitenda-
samband íslands og Landssam-
band iðnaðarmanna eru fjölmenn-
ari. KÍ eru samtök kaupmannafé-
laga í landinu, sem eru f kringum
20 talsins. Að sögn formanns KÍ,
Sigurðar E. Haraldssonar, fjölgar
félögunum hægt og bítandi, og er
ekki lengra sfðan en um hálfur
mánuður að nýtt kaupmannafélag
var stofnað, Kaupmannafélag Norð-
urlands vestra. Formaður þess var
kjörinn Karl Sigurgeirsson, kaup-
sýslumaður á Hvammstanga. Kaup-
mannafélög eru nú starfandi alls
staðar á landinu nema á Vestur- og
Suðurlandi.
Sigurður sagði, að á sl. árum
hefði Kl lagt hart að kaup-
mönnum um að gerast félags-
bundnir og vinna þannig stétt
sinni gagn með félagslegu átaki.
„Það skiptir sköpum um hag
kaupmanna að þeir starfi saman í
lifandi samtökum frekar en að
vera einangraðir að bauka hver í
sínu horni,“ sagði Sigurður.
„Enda er nánast útilokað að þoka
nokkrum málum áfram í þjóðfé-
laginu nú á dögum nema myndist
ákveðin samstaða og samvinna
þar um. Þó verður það að játast
að nokkur brögð eru að því að
kaupmenn séu ekki félagsbundn-
ir, að menn hliðri sér hjá þvf að
standa straum af kostnaði við
rekstur Kaupmannasamtakanna
og hinna ýmsu félaga, en njóti þó
góðs af starfi þeirra. En sem bet-
ur fer skilur þorri atvinnurek-
enda nauðsyn þess að starfa inn-
an slíkra samtaka," sagði Sigurð-
ur E. Haraldsson.
Um næstu helgi verður haldin
formannaráðstefna Kaupmanna-
samtakanna f hótelinu f Borgar-
nesi. Eru formenn allra kaup-
mannafélaganna boðaðir og verð-
ur rætt um innra starf félaganna.
Egilsstaðir:
Vetur heilsar
EgilHtMam, 23. október.
VETUR konungur heilsaði hér um
slóðir með stinningskalda og rign-
ingarsudda eða slyddu, sem varð
að byl er Ifða tók að kvöldi fyrsta
vetrardags.
Talsverð ofankoma var í nótt
og jörð því alhvít er menn risu
úr rekkju í morgun.
í morgun var strekkingur og
nær 6 stiga frost, en upp úr há-
degi skein sól og hið fegursta
vetrarveður komið.
Götur á Egilsstöðum eru flug-
hálar eftir ofankomuna og eins
vegir á Héraði. Ekki er þó vitað
um nein umferðaróhöpp og
bændur á Héraði sem héldu sína
árlegu hátíð i Valaskjálf f gær
komust klakklaust til sfns
heima í nótt að lokinni góðri
skemmtan.
Ryðja þurfti Egilsstaðaflug-
völl í dag eftir snjókomu nætur-
innar. öuöir
Veturinn er genginn í garð á Austurlandi. Morgunbia&ið/ óiafur