Morgunblaðið - 26.10.1983, Page 27

Morgunblaðið - 26.10.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 59 Kirkjmo rar einn belsti samkomustaður íslensku þjóóarinnar fjrr i irum; bitíðarmessa í Dómkirkjunni 2. igúst 1874. aumkar, þar í sjálfræði var við að gera og skorður að reisa, með því og drykkjurúturinn hefur gert sig þrálega, meðan betur gekk, leiðan og óvinsælan við betri menn með margmælgi og tilhlutsemi, svo fá- ir kunna bót að mæla. Þessa og því líka ávexti færir af sér óhófið og ofdrykkjan, gerandi manneskjuna því nær sem holdgaðan djöful. Þorleifur Halldórsson (1683—1713) Þorleifur var rektor við Hóla- skóla, mikill -fjölfræðingur á sinnar aldar vísu. Skáldin, furðuverk náttúrunnar Nú kem ég í sjöunda máta til þeirra, sem mér er bezt við og mest er markið að; það eru þeir andríku menn og þau furðuverk náttúrunnar, sem skáld kallast. Er svo mælt, að þeim fylgi mikill andakraftur, svo sem einn þeirra sagði um sig, að hann gæti kveðið tunglið niður af himni, stöðvað rennandi vötn og rekið stjörnurn- ar til baka með sínum skáldskap. Og að sönnu, séu þar nokkur hálf- goð til í veröldinni, þá eru skáldin. En hvar af hafa þau allan þennan sinn kraft nema af skáldskapn- um? En á hverju er hann grundað- ur nema lyginni? Og þess vegna eru skáldunum sérdeilislega lygi- kenningar tileignaðar; þess vegna kallast og kveðlingar diktar, að uppdiktun (það er, með berum orðum að segja, lygin) er svo sem líf og sál skáldskaparins, án hverrar allt er dautt og dofið; og þar fyrir, þess meir sem einn kann meir að dikta upp af sjálfum sér, því betra skáld er hann reiknaður. Hinir aðrir, sem ijóð kunna að gera, en eigi dikta eður ljúga upp efninu, hafa eigi þá æru að heita skáld, heldur nefnast þeir hag- mæltir, hvað latínskir kalla versi- ficatores. Og er það merkilegt, að skáld hafa svo vel hjá Grikkjum sem Rómverjum sitt nafn af því orði, sem merkir að gera eða dikta upp nokkuð af engu. Hér vil ég nú eigi margt tala um það lygavefi, sem skáldin hafa framar öllum öðrum mönnum, hvað menn kalla ýkjur, þegar þeir gera af hinum allra minnstu hlutum svo stórt sem bæði væri himinn og jörð, af einu minnsta sandkorni heilt fjall og af mýflugunni einn úlfalda. Nú vil ég á þennan hátt álykta og argumentera. Allar ýkjur eru lygi. Nú er það víst, að ýkjur eru skáldskaparins mesta prýði; svo fylgir það þá á eftir, að lygin ein- tómis er skáldskaparins mesta prýði. Þessu vil ég hér við bæta, hvað mikið þeir eiga þá lyginni að þakka, um hverja skáldin yrkja drápur og lofkvæði til að halda á loft þeirra ódauðlega mannorði, hvað alltið hefur verið í miklu gengi, allra helzt hjá furstum og stórherrum, þeim sem sjálfir hafa nokkuð merkilegt aðhafzt... Skraparotsprédikun (um 1750) Skólapiltar í Skálholti héldu á hverju ári svonefnda herranótt. Þar munu nemendur hafa skipað sér í ýmsar virðingarstöður eftir sætum í skóla. Einn var nefndur konungur, annar biskup og flutti hann á herranóttinni gamanræðu í prédikunarformi, og var hún nefnd Skraparotsprédikun: Hvað margar og hvílíkar þessar Skrapatoris dætur verið hafa, er vor upplesinn texti um getur, er auðsætt af spámannsins orðum í eftirfylgjandi kapítula, þar hann kemst svo að orði: Þær hinar út- völdu eru tvær, nefnilega: tóbaks- stubbur og kertisskarið. — Þetta eru einkadætur Skraparots, um hverjar ég vildi nokkuð talað hafa á stundu þessari. Um gagn þeirrar fyrri, nefnilega tóbaksins, held ég sé engum óljóst. Hvað mikið mæti því nafnfræga ölmususkáldi, hin- um sæla Kolbeini, hafi þótt á því, má sjá af hans sorgardikt, er hann kvað, þá hann þröngvaðist af ör- birgð þessarar eðalperlu, segjandi: Gleðin mundi geysilig grátinn mikla sefa, ef að núna upp í mig einhver vildigefa. Það síðara, er ég lofaði á að minnast, er kertisskarið, sem er það fyrsta, sem oss er rétt af hendi Skrapaters, og ég hafði nærri það sagt, að hann ætti ekk- ert ágætara í eigu sinni að undan- teknu ríkinu og gulskjótta kettin- um, sem hvílir á fótum hans. Ei þarf ég margt hér um að tala. Það sæist glöggvast, ef á því væri kveikt og sett fyrir augu á einum í myrkri og drepið að vörmu spori. Mundi ei þeim sama bregða í brún og bilt við verða? Ekkert skín bet- ur í myrkrinu en kertaljósið, og þó þú bærir það saman við traf af 12 fiska lérefti, þá er það dauft hjá ljósinu... En þú, sköllótti Skraparot, gef oss að höndla svo með vora kertis- stubba hér í tímanum, að þú að endaðri hérvist vorra daga virðist að leiða oss þangað, sem kerta- stubbarnir taka enda, en hákertin taka við. Og lát oss aldrei verða fundna í því ósómans háttalagi að forsmá þínar elskulegu dætur, svo að þín grimmd svipti oss ei páska- grautnum. Heyr það og bænheyr fyrir þinn stóra, hreykjandi barðahatt. Viljum vér svo að endingu þess- arar einfaldrar, en þó velmeintrar ræðu niður krjúpa í annað sinn á vorar fátæklegar skollaskinnshúf- ur með eftirfylgjandi bænarorð- um: ó, þú stóri og sterki Skraparot, vér, þínir aumir hrossagaukar, þökkum þér ámátlega fyrir eitt að sérhvað, er þín örlætisfulla líkn- arloppa hefur glatt hrognahatta vora. Vér biðjum þig, að þú viljir vera oss gráðuglega náðugur og að þú vildir við magt halda þínum náðargjöfum, nefnilega tóbaks- skorninu og kertisstubbnum, og láta oss það aldrei á borð bresta. Og með því vér vitum, að þú ert oss mildur og miskunnsamur, þar þú hefur gefið oss svo náðugan kóng, já, í þínu orði til alls góðs hneigðan, sem einn kóng kann prýða, þá biðjum vér, að þú stað- festir hans ríkisstól ævinlega og látir hann breiðast út yfir heims- skautið. Lát þá alla mæta straffi, er setja sig upp á móti honum. Lát ginkefli í allra þeirra kjaft, sem honum eru óhlýðugir. Lát hann lengi að ríkinu sitja, og gef honum nafn í þessu grábrókarríki fram yfir alla kónga. Blás þínum sterka púðrandi anda í alla þá, sem eiga að kenna og víðfrægja þína stóru páskadýrð, að þeir með miklum áhuga og alvörugefni útbreiði þitt loflega þriggja fjórðunga tignar- veldi af öllum kröftum iðranna, og lát þær innantökur aldrei við þá skilja, að þeir sem skrækjandi skjáhrafnar krunka kostgæfilega framan í sína tilheyrendur með gapandi gini. Lát dómarana dæma rétta dóma, að þeir halli ei réttum dómi ekkjunnar fyrir kertis- eða tóbaksmúltir. Lát þá ei festa sitt hjarta við þá aumu kúrantmynt. Æ, lát þá stunda vel sitt embætti og óttast þig sem þann rétta og sanna kerta- og tóbaksföður. Skjót einnig þínu gæzkufulla hornauga upp á þá heiðarlegu hreppstjóra- stétt, og lát sérhvern svo farinn lifa í sinni stétt og fram draga svo sitt hreppstjóraembættisstand, að þeir að endingu verði begáfaðir af þér með tóbakslús. Heyr það og bænheyr fyrir þitt mikla og magt- arstóra veldi. Tómas Sæmundsson (1807—1841) Hvað verður um æskumanninn? Hvað verður um æskumanninn, ef hann hættir að hafa stjórn á sjálfum sér, ef hann hættir að vaka yfir hjarta sínu, ef hann hættir að stríða og biðja? Það ofþyngist af ofáti eða ofdrykkju, það fellur í freistni, þar kvikna hinar vondu girndirnar — hór- dómur og frillulífi, sem aö saurga manninn, og andi helgunarinnar flýgur burt þaðan. Ef hann lítur til baka, verður fyrir honum líf, sem atað er af svívirðing, rangsleitni við náung- ann, meinsæri við guð. Lífinu er eytt í mótþróa við aðra, í því að leiða þá afvega með hneykslanleg- um dæmum, hagga sælu þeirra og ánægju ... í stuttu máli, í fjand- skap við guð, sjálfan sig og aðra menn. Ef hann lítur fram á leiðina, þá verður fyrir honum óttalegt dauðastríð án minnstu hugsvölun- ar eða endurnæringar, hryllilegt myrkur, er ekkert ljós fær í skinið, réttlátur og strangur dómari, sem kveður upp yfir honum fordæm- inguna, endalausa eilífð og enda- laust líf, þar sem hann skal taka út endalaus gjöld, þess, sem hann hafðist að. Svona er nú breiði vegurinn, sem liggnir til glötunar, sem svo margir fara. Nú er yður í sjálfs- vald sett, saklausu ungmenni, hvort þér viljið feta þennan veg- inn. Vilji yðar er frjáls, og enginn mannlegur kraftur utan að getur aftrað yður frá að fara hann ... Benedikt tíröndal (1826—1907) Skáldskapur og trú Að afnema trúna á persónu- legan guð væri sama sem að nema sólina burtu úr jarðstjörnukerf- inu. Allt öðru máli er að gegna, hverjar hugmyndir menn gera sér um guð; trúin á persónulegan guð hefur verið þörf allra þjóða á öll- um tímum, þó að stundum hafi þær villzt frá því i einhverju fáti. Það sem Mirabeau sagði: skyn- semin er stjórnandi heimsins, þá er það eitt af þessum skilyrðum, sem svo oft hafa verið misskilin og misbrúkuð og valdið mörgu illu. Trúin á guð var, eins og kunnugt er, af tekin í stjórnarbyltingunni í Frakklandi árið 1793, og þótti jafnvel ekki nóg, því Anacharsis Cloots, þýzkur barón í París, tókst á hendur það embætti að vera „persónulegur fjandmaður Krists“ — svo hlægilegt varð allt þetta í vitleysunni og grimmdinni, og það er ekki langt frá því, að jafna megi Zola og hans afrekum við þetta. En Napoleon, sem þekkti mann- legan anda betur en aðrir menn, innleiddi trúna aftur 1801 — hann sagði að ómögulegt væri að stjórna trúarlausri þjóð. Raunar er það fráleitt, að Napoleon hafi trúað bókstaflega á allar kenning- ar kirkjunnar; innleiðsla hans á trúnni var einungis pólitískt ráð. En það sýnir, hvernig mennirnir eru og hvaða skoðanir hafa verið á þessu hjá einhverjum hinum mesta gáfumanni, sem fæðzt hef- ur á þessari jörð. Það er einnig fráleitt að heimta, að menn skuli trúa á guð eins og honum er lyst í kverinu: „sá segir mest af Olafi kóngi, sem hvorki hefur heyrt hann né séð“, má segja um þá, sem takast á hendur að semja þessar lýsingar á guði, sem börnin eru látin læra og sem að ýmsu leyti eru næsta kátlegar, og kátlegar tilfinningar geta komið, þegar vér sjáum guð málaðan eins og gaml- an skeggjaðan öldung í stórri kápu — þannig hafa hinir mestu meist- arar málað — getum vér þá ekki spurt: Hvað gamall er guð? Úr hverju er kápan? Er hún úr dyffel — eða úr klæði? Það er náttúrlega himnesk, idealistisk kápa, eins og fötin, sem englarnir eru í. — Feuerbach, sem var Atheisti, byggði sína afneitun á guði meðal annars á því, að vér ekki tryðum á guð til annars en að biðja hann um allt af eintómri sérplægni — en hvað er á móti því, að vér biðj- um guð um allt? Skyldi guð muna um það — eða halda menn hann fari eftir krónum og aurum? — Prestum hefur lengi verið tamt að ógna mönnum með djöflum, helvíti og kvölum, og þetta er líka kennt allgreinilega í kverinu; það er ómyndarlegur samsetningur, þó að kirkjan kenni það og þó að hin- ir frægustu meistarar, svo sem Michel Angelo, hafi sýnt snilld sína og ímyndunarafl með því að mála menn í eilífum kvölum og þó Dante hafi gert þá lýsingu á hel- víti, sem vara mun, meðan skáld- skapur er lesinn — að trúa af ótta fyrir þessu er engin trú, heldur þrælsótti, sem ekki verður jafnað við annað en að pína menn til sagna og láta þá játa öllu í vit- leysu kvalanna. En þessar prédik- anir um djöful og helvíti tiðkast nú miklu minna en áður. Það er víst að engin þjóð, sem hefur komizt til menntunar og valda, hefur verið trúarlaus. Stephan tí. Stephansson (1853—1927) Húskveðja, sem Stephan G. flutti eftir Gest, sextán ára son sinn, er fórst af slysförum I þrumuveðri. Frændurnir í ljóðinu: systursonur skáldsins dáinn fyrir skömmu. Sonurinn kvaddur Við þökkum vandamönnum og vinum hjartanlega fyrir hluttekn- inguna og honum, sem hérna verð- ur eftir, fyrir sonarlega samveru. Okkur var hann vænn sonur og systkinum sínum góöur bróðir. Ég vissi hann aldrei viljandi bregðast sínum betri dreng. Lengra líf hefði getað gert hann að meiri manni, aldrei betri. Um hann er ég óhult- ur. Góðum manni getur hvergi farnazt illa, og allt það af honum, sem kennt gat til og illa farið um, hvílir nú í kistunni hérna og kenn- ir sér aldrei meins. Hann hefur gert endurminningarnar mínar auðugri, og þó mér sé sárt að sjá honum svona á bak, væri þó auða skarðið í ævina mína enn þá hörmulegra, hefði ég aldrei átt hann og aldrei notið ánægjunnar, sem ég hafði af honum. Þökk og blessun mun fylgja þér, barnið mitt, meðan ég lifi. Verið þið sælir dag eftir dag, duftinu háðir, fallnir ígröfina í fóstbræðralag, frændurnir báðir. Samantekt: HJÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.