Morgunblaðið - 26.10.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
55
Hér eru þeir Óðinn Gunnarsson (tv.) og Unnþór Stefánsson við netaaf-
dragara sem framleiddur er hjá Sjóvélum hf.
Á verkstæðinu starfa átta manns,
hér er Gunnar Þorsteinsson sem
var önnum kafinn við rennibekk-
inn þegar Mbl. bar að garði.
„Línuafgoggarar í
300—400 tonna báta“
Spjallað við eigendur Sjóvéla hf. í Kópavogi
„KYRIRTÆKIÐ hefur breyst nokk-
uð frá því það tók til starfa og síö-
astliðin þrjú ár höfum við nær ein-
göngu framleitt háþrýstibúnað fyrir
báta,“ sagði Unnþór Stefánsson í
spjalli við Morgunblaðið, en hann er
eigandi Sjóvéla hf. í Kópavogi
ásamt Óðni Gunnarssyni. Sjóvélar
hf. hafa nú starfað í fimm ár og
vinna þar að staðaldri átta manns.
„Meginverkefnið þessa stundina
er framleiðsla á svokölluðum línu-
afgoggurum, tæki sem sameinar
linuspilið og afgoggarann og er
sett á lunninguna. Þessa línuaf-
goggara framleiðum við fyrir báta
allt frá 10 tonnum í 400,“ sagði
Óðinn Gunnarsson. „Reyndar höf-
um við gert línuafgoggara fyrir
þriggja tonna bát. Við erum búnir
að setja afgoggara í tíu báta og
getum ekki verið annað en ánægð-
ir með þá reynslu sem fengin er.
Með því að sameina línuspilið og
afgoggarann eykst pláss og línu-
slit minnkar, þar sem línan fer i
gegnum færri liði.“
„Jú, við framleiðum nú fleira en
línuafgoggarana,“ sagði Unnþór
aðspurður. „Reyndar er kannski
ekki með öllu rétt að segja að við
framleiðum eingöngu stykki i
báta því að undanfarin fjögur ár
höfum við búið til á milli 10 og
12.000 dráttarkúlur í bíla úr
þremur tonnum af stáli. Hvað
bátana varðar höfum við á boð-
stólum vökvadrifin borðstokk-
skefli fyrir net og netaafdragara
sem draga af netaspilinu. Reynd-
ar má segja að hér sé framleiddur
allur háþrýstibúnaður í báta
nema stór togspil. Kosturinn við
háþrýstibúnað sem hefur ekki
mjög stórt kerfi, eins og línuspils-
afgoggarinn, er sparnaðurinn.
Þegar línuspilsafgoggari er settur
um borð í stórt skip með lág-
þrýstivökvakerfi, þá er hægt að
nota rafmótor skipsins til að
knýja vökvadælu línuspilsafgogg-
aranna þannig að óþarfi er að
keyra lágþrýstikerfið með aðalvél
skipsins. Við það það sparast olíu-
notkun allt frá 4 til 20 lítra á
klukkustund."
- Hvernig gengur að selja?
„Við erum nokkuð ánægðir með
söluna, hún hefur allavega sann-
fært okkur um að það er grund-
völlur fyrir því að framleiða há-
þrýstiútbúnað hér á landi sem
fyllilega stenst innflutta sam-
keppni bæði hvað varðar verð,
orkusparnað og gæði,“ sagði Unn-
þór. „Og það er auðvitað markmið
allra þeirra sem stunda iðnrekst-
ur á einhvern hátt.“
Egilsstaðir:
Aðalfundur Styrkt-
arfélags vangef-
inna á Austurlandi
KgiLsNtöóum, 17. október.
NÝLEGA var haldinn hér á Egils-
stöðum aðalfundur Styrktarfélags
vangefinna á Austurlandi. Á aðal-
fundinum var stjórn félagsins ein-
róma endurkjörin, en hana skipa eft-
irtaldir: sr. Davíð Baldursson, Eski-
firði, formaður; Björg S. Blöndal,
Seyðisfirði, ritari; Kristján Gissur-
arson, Eiðum, gjaldkeri og Sigríður
F. Halldórsdóttir, Egilsstöðum, og
Hulda Bjarnadóttir, Neskaupstaö,
meðstjórnendur.
greiða styrktarfélaginu framlag
þess samkvæmt sérstöku sam-
komulagi.
Stjórn Styrktarfélags vengef-
inna á Austurlandi vinnur nú að
því að leita tilboða í innréttingar
hússins svo að taka megi það í til-
ætlaða notkun hið fyrsta. Enn-
fremur vinnur stjórn SVA nú að
uPPbyggingu sundlaugar við Von-
arland, en lokið var við grunn
laugarinnar fyrir réttu ári. Það
Stjórn SVA, talið frá vinstri; Sr. Davíð Baldursson, Eskifirði, Kristján
Gissurarson, Eiðum, Björg S. Blöndal, Seyðisfirði, Hulda Bjarnadóttir, Nes-
kaupstað, og Sigríður F. Haildórsdóttir, Egilsstöðum.
Bókaskemman:
Skrá yfir innlendar
og erlendar bækur
ÚT ER komið ritið „íslenzkar
bækur og erlendar", 12. árgangur,
3. tölublað, sem Bókaskemman á
Langholtsvegi í Reykjavík gefur
út. Ritið er skrá yfír ýmsar gamlar
og nýlegar bækur, um hin ýmsu
efni, sem til sölu eru I Bóka-
skemmunni.
Ritinu er skipt niður í nokkra
efniskafla: Blöð og tímarit. Is-
lenzk fræði. Ævisögur — endur-
minningar. Trúarbrögð. Ætt-
fræði. Saga og staðfræði. Þjóð-
sögur, sagnir og ævintýri.
Blandað efni úr ýmsum áttum.
Meðal rita á skránni er t.d.
mánaðarblaðið Dvöl, sem Torf-
hildur Hólm gaf út og ritstýrði á
árunum 1901 til 1917, og margt
annað fágætra rita er í skránni.
Deilan í rannsóknastöð
Mjólkursamsölunnar:
Yfirlýsing frá Mat-
vælafræðingafélaginu
Matvælafræðingafélag fslands
hefur sent frá sér fréttatilkynn-
ingu þar sem gerð er athugasemd
við yfírlýsingar mjólkurfræðinga
vardsr.di dei'y þá sen; kom upp í
Mjólkursamsölunni á dögunum,
þar sem þeir segja að aðeins ófag-
lært fólk starfí á rannsóknastofu
fyrirtækisins auk mjólkurfræð-
ings.
I fréttatilkynningunni segir:
„Matvælafræðingafélag fslands
vekur athygli á því að starfs-
maðurinn sem deilan snýst um,
er matvælafræðingur að mennt
með framhaldsnám (m.s.) þar
sem áhersla var lögð á mjólk-
urvörur (dairy science). Taka
skal fram, að mjólkuriðnaður-
inn er sá matvælaiðnaður sem
lengst er á veg kominn hér á
landi og má þakka það góðri
íagþekkingu mjólkurfræðinga.
Því finnst Matvælafræðingafé-
laginu skjóta nokkuð skökku við,
að mjólkurfræðingar skuli
reyna að standa í vegi fyrir því
að fólk sem farið hefur aðrar
leiðir en þeir til menntunar í
mjólkurfræðum fái að starfa í
mjólkuriðnaðinum."
,Agglýsinga-
síminn er 2 24 80
ISLENZKAR .BÆKUR
** - og vUt+J+A
fjallkonan.
tokhiuiuí MMsmaðrm mwji
SACA
VESTMANNAEYJA
ATTAKHKK Á
í skýrslu formanns kom m.a.
fram að drjúgur tími stjórnar á
síðastliðnu starfsári fór f kaup á
íbúðarhúsi hér á Egilsstöðum, sem
ætlunin er að nýta fyrir sambýli
þroskaheftra í tengslum við Vist-
heimilið Vonarland. Vonir stóðu
til að ríkið festi kaup á ibúðarhús-
næði til þessara nota, en það dróst
úr hömlu vegna fjárskorts, og þeg-
ar hentugt húsnæði stóð allt í einu
til boða greip stjórn styrktarfé-
lagsins til sinna ráða og lagði
fram 350 þús. kr. til kaupanna á
móti 200 þús. kr. ríkisframlagi.
Ríkið mun síðan annast afborgan-
ir af áhvílandi lánum og endur-
voru félagar í Lionsklúbbnum
Múla á Fljótsdalshéraði sem gáfu
alla vinnu við grunn laugarinnar
eða sem næst 900 vinnustundir.
Þá minntist formaður í skýrslu
sinni þeirra tímamóta í sögu SVA,
er félagsmálaráðuneytið tók form-
lega við rekstri Vonarlands úr
höndum stjórnar SVA fyrir réttu
ári.
Á aðalfundinum fluttu þær Ber-
it Johnsen, sérkennslufulltrúi, og
Bryndís Símonardóttir, þroska-
þjálfi, erindi um málefni þroska-
heftra.
— Ólafur.
Frá,
,upplausntil
abyrgðar
A RETTRI LEIÐ
ncjiajMÍ'n
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn tinimtif'
daginn 27. okt. kl. 20.30 á Hótel Sögu, Súlnasal.
Geir Hallgrímsson utanríkisráöherra ræöir störf og
stefnu ríkisstjórnarinnar. Þingmenn flokksins í kjör-
dæminu mæta ennfremur á fundinn.
Allir velkomnir. Sjálfstæðisflokkurinn