Morgunblaðið - 26.10.1983, Page 20

Morgunblaðið - 26.10.1983, Page 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 Um öngstígu sögunnar Bókmenntir Erlendur Jónsson Saga. Tímarit Sögufélags. XXI. 363 bls. Útg. Sögufélag. Reykjavík, 1983. Saga hefst að þessu sinni á rit- gerðinni Þrælahaldi á Þjóðveldisöld eftir Önnu Agnarsdóttur og Ragn- ar Árnason. Þjóðveldisöldin hefur verið heldur lítið í sviðsljósinu hjá sagnfræðingum undanfarið, þeir hafa verið með hugann við nútím- ann. Ritgerð þeirra, önnu og Ragnars, er fyrir margra hluta sakir athyglisverð. Þau taka með- al annars mið af kenningum tveggja sagnfræðinga, Árna Pálssonar og Gunnars Karlssonar, setja síðan fram eigin skoðanir. Margir hafa haft fyrir satt að með kristnitökunni hafi þrælahald hérlendis lagst niður — af mann- úðarástæðum. Þau, Anna og Ragnar, telja hins vegar »að krist- in siðfræði hafi haft óveruleg áhrif á hnignun þrælahalds á fs- landi.« Á það er auðvelt að fallast. Kærleiksboðskapur kristninnar er tiltölulega nýr í þeirri mynd sem við þekkjum hann nú. Ekki dugir heldur að skoða miðaldasögu í ljósi hugsunarháttar á tuttugustu öld. Trúboð var á miðöldum rekið með offorsi og manndrápum og engum kærleika. Kenning þeirra, Önnu og Ragnars, er líka mestan part hagfræðileg. Þrælahald er »áhættusamara en notkun frjáls vinnuafls,* segja þau. Rök þeirra eru annars nokkuð tyrfin, fræði- leg, skrifborðsleg. í rauninni sýn- ist mér þau gera málið óþarflega flókið. Mergurinn málsins er sá að þrælahaldið fylgdi víkingaöldinni — útþenslu og landvinningum norrænna þjóða, og til að skilja það þarf hvorki félagsvísindi né hagspeki (raunar drepa höfundar á þetta en gera það ekki að neinu atriði). Rómaveldi stóð og féll með landvinningum og þar með: endur- nýjun þræiamarkaðarins. Ríkinu tók að hnigna á sömu stund og útþenslan stöðvaðist. Nákvæm- lega sama máli gegndi um Norður- lönd. fslenskur höfðingi krækti sér ekki í þræl á næsta bæ. Hann varð annaðhvort að sækja þrælinn vestur um haf eða kaupa hann af víkingum sem höfðu rænt honum í hernaði. Þegar víkingaferðir lögð- ust niður urðu þrælar ekki lengur sóttir til fjarlægra landa með sama hætti og áður. En skaðinn var ekki óbætanleg- ur þó þrælamarkaðurinn drægist saman eða lokaðist. Munurinn á þrælahaldi og fólkshaldi með svokölluðu frjálsu vinnuafli hefur varla verið mikill. Allt fram undir 1940 héldu íslenskir bændur fjölda vinnuhjúa sem þeir gátu farið með nokkurn veginn sem sína eign. Þrælahald var og er því aðeins fjárhagslega hagkvæmt að ekki þurfi að kosta uppeldi þrælsins. Hliðstæður fyrirfinnast í nútím- anum þó enginn nefni þrælahald, t.d. í iðnríkjunum. Dæmi má taka af Svíum þar eð þeir standa okkur næst. Meðan hagur þeirra stóð með hvað mestum blóma fluttu þeir inn Tyrki og Júgóslava og settu þá beint í vinnu — verkin sem þeir litu ekki við sjálfir! Að- ferðin var ekki hin sama og vík- inganna. En tilgangurinn var nákvæmlega sá sami, það er: minni kostnaður — meiri hagnað- ur. (Ég bið lesendur að líta ekki svo á að ég sé með þessum sjálf- sögðu ábendingum að gera lítið úr ritgerð þeirra, önnu og Agnars, hún er áreiðanlega vel unnin út frá sjónarmiði höfundanna og inn- an þess ramma sem þau hafa sett sér þó undirritaður sé ekki nógu móttækilegur fyrir spekina.) Sveinbjörn Rafnsson ritar Um mataræði íslendinga á 18. öld. Þar er á brattan að sækja í fræði- legum skilningi því matargerð taldist ekki forðum til þess konar stórviðburða sem sagnaritarar skráðu í annála. Og naumast tjóir að sækja visku »til elstu manna« því Sveinbjörn staðhæfir — og ör- ugglega með réttu — að mataræði íslendinga hafi breyst mikið á 19. og 20. öld. Við eigum margar greinagóðar heimildir um matar- venjur á seinni hluta 19. aldar. Þegar fjær dregur strjálast fróð- leikurinn, því meir því lengra. Sveinbjörn birtir með ritgerð sinni skýrslu sem rituð var á seinni hluta 18. aldar. Fáir mundu Gunnar Þór Bjarnason nú telja það fjölbreyttan matseðil sem þar er lýst. »Hvers vegna étur ekki fólkið hveitibrauð og smér?« er fortalið að drottningin hafi sagt um íslendinga í móðuharðindun- um. Því aðeins geymdust þau orð í minni að brauðleysið bagaði ís- lendinga mest eins og fram kemur í ritgerð Sveinbjörns. Hér var ekki ræktað korn, og til kornleysisins rekur Sveinbjörn orsakir þess að hér varð aldrei til milljónaþjóð. En þrátt fyrir rýran kost urðu þó alltaf einhverjir til að vara við óhófi í mat og drykk eins og fram kemur I ritgerð Lýðs Björnssonar, Hvað er það sem óhófínu ofbýður? Þar er einkum lagt út af álitsgerð- um embættismanna á seinni hluta 18. aldar en þeim bar þá saman um að óhóf í mat og drykk stæði fslendingum verulega fyrir þrifum og það hefði aukist eftir að frí- höndlun hófst. Fátæk brúðhjón haldi fjölmennar veislur þar sem skonrok og brennivín sé óspart veitt. Svo er að sjá sem þá hafi ekki verið farið að bera á borð í brúðkaupsveislum steikur og grjónagrauta og kaffi með lumm- um og síðast sætt rommpúns eins og hver vildi hafa svo sem víða er lýst í þess konar veislum á 19. öld. Telur Lýður að veitingar í brúð- kaupsveislum hafi breyst verulega »á fyrri hluta 19. aldar.« Þá upp- lýsir Lýður að fyrr á öldum hafi lög kveðið skýrt á hversu mönnum leyfðist að klæðast — í samræmi við efnahag! Samgöngusögunni hafa sjaldan verið gerð ýtarleg skil fremur en mat og drykk. En hér er ritgerð eftir Guðjón Inga Hauksson og ber yfirskriftina: Þjóðleiðir og vegaframkvæmdir frá Sandhólaferju að Ytri-Rangá í Holtamannahreppi hinum forna. »Það er löngu gleymt að ferðalög voru miklar þrekraun- ir í gamla daga,« segir Guðjón Ingi. Hann styðst meðal annars við frásagnir afa síns, Guðjóns bónda og fræðimanns í Ási í Holt- um. Og fleiri koma við sögu. Sig- urþór á Gaddstöðum komst svo að orði um ferðalögin á fyrri öld: »Ég held að ferðalögin hafi seindrepið margan manninn eins og útbúnað- ur var á æði mörgum stöðum og aðstæður allar.« Þó Guðjón Ingi tilfæri fróðleg ummæli þessara tveggja löngu látnu heiðursmanna tekur hann samt einkum mið af rituðum og skjallegum heimildum um vega- gerð og samgöngubætur á seinni hluta 19. aldar. Kornungur sagnfræðingur, Gunnar Þór Bjarnason, birtir kafla úr BA-ritgerð undir heitinu: Viðhorf íslendinga til Þjóðverja í heimsstyrjöldinni fyrri. Fróðleg samantekt! Eins og vænta má kemst hann að þeirri niðurstöðu að fleiri hafi fylgt Bretum að mál- um en Þjóðverjum. Eigi að síður áttu Þjóðverjar hér dygga stuðn- ingsmenn, einkum í hópi mennta- manna. Vildu þeir launa Þjóðverj- um þann mikla íslandsáhuga sem þýskir fræðimenn höfðu sýnt allt frá miðri 19. öld. »ólíkt því sem var meðal helstu stríðsþjóðanna fögnuðu íslendingar ekki ófriðn- um,« segir Gunnar Þór. Fólk óttaðist ekki hernaðinn sjálfan heldur einangrun og vöruskort. Athyglisvert er að strax í upphafi ófriðar töldu menn Breta sigur- stranglegri (margir litu á styrj- öldina sem stríð Þjóðverja og Breta, fyrst og fremst). Rússar voru litnir hornauga og tekur Gunnar Þór undir orð Björns Þor- steinssonar aö Rússagrýlan hafi verið komin hér til sögunnar þeg- ar á seinni hluta 19. aldar. Eins og bæði fyrr og síðar töluðu íslend- ingar með vandlætingu um hernað og stríð og segir Gunnar Þór að þá andúð megi skoða í ljósi þess hve þjóðin var fámenn og íslendingar »vanmáttugir í heimi þar sem voldug ríki réðu lögum og lofum.« Ég hef getið hér þeirra ritgerð- anna sem mér þóttu strax for- vitnilegastar, en miklu fleira er f þessari Sögu — fleiri ritgerðir, minningargreinar um látna sagn- fræðinga, umsagnir um sagn- fræðirit, og svo framvegis. Éngin önnur fræðigrein heldur hér úti svona myndarlegu og fjöl- breyttu riti þessi árin svo mér sé kunnugt. Undanfarin ár hefur Saga lent í stríðasta straumkasti bókaflóðsins rétt fyrir jólin. Nú kemur hún út á skikkanlegri tíma og vona ég að svo verði framvegis. Það er svo mikið líf í þessu riti að Saga á að geta vakið á sér athygli þó hún standi ekki í glampanum frá stórhátíð. Erlendur Jónsson Saga utangarðsmanns eftir Finn Roaas Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Uten fast bopel: Finn Roaas. Útb. Gappelen forlag 1983. Sagan hefst þegar sjómaðurinn Aksel Norman Olsen snýr heim til Osló. Hann er 49 ára gamall og hefur verið í siglingum frá unga aldri og teygað ýmsa bikara í botn. En nú er svo komið, að hann hefur þörf fyrir að finna sér sama- stað í tilverunni, ævintýraljóminn er löngu farinn af hinu fjrálsa sjó- mannslífi og hann á hvergi neinar rætur. En væri ráð að athuga, hvort of seint sé að skjóta þeim í gamla landinu. Um hríð hafði góð og væn stúlka, Thordis, siglt með honum og til hennar leitar hann eftir heimkomuna og vonast til að einhver sameiginleg framtíð gæti beðið þeirra. En hann er drykk- felldur og ókyrr í sálinni og það vefst fyrir honum að koma undir sig fótunum. Hann fær vinnu öðru hverju og húsnæði í fyrstu. Hann er uppfullur af fögrum fyrirætlun- um, en það kemur fljótlega í ljós, að það er honum ofviða að lifa reglubundnu lífi og því sækir í sama brennivínsfarið og áður og versnar stöðugt. Thordis, sem hef- ur sýnt honum langlundargeð og umburðarlyndi og hefði kannski viljað hjálpa honum þegar hann Finn Roaas leitar til hennar eftir langvarandi sukk og svínarí, fær ekki tækifæri til þess og gamli sjóarinn hverfur á braut. Á vit þeirra örlaga sem virðast ekki umflúin. Þetta er miskunnarlaus bók um aðstæður eða öllu heldur aðstæðu- leysi utangarðsmanna, skiln- ingsskort umhverfis og töluverð ádeila á velferðarþjóðfélagið, sem lætur sig engu skipta, að minnsta koti litlu, þótt nokkrir rónar fari í hundana fyrir fullt og allt. Aðal- persónan, Aksel Norman Olsen, er vel gerð persóna frá hendi höfund- ar, sem vekur samúð lesanda. Ég hef ekki áður lesið bók eftir Finn Roaas. Hann er hálffertugur að aldri og hefur um árabil unnið við stofnun í Osló sem leysir bráðabirgðavanda slíks fólks sem Aksels Normans. Hann hefur áður gefið út eina bók, smásagnasafnið Onsumslaget. Frumdrög Leifs Breiðfjörðs Það er mikilsverð nýbreytni sem fitjað hefur verið upp á af Listvinafélagi Hallgrímskirkju um sýningarhald myndlistar trúarlegs eðlis í anddyri kirkj- unnar. Fyrst sá ég þar myndir úr Passíusálmum Hallgríms Pét- urssonar í útfærslu Barböru heitinnar Árnason sl. vor en um þessar mundir eru þar til sýnis vinnuteikningar, frumdrög ásamt ljósmyndum verka gler- listamannsins kunna Leifs Breiðfjörð. Það er vel til fallið að kynna það bezta, sem gert er á þessum vettvangi í íslenzkri list og jafn- framt ómetanlegt fyrir leika sem lærða að kynnast vinnu- brögðum jafn slungins lista- manns og Leifur Breiðfjörð er óneitanlega, allt frá fyrstu frumdrögum og til hinnar full- gerðu myndar, sem sýnd er á litljósmynd. Leifur segir réttilega, að þessi forvinna gefi oft miklar upplýs- ingar um vinnubrögð og lista- verkin sjálf og að honum finnist allt of lítil rækt hafa verið lögð við þessa hlið á vinnu myndlist- armanna hér á landi og vísar til fordæma listasafna erlendis. Á þetta hef ég og margbent í pistl- um mínum í gegnum árin en hér mætum við einnig tregðulögmál- inu hjá mörgum listamanninum, er vill sitja á forvinnu sinni sem ríkisleyndarmáli, sem ber þó frekar keim af því að hann hafi eitthvað að fela. Sýningin í Hallgrímskirkju er í hæsta máta áhugaverð og skal áhugafólki um listir svo og list- nemum alveg sérstaklega bent á hana því að hér felst viðamikill lærdómur. Leifur er sem kunn- ugt er mjög vel menntaður á þessu sviði og nafntogaður víða um lönd. Það er einkar lær- dómsríkt að fylgjast með fyrstu rissum og fullgerðri mynd því að við gerð slíkra mynda þarf að taka tillit til ótal þátta í næsta umhverfi, svo sem byggingar- stíls, ljóss og litbrigða. Margar myndanna á sýningunni eru hin- ar glæsilegustu og bera vitni hugmyndaauðgi listamannsins ásamt staðgóðri undirstöðu- menntun. óþarfi er að skírskota til ein- stakra verka því að það myndi gera kröfu til langrar faglegrar umfjöllunar og svo eru myndirn- ar mjög ólíkar vegna þess að hvert nýtt verkefni krefst nýrrar myndhugsunar þótt persónuleiki listamannsins skíni í gegn. Mikilvægast er að hér er verið að kynna hámenningu í kirkju- list því að nóg eigum við af lág- menningunni á því sviði, lágkúru og þröngsýni fáfræðinnar. Athygli skal vakin á að sýn- ingin er einungis opin milli 10 — 12 á virkum dögum en 14 — 17 um helgar. Lokað á mánudögum. Svo ber að þakka framtakið með virktum. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.