Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 £0
„Vandinn mestur 1
húsnæðismálum
„Landsþingið tókst mjög vei
og sóttu það um 200 manns.
Fjallað var um öll helstu málefni
fatlaðra, bæði á þinginu sjálfu og
á ráðstefnunni sem haldin var í
tengslum við það,“ sagði Eggert
Jóhannesson, formaður Lands-
samtakanna Þroskahjálp, í sam-
tali við Morgunblaðið. Lands-
þing Þroskahjálpar var haldið
dagana 7.—9. október sl.
— Hvert var meginverkefni
ráðstefnunnar?
„Af þeim málum sem fjallað
var um bar hæst þann húsnæð-
isvanda, sem fatlaðir eiga við
að etja um allt land,“ sagði
Eggert. „Við vitum það að tug-
ir fatlaðra barna og unglinga
eru inni á heimilum sínum og
yfirleitt án allrar aðstöðu til að
komast inn á stofnanir. Auð-
vitað reyna foreldrar og að-
standendur að hafa börn sín
sem mest heima fyrir, en nauð-
synlegir valkostir eru oft ekki
fyrir hendi. Það er nauðsynlegt
fyrir aðstandendur að geta
fengið vist, skamm- eða lang-
tíma, fyrir börn sín. Margar
fjölskyldur eru bugaðar af því
gífurlega álagi sem fylgir um-
önnun fatlaðs barns í heima-
húsum. Þetta er staðreynd sem
ekki er hægt að horfa framhjá.
Og það ber að gæta að öðru.
Þjóðfélagið er þannig byggt
Rætt við Eggert
Jóhannesson,
formann Þroska-
hjálpar um nýlokið
Landsþing
samtakanna
upp að hjá flestum stéttum er
fjárhagsleg forsenda fyrir.
heimilisrekstrinum sú að þar
séu tvær fyrirvinnur.
Það getur þó hver maður séð
að þar sem mikið fatlaður ein-
staklingur býr í heimahúsum
heldur enginn heilsu með því
að vinna úti og annast þennan
fatlaða einstakling, jafnvel þó
einhverja þjónustu sé að fá
hluta úr virkum dögum. Hvað
þá ef um einstætt foreldri er að
ræða, sem er töluvert algengt.
Fólk í slíkri aðstöðu er ekki
eitt um neyðina. Ég nefni full-
orðna fatlaða einstaklinga sem
alla tíð hafa búið hjá foreldr-
um sínum. Þess eru mörg
dæmi. Þetta fólk er í raun hús-
næðislaust, því geta foreldr-
anna til að hafa þá heima fyrir
er ekki lengur fyrir hendi. Slík
tilfelli hafa oft gengið næst
hjarta mínu, það að finna og
heyra að hugsun aldraðra for-
eldra í slíkri aðstöðu snýst öll
um það hvað verður um þennan
einstakling þegar það fellur
frá.“
— Eru fyrirsjáanlegar úrbæt-
ur í húsnæðismálum fatlaðra?
„Að vissu marki er það svo.
Nú og í náinni framtíð taka til
starfa ellefu nýjar stofnanir. I
ræðu Alexanders Stefánssonar
félagsmálaráðherra við setn-
ingu þingsins kom fram að í
fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir umtalsverðri aukn-
ingu á rekstrarfé til stofnan-
anna. 1 fjárlögum 1983 var
fjárveiting til málefna fatlaðra
kr. 70.877.000 en í fjárlaga-
frumvarpinu nú er gert ráð
fyrir 108,4% aukningu eða að
upphæð 147.726.000 kr. Þetta er
að vonum ánægjuefni. Hins-
vegar verður talsvert skorið
niður fé til nýframkvæmda frá
því sem gert var ráð fyrir í lög-
um um málefni fatlaðra sem
Alþingi samþykkti að gengju í
gildi um næstu áramót. Sagði
Alexander að jafnvel yrði
gengið svo langt að skera þar
niður um knappan helming.
Við sem sátum þingið vorum
að vonum ekki ánægð með
þessar fréttir, því að þrátt
fyrir tilkomu ellefu nýrra
stofnana er hinni brýnu þörf
ekki fullnægt og áframhald-
Eggert Jóhannesson, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálp, en
því starfi hefur hann gegnt í fjögur
ár.
andi framkvæmdir verða að
koma til.“
— Hvada önnur mál voru
helst rædd á þinginu?
„Það var mikið rætt um hluti
eins og sérkennslu og þess
krafist að fötluð börn fái sér-
kennslu strax og fötlunar verð-
ur vart. Eins var skorað á Al-
þingi að samþykkja hið bráð-
asta frumvörp um framhalds-
og fullorðinskennslu. Þá er
ráðgjöf við foreldra mjög
ábótavant og þörf er á bækl-
ingum um eðli fötlunar, rétt-
indi barna og foreldra og úr-
ræði. Einnig var þess krafist
að staðið væri við yfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna um að
fullt tillit sé tekið til sérþarfa
fatlaðra á öllum stigum félags-
legrar og fjárhagslegrar upp-
byggingar, þar með talið at-
vinnuuppbygging. Það er
stefna okkar að tryggja tengsl
við framhaldsskóla og almenn-
an vinnumarkað. Þetta má
gera með starfsþjálfun, vinnu-
miðlun og vinnueftirliti.
Aðild Þroskahjálpar að sam-
norrænum samtökum um mál-
efni þroskaheftra var einnig til
umræðu, en þau samtök voru
stofnuð árið 1963 af fimm
Norðurlöndum, þ.á m. Islandi.
Norræna samvinnuráðið var
einnig á dagskrá, en að því á
Þroskahjálp aðild fyrir tslands
hönd. Norræna samvinnuráðið
eru samtök foreldra á öllum
Norðurlöndunum sem vinna í
sameiningu að úrbótum á mál-
efnum fatlaðra, bera saman
bækur sínar og reynslu."
— I hverju verður starf Þros-
kahjálpar aðallega fólgið í náinni
framtíð?
„Fyrst og fremst að fylgja
eftir samþykktum þingsins,
ásamt því m.a. að standa að
uppbyggingu sumardvalar-
heimilisins að Botni í Eyja-
firði. Við rekum áfram gisti-
heimilið i Melgerði 7 í Kópa-
vogi, sem við höfum rekið und-
anfarin ár og útgáfustarfsemi
verður fram haldið, eftir því
sem fjárhagur leyfir. Þar
leggjum við þó megináherslu á
tímaritið Þroskahjálp. Öll
þessi starfsemi, sem er orðin
nokkuð umfangsmikil og kost-
ar talsvert fé, er fjármögnuð af
miklu leyti með sölu á al-
manakshappdrætti í lok hvers
árs,“ sagði Eggert Jóhannesson
að lokum. Eggert hefur gegnt
starfi formanns Þroskahjálpar
í fjögur ár og var endurkjörinn
formaður á Landsþinginu.
Ráðstefna um alþjóðafjármál,
gengis- og gjaldeyrismál
KRISTALSSAL HÓTEL LOFTLEIÐA
föstudaginn 4. nóvember kl. 9:00—17:00
DAGSKRA:
09.00—09.15 Mæting og greiösla þátttökugjalda. 13.30—14.00 Gjaldeyrisstýring fyrirtækja — Strategies
09.15—09.30 Ráðstefnan sett. for currency management.
— Þórður Friðjónsson, formaöur FVH. — Dr. ekon. Lars Oxelheim, forstjóri
09.30—10.00 Staöa alþjóðagjaldeyrismála. Scandinavian Institute for Foreign Ex-
— Dr. Jóhannes Nordal, Seðlabanka- change Research.
stjóri. 14.00—14.30 Möguleikar íslenskra fyrirtækja til gjald-
10.00—10.30 Gengiskerfi eftirstríðsáranna. eyrisstýringar.
— Tryggvi Pálsson, hagfræðingur Lands- — Dr. Sigurður B. Stefánsson, hagfr.,
banka isl. Kaupþing hf.
Kaffihlé. 14.30—15.00 U.S. monetary and fiscal policy — How
10.30—11.00 Áhrif gengisskráningar á ísl. efnahagslíf. they affect the U.S. dollar and other curr-
— Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- encies.
stofnunar. — Leif Olson, chief economist, Citibank.
11.00—11.30 Models and Methods for currency fore- 15.00—15.20 Kaffihlé.
casting. 15.20—17.00 Panelumræður.
— Johns Sharples, M.A., The Henley — Stjórnandi: Jónas Haralz, bankastjóri
Centre for forecasting. Landsbanka íslands.
11.30—12.00 Kynning á alþjóöaupplýsingakerfi Reuters
— Reuters Monitor. Ráðstefnustjóri: Kristján Jóhannsson,
12.00—13.30 Hádegisverður Hótel Loftleiöum. formaður fræðslunefndar FVH.
Þátttaka tilkynnist í síma 27577.
Þátttökugjald 2.700 kr.
Félag viöskiptafræðinga og hagfræðinga