Morgunblaðið - 26.10.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
39
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins:
Markaðsmöguleikar á írlandi
fyrir íslenskar fiskvinnsluvélar
Útflutningsmiðstöd iðnaðarins
bauð nýlega hingað til lands dönsk-
um ráðgjafaverkfrKðingi, Freddie
Pedersen, til að kynna þau Ueki sem
hér eru framleidd fyrir fiskiðnað.
„Útflutningsmiðstöðin vinnur
nú að því að komast með þessi
tæki inn á nýja erlenda markaði,
og bindum við miklar vonir við
þessa heimsókn verkfræðingsins
hingað, og teljum hann geta orðið
hjálplegan við útflutning á ís-
lenskum vélum og tækjum til
fiskiðnaðar til írlands," sagði
Björn Birgisson markaðsráðgjafi
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins
á blaðamannafundi á fimmtudag.
„Freddie hefur unnið í 12 ár við
að hanna og selja heildarlausnir á
tækjum til matvöruiðnaðar, svo
sem niðursuðu og fiskiðnaðar.
Hann rekur nú eigið fyrirtæki á
Irlandi, og hefur í þessari heim-
sókn skoðað vélsmiðjur sem fram-
leiða tæki fyrir fiskiðnað, og
fiskvinnslufyrirtæki þar sem tæki
þessi eru í notkun. Leist honum
yfirleitt mjög vel á það sem hann
sá og hefur trú á að mörg tækj-
anna megi selja á írlandi. Má þar
nefna flokkunarvél sem Stál-
vinnslan hf. framleiðir, og hann
hefur keypt áður, fiskkassaþvotta-
vél frá Ofnasmiðjunni, hausskurð-
arvél frá Kvikk sf. og plastvöru-
palla frá Sæplast, sem hann telur
geta valdið byltingu i sambandi
við matvöruiðnað vegna hreinlæt-
isvandræða sem notkun trévöru-
palla skapa. Er hann yfirleitt
ánægður með smíði og frágang
vélanna, en telur að endurbæta
þurfi hönnun á sumum þeirra með
auðveldari þrif í huga.
Það kom honum á óvart að sjá
öll þessu litlu fyrirtæki hér með
sérþekkingu á mjög afmörkuðum
sviðum, og finnst honum vanta
fyrirtæki sem hefur þekkingu til
að hanna og selja heildarlausnir
alfarið héðan, og telur það nauð-
synlegt vegna útflutnings, því það
er erfitt eða útilokað fyrir þessi
litlu fyrirtæki að koma vöru sinni
á markað einni sér erlendis.
Freddie mun væntanlega eiga
stóran þátt í að opna markaðinn
fyrir þessi tæki á írlandi, því hann
reiknar með að geta notað islensk
tæki í stóran hluta af þeim
vinnslulínum sem hann hannar i
framtíöinni. Og það sem gerist
næst í þessu máli er að maður frá
okkur mun fara til frlands í byrj-
un desember og kynna sér, með
aðstoð Freddie, irskan fiskiðnað
og útgerð.
En framtíðarverkefnið mun fel-
ast í því að stofna fyrirtæki af
fyrrnefndu tagi, því óhætt er að
fullyrða að engin verulegur út-
flutningur verður á íslenskum
tækjum fyrr en við erum farnir að
bjóða heildarlausnir.
Fri vinstri: Hanne Pedersen, Björn Birgisson og Freddie Pedersen.
FRAM
TOLVUSKOLI
34. ársþing Landssambands hestamannæ
Enn reynt við
lagabreytingar
NÆSTKOMANDI föstudag og laugardag verður haldið 34. ársþing Lands-
sambands hestmannafélaga. Þingið er að þessu sinni haldið í Borgarnesi og er
það hestamannafélagið Faxi í Borgarnesi, sem sér um þinghaldið. Alls hafa
borist i skrifstofu LH tuttugu og fjórar tillögur og ber þar hæst tillögu fri
laganefnd um breytingar i lögum LH. Á síðasta þingi var lögð fram tillaga um
lagabreytingar, en henni var vísað fri með dagskritillögu. Tillögur þessar voru
sendar út til hestamannafélaganna f sumar til kynningar. Að sögn fram-
kvæmdastjóra LH, Sigurðar Kagnarssonar, hafa ekki orðið verulegar breyt-
ingar i tillögunni fri því í fyrra, en hinsvegar mi búast við að einhver breyting
verði i í nefnd i sjilfu þinginu.
Á síðasta þingi voru samþykktar
breytingar á reglum um úrslit í
gæðingakeppni. Þessar breytingar
hafa ekki mælst vel fyrir og var
meðal annars ekki farið eftir þeim
á fjórðungsmótinu á Melgerðismel-
um nú í sumar. Hafa komið fram
tvær tillögur um að breytt verði
aftur um form.
Eins og áður sagði verður þingið
að þessu sinni i Borgarnesi, nánar
tiltekið á Hótelinu í Borgarnesi, og
munu þingfulltrúar gista þar og í
sumarhúsunum i Munaðarnesi.
Þingið hefst um hálf ellefu á föstu-
dagsmorgun og áætlað að því ljúki
um klukkan átján á laugardags-
kvöld. Þess má einnig geta að rútu-
ferð verður frá Umferðarmiðstöð-
inni í Reykjavík kl. 7.30 á föstu-
dagsmorgun fyrir þingfulltrúa.
Þessir krakkar færðu fyrir nokkru Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi 370
kr., sem var igóði af Mutaveltu, sem þau efndu til. Krakkarnir heita Bóas
Bóasson, Berglind G. Sveinsdóttir, Kolbrún Hikonardóttir og Edda María
Vignisdóttir.
Allt frá stofnun skólans hefur þaö veriö markmiö þeirra sem aö
Framsýn standa aö veita almenna grunnþekkingu um tölvur, upp-
byggingu þeirra, helstu geröir og notkunarmöguleika og á þann
hátt aöstoöa þá sem auka vilja atvinnumöguleika sína og tryggja
framtíö sína á öld tæknivæöingar og tölvuvinnslu.
Til þess aö geta komiö til móts viö óskir hins fjölbreytilega hóps
sem til skólans sækir hefur stööugt orðiö aö auka fjölda og fjöl-
breytni námskeiöa skólans.
í dag heldur skólinn tölvunámskeiö á öllum stigum, allt frá
almennum grunnnámskeiðum til flókins framhaldsnáms. Komiö
hefur veriö á sérstökum hópnámskeiöum fyrir starfshópa, stéttar-
félög, fyrirtæki og stofnanir. Einnig hefur veriö efnt til almennra
námskeiöa víöa um land sem og sérstakra starfskynningar-nám-
skeiöa fyrir unglinga.
Nemendur skólans eru á öllum aldri úr öllum starfsstéttum, meö
mismunandi menntun aö baki og hvaöanæva af landinu. Stööugur
straumur nýrra nemenda sýnir svo ekki veröur um villst aö Fram-
sýn er tölvuskóli meö tilgang og nám viö skólann hentar allra
þörfum.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 91-39566 alla virka daga
milli klukkan 13.00 og 18.00.
TOLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTIP ÞINNI
Tölvuskólinn Framsýn, Síðumúla 27, pósthólf 4390,124 Reykjavík. Sími 39566.