Morgunblaðið - 26.10.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
53
Bridge
Arnór Ragnarsson
íslandsmót kvenna
og í blönd-
uðum flokki
Um helgina fóru fram fs-
landsmót í tvímenningi í
kvennaflokki og blönduðum
flokki. Mjög jöfn og skemmtileg
keppni var í báðum flokkunum,
einkum og sér í lagi í kvenna-
flokknum sem lauk með sigri
Júlíönu ísebarn og Margrétar
Margeirsdóttur sem hlutu 93
stig yfir meðalskor, en keppnin
var spiluð með barómeterformi.
Þrjú pör börðust um efsta
sætið í lokakeppninni. Fyrir síð-
ustu umferðina voru Erla Sigur-
jónsdóttir og Dröfn Guðmunds-
dóttir efstar með 99 stig, Mar-
grét og Júlíana höfðu 93 stig og
Sigrún Pétursdóttir og Rósa
Þorsteinsdóttir voru með 69 stig.
Margrét og Júlíana héldu sínu í
síðustu umferðinni á meðan Erla
og Dröfn fengu 9 mínusstig og
töpuðu þar með titlinum. Þegar
þremur umferðum var ólokið
höfðu Dröfn og Erla afgerandi
forystu í keppninni, en þá var
staða efstu para þessi:
Stig
Erla — Dröfn 102
Sigrún — Rósa 81
Júliana — Margrét 69
Lokastaðan: Stig
Júlíana ísebarn —
Margrét Margeirsdóttir 93
Erla Sigurjónsdóttir —
Dröfn Guðmundsdóttir 90
Sigrún Pétursdóttir —
Rósa Þorsteinsdóttir 59
Alda Hansen —
Nanna Ágústsdóttir 32
Ólafía Jónsdóttir —
Sigrún Straumland 31
Eygló Gránz —
Valey Guðmundsd., Self. 30
Erla Guðmundsdóttir —
Guðrún Jörgensen Sigríður Eyjólfsdóttir — Grethe Iversen 25
12
22 pör spiluðu í mótinu. Spiluð
voru 3 spil milli para. Reikni-
meistari var Vigfús Pálsson.
í blandaða flokknum var spiiað-
ur Mitchell-tvímenningur og þá
spiluðu 26 pör. Hjónin Ingibjörg
Halldórsdóttir og Sigvaldi Þor-
steinsson gerðu sér lítið fyrir og
unnu þennan fslandsmeistaratitil,
hlutu 733 stig. Stórmeistarinn Þór-
arinn Sigþórsson og Kristjana
Steingrímsdóttir urðu í öðru sæti
með 723 stig og Halla Bergþórs-
dóttir og Jóhann Jónsson urðu
þriðju með 700 stig.
Röð næstu para: Stig
Valgerður Kristjánsdóttir —
Björn Theodórsson 695
Sigrún Pétursdóttir —
Óli Andreasson 687
Dúa Ólafsdóttir —
Jón Lárusson 683
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andreasson 656
Kristín Þórðardóttir —
Jón Pálsson 646
Meðalskor 624
Gefin voru gullstig í báðum
keppnunum, 10 stig fyrir fyrsta
sæti, 5 fyrir annað sæti, 4 stig
fyrir þriðja sæti og 3 stig fyrir
fimmta sætið.
Keppnisstjóri í báðum keppn-
unum var Agnar Jörgensson.
Að sögn Jóns Baldurssonar,
starfsmanns hjá Bridgesam-
bandinu, tókust bæði mótin
mjög vel. Sagðist hann vona að
hér eftir yrðu þessi mót árlegur
viðburður.
Verðlaunaafhending fyrir
bæði mótin verður á Islandsmót-
inu í tvímenningi í vor.
BSÍ-þingið
Þing Bridgesambands íslands
verður haldið nk. laugardag í
TESS-salnum, Trönuhrauni 8,
Hafnarfirði, og hefst kl. 10 um
morguninn.
Bridgedeild Breið-
firðingafélagsins
Aðalsveitakeppni deildarinnar
hófst sl. fimmtudag. Nítján
sveitir mættu til leiks. Spilaðir
eru tveir 16 spila leikir á kvöldi.
Staðan eftir fyrsta kvöldið:
Stig
Sigurður Amundason 40
Jóhann Jóhannsson 36
Guðlaugur Nielsen 32
Erla Eyjólfsdóttir 29
Helgi Nielsen 28
Kristín Þórðardóttir 24
Þórarinn Alexandersson 24
Magnús Björnsson 23
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar á fimmtudaginn í
Hreyfilshúsnu og hefst spil-
amennskan kl. 19.30.
Bridgefélag Akraness
13. október sl. hófst baro-
meterkeppni hjá félaginu með
þátttöku 22 para.
Staðan eftir 7 umferðir:
Árni Bragason —
Sigurður Halldórsson 110
Alfreð Viktorsson —
Karl Alfreðsson 90
Alfreð Alfreðsson —
Erling Einarsson 76
Þorvaldur Guðmundsson —
Pálmi Sveinsson 73
Guðjón Guðmundsson —
ólafur G. ólafsson 69
Næstu umferðir verða spilað-
ar í Röst á fimmtudaginn kl. 20.
Vigdís Finnbogadóttir fær gjöf
SÍÐASTLIÐIÐ sumar tilkynnti aðal-
framkvæmdastjóri Montres Rolex
S.A. Geneva, M. André J. Heiniger,
að óskað væri heimildar til að færa
forseta íslands, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur, Rolex-úr í viðurkenningar-
skyni.
í fréttatilkynningu frá umboðs-
aðilum Rolex á íslandi segir m.a
að hefðbundin venja sé að fram-
kvæmdastjórn Rolex-verksmiðj-
anna votti þjóðarleiðtogum virð-
ingu sína á þennan hátt. í sömu
fréttatilkynningu segir ennfremur:
„Rolex-úraverksmiðjurnar hafa i
höfuðstöðvum sínum í Genf safn
mynda af merkum mönnum og
þjóðhöfðingjum og óskað var eftir
áritaðri mynd af forseta íslands í
það safn.“ Myndin er tekin þegar
Franch Michelsen og Frank Úlfar
Michelsen færðu forseta íslands,
frú Vigdísi Finnbogadóttur, Rol-
ex-úr, hinn 17. október sfðastliðinn.
Ljósm. Mbl. Frióþjófur
Ómarkvisst og lítt vandað
Hljóm
nnrrm
Siguröur Sverrisson
Bonjour Mammon
Bonjour Mammon
Sápa 001.
Það er með ólíkindum hvað
menn endast til þess að gefa út
hljómplötur hér á landi jafnvel
þótt útgáfan virðist gersamlega
dauðadæmd fyrirfram. íslend-
ingar eru bjartsýnisfólk upp til
hópa og bræðurnir Páll og Sigur-
björn Sigurbjörnssynir hljóta að
teljast til bjartsýnismanna.
Plata þeirra skýtur skyndilega
upp kollinum, án þess að nokkur
hafi vitað að útgáfa hennar
stæði fyrir dyrum. Síðan er
henni lítið sem ekkert fylgt eftir.
Slíkt hlýtur að vera koltapað
dæmi á þessum kreppu- og sam-
dráttartímum.
Plata þeirra bræðra Páls og
Sigurbjörns hlýtur að teljast af-
skaplega ómarkviss, svo ekki sé
meira sagt. Sum laganna eru
reyndar ágæt að stofni til, en út-
setningar eru margar hverjar
kauðskar og þá hefur hljóð-
blöndunin lítið bætt úr skák.
Hún er vægast sagt slök. Reynd-
ar er hljóðfæraleikurinn í flest-
um tilvikum þokkalegur, stund-
um góður, en söngurinn er ekki
til að hrópa húrra fyrir.
Sér til aðstoðar hafa þeir
bræður fengið nokkra kunna
hljóðfæraleikara. Magnús Stef-
ánsson, fyrrum í Egó, leikur á
trommur og hefur held ég megi
segja oftast gert betur en hér.
Vilhjálmur Guðjónsson leikur á
gítar og saxófón í laginu Missir
og gítarleikur hans er langbesti
punktur þessarar plötu. Sigurð-
ur Gröndal leikur á gítar í flest-
um hinna laganna og dregur oft
upp skemmtileg „riff“, sem falla
hins vegar ekki almennilega inn
í tónlistina. Páll leikur á bassa á
aliri plötunni og Sigurbjörn
syngur á móti honum. Saman
eiga þeir svo lög og texta.
Vel má vera, að tónninn í þess-
ari umfjöllun sé allt annað en
jákvæður. Kannski er verið að
kveða upp úrskurð að gefnum
röngum forsendum. E.t.v. voru
litlir peningar fyrir hendi og
ekki unnt að gera þetta betur úr
garði en raun ber vitni? Hver
veit? Hvað sem því líður hefði
ekki sakað, að sjálfsgagnrýni
hefði gætt í einhverjum mæli.
Með hana til staðar hefði mátt
breyta þessari plötu úr lélegri
yfir í vel viðunandi.
Þegar jafnerfitt er að gefa út
plötur og raun ber vitni nú á
þessum tímum hljóta menn að
leggja metnað sinn í að verk
þeirra séu þannig úr garði gerð,
að þau veki einhverja athygli.
Nema auðvitað, að hér sé aðeins
verið að skemmta vinahópi. Ég
er hræddur um að Bonjour
Mammon falli í gleymskunnar
dá fyrr en nokkurn varir.
Hagsýnn velur það besta
UÐS6A6NABÖLL1N
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410
Það eru litlu
hlutirnir sem
gera húsgagna-
verslun
stóra
Þess vegna er þér óhætt að líta inn til okkar, hvergi
nokkurs staðar er meira úrval á einum stað. Hérna
sérðu hluta af úrvalinu okkar af tækjaskápum.