Morgunblaðið - 26.10.1983, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.10.1983, Qupperneq 38
70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983 Til umhugsunar Sönn lífegildi — eða hégómí og loftkastalar — eftirSvein Ólafsson, SUfurtúni Streð og pex, streita og rex, spretthlaup á flestum sviðum. Hugarkvöl, fálm og Hrunadans vex, helstefna’ og rot í burðarviðum. Menn tala af fjálgleik um fram- þróun, uppbyggingu, nýjungar og þarfir í vestrænum velferðarríkj- um samtíðarinnar: samfélögum hins nýja tíma. En þó er, þrátt fyrir allt velferðartalið, eins og samfélögin séu á villigötum, hafi í veigamiklum efnum tapað áttun- um, einkum í hinu mannlega. Virðist þannig stór spurning, hvort í raun sé meiri þróun í mannlífinu áfram eða hreinlega aftur á bak, þegar á allt er litið. Sumpart þróast efnaleg velferð og veraldleg gróska, menntun, tækni og aðrir hlutir, sem snúa að af- komuhlið lífsins, áfram; en sjálft mannlífið virðist fara halloka. Maðurinn sjálfur og hans andlega reisn og velferð virðast hafa geng- ið úr skorðum og stefna í þveröf- uga átt við allar framfarirnar. Ábyrgðarleysi, siðleysi, hófleysi, óréttur, áfengis- og eiturlyfja- nautnir, ofbeldi, öfund, endalaust nart og látlaus sultarsöngur og kröfupex virðast hafa skapað svo mikinn ömurleika og þreytu í samlífi manna, að svo virðist sem mannskapurinn sé nánast orðinn rugiaður og uppgefinn, vonlaus og ráðþrota, viti vart hvert stefna ber og hverjum megi treysta. Bölvun opinberra afskipta Sá, sem þetta ritar, hefir oft átalið hófleysi opinberra afskipta á íslandi og þá bölvun, sem óeðli- legar þvinganir á ýmsum sviðum hafa leitt af sér fyrir fólkið í land- inu og það fjárhagslega óréttlæti, sem þetta hefir falið í sér fyrir margt fólk í sambandi við rekstur fyrirtækja og þannig skert mögu- leika borgarnna til að leita bjarg- ráða og framfærslu sér til handa í einkarekstri. Um leið og þetta er hér endurtekið og enn á ný undir- strikað, skal bent á að í þessum opinberu afskiptum eru margir bölvaldar, sem leynzt hafa þeim er á þá hafa trúað í blindni sem eins- konar bjargræðisvon réttlætisins í innbyrðis skiptum þegna samfé- lagsins. — Hér er átt við óskyn- samleg ákvæði um t.d. verðlagn- ingu vöru og þjónustu (verðlags- kúgun), afskriftir, skattlagningu án raunverulegs skattstofns (að- stöðugjalds án ágóða í rekstri) og ýmislegt af því taginu. Margar af þeim reglum og aðferðum, sem beitt hefir verið í þessum efnum, eru byggðar á grófum misskilningi á verkunum þeirra til almennrar velferðar — með öfugum verkun- um — og hefir slíkt leitt til ástands í íslenzku samfélagi, sem menn átta sig ekki almennt á hverjar orsakir liggja til. — Mönnum láist að greina hver sé hinn rétti sökudólgur, og bölvald- urinn er þeim næsta hulinn, þeim mistekst að skynja hinar raun- verulegu orsakir. Og ef hinar Sveinn Ólafsson „Stjórnvöld liggja á því laginu áratugum saman að setjast ofan á at- vinnureksturinn og þá sérstaklega verzlunina, í stað þess að lofa fólki hreinlega að blómstra í friði.“ Fyrri grein raunverulegu orsakir glatast verð- ur ekki auðvelt um að fást við af- leiðingarnar, enda sýnist margt fálmkennt, sem hér er gripið til til úrbóta í ýmsum efnum. Hér virð- ist „skóbótakerfið" í algleymingi, lappað upp á í stað raunhæfra úr- bóta, þar sem verkanir eru athug- aðar niður í kjölinn og endurbæt- ur framkvæmdar út í æsar, í stað þess að krafsa í einstaka galla og gera svo hreinar hræsnis- og málamyndaúrbætur, sem ekkert gagn gera, nema blekkja þá sem eru skammsýnastir og skynja sjaldnast hvað eru úrbætur og hvað ekki. í sambandi við 30—40 ára verð- lagsþvinganir (verðlagskúgun) á hendur verzlunar- og þjónustufyr- irtækjum í landinu, þá er það niðurstaða undirritaðs, að þar sé að finna meira niðurrifsafl, sam- félagslega séð, en jafnvel boðend- ur og trúarpostula þessa aftur- haldsfargans órar fyrir, — svo ekki sé minnzt á skattpínslu fyrir- tækjanna í landinu almennt séð. Það hlálegasta er, að hinn al- menni borgari er, með skefja- lausri sefjun og blekkingarrökum, teymdur á asnaeyrunum í blindri trú á þennan ófarnað — án þess að skilja upp eða niður í verkun þessa ófagnaðar fyrir hann sjálfan og þjóðarheildina alla. Og það er hart að benda á þá sorglegu staðreynd, sem flestir eru feimnir við að nefna upphátt, að í íslenzku sam- félagi skuli slík glórulaus þröng- sýni vera ráðandi meðal almenn- ings og ráðamanna einnig, að mönnum sé nánast ókleift að lifa það af efnahagslega að stunda verzlunarrekstur i sínu eigin föð- urlandi eins og heiðarlegir menn, fari þeir í hvívetna eftir gildandi lagaboðum. Og á þessu bera sjálf stjórnvöld og Alþingi landsins ábyrgð með því að viðhalda vit- lausum og ranglátum lífsreglum fyrir atvinnureksturinn. Að vísu er þeim vorkunn, því harðsnúnum og heimskum hagsmunahópum, sem telja sig vera verndara hinna smáu, en misskilja algjörlega hlutverk sitt, líðst að beita þving- unum sem standa í vegi fyrir réttlæti og framförum. Ekki verð- ur séð hvernig þeir hafa öðlast þennan rétt til að vera verndarar — sem þeir eru ekki, heldur aðeins niðurrifsafl, sem gengur í myrkri og blindu, og telja sér trú um að þeir séu að gera gagn. Og hvernig er svo staðan vegna alls þessa? Jú, nýtum og hæfum mönnum, sem ekki hafa fengið sig til að standa í þeim „skítverkum" sem eru verzlunarrekstri samfara, hefir nánast verið „sparkað" út af sviði viðskiptalífsins, og nýir menn hafa í grandaleysi og bjart- sýni komið inn í staðinn, hugsan- lega keypt fyrirtækin, og viljað reyna að spreyta sig á vitleysunni. En slíkt er hægara sagt en gert, og varla á mannlegu færi að komast í gegnum allan þann moðreyk af reglufargani, þvingunarákvæðum, sem oft jaðra við hreina áþján þar eð þau fela m.a. í sér allskyns ólaunaða vinnu í þágu hins opin- bera og margskyns gerræði gagn- vart fyrirtækjum og einstakling- um, ef ekki er allt samkvæmt ýtr- ustu kröfum og boðum. — Og svo má víst ekki gleyma verðbólgu- draugnum, sem er að kafkeyra og leggja allan atvinnurekstur í rúst. Áfleiðingin hefir og orðið sú, að vegna hins oft þrúgandi ástands, sem siglir í kjölfarið, eru ýms samskipti fólks að verða og orðin meira og meira ógeðfelld og óað- laðandi. Kveður jafnvel svo rammt að, að þetta fer ekki fram- hjá erlendum viðskiptaaðilum okkar, sem skilja ekki hugsunar- háttinn hér og furða sig á ástand- inu, sem birtist ekki sízt í því að þeir menn, sem standa í við- skiptum hérlendis öðrum til þjón- ustu og sjálfum sér til lífsfram- færis, eru vegna glórulausrar ósanngirni og tekjuskerðingar Maharishi tækniþekk- ing einingarsviðsins eftir Sturlu Sighvatsson Uppgötvanir nútímavísinda hafa ieitt í Ijós óendanlegan sköpunar- mátt náttúrulaganna. Framfarir í eðlisfræði hafa verið mjög örar und- anfarna áratugi. Eðlisfræðingar þeir sem fást við ofuraðdráttaraflskenn- ingar (supergravity theory) skilja nú hvernig einingarsvið allra náttúru- laga er uppruni allra krafta náttúr- unnar og framvindu sköpunarinnar. Uppruni náttúrulaganna er þeim eig- inleikum búinn að vera sjálfum sér nógur og um leið er hann óendan- lcga aflmikill. Á hinn bóginn sjáum við í heim- inum í kringum okkur ávöxt beit- ingar fyrri tíma vísindalegs skiln- ings, sem staðfestir svo ekki verð- ur um villst hinn gamla málshátt: „Lítil jþekking er hættulegur hlut- ur.“ Á sama tíma og þekking á brotakenndu gildi náttúrulaganna á sviðum efnafræði, rafeindafræði og sérstaklega kjarneðlisfræði, hafa skapað miklar framfarir í mannlegu samfélagi hefur þessi þekking jafnframt framkallað hættulegt ójafnvægi í náttúrunni og hefur leitt mannkyn í heild að þröskuldi tortímingar. Þetta hættulega ástand sem nútímavísindi hafa skapað í ófullkomleika sínum og þroska- leysi boðar nauðsyn notkuíiar fulls atgervis náttúrulaganna, sem kemur jafnvægi á í náttúrunni alls staðar í heiminum og færir mannlegt líf í átt að fullkominni lífsfyllingu. Enginn vísindamaður eða tæknisérfræðingur ætti að vera ánægður fyrr en vísindin hafa skapað æðsta stig hamingju og lífsfyllingar í öllum hornum veraldar. Takmark vísinda er að þekkja svið náttúrulaganna og virkja þann skipulagskraft sem býr falinn í þessu sviði þekkingar, svo að öll þægindi, framfarir og hamingja verði lifandi raunveru- leiki. Beiting einingarsviðsins Uppgötvanir skammtaeðlis- fræðinnar á einingarsviði allra náttúrulaga lætur okkur í té mik- ilvægan skilning á því hvernig vís- indin geta breytt tilhneigingum ójafnvægis í átt að jafnvægi og fært öll svið samfélagsins til æðstu lífsfyllingar. Ofuraðdráttaraflskenningarnar segja að einingarsviðið sé svið óendanlegrar sjálfsvísunar. Fullt atgervi náttúrulaga í einingar- sviðinu viðheldur sjálfu sér og kallar fram sínar eigin tjáningar með því að vinna innan síns eigin eðlis. Það vísar því stöðugt á sig sjálft. Hið heildarlega eðli eining- arsviðsins er einnig hægt að hag- nýta í daglegu lífi með tækni vit- undar. Lífgun fulLs atgervis náttúrulaga Með því að leiða vitundina að einfaldasta ástandi sínu, þar sem eiginleikar sjálfsins eru fyrir hendi að fullu, fæst bein reynsla af einingarsviði allra náttúrulaga. Þetta er gert með Maharishi- tækniþekkingu einingarsviðsins. Þar með lífgar heildaruppbygging náttúrulaganna sérhverja hugsun og athöfn einstaklingsins. Það sem hlýst af þessari tækni- þekkingu er lífsfylling allra þátta lífsins. Þetta þýðir að fullt atgervi náttúrulaganna er kallað fram svo að lífinu er lifað fullkomlega í samræmi við öll lög náttúrunnar. Vísindalegar rannsóknir Maharishi-tækniþekking ein- ingarsviðsins tengist ekki aðeins nýjustu og mest sannfærandi skilningi fræðimanna á náttúr- unni eins og fram kemur í eðlis- fræði, efnafræði, stærðfræði og öðrum greinum nútímavísinda, heldur fær hún einnig staðfest- ingu sína í niðurstöðum mörg hundruð vísindarannsókna. Þess- ar rannsóknir staðfesta vöxt nátt- úrulaga á sviði líkama, sálar og umhverfis. Yfir tuttugu ára vísindarann- sóknir á innhverfri íhugun hafa skapað mikla breidd rannsóknar- niðurstaðna sem sanna mikla kosti tækninnar fyrir öll svið lífs- ins, t.d. fyrir menntun, heilsu, lög og reglu, menningu, kaupsýslu og iðnað, stjórnun og varnir. Hvað áhrifaríkust og heilsteypt- ust eru áhrifin sem lítill hluti af íbuúm lands koma til leiðar í sam- vitundinni með iðkun Maharishi- Maharishi Mahesh Yogi tækniþekkingar einingarsviðsins. Þessi hópiðkun veldur því að sam- félagið nýtur kosta fulls atgervis náttúrulaganna, sem merkir minni afbrot og neikvæðni og aukningu jákvæðra tilhneiginga hjá öllum. Þessi rannsóknarnið- urstaða, þekkt sem Maharishi- áhrifin, hvetur til myndunar hóps sem viðheldur stöðugt háu stigi samvirkni í samvitundinni með hópeflun vitundar, eða með hóp- iðkun Maharishi-tækniþekkingar einingarsviðsins. Slíkur hópur, kallaður Purusha, mun lífga algjört atgervi náttúru- laganna í öllu samfélaginu með daglegri iðkun sinni og stöðugri reynslu af einingarsviði vitundar. Það er á ábyrgð allra stjórn- málamanna, . vísindamanna, tæknisérfræðinga og allra þeirra sem ábyrgð bera á öryggi og fyll- ingu mannlegs lífs að gefa gaum að þessari aðferð, að vísindalegum grunni hennar og sannprófunum og beita henni til skjótrar sköpun- ar fyrirmyndarlífs, sem er full- komlega í bandalagi við fullt at- gervi náttúrulaga. Stofnun Purusha-hóps Með stofnun Purusha á íslandi, sem er hópur sem iðkar innhverfa íhugun og innhverfa íhugun (Sidhi-kerfið) saman á hverjum degi skapast hátt stig samvirkni í samvitundinni og sem hefur bein áhrif á sérhvert svið samfélagsins. Menntun: Óendanlegt sköpunar- afl náttúrulaga er lífgað með allri þjóðinni og sem leiðir til þess að æðstu markmiðum menntunar er náð. Árangur og uppljómun ein- staklingsins skapast og hámarks- framfarir, samstilling og heildun á sér stað á öllum sviðum þjóðlíf. Heilsa: Mikil samvirkni í sam- vitundinni nærir grundvöll full- kominnar heilsu fyrir einstakling- inn og samfélag, sem þýðir líf í bandalagi við náttúrulögin. Lög og regla: Samvirkni í sam- vitundinni leiðir til fullkomins skipulags í samfélaginu, leiðir til fækkunar afbrota, á neikvæðni og á öllum formum samfélagslegs óróa. Jákvæðni eykst svo og sam- stilling og heildun í öllu samfélag- inu eftir því sem þjóðlífið vex í bandalagi við náttúrulögin. Menning: Fullt atgervi náttúru- laga er lífgað í samvitundinni sem leiðir til hámarks framfara og öt- ulleika þjóðarinnar á grunni sterkrar menningarlegrar heild- unar. Varnir: Samvirk þjóðarvitund leiðir til útrýmingar streitu og spennu þjóðarinnar. Enginn fjandmaður getur orðið til og þjóðin verður ósigranleg í banda- lagi við náttúrulögin. Atvinnuvegirnir: í athafnalífi svo sem iðnaði, kaupsýslu, landbúnaði og sjávarútvegi eru tveir megin- þættir sem ráða mestu um vel-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.