Morgunblaðið - 26.10.1983, Qupperneq 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
Fyrsti opni þingflokksfundur
Bandalags jafnaðarmanna:
Erum ekki í
neinum sjó-
ræningjaleik
- sagöi einn þingmannanna vardandi
meðferð fyrsta þingmálsins
Fyrsta opna þingDokksfund Bandalags jafnaðarmanna sátu um 20 manns. Þingmennirnir Stefán Benediktsson,
Kristín S. Kvaran, Guðmundur Einarsson og Kolbrún Jónsdóttir sitja fremst á myndinni og lengst til hægri, talið frá
vinstri, í þeirri röð sem þau sitja við borðið. ' Ljósm. Mbl. RAX.
VIÐBRÖGÐIN innan Alþingis við
þingsályktunartillögu okkar um af-
sögn þingmanns hafa einkennst af
því að allir fara varlega í umsögnum.
Við höfum verið spurð af hverju við
gerðum ekki athugasemd við rann-
sókn kjörbréfa á þingsetningardegi.
í fyrsta lagi er enginn formgalli á
kjörbréfinu sjálfu. Þá er þingsetn-
ingarathöfnin í ævagömlu formi og
við erura ekki í neinum sjóræningja-
leik. Alþingi vill áreiðanlega ræða
þetta mál og við ætlum ekki að gera
þetta að neinni kjötkveðjuhátíð,
sagði Stefán Benediktsson alþingis-
maður m.a. á fyrsta opna þing-
flokksfundi Bandalags jafnaðar-
manna í hádegi, fimmtudag, nýverið,
en til umræðu voru fyrstu þingmál
Bandalagsins.
Hinn fjögurra manna þing-
flokkur Bandalagsins hefur tekið
þá ákvörðun að halda opna þing-
flokksfundi vikulega. Um tuttugu
manns sátu þennan fyrsta fund,
sem var með óformlegum hætti,
engin dagskrá lá fyrir og sagði
þingflokksformaðurinn, Guð-
mundur Einarsson, i upphafi
fundarins, að tilgangurinn væri að
auðvelda almenningi að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri og
fylgjast með starfi þingflokksins.
Bandalagið mun ekki gangast
fyrir fundaherferð um landið, eins
og stjórnmálaflokkarnir flestir
hafa gengist og gangast nú fyrir.
Guðmundur sagði meginstarfið
undanfarnar vikur hafa verið að
undirbúa þingstörf, einnig lands-
fund bandalagsins sem haldinn
verður 4.-6. nóvember í Mun-
aðarnesi. Þá væru útgáfumál og
fjármál sem virtust að hans sögn
ævarandi vandamál allra
stjómmálaflokka ætíð til um-
ræðu. Hann gerði síðan grein fyrir
fyrstu þingmálum Bandalagsins
og þeim málum sem í undirbún-
ingi væru. Þar sagði hann breyt-
ingar á stjórnskipunarlögum sam-
kvæmt stefnuskrá bandalagsins
vega þyngst. Þingmennirnir fjöll-
uðu einnig nokkuð um álit sitt á
þingstörfum og sögðu augljóst að
efnahagsmál, efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar, fjárlaga-
frumvarpið og annað því fylgjandi
yrðu fyrirferðarmest á næstu dög-
um og vikum.
Það kom fram í hvaða fasta-
nefndum Bandalagið á fulltrúa,
einnig að þingflokkurinn fær
áheyrnarfulltrúa í utanrfkismála-
nefnd. Fundargestum lék forvitni
á að vita, hvernig þingmenn hög-
uðu vinnu sinni, hvenær þing-
nefndir störfuðu o.s.frv. Þing-
mennirnir höfðu þegar rekið sig á,
að samvinna við þingmenn ann-
arra flokka um flutning þingmála
o.fl. getur verið í ýmsum myndum.
Komið væri að máli við menn á
formlegum fundum, einnig í kaffi-
stofu Alþingis og jafnvel á bfla-
stæðinu. Þingmennirnir sögðust
þegar hafa gerst meðflutnings-
menn á einstökum þingskjölum,
einnig sagði Stefán Benediktsson
að einn þingmaður úr öðrum
flokki hefði skammað sig fyrir að
fá ekki að vera meðflutningsmað-
ur að tillögunni um sölu ríkis-
banka. Kom fram að Banda-
lagsþingmenn verða meðflutn-
ingsmenn á frumvarpi um lokun-
artíma sölubúða, sem Guðrún
Helgadóttir hafði leitað liðsinnis
við. Sögðu þingmennirnir að þetta
væri sama málið og Vilmundur
Gylfason hefði flutt, en Guðrún
tekið til endurflutnings. Alþýðu-
flokkurinn hefði talið sig eiga
ákveðið tilkall til málsins, þannig
að Guðrún hefði gefið eftir að
verða fyrsti flutningsmaður, —
Kjartan Jóhannsson verður í þvf
hlutverki, að sögn þeirra.
„Pottþéttast" er að ná sambandi
við þingmenn, að sögn eins þeirra,
með því að biðja símastúlku Al-
þingis að koma skilaboðum til við-
komandi þingmanns. Þingmenn
Bandalagsins sögðust vænta þess
að flytja jómfrúrræður sínar
strax á næstu dögum. Þeir hafa
þegar orðið varir við að einstakl-
ingar leita mikið til einstakra
þingmanna, jafnvel þingmanna úr
öllum flokkum f tilraunum til að
leita réttar síns. Voru nefnd dæmi
um mennina sem sátu óverðskuld-
að inni vegna Geirfinnsmálsins og
íbúðabyggjendur í Garðabæ, sem
telja sig hafa gengist undir rang-
láta samninga við húsbyggjanda.
í spurningum manna kom fram
áhugi á hvað liði endurskoðun
nefndar á starfsemi Fram-
kvæmdastofnunar, sem þing-
mennirnir gátu ekki upplýst um,
en töldu unnt að koma fram með
formlega fyrirspurn varðandi
málið til ráðherra ( sameinuðu
þingi. „Verður fulltrúi frá Banda-
laginu á þingi Amnesty Inter-
national?" spurði einn fundar-
gesta. Það mál var ekki frágengið,
en vegna fyrirspurnarinnar voru
menn beðnir að gefa sig fram f
ákveðnum málaflokkum, þvf ljóst
væri að þingmennirnir fjórir gætu
engan veginn annað öllum þeim
boðum sem bærust um setur á alls
kyns þingum, ráðstefnum og fund-
um.
Fjárlagafrumvarpið var rætt og
sögðu þingmennirnir það mikið
verk að fara í gegnum frum-
varpsbókina, en nægilegt væri að
lesa efnisyfirlitið til að sjá að eng-
inn eðlismunur væri á því og fyrri
frumvörpum. Það væri hefðbundið
hvað varðar stjórnkerfisfyrir-
komulagið, það stjórnkerfi, sem
Bandalagið hefði f stefnuskrá
sinni að breyta.
Spurt var hvort væntanleg væri
skoðanakönnun um fylgi stjórnar-
innar, eins og framkvæmd hefði
verið iðulega skömmu eftir þing-
setningu. Þingmönnum var ekki
kunnugt um það, en Stefán sagði
ekki ólíklegt að Steingrfmur Her-
mannsson hefði beðið um ein-
hvern frest, hann hefði verið sér-
lega óheppinn upp á síðkastið. í
kjölfar bílakaupanna hefði hann
móðgað 35 þúsund manns. Spurt
var um afstöðu þingmanna til
þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar að gefa út „áróðursbækling f
70 þúsund eintökum", eins og það
var orðað. Guðmundur Einarsson
sagði þetta mál kannski ekki mál
til að hneykslast á, fremur ætti að
koma því f gegn að fleiri nytu
opinberrar aðstoðar við útgáfu-
mál.
Þá kom og fram á fundinum, að
þingmennirnir hafa fengið í hend-
ur lista yfir kosningar í stjórnir,
ráð og nefndir. Á þessu þingi er
um að ræða 21 kosningu og sögðu
menn að fara yrði rækilega í gegn-
um listann og móta afstöðu
Bandalagsins til þeirra kosninga.
Fundurinn stóð í eina klukku-
stund og verður vikulega eins og
fyrr segir í húsnæði þingflokksins
á Alþingi, að Vonarstræti 8. Hann
er öllum opinn.
F.P.
Bandalag jafnaðarmannæ
Landsfundur 4.—6. nóvember
LANDSFUNDUR Bandalags jafn-
aðarmanna verður haldinn í Mun-
aðamesi 4.—6. nóvember nk. Á
fundinum verður m.a. ákveðið
hvort kosinn verður nýr formaður
Bandalags jafnaðarmanna í stað
Vilmundar heitins Gylfasonar.
Auk ákvarðana um skipu-
lagsmál Bandalagsins verður
starfað í umræðuhópum um
ákveðin afmörkuð málefni. Þá
flytur Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, erindi um „Lýðræði
í verkalýðshreyfingunni". Jónas
Kristjánsson ritstjóri flytur
einnig erindi um „Frjálsa fjöl-
miðla“.
Þingflokkur Bandalags jafn-
aðarmanna hefur ráðið sér
starfsmann, Jónínu Leósdóttur.
Hún verður í hálfu starfi hjá
þingflokknum.
Þrír starfsmanna Arnarflugs á fundi með fréttamönnum í Amsterdam á
dögunum, frá vinstri Halldór Sigurðsson, Stefán Halldórsson og Magnús
Oddsson.
Meðal þess, sem forvitnilegt er að skoða í Amsterdam, er hús Önnu Frank.
Bryndís Valgeirsdóttir bendir þarna á íslenzku útgáfuna af Dagbók Önnu
Frank.
Áætlunarflug Arnarflugs:
Yfir 20 þúsund farþegar hafa
flogið á Amsterdam-leiðinni
FRÁ því að áætlunarflug Arnarflugs til Amsterdam hófst í byrjun júlí á síðasta ári hafa rúmlega 20
þúsund farþegar flogið með félaginu á þessari leið. Mikil áherzla hefur verið lögð á það af hálfu
félagsins að vinna upp þessa flugleið, en minni þungi hefur til þessas verið lagður á kynningarstarf
vegna hinna áætlunarleiða félagsins erlendis, það er til Diisseldorf og Ziirich. Á tvo síðarnefndu staðina
er aðeins flogið áætlunarflug yfir sumarmánuðina en til Amsterdam allt árið og í vetur býður fyrirtækið
ferðir til Kanaríeyja með viðkomu í Amsterdam.
Þegar mestar annir voru í far-
þegaflugi milli Amsterdam og
Keflavíkur í sumar var flogið
fjórum sinnum í viku, en í vetur
verða farnar tvær ferðir í viku.
Á fundi með fréttamönnum á
dögunum sögðu talsmenn Arn-
arflugs að þeirra verkefni hefði í
upphafi verið að koma Amster-
dam og Hollandi inn á ferðakort
íslendinga og greinilegt væri að
árangur hefði þegar náðst í því
starfi. Þá hefði félagið kynnt ís-
land fyrir Hollendingum á
margvíslegan hátt. Áfram yrði
haldið á sömu braut, en næst á
eftir Amsterdam yrði byrjað á
kynningarherferð í Sviss með
Zurich-flugið í huga og síðan
Dússeldorf.
Á fundinum kom fram
óánægja með hvernig því fé er
varið, sem Ferðamálaráð deilir
út til landkynningar í hinum
ýmsu löndum. Nú er miðað við
fjölda farþega, sem koma frá
viðkomandi landi og ákveðinni
upphæð varið til kynningar í
samræmi við fjöldann. Arnar-
flugsmenn vilja ekki miða við
höfðatölu heldur fjölda gisti-
nótta og verja kynningarfénu í
samræmi við það. Þeir nefndu
sem dæmi, að farþegar frá
Bandaríkjunum, sem kæmu til
íslands gistu aðeins í 1—3 næst-
ur, svokallaðir „stop-over“-far-
þegar. Farþegar frá Evrópu
kæmu hins vegar til 2—3ja
vikna dvalar og því bæri að
leggja aukna áherzlu á kynn-
ingarstarf í löndum meginlands
Evrópu. Mál þetta hefur verið
rætt við Ferðamálaráð, en ýmsir
tæknilegir örðugleikar taldir á
að nota þessa aðferð.
Talsmenn Arnarflugs voru
spurðir hvort ferjurnar Edda og
Norrona hefðu haft áhrif á ferð-
ir með flugi til og frá íslandi.
Magnús Oddsson sagði að til-
koma þessara skipa hefði ekki
haft áhrif á ferðir erlendra far-
þega til Islands, það fólk, sem
ferðaðist til fslands með skipun-
um, hefði í fæstum tilfellum far-
ið að öðrum kosti. Stefán Hall-