Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
51
Fjöldahand-
tökur í Tíbet
Lhasa, október 1983.
SÍVAXANDI uppgangur þjóðern-
issinna í Tíbet er Kínverjum mik-
ill þyrnir í augum. Gripu þeir til
þess ráðs að handtaka 500 Tíbeta í
Lhasa, höfuðborg Tíbet, síðastlið-
inn ágúst og var þeim gefið að sök
svartamarkaðsbrask og það að
hafa ekki tilskilin dvalarleyfi und-
ir höndum. Kínverskir embætt-
ismenn hafa þó viðurkennt að
ástæðurnar fyrir handtökunum
séu stjórnmálalegs eðlis.
Uppúr sauð er Kínverjar buðu
hópi af vestrænum blaðamönnum
til Tíbet síðastliðið sumar. Þeim
láðist að skrifa hástemmdar lof-
gerðarromsur um stjórnarafrek
kínversku herraþjóðarinnar. Þess
í stað var mikið fjallað um þögul
mótmæli Tíbeta sem fólust m.a. í
því að brefum var þrýst í lófa
blaðamannanna. Þar var yfirleitt
skorað á Sameinuðu þjóðirnar að
láta málefni Tíbets til sín taka og
styðja baráttu Tíbeta fyrir sjálf-
stæði.
Undanfarin ár hafa Kínverjar
reynt að bæta fyrir þau spjöll sem
þeir unnu á tíbetskri menningu á
árum menningarbyltingarinnar.
Útgöngubanni var aflétt og byrjað
að kenna tíbetsku í skólum lands-
ins. Viðræður voru hafnar við
Dalai Lama, andlegan og verald-
legan leiðtoga Tíbeta, um að hann
sneri heim úr útlegð í Indlandi.
Fyrirhugað var að hann færi í
stutta heimsókn til Tíbet 1985.
Kínverjar vonast til að Tíbetar
verði leiðitamari ef Dalai Lama
dvelur á meðal þeirra.
Útlagastjórn Tíbeta í Dharam-
sala, Indlandi, lítur mjög alvarleg-
um augum á síðustu aðgerðir
kínverskra yfirvalda og vara þeir
Kínverja eindregið við afleiðing-
um slíkrar harðlínustefnu. Hætt
er við að slitni uppúr viðræðum
Dalai Lama og Pekingstjórnarinn-
ar.
Kínverjar hafa birt lista yfir
þrjú þúsund eftirlýsta Tíbeta.
Flestir þeirra hafa það eitt til
saka unnið að hafa heimsótt ætt-
ingja í Indlandi. Mikill ótti hefur
gripið um sig í Tíbet, ekki síst eft-
ir að nokkrir hinna handteknu
voru dæmdir til dauða. Kínverjar
hafa sett á útgöngubann að nýju í
stærstu borgum Tíbet og munu
þeir beita öllum ráðum til að lama
þjóðfrelsisöfl landsins.
(Frétutilkynning frá upplýsingnþjónuHtu
tíbetsku útlagastjórnarinnar c/o Gíali Þór
Gunnarason, Stekkjarflöt 18, Garðab*.)
Reykhólasveit:
Dvalarheimili færðar gjafir
Rejkbélanreit, 24. oktiber.
NÝLEGA er lokið við grunn dvalar-
heimilisins á Reykhólum og er hann
50 fermetrar að flatarmáli. Húsið, sem
þar á að rísa er með 11 íbúðum auk
sameiginlegs rýmis. Smiður var Sigur-
vin Olafsson, Stokkseyri.
Dvalarheimilinu hefur borizt 50
þúsund króna gjöf frá þeim hjónum
Lilju Þórarinsdóttur og Ólafi
Sveinssyni, Grund í Reykhólasveit.
Fyrir þessa gjöf og aðrar gjafir, sem
dvalarheimilinu hafa borizt skulu
gefendum færðar þakkir.
— Sveinn
Amsterdam var í eina tfð vagga evrópskra hippa og enn má finna leifar þessa
tímabils í höfuðborg Hollands. Á myndinni sést „höll“ eins af fyrstu hippun-
um, en hús hans er nú meðal þess sem ferðamönnum er sýnt á ferð um síkin.
dórsson sagði hins vegar að til-
koma skipanna hefði haft
greinileg áhrif á ferðir íslend-
inga til Evrópu. Ásóknin í skipin
og verð það er þar væri í boði
hefði kallað á lægra verð þannig
að þessi samkeppni hefði komið
neytendum til góða.
Leiguflug er snar þáttur í
starfi Arnarflugs og á liðnu
sumri var fyrirtækið með megn-
ið af leiguflugi á vegum ís-
lenzkra ferðaskrifstofa til landa
við Miðjarðarhafið. Halldór Sig-
urðsson sagði að næstu mánuði
væru samningar fyrir hendi, en
í leigufluginu færi samkeppni
harðnandi með hverju árinu.
Arnarflug hefur flogið fyrir
fjölmörg flugfélög og í mörgum
löndum. Nú er fyrirtækið m.a.
með verkefni í Líbýu og Nígeríu.
Framkvæmdanefnd „Gagnvega“ talið frá vinstri: Þór Jakobsson, Agnes IVÍ. Siguróardóttir, Eóvarð lngólfsson og
Níels Árni Lund.
„Gagnvegir“ - unglingar
taki viðtöl við aldraða
UNDIRBÚNINGUR á viðtölum
unglinga við aldraða ísiendinga,
undir yfirskriftinni „GAGNVEGIR"
stendur nú yfír. Að undirbúningnum
standa: barnablaðið Askan, Æsku-
lýðsstarf þjóðkirkjunnar, Æskulýðs-
ráð ríkisins og dr. Þór Jakobsson.
Ætlunin er að unglingarnir eigi stutt
viðtöl við íslendinga, 70 ára og eldri,
afli upplýsinga hjá þeim um líf og
hagi fólks áður fyrr og vinni úr þeim
3—10 blaðsíðna ritgerð.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var vegna undirbúnings
„Gagnvega", kom fram að öllum
unglingum á íslandi á aldrinum
11—18 ára er heimiluð þátttaka.
Sögðust nefndarmenn þess full-
vissir að verkefni sem þetta myndi
auka áhuga ungs fólks á sögu
landsins og lifnaðarháttum fólks
fyrr á tíðum auk þess sem sköpun-
arhæfileikar unga fólksins fengju
að njóta sín. Vonast þeir til að
æskulýðsfélög um allt land, kenn-
arar og forráðamenn unglinga á
aldrinum 11—18 ára, veki athygli
á „Gagnvegum". Sams konar verk-
efni var lagt fyrir unglinga í
Kanada og bar það góðan árangur,
að sögn dr. Þórs Jakobssonar. Og
kvað hann alla þátttakendur hafa
haft mikla ánægju af verkefninu.
Þeir aðilar, sem að undirbúningn-
um standa, vilja leggja ríka
áherslu á að hér sé ekki um rit-
gerðasamkeppni að ræða, né held-
ur próf í ritsnilld, heldur sé þetta
áhugavert og skapandi verkefni
fyrir alla unglinga í landinu.
I nýútkomnu hefti barnablaðs-
ins Æskunnar birtist viðtal, sem
Hrafn Jökulsson átti við afa sinn,
dr. Jakob Jónsson. Sagði Eðvarð
Ingólfsson, blaðamaður Æskunn-
ar, að það viðtal ætti að geta leið-
beint öðrum um uppsetningu og
frágang verkefnisins. í sama tölu-
blaði Æskunnar er birt ávarp for-
seta íslands Vigdísar Finnboga-
dóttur, þar sem hún hvetur ungt
fólk til þátttöku í „Gagnvegum". f
ávarpi sínu segir Vigdís Finnboga-
dóttir m.a.: „Við íslendingar ætt-
um enga þjóðarsögu hefðu menn
fortíðarinnar ekki kappkostað
hverju sinni að færa í letur dýr-
mætan fróðleik um landið og líf
fólksins sem það hefur byggt. Þeir
gerðu sér Ijóst að mikilvægt er að
geyma en ekki gleyma. Þannig ber
okkur að varðveita sem flest blæ-
brigði lífsminninga þvf við erum
öll sem eitt tengiliður milli þess
sem var, er og þess sem verður.
Við erum þátttakendur í mann-
kynssögunni sem með hverju nýju
andartaki verður æ lengri."
f framkvæmdanefnd „Gagn-
vega“ eiga sæti: dr. Þór Jakobsson,
veðurfræðingur, Eðvarð Ingólfs-
son, blaðamaður, Níels Árni Lung,
æskulýðsfulltrúi ríkisins og séra
Agnes M. Sigurðardóttir, æsku-
lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Telja
þau æskilegt að þátttakendur velji
sér umsjónarmann, kennara, for-
eldri eða annan fullorðinn aðila,
sem sjái um að verkinu verði skil-
að áður en skilafrestur rennur út.
Ritgerðum ber að skila fyrir
áramót ’83—’84 til Æskunnar,
pósthólf 14, Reykjavík. Eiga þær
að vera vélritaðar eða snyrtilega
skrifaðar. Fullt nafn og heimilis-
fang þess sem skráir, fullt nafn og
heimilisfang viðmælanda og und-
irskrift umsjónarmanns skulu
fylgja með. Ljósmyndir mega
gjarnan fylgja, ef þátttakandi
óskar eftir því. Viðtölin verða birt
i Æskunni, en einnig kemur til
greina að gefa þau út I sérstöku
blaði.
Allir þátttakendur I „Gagnveg-
um“ fá viðurkenningarskjal undir-
ritað af framkvæmdanefndar-
mönnum.
^ LAUGAVEGI 40
REYKJAVÍK — SÍMI 16468
Hofðabakka 9, Reykjavik S. 85411