Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
45
Gamalt „náttúrulyf ‘ — nýtt
læknisfræðilegt „undraefni"
— eftir Martein
M. Skaftfells
Hér á eftir fer lauslega þýtt við-
tal, sem blaðamaður við „Hjemm-
et“ átti við Sven Rosengren, yfir-
lækni við héraðssjúkrahúsið í
Halmstad í Svíþjóð. — Rosengren
er 54 ára, en fékk fyrir 10 árum
alvarlega heilablæðingu.
— Hún kom sem reiðarslag,
sagði hann. Ég hafði miklar kvalir
og lá lengi algjörlega lamaður.
Enginn kollega minna reiknaði
með batamöguleikum. Og sem
læknir vissi ég, að líkurnar voru
litlar. Og sem læknir varð ég að
kyngja þeirri beisku staðreynd,
hve þekking okkar, að mörgu leyti,
nær skammt.
Hann var spurður, hvort hann
hefði áður verið í snertingu við
„náttúrleg" lyf. Mjög lítið, sagði
hann, þótt ég væri „opinn" fyrir
öðru en hinu hefðbundna. Og nú
var það ég sjálfur, sem leita varð
nýrra leiða, sem áður voru mér
fullkomlega framandi.
Samhliða venjulegri þjálfun,
var það „náttúrlegt lyf“, sem fyrst
og fremst skilaði árangri, þótt við-
urkenna verði að hann kom ekki
Sigurður Páisson
Mannskilningur
og markmið uppeldis
Smárít Kennarahaskola Islands og Idunnar
ingibjöíg^r Pálniaclóttir u«Indriði Gslasnn þýcidu
Uppcldi
skólastarf
skyndilega. Aðalatriðið á þessu
erfiða tímabili var, að ég öðlaðist
nýja von og trú á, að mér myndi
heppnast að ná vinnufærni á ný.
— Ég hafði lesið enska skýrslu um
tilraunir, sem gerðar höfðu verið
með Pre-Glandin á 6.000
MS-sjúklingum, og með undra-
verðum árangri. Og ég lét mér
detta í hug, að ef til vill gæti þetta
einnig hjálpað mér, og hófst þegar
handa og hef notað Pre-Glandin
síðan. Og hægt og hægt dró úr
lömuninni. Og þótt lömun vinstra
megin hái mér enn, er ég í fullu
starfi.
Blaðamaðurinn bað hann að
skýra í stuttu máli, hvað Pre-
Glandin væri. — Pre-Glandin er
olía unnin úr kvöldrósinni (Oeno-
heralamarckiana), sem Indíánar
N-Ameríku hafa þekkt um aldir
og notað til að græða sár og gegn
mörgum sjúkdómum. Nútíma-
þekking á lækningagildi kvöldrós-
arolíunnar byggist á löngum og
nákvæmum rannsóknum undir
forystu próf. David Horrobin. —
Það kom í ljós, að fræ kvöldrósar-
innar er öllu öðru auðugra af fjöl-
ómettuðum fitusýrum. Og hún
inniheldur hina lífsnauðsynlegu
gamma-linolensýru, sem er feiki-
lega mikilvæg fyrir hormóna-
jafnvægi líkamans. En hún hefur
ekki fundist nema í móðurmjólk-
inni og kvöldrósarolíunni. En
þetta er aðeins hluti f víðtækum
rannsóknum á efnaflokki, sem
kallaður er prostaglandin. En
rannsóknir á honum voru metnar
til Nóbelsverðlauna. Og allt bendir
til, að við séum að nálgast ráðn-
ingu á orsökum fjölda sjúkdóma,
sem einfaldlega geta stafað af
röskun jafnvægis í liffærakerfi
okkar.
Hvað er vísinda-
lega sannað?
Blaðamaðurinn spurði dr. Ros-
engren, hvað vísindalega væri
sannað á „Pre-Glandin-sviðinu“.
— Rosengren benti á, að í hinu
virta breska læknariti „The Lanc-
et“ hefði verið skýrt frá athyglis-
verðum og mjög jákvæðum ár-
angri, af „blindprófunum" bæði á
börnum og fullorðnum Gegn: eks-
emi — astma — ofnæmi — mí-
greni. — Og læknisfræðilegar
rannsóknir, sem nú eru fram-
kvæmdar víða um heim, vekja
okkur vonir gegn mörgum sjúk-
dómum, sem við höfum hingað til
ekki ráðið við.
Prófessor Horrobin hefur, í
samvinnu við aðra vfsindamenn,
séð góðan árangur m.a. gegn háum
blóðþrýstingi — blóðtappa —
kransæðastíflu — gigt — heila-
blæðingu — ofdrykkju — MS og
Parkinsonsveiki — tíðaþrautum
o.fl.
En vantar ekki sannanir fyrir
þessu? spurði blaðamaðurinn. —
Þær liggja svo að segja „á borð-
inu“, svaraði Rosengren. Og sjálf-
ur er ég — bæði sem sjúklingur og
læknir, sannfærður um, að við
stöndum við dyr læknisfræðilegra
undra (medisinsk sensation). Og
hér lýkur viðtalinu við blaða-
manninn.
Ég vil bæta við dæmi. Við St.
Thomas-sjúkrahúsið f London var
gerð tilraun með 60 konur með
miklar tíðaþrautir. „Vonlaus
dæmi.“ Öll ráð lækna höfðu brugð-
ist þeim. En kvöldrósarolfan
læknaði 67% þeirra, og 20% til
rnikilla muna. Dómur þeirra var:
„Dásamlegt" — „Ótrúlegt" —
„mjög ánægð“.
Þótt olían hefði ekkert annað
gildi en að lækna þann fjölda
kvenna, sem líða af tíðaþrautum
(40% segja kannanir), þá væri hún
ÓMETANLEG.
En dæmin eru svo mörg, og mis-
munandi kvillar, sem ekki hafði
tekist að lækna á annan hátt.
Lækningagildi olíunnar verður því
ekki vefengt. Og ég vona að það
gleðji einnig þá, sem reynt hafa að
gera hana tortryggilega. Ekki síst
landlækni.
Nýlega var hringt til mín og
mér sagt frá konu, sem hafði ber í
brjósti, er hvarf, eftir að hún fór
að nota Pre-Glandin (kvöldrósar-
olía). En hún kvaðst ekki geta
sannað, að það væri Pre-Glandin
að þakka. Hitt væri víst, að það
hefði horfið eftir að hún fór að
neyta þess.
Heyrt hef ég um svimaaðkenn-
ingu og suðu fyrir eyrum, sem
horfið hafi, og æðahnútar læknast
með Pre-Glandin. Fleiri dæmi hef
ég heyrt, þótt skammt sé sfðan
innflutningur hófst. Og fyrir
framan mig hef ég grein í sænsku
blaði um alvarlegt eksem sem
Pre-Glandin læknaði. — En þótt
dæmin séu mörg og margvísleg,
megum við gæta þess að alhæfa
ekki. Það er engin allrameinabót
til. En margt mikilvægt samt.
Ljóst virðist, að baráttan gegn
kvöldrósarolíunni er af sama toga
og margra ára barátta sama valds
gegn vítamínum og hliðstæðum
efnum. En óneitanlega er það sér-
stæð heilbrigðisstefna að banna
okkur holl efni, en heilsuskaðlegra
efna megum við neyta að vild í
friði. — Það er þvf vandfundið hið
vitræna og siðræna innihald þess-
arar stefnu. Og líklega jafntor-
skilin lögræna hliðin.
Hvað er lyf?
Lögum skv. eru lyf efni, sem
ÆTLUÐ eru til lækninga. BANN
á vítamínum og steinefnum, sem
framleidd eru og seld til uppbótar
á okkar efnaskertu og menguðu
fæðu, er því BROT á lyfjahugtak-
inu, sem er grundvallaratriði lag-
anna. Ennfremur ótvírætt brot á
69. gr. stjórnarskrárinnar.
Tímabært að taka
í taumana
Það er kominn tími til að hátt-
virt Alþingi fari að dæmi danska
þingsins, sem að vandlega athug-
uðu máli tryggði með lögum —
1975 — að vítamín og áttúrleg lyf
skyldu vera frjáls og óháð apótek-
um. Þetta er svo sjálfsagt, að ekki
þarf um að deila. Frelsi til hins
heilsusamlega — ekki síður en
hins heilsuskaðlega, sem bannend-
ur vítamína hreyfa ekki orði gegn.
Spara fé og heilsu
En Alþingi þarf að gera betur
með fyrirmælum um, að nær-
ingarfræðin verði gerð að einni
aðalgrein í námi lækna. Þá myndi
verða stórbreyting á heilsufari
þjóðarinnar — til bóta.
Til heilbrigðismála rennur stöð-
ugt stækkandi hundraðshluti
þjóðartekna, ÁN þess að almennt
Marteinn M. Skaftfells
„Óneitanlega er það
sérstæð heilbrigðis-
stefna að banna okkur
hollefni, en heilsuskað-
legra efna megum við
neyta að vild í friði.“
heilsufar batni, þensla spítala-
báknsins myndi stöðvast og stórfé
sparast, er nota mætt' til að búa
sjúkrahús sem bestum tækjum til
hjálpar þeim, er þangað þurfa að
leita. — EN þeim þarf að fækka
sem mest með fyrirbyggjandi
starfi. — OG ekki síst með
fræðslu, og aftur frœðslu. Örvandi
— lifandi — talandi fræðslu.
Það er kominn tími til, að full-
trúar okkar á Alþingi taki þessi
mál til RÆKILEGRAR athugun-
ar á sjálfstæðari hátt en hingað
til.
Og vel mega alþingismenn
íhuga orð dansks lögfræðings, sem
ofbauð frekja læknavaldsins —
valdsins — ekki stéttarinnar — og
spurði hvort ekki væri tími til
kominn að stjórn og þing tækju
þessi mál í sínar hendur — með
hagsmuni almennings fyrir aug-
um.
Marteinn M. Skaítfells er fyrrver-
andi kennari og frrrverandi for-
madur Heilsuhringsins.
ÚRFÖRUM FRfíMlANNA
RjUik' KCTinataláJoila Lslands lOunnai
Tvær bækur frá
Iðunni og Kenn-
araháskólanum
TVÆR bækur eru nú komnar út í rit-
röé bókaútgáfunnar Iðunnar og Kenn-
araháskóla íslands. Kru nú komnar út
níu bskur í þeim flokki.
„Mannskilningur og markmið
uppeldis" nefnist bók eftir Sigurð
Pálsson, námsstjóra. Fjallar bókin
um mismunandi viðhorf til manns-
ins, sem mótast af mismunandi hug-
myndakerfum og, að mati Sigurðar,
birtast m.a. í mismunandi viðhorf-
um til uppeldis og menntunar.
Seinni bókin nefnist „Uppeldi og
skólastarf" með undirtitilinn „Úr
fórum fræðimanna". Ingibjörg Ýr
Pálmadóttir og Indriði Gíslason
þýddu bókina úr sænsku, en í henni
eru 23 ritgerðir sem fjalla um til-
tekna uppeldisfræðinga og uppeld-
isstefnur. Sænskir höfundar bókar-
innar eru sextán. Bækurnar eru
prentaðar í prentsmiðjunni Odda.
Verið _
vióbúin
vetrinum
Látid fagmenn okkar undirbúa
bílinn fyrir veturinn.
VETRARSKOÐUNINNIHELDUR: □
□ Skipt um kerti og platínur, athugaðir □
kertaþræðir, kveikjulok og hamar. □
□ Forhitun athuguð og bensínsía □
endurnýjuð. □
□ stillt kveikja og blöndungur. □
□ Stillt reim á rafal.
□ Loftsía athuguð. □
□ Mæld olía á vél. □
MITSUBISHI
MOTORS
Mæld hleðsla og bætt á rafgeymi.
Geymaskór athugaðir.
Stillt kúpling.
Athugað hvort leki sé á kælikerfi.
Frostlögur mældur
Rúðusprautur athugaðar og bætt á ef
með þarf.
Rúðuþurrkur athugaðar.
Ljós athuguð og stillt.
|h|h
|_g__EJLaug
EKLAHF Verd med sölusk.: Kr. 1.369.- Gildir til 15. desember 1983.
Laugavegi 170-172 s.mi 21240 innifalið í verdi: Kerti, platínur, bensínsía og rúðuvökvi.