Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 11

Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 43 Átta landa keppnin í Ósló: íslenska sveitin Útbreiðsla heila- og lifrarbólgu í refum könnuð: Blóðsýni send til rannsóknar BLÓÐSÝNI úr refum á fjölmörgum refabúum um land allt, sem nú er verið að taka, verða send til rannsóknar í Noregi til að ganga úr skugga um hvort heila- og lifrarbólga sú sem komið hefur upp á einu refabúi sunnanlands og sagt hefur verið frá hér í blaðinu, sé eingöngu í þessu eina búi eða hvort hún sé víðar. Eggert Gunnarsson, dýra- læknir á Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði á Keldum, sagði í samtali við Mbl. að menn „óttuðust hálfpartinn" að veikin væri víðar, þótt hennar hefði ekki orðið vart fyrr, því sýkingin gæti dulist lengi áður en hún gerði skaða í búunum. Þess vegna væru blóðsýnin nú tekin og þau send til dýralæknastofn- unarinnar í Ósló til mælingar á mótefnum svo mögulegt verði að hefta útbreiðslu veikinnar. Sagði Eggert að sýkingar hefði ekki orðið vart á öðrum búum, en vegna þess hvernig veikin lýsti sér í dýrunum, fengist ekki úr því skorið fyrr en eftir mótefna- mælingar. Krufningu og rannsókn á hræ- um þeirra yrðlinga sem drápust úr veikinni er lokið og sagði Egg- ert að niðurstöður sýndu að hér væri um heila- og lifrarbólgu að ræða og fengust þær staðfestar með rannsókn á sýnum sem send voru til rannsóknar í dýralækna- stofnuninni í Ósló. Aðalfundur Félags háskólakennara var haldinn nýlega I Skólabæ. Formaður var kosinn dr. Páll Skúlason próf. og aórir í stjórn eru Bryndís Brandsdóttir, Björn Þ. Guðmundsson, Eggert Briem og Stefán Ólafsson. Á fundinum kom fram að fjárhagur félagsins er bágur, m.a. kostaði sextándi partur í gufubaðsstofu að Brekku kr. 48 þús. Ljósm.: G.T.K. hafnaði í 3.—4. sæti ÍSLENSKA SKÁKSVEITIN í átta landa keppninni í Osló beið mikið afhroð gegn Dönum í síðustu umferð keppninnar og féll úr efsta sæti á mótinu niður í þriðja til fjórða sæti. Pólverjar urðu sigurvegarar, en Danir náðu öðru sæti. Þessi árangur íslensku sveitarinnar er þrátt fyrir þetta sá besti sem landslið okkar hefur náð í þessari keppni, sem áður nefndist sex landa keppnin. ÍJrslit í sjöundu og síðustu umferðinni urðu þau að Pólverj- ar unnu V-Þjóðverja 4—2, Norð- menn unnu Færeyinga 4V4—1V4, Svíar sigruðu Finna 4—2 og Danir íslendinga 4V4—1V4. Úr- slit einstakra skáka í þeirri við- ureign urðu þau að Holm vann Guðmund Sigurjónsson, Hoi vann Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson vann Erik Pedersen og Sloth vann Jóhann Hjartarson. Á kvennaborðinu tapaði Áslaug Kristinsdóttir fyrir Ninu Hei- berg og á unglingaborðinu lauk skák þeirra Karls Þorsteins og Schandorfs með jafntefli. Þegar fyrstu setunni var lokið leit út fyrir algjört afhroð ís- lensku sveitarinnar, því þá var staðan 4—0 fyrir Dani, en þeir Helgi og Karl lögðu sig alla fram i biðskákunum og björguðu því sem bjargað varð. Lokastaðan á mótinu varð sem hér segir: 1. Pólland 26 v., 2. Danmörk 25V6 v., 3.-4. ísland og Svíþjóð 24Vi v., 5.-6. Noreg- ur og V-Þýskaland 22 Vi v., 7. Finnland 16'á v., og 8. Færeyjar 6 v. Bestum árangri á landsliðs- borðunum fjórum náði Helgi Ólafsson, sem hlaut 5 Vfe v., af 7 mögulegum. Á kvennaborðinu sigraði Pia Cramling með 6V4 v., sem var jafnframt besta hlutfall allra keppenda og á unglinga- borðinu nægði 4V6 v. Berge Öst- enstads frá Noregi til verðlauna þar. Ef íslenska sveitin hefði að- eins gert 3—3 jafntefli við Dani í síðustu umferð hefði það nægt til sigurs á mótinu, því í inn- byrðis viðureign hennar við Pólverja sigruðu íslendingar. Sjafttar• yndi t naúur ástalifsins Sjafnaryndi endurútgefið hjá Erni & Orlygi BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur endurútgefið bókina Sjafn- aryndi — unaður ástalífsins skýrður í máli og myndum — sem Alex Comfort ritstýrði en þýðinguna gerði Stefán Jökulsson. í bókinni eru 48 litmyndir og meira en 100 teikningar. Á bókarkápu segir m.a. að Sjafnaryndi sé einstæð bók um samskipti kynjanna, og höfundar fjalli um hina ýmsu þætti kynlífs- ins af reynslu og þekkingu. Bókin kom fyrst út árið 1972. Þessi mynd er tekin í Myndsjá, myndbandagerð sem starfað hefur í rúmt ár og hefur aðsetur að Skálholtsstíg 2a. Myndsjá sér um myndbandaupptökur og fjölfoldun yfir á myndbönd auk þess hefur hún gert auglýsinga- og kynningarmyndir fyrir fyrirUeki og tekið upp fræðsluefni fyrir ýmsa aðila. Eigendur Myndsjár eru Eiríkur Sigurbjörnsson og Sverrir Sverrisson. Áhugafólk um friðar- og afvopnunarmál Heimsfriðarráðið Stefna þess og starf Fundur veröur haldinn í dag, miövikudag, 26. október, kl. 20.30 í fundarsal Tannlæknafélagsins að Síðumúla 35. Á fundinn mæta og ræöa starf og stefnu Heimsfriðarráösins og starfsemi friöarhreyfinga í heimalöndum sínum Romesh Chandra, forseti Heimsfriðarráösins, Vinie Burrows, fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóö- unum (frá Bandaríkjunum), Veronica Sieglin frá Þýska sambandslýöveldinu, Carl- Oscar Rosschou, starfsmaöur Heimsfriöarráösins (frá Danmörku). Fundurinn er öllum opinn og eru allir áhugamenn um friðar- og afvopnunarmál hvattir til aö mæta á fundinn og kynnast starfsemi og stefnu stærstu og viðamestu friöar- samtaka sem starfa í heiminum í dag. íslenska friðarnefndin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.