Morgunblaðið - 26.10.1983, Síða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
Aðalfundur Sambands íslenskra loödýraræktenda:
Hluti fulltrúa á aðalfundi Sambands íslenskra loðdýraræktenda sem haldinn var í Sjallanum á Akureyri fyrir skömmu.
Nýjar samþykktir
fyrir SÍL:
Verður nú
samband
loðdýra-
ræktar-
félaganna
Á aðalfundinum voru gerð-
ar nýjar samþykktir fyrir
SÍL. Grundvallarbreyting
verður á skipulagi sambands-
ins þegar nýju samþykktirn-
ar taka gildi því þær gera ráð
fyrir að Samband íslenskra
loðdýraræktenda verði lands-
samband loðdýraræktarfé-
laga í hinum einstöku héruð-
um. Loðdýraræktendur hafa
hingað til átt beina aðild að
sambandinu.
Loðdýraræktarfélög eru nú
starfandi í flestum héruðum
landsins og að sögn Jóns
Ragnars Björnssonar fram-
kvæmdastjóra SÍL er sérstak-
lega mikilvægt eftir þessa
skipulagsbreytingu að félögin
verði virk í starfi hvert á sínu
svæði. Þá voru einnig gerðar
samþykktir fyrir Hagfeld,
sölusamtök loðdýraræktenda.
Hagfeldur tók til starfa um
síðustu áramót og er tilgangur
félagsins annarsvegar að ann-
ast útflutning og sölu á afurð-
um félagsmanna og hinsvegar
útvega lóðdýraræktendum
hvers kyns rekstrarvörur.
Einnig var samþykkt að taka
upp 1% framleiðslugjald af
útflutningi loðdýraskinna til
að standa undir rekstri sam-
bandsins.
í stjórn SÍL voru kosnir:
Einar E. Gíslason á Syðra-
Skörðugili í Skagafirði, Emil
Sigurjónsson í Vopnafirði,
Haukur Halldórsson í Svein-
bjarnargerði á Svalbarðs-
strönd, en hann er formaður
sambandsins, Jónas Jónsson í
Kálfholti á Rangárvöllum og
Þorsteinn Aðalsteinsson á
Dalvík.
Haukur Halldórsson formaður SÍL
flytur skýrslu sína.
Jón Ragnar Björnsson fram-
kvemdastjéri flytur skýrslu sína.
Refaskinnaframleiðsl-
an fjórfaldast á þessu ári
NOKKURT hik virðist komið á þá
bændur sem höfðu hugsað sér að
hefja loðdýrarækt í haust og fengið til
þess leyfi. Útlit er nú fyrir að aðeins
um helmingur þeirra sem leyfi fengu
byrji í haust. Þrátt fyrir það er útlit
fyrir að útflutningsverðmæti loðdýra-
skinna á komandi söluári verði helm-
ingi meira en var á síðasta ári.
Ástæður þessa minnkandi áhuga
bænda á loðdýraræktinni sagði Jón
Ragnar Björnsson framkvæmda-
stjóri SÍL í skýrslu sinni til aðal-
fundarins að væru fyrst og fremst
þær að leyfi hefðu fengist of seint í
vor, og að óvissa væri með fóður-
framleiðsluna, fjármögnunina og
ástandið almennt. Sagði Jón nauð-
synlegt að gera átak í að hvetja
menn til að hefja loðdýrarækt og
þeir sem þegar væru byrjaðir
stækkuðu við sig. Ákveðin stígandi
í atvinnugreininni væri nauðsynleg
og erfitt gæti verið að ná þessu upp
aftur ef flótti færi að bresta í liðið.
Útflutningsverð-
mæti refa- og minka-
skinna 33 milljónir
Þá hvatti Jón Ragnar menn til að
huga í auknum mæli að minkarækt-
inni, þar fælust miklir möguleikar.
Nú eru í landinu 89 loðdýrabú,
þar af eru 81 eingöngu með ref, 3
eingöngu með mink og 5 blönduð bú
með bæði mink og ref. Á þessum
búum voru 6500 minkalæður síð-
astliðinn vetur og um 4000 refalæð-
ur. Útflutningsverðmæti skinna-
framleiðslu þessara búa var um 16
milljónir. Út voru flutt rúmlega
6000 refaskinn að verðmæti 5,5
milljónir og rúmlega 21 þúsund
refaskinn að verðmæti um 10 millj-
ónir króna. Salan í fyrra gekk hægt
og eru enn ekki öll skinn seld. Mikil
aukning hefur orðið á framboði
refaskinna á hinum vestræna
markaði, sérstaklega vegna gífur-
legrar aukningar framleiðslunnar í
Finnlandi á undanförnum árum.
Vegna þessa varð 25—35% lækkun
á blárefaskinnum en þau eru mik-
ilvægust fyrir íslendinga.
Útflutningsverðmæti þessa árs
framleiðslu er áætlað 32—33 millj-
ónir króna. Búist er við að út verði
flutt 22—23 þúsund refaskinn að
verðmæti 22 milljónir og 22 þúsund
minkaskinn að verðmæti um 11
milljónir króna. Refaskinnafram-
leiðslan verður því að öllum líkind-
um fjórföld miðað við síðasta ár,
minkaskinnaframleiðslan óbreytt
en heildarútflutningsverðmætið
mun að öllum líkindum tvöfaldast
frá síðastliðnu ári. Loðdýrabúunum
fjölgar líklega um 30 og verða þá
120 loðdýrabú I landinu í vetur.
Sýkti stofninn veldur eigendum
hvers bús 3 milljóna tjóni á ári
Vafasamt að leyfi fáist til að skipta um stofna á búunum í haust
MorpBnbUAM/HBj.
Á aðalfundinum kom fram að
pla.smacytose-sjúkdómurinn sem
herjar á minkastofninn á tveimur
stærstu minakbúunum í landinu
veldur eigendum hvors bús
þriggja milljóna króna tjóni á ári.
Samþykkt var að fara fram á fjár-
magnsfyrirgreióslu til að skipta
um minka á búunum tveimur en
ekki er útlit fyrir að leyfi til inn-
flutnings nýrra minka fáist í haust
og var því samþykkt að fara þess á
leit við yfirdýralækni að nota megi
hvolpa frá Loðfeldi á Sauðárkróki,
þar sem skipt var um stofn í fyrra,
til að endurnýja stofninn á öðru
hvoru sýktu búanna strax í haust.
í skýrslu sinni í byrjun aðal-
fundarins sagði formaður SÍL,
Haukur Halldórsson í Svein-
bjarnargerði, að annað af for-
gangs verkefnum í loðdýrarækt-
inni væri að skipta um minka-
stofn á sýktu búunum. Á síðast-
liðnu ári hefði verið skipt um
minka á einu þeirra, Sauðár-
króksbúinu, og virtist hafa tek-
ist að útrýma veikinni þar með
niðurskurði dýranna, sótt-
hreinsun búsins og innflutningi
nýrra dýra í fyrrahaust. Þó teldi
yfirdýralæknir að eina blóð-
prufu enn þyrfti að taka til að
ganga endanlega úr skugga um
árangur. Taldi Haukur að á
sama hátt þyrfti að standa að
útrýmingu veikinnar í búunum
á Dalvík og Grenivík, en ekki
væri útlit fyrir að það tækist í
haust vegna þess að ekki hefði
fengist leyfi til innflutnings
nýrra minka á búin vegna
sjúkdóma sem komið hefðu upp
í þeim löndum sem ætlunin
hefði verið að kaupa minkana
frá.
Þorsteinn Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri minkabús-
ins, Böggvisstöðum á Dalvík,
skýrði frá þeim aukakostnaði
sem búin með sýkta minka yrðu
fyrir á ári hverju. Sagði hann að
vægt reiknað væri kostnaður
hvors bús um sig og tekjutap yf-
ir 3 milljónir á ári vegna sjúk-
dómsins, en þar með væri ekki
öll sagan sögð því sýktu búin
stæðu þróun í minkaræktinni
fyrir þrifum vegna þess að önn-
ur bú væru í hættu á meðan
veikin væri í landinu og menn
væru ragir við að hefja minka-
rækt meðal annars af þessum
ástæðum. Sagði Þorsteinn að
brýna nauðsyn bæri til að skipta
um sýkta stofninn, hann væri
aðeins á tveimur búum, og ef
tækist að útrýma sjúkdómnum
væri ísland orðið með eina
ósýkta minkastofninn og síðar
gætu þá ef til vill skapast mögu-
leikar á útflutningi lífdýra.
Samþykkt var tillaga þar sem
vakin var athygli á nauðsyn
þess að skipta um minkastofn á
sýktu búunum og fjármagnsfyr-
irgreiðslu til þess. Þá var einnig
samþykkt að fara þess á leit við
yfirdýralækni að leyfi fáist til
að nota hvolpa frá minkabúinu á
Sauðárkróki, þar sem skipt var
um minka í fyrra, til að skipta
um minka á öðru hvoru sýkta
búinu þegar á þessu ári, þar sem
ekki er útlit fyrir að hægt verði
að flytja inn minka í haust,
þrátt fyrir að ekki sé endanlega
búið að leysa Sauðárkróksbúið
úr einangrun enn sem komið er.