Morgunblaðið - 26.10.1983, Síða 36

Morgunblaðið - 26.10.1983, Síða 36
68 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 Akureyri: Bæjarbúar standa vel f skilum við bæjarsjóð Akureyri, 19. október. Á bæjarstjórnarfundi, sem haldinn var í gær, var lagt fram greiðsluyfirlit bæjarsjóðs miðað við 30. september sl. Niðurstöðu- tölur á yfirlitinu eru kr. 468.828.372,- og kom m.a. fram í máli Helga Bergs bæjarstjóra, að innheimta bæjargjalda miðað við þann tíma hefur gengið 3% betur en á sama tíma í fyrra. „Reynum að breyta umhverfi okkar til betri vegaru — segir Aubrey Irby alheimsforseti Kiwanishreyfingarinnar Alheimsforseti Kiwanis, Aubrey E. Irby, hefur verið hérlendis í opinberri heimsókn til Kiwanis- hreyfingarinnar á íslandi. Strax fyrsta dag heimsóknarinnar skoð- aði hann hús sem Kiwanismenn eru að byggja í Fossvogi og ætlað er sem áfangastaður fyrir geðsjúka. „Gerum brautina greiða — auðgum líf hinna fötluðu", eru einkunnarorð áhersluverkefnis okkar í ár og er ánægjulegt að sjá með eigin augum svo greinilegt merki dugmikils starfs Kiwan- ismanna hér á íslandi að þessu verkefni." sagði Aubrey E. Irby í samtali við Morgunblaðið. „Heimsókn mín hingað er sú fyrsta sem ég fer í oftir að ég tók við embætti alheimsforseta 1. október síðastliðinn, en til þess var ég kjörinn á alþjóðaþingi Kiwanis í Vínarborg í júlí.“ Og í hverju er starfið fólgið? „Ég er talsmaður hreyfingar- innar, og ferðast milli Kiwanis klúbba og umdæma víðsvegar um heiminn. Konan mín, Margareth, og ég ætlum á þessu starfsári að ferðast um Evrópu og Asíu, auk þess sem við heimsækjum Kiwan- isumdæmin í Bandaríkjunum. Forseti er kosinn til eins árs í senn og er starfið ólaunað, eins og öll vinna innan hreyfingarinn- ar. Sjálfur hef ég starfað innan Kiwanishreyfingarinnar í 23 ár og hafði áður en ég varð forseti gegnt fjölmörgum trúnaðarstörf- um.“ Hvenær var þessi félagsskapur stofnaður? „Alþjóðlega Kiwanishreyfingin var stofnuð í Detroit 1915, undir kjörorðunum „Við byggjum". Þetta er þjónustuhreyfing karl- manna, sem starfar að góðgerð- armálum, og aðstoðar þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Innan hennar eru nú 307.000 meðlimir í yfir 8.000 klúbbum í 78 löndum um allan heim. Og ísland er eitt þeirra? „Já og það skemmtilega við að koma hingað til íslands er sú sér- staða sem Kiwanishreyfingin hér hefur. Fyrst að nefna er hér mesti fjöldi félagsmanna í heim- inum ef miðað er við íbúatölu. Þá er félagsskapurinn mjög opinn, því reglur eins og þær að í hverj- um klúbbi eigi aðeins að vera einn maður úr hverri starfsstétt Aðalfundur Útvegsmannafélags Suðumesjæ FúkrúAsfírAi, 20. október. Undanfarin 3 ár hafa staðið yfir framkvæmdir við byggingu íbúða fyrir aldraða. í húsinu verða 8 einstaklings- og hjónaíbúðir. Húsið er að verða fokhelt. Verktaki er Þorsteinn Bjarnason húsasmíðameistari. Húsið teiknaði Teiknistofan Óðinstorg. Aibert „Niðurfelling vörugjaldsins þýðir minnst hundrað króna lækkun á plötum og erum við sannfærðir um að tónlistar- unnendur kunni að meta það.“ F.v. Gunnar Guðmundsson, framkvstj. Samtaka hljómplötuútgefenda, Jón Ólafsson, Skífunni, Ólafur Haraldsson, Fálkanum, Pétur Kristjánsson, Steinum, og Jóhann G. Jóhannsson. „Kiwanishreyfing- in á íslandi hefur mikla sérstöðu" Aubrey og Marg- areth, kona hans í miðbæ Reykjavík- ur. eiga einfaldlega ekki við hér. Þá er K-dagurinn sér íslenskt fyrir- brigði. A þeim degi er öllum Kiw- anismönnum á landinu stefnt saman til að vinna að sama verk- efni. Byrjuðu þeir á þessu 1974 og hefur verið haft þriðja hvert ár síðan. Kjörorð K-dagsins hingað til hefur verið „Gleymum ekki geðsjúkum" og verður það einnig kjörorð næsta K-dags sem 29. október næstkomandi. Á þessum degi er safnað fé með sölu á litlu merki sem nefnt er Kiwanislyk- illinn, og rann ágóði fyrsta árið til uppbyggingar á vernduðum vinnustað fyrir geðsjúka. Tvö síð- ustu skipti hefur fénu verið varið til byggingar áfangastaðarins, sem ég hef fengið að skoða, og nefndi hér áðan. Lokaáfanganum á að reyna að ná með því fé sem safnast á næsta K-degi, og er vonast til að hægt verði að taka húsið í notkun fyrri part árs 1984. Sex hundruð fermetra hús byggt frá grunni til þess að verða verndað heimili fyrir geðsjúkl- inga sem eru á leið út í lífið á ný eftir veru á stofnunum. Þannig starfa Kiwanisfélög í hverju landi á sinn hátt, og að mjög fjölbreyttum verkefnum. En þau eiga það öll sameiginlegt að reyna að breyta sínu umhverfi til betri vegar." — segja hljómplötuútgefendur um niðurfellingu vörugjaldsins „Já tvímælalaust, því um leið og plötur lækka i verði, stækkar markaðurinn fyrir hljómplötur, bæði íslenskar og erlendar. Það verður til þess að við leggjum frekar í að gefa út íslenskar plöt- ur, og höldum þeim á sama verði og þeim erlendu, í trausti þess að upplögin stækki. Þessi síðustu og verstu ár hefur eftirspurn snar- minnkað eftir íslenskum plötum, og hefur þetta komið hart niður á bæði útgáfunni og tónlistar- mönnum. Svo dæmi séu nefnd þá var meðalsala á íslenskri plötu 1977 5000—6000 eintök, en nú selst plata varla meir en í 1000 eintök- um. Það kallast núorðið metsala að komast í 5000 eintök, enda er sá sem á metsöluplötuna í ár farinn á síldarvertíð. Þessi samdráttur hefur líka komið niður á þeim sem vinna við hljóðupptökurnar og öðrum sem tengjast iðnaðinum, og síðast en ekki síst hefur þetta komið niður á ríkiskassanum, því að tekjurnar minnkuðu stórlega þrátt fyrir aukna álagningu, vegna þess hve markaðurinn dróst saman. Það skaut líka skökku við, að bækur, blöð og tímarit voru flutt toll- og vörugjaldslaust inn í landið á meðan gjöldum var hlaðið á hljómplötuna. En nú hefur breyting orðið á og vonumst við til að hljómplatan vinni smámsaman aftur þann sess sem hún áður skipaði. Með lækk- uðu verði verður hún samkeppn- ishæf við bækur og svipaðar vörur á gjafavörumarkaði. Hefur það mikið að segja, því salan fyrir jól- in er allt að því þriðjungur af árssölunni. íslenski hljómplötuiðnaðurinn er ungur og viðkvæmur, en gæti með styrktri stöðu orðið arðbær- ari en margur iðnaður hér, því við eigum listamenn á heimsmæli- kvarða, en vantar aðstöðu til að sækja á erlendan markað. — En hljóðið í okkur er gott, því áfanga- sigur er unninn." „Hljómplötuiðnaóurinn sem átti enga framtíð fyrir helgi, hefur nú með niðurfellingu vörugjaldsins, eignast lífsvon," sögðu hljómplötu- útgefendur á blaðamannafundi sem þeir efndu til í tilefni þess að 30% vörugjald hefur verið fellt niður af innfluttum hljómplöt- um. Á fundinum voru Pétur Krist- jánsson, Jón Ólafsson, Ólafur Har- aldsson, Jóhann G. Jóhannsson og Gunnar Guðmundsson. „Síðan vörugjaldið var hækkað upp í 30 prósent 1978, hefur eftir- spurn eftir plötum dregist saman um liðlega helming, og ef ekkert hefði gerst hefði salan í ár Kklega aðeins orðið þriðjungur þess sem hún var fyrir þessa hækkun. Fólk var komið á þá skoðun að plötur hér á íslandi væru ókaupandi og lét sér nægja að taka upp tónlist úr útvarpi eða fá lánaðar plötur hjá kunninejum. Um þriðjungur plötukaupa Islendinga höfum við áætlað að fari fram erlendis og það eru til sögur um fólk kemur með 30—40 piötur heim og lætur verðmismuninn borga ferðina. Og rétt er það, verðmismunurinn hef- ur verið mikill, erlendis kostar meðalhljómplata nú 200—250 krónur, en kostaði hér fyrir helgi 550 krónur. En nú munu hljóm- plöturnar lækka í það minnsta um 100 krónur í verði, og það er stefna okkar að að halda óbreyttu verði fram yfir jól, og eins lengi og gengið helst óbreytt. Við erum sannfærðir um að tónlistarunn- endur kunni að meta þessa verð- lækkun og treysti sér til að kaupa hljómplötur i auknum mæli f framtíðinni." En kemur lækkun á erlendum plötum þeim íslensku til góða? Hljómplötuiðnaðurinn hefur eignast lífsvon Tryggja verður út- gerðinni eðlilegan rekstrargrundvöll ÚTVEGSMANNAFÉLAG Suður nesja hélt sinn 20. aðalfund sunnu- daginn 16. október sl. í Stapa í Njarðvík. Á fundinum var Eiríkur Tómasson Grindavík endurkjörinn formaður félagsins. I fréttatilkynningu frá félaginu segir um niðurstöður fundarins: „Á fundinum kom fram sú skoðun að ekki væri hægt að halda áfram á braut þeirrar mínusstefnu sem hefur verið látin ráða afkomu í útgerð síðustu árin. Tryggja verð- ur útgerðinni eðlilegan rekstr- argrundvöll við þær aðstæður sem ríkja hverju sinni. Þrátt fyrir góð aflabrögð og hagstæðan markað síðustu ára hefur þess verið gætt af stjórnvöldum að skiija ekkert eftir í greininni þannig að nú þeg- ar verr árar blasir við stöðvun. Lausafjárstaða útgerðarinnar er svo geigvænleg að menn muna vart annað eins. Hvatt er til sam- stöðu útgerðarmanna, um að þeir leggi til hliðar minni háttar ágreiningsmál og þjappi sér sam- an um að fá raunverulegar úrbæt- ur á rekstrarafkomu útgerðarinn- ar.“ Með Eiríki Tómassyni voru kjörnir í stjórn Gunnlaugur Karlsson Keflavík, Hilmar Magn- ússon Keflavík, Ólafur B. ólafsson Sandgerði, Guðmundur Þor- steinsson Grindavík, Eiríkur Guð- mundsson Garði, Magnús Þórar- insson Keflavík, Guðmundur Guð- mundsson Grindavík og Jón Eð- valdsson Sandgerði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.