Morgunblaðið - 26.10.1983, Qupperneq 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
Friðarhreyfing framhaldsskólanema:
Gagnkvæm al-
hliða afvopnun
þjóða virðingu og skilning á ólík-
um skoðunum.
Það er óumflýjanleg staðreynd
að til eru ríki í heiminum, sem
aðhyllast stjórnmálastefnu, sem
birtist í yfirgangi gagnvart öðrum
þjóðum í krafti vopnavalds, með
tilheyrandi frelsisskerðingu og
mannfórnum. Stærsta hindrunin
er þó það þjóðfélagskerfi sem
byggir á alræði. Þar eru frjáls
skoðanaskipti nánast bönnuð og
fólkið ræður engu um stefnu
valdhafanna. Hættan stafar fyrst
og fremst frá slíku þjóðskipulagi,
þar sem almenningsálit hefur eng-
in áhrif, engir frjálsir fjölmiðlar,
ekkert frjálskjörið þjóðþing og
ekkert aðhald ríkir gagnvart að-
gerðum valdhafanna.
Leiðir að markmiði
Friðarhreyfing framhaldsskóla-
nema telur að friðartillögur verði
að byggjast á raunverulegu mati á
stöðu alþjóðamála.
Vandamálið er tvíþætt. Annars
vegna hvernig unnt er að tryggja
frið og afvopnun án þess að alræð-
isríkin verði allsráðandi f þessum
heimi f krafti vopna sinna og
stjórnmálastefnu. Hins vegar
hvernig hægt er að létta oki al-
ræðisherranna af þegnunum, auka
frelsi og mannréttindi og stuðla
þannig að þróun frá alræði til lýð-
ræðis og friðar.
Sú leið sem Friðarhreyfing
framhaldsskólanema bendir á til
þess að tryggja frið, er leið gagn-
kvæmrar alhliða afvopnunar und-
ir ströngu alþjóðlegu eftirliti.
Friðarhreyfingin hafnar hug-
myndum um einhliða afvopnun.
Friðarhreyfing framhaldskóla-
nema tekur undir kröfur um
skipulega fækkun kjarnorku-
vopna, og síðan algert bann við
framleiðslu slfkra vopna.
Breyting á þjóðskipulagi alræð-
isríkjanna verður að mati Frið-
arhreyfingar framhaldsskóla-
nema að koma innan frá. Þó er
ljóst að hlutverk lýðræðisríkjanna
er stórt og vandasamt til þess að
stuðla að aukinni virðingu fyrir
mannréttindum í heiminum. Það
gera þau best með því að standa
vörð um fengið frelsi og sýna
sterka samstöðu með það fyrir
augum að brjóta niður allar til-
hneigingar til skerðingar mann-
réttinda í heiminum.
Hið gífurlega kostnaðarsama
vopnakapphlaup er háð á sama
tíma og milljónir manna líða
skort. Þetta er hrikaleg staðreynd
sem við verðum að horfast í augu
við. Eina raunhæfa leiðin að
markmiðinu, varanlegum friði í
heiminum, er sterkari samstaða
frjálsra þjóða gegn kúgunaröflum.
Látum friðinn ekki aðeins vera
stund milli stríða. Friður, frelsi og
mannréttindi hljóta ávallt að vera
órofa heild.
Við viljum gagnkvæma afvopn-
un, frið án uppgjafar, frið með
frelsi.
Hvað er að vera kaþólskur?
— eftirTorfa
Œafsson
COLLINS-bókaútgáfan hefur gefið
út myndarlega bók sem nefnist A
Way of Life (Lífsstefna), og er und-
irtitill hennar „Being a Catholic To-
day“ (Að vera kaþólskur nú á dög-
um). Sú sérdeild bókaútgáfunnar
sem annast kirkjuleg rit (Collins Lit-
urgical Publications) hefur séð um
útgáfu þessarar bókar og er David
Miles Board ritstjóri hennar og höf-
undur inngangsorða.
Gera mætti grein fyrir inni-
haldi bókarinnar eitthvað á þessa
leið: Að vera kaþólskur er lífs-
stefna — öflug og þróttmikil —
sem verður að fást við margvísleg
vandamál en er fagnandi og full
um, línuritum og frásögnum af því
sem er að gerast í kirkjunni og
heiminum nú á dögum. Þá flytja
þeir stuttar umsagnir sérfróðra
manna í guðfræði, biblíufræði og
félagsfræði. Ennfremur er sagt
frá félagslegri starfsemi innan
kirkjunnar og skipulagi hennar,
sem miðast við að geta á sem
áhrifaríkastan hátt gert grund-
vallaratriðin að veruleika.
Jesús líkti kirkjunni einu sinni
við voldugt tré sem breiddi út lim
sitt svo að allir fuglar loftsins
gætu byggt sér þar hreiður. í bók-
inni er reynt að sýna lesandanum
margbreytileika og lífsauðgi
kirkjunnar.
Bókin er mjög aðlaðandi til
lestrar, skreytt fjölda mynda og
teikninga og fréttapistlar og um-
sagnir eru prentaðar á litaðan
grunn, ljósrauðan, brúnan, bláan
eða grænan eftir atvikum. Letur-
gerðir eru líka mismunandi svo að
bókin verður miklu tilbreytinga-
ríkari fyrir augum lesandans en
ella.
Sem dæmi um hin mörgu atriði
sem fjallað er um í bókinni má
nefna þessi:
Kirkja — tákn — helgisiðir —
sakramenti — eining — trúboð —
biskupar — prestar — djáknar —
nunnur — fjölskylda — skilnaður
— skólar — vinna — atvinnuleysi
— réttlæti — friður — mannrétt-
indi — kynþáttavandi — og er þá
aðeins stiklað á stóru.
Bókin fjallar í heild um hver
viðhorf kirkjunnar og hinna
trúuðu séu til þessara og annarra
mála, og þótt hún miðist fyrst og
fremst við England og sé samin
eftir heimsókn Jóhannesar Páls II
páfa þangað, á hún engu síður við
kirkjuna og þegna hennar í öðrum
löndum, enda svipar mönnum ær-
ið mikið saman, hvort sem þeir
búa í „Súdan eða Grímsnesinu".
Aftast í bókinni eru svo skráð
heimilisföng stofnana og félaga
sem vikið er að í henni og loks
skrá yfir atriðisorð. Bókin er 208
blaðsíður, prentuð á góðan pappír
og allur frágangur hennar útgef-
andanum til sóma.
Torfi Ólafsson.
Tort7 Ótafason er formaður félaga
kaþólskra teikmanna i íslandi.
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning frá Frið-
arhreyfingu framhaldsskólanema:
Stofnfundur Friðarhreyfingar
framhaldsskólanna var haldinn i
salarkynnum Fjölbrautaskólans í
Breiðholti þriðjudaginn 11. okt. si.
Fundinn sóttu um 70 nemendur.
Samþykkt var stefnuyfirlýsing
hreyfingarinanr, en hún fylgir
þessu bréfi í heild sinni. Allmargir
framhaldsskólanemar tóku til
máls og urðu fjörugar umræður
um verkefni og leiðir að markmið-
inu varanlegum friði. Kosin var
framkvæmdastjórn, skipuð af eft-
irtöldum aðilum:
Andrés Magnússon MR, Árni
Sigurðsson FB, Benedikt Bogason
MH, Birgir Þ. Runólfsson FS,
Guðjón Guðmundsson FH, Jóhann
P. Reyndal VÍ, Kristinn Hjaltalín
Iðnskólanum, óskar Tómasson
MH, Sveinbjöm Kristjánsson MK,
Sveinn Guðmundsson MS, Þór
Sigfússon MH.
Einnig var ljóðið: „Fyrst kemur
frelsið" tileinkað þessum stofn-
fundi. Flytjendur voru: Band Guð-
jóns Guðmundssonar.
Markmiö
Friðarhreyfing framhaldsskóla-
nema er stofnuð í þeim tilgangi að
stuðla að varanlegum friði í heim-
inum, frelsi manna og virðingu
fyrir mannréttindum og sjálfs-
ákvörðunarrétti þjóða.
Hindranir í vegi
friðarins
Friðarhreyfing framhaldsskóla-
nema bendir á að ýmsar hindranir
eru í vegi friðarins. Mannréttindi
eru fótum troðin á meðal fjöl-
margra þjóða. Sjálfsákvörðunar-
réttur þjóða er víða vanvirtur.
Hindrað upplýsingastreymi milli
þjóða veldur tortryggni. Ólík
menningarsamfélög leiða af sér
ólík sjónarmið. Oft skortir á milli
KgikwtoAijlii i október.
HINN KUNNI hljóðfæraleikari og
lagasmiður, Árni ísleifs, er um þess-
ar mundir að stofna til enn einnar
danshljómsveitarinnar ásamt nokkr-
um ungum og liðtækum hljóðfæra-
leikurum hér á Egilsstöðum.
I tilefni þess litum við sem
snöggvast inn á æfingu hjá nýju
„grúppunni" og spurðum Árna
hversu lengi hann hefði leikið í
danshljómsveitum.
„Ég veit nú varla — en muni ég
rétt byrjaði ég að leika á almenn-
um dansleikjum í Listamanna-
skálanum í Reykjavík með hljóm-
sveit Bjöms R. Einarssonar. Lík-
lega hefur það verið 1945 eða 46 —
en þá hafði ég leikið á skólaböllum
í Reykjavík í 2—3 vetur."
Hvenær stofnaðir þú svo fyrst
þína eigin hljómsveit?
„Það hefur verið 1947 eða '48.
Ætli ég hafi ekki staðið fyrir
stofnun átta danshljómsveita um
ævina — en mér er ómöguiegt að
muna hvað ég hef leikið í mörgum
danshljómsveitum samtals, þær
skipta sjálfsagt tugum. í fljótu
Stutt spjall við
Árna Isleifs
bragði man ég eftir hljómsveit
José Riba; Jans Moráveks; Karls
Jónatanssonar; Braga Hlíðbergs;
Ragnars Bjarnasonar; Gunnars
Ormslevs — auk hljómsveitar
Bjöms R. — og að ógleymdri
dixielandhljómsveit með Þórarni
óskarssyni.
Nú, ekki má gleyma Slagbrandi,
hljómsveit sem varð til eftir að ég
flutti hingað austur — en hætti
störfum í fyrra með útgáfu 5 laga
hljómplötu."
Hvað heitir nýja hljómsveitin?
„Hún heitir Náttfari og mun
þreyta fraumraun sína á haust-
móti sjálfstæðisfélaganna á Aust-
urlandi — sem haldið verður í
Valaskjálf á laugardag."
Heldurðu að Náttfari verði
nokkur eftirbátur annarra
hljómsveita?
„Nei, síður en svo. Með mér er
þaulvant fólk og áhugasamt. Jón
Arngrímsson er gamalreyndur hér
um slóðir á þessu sviði og Sævar
Benediktsson er nýfluttur hingað
frá Akureyri þar sem hann lék
með hljómsveit Finns Eydals.
Báðir eru þeir góðkunnir gítar-
leikarar. Guðbjörg Pálsdóttir
heitir trommarinn okkar, hörku-
góð, og gefur strákunum ekkert
eftir. Svo má ekki gleyma því að
við höfum ágætri söngkonu á að
skipa — Lindu Hlín Sigurbjörns-
dóttur. Mér finnst nánast ómiss-
andi að hafa söngkonu. Það gefur
miklu meiri möguleika á lagavali."
Hvernig tónlist mun Náttfari
svo flytja?
„Alhliða dansmúsík. Viö mun-
um kappkosta að haga lagavali
þannig að flestir finni þar eitt-
hvað við sitt hæfi — en forðast að
stuðla að kynslóðabili með laga-
vali okkar. Við munum aðallega
leika fyrir dansi f einkasamkvæm-
um, á árshátíðum og þorrablót-
um.“
—Ólafur.
Árni ísleifsson
Egilsstaðir:
Leikið
fyrir dansi í 40 ár
Linda Hlín Sigurbjörnsdóttir, söng- Guðbjörg Pálsdóttir, trommari
kona
vonar.
Þessi lífsstefna byggist á opin-
berun Jesú Krists og fylgjendur
hennar lifa samkvæmt henni.
Kirkjan gerir líf Jesú nærstatt á
margvíslegan hátt í heimi okkar
nútímamanna. I bókinni er fyrst
að finna inngangsorð um eðli
kirkjunnar og eftir þau skiptist
hún í sex aðalkafia sem lýsa við-
horfum kirkjulífsins og meðlima
kirkjunnar. Að þeim standa 14
höfundar, sérfróðir hver á sínu
sviði. Kaflarnir fjalla um þetta
efni:
Kirkjan biður. Kirkjan, reiðu-
búin til trúboðs. Kirkjan þjónar.
Kirkjan lærir. Kirkjan og velferð
manna. Kirkjan mætir Kristi dag
hvern.
I köflunum er efninu síðan lýst
með stuttum fréttapistlum, mynd-
Rafbraut tuttugu ára
VIÐGERÐA- og sölufyrirtækið
Kafbraut er tuttugu ára á þessu ári.
Kafbraut var stofnað af þeim Sig-
urði Jónssyni og Sæbirni Jónssyni,
en eigendaskipti urðu á fyrirtækinu
árið 1978 og tóku þá við núverandi
eigendur sem eru þau Grímur
Grímsson og Valgerður Ebenes-
ersdóttir.
Rafbraut hefur nýlega hafið
innflutning á austurrískum
þvottavélum, Eumenia, en auk
þess er fyrirtækið með innflutn-
ing á varahlutum og viðgerðir á
ýmsum raftækjavörum m.a. Zan-
ussi, Hoover og Holland Electro.
Af Eumenia-vélunum eru fluttar
inn tvær gerðir, fjögurra kílóa
vél með innbyggðum þurrkara og
vél sem tekur tvö og hálft kíló.
Þá selur fyrirtækið einnig upp-
þvottavélar af sömu gerð.
í spjalli við Mbl. sögðu þau
hjónin að áberandi væri nú að
fólk sendi meira af heimilistækj-
um í viðgerð en áður tiðkaðist.
Sögðust þau gera kostnaðar- og
tímaáætlun fyrir hverja viðgerð
og reyna þannig að koma til móts
við þá staðreynd að fólk láti
fremur gera við gömul tæki en að
endurnýja þau.
Eigendur Rafbrautar, Grfraur Grímsson og Valgerður Ebenesersdóttir.