Morgunblaðið - 26.10.1983, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1983
79
Vestmannaeyjar:
54 ökumenn
teknir ölvaðir
frá áramótum
— voru 35 allt
árið í fyrra
Vestmannaeyjum, 24. október.
MIKIÐ annríki var hjá lögregl-
unni hér um helgina, enda tals-
verð ölvun í bænum, bæði á
fóstudags- og laugardagskvöld.
Sex ökumenn voru teknir fyrir
meinta ölvun við akstur, sem er
óvenju há tala um eina helgi.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá lögregl-
unni í dag, hefur orðið mjög mikil
aukning á ölvunarbrotum öku-
manna frá því á siðasta ári. Á
þessu ári hafa 54 ökumenn verið
teknir fyrir ölvunarakstur, en allt
árið í fyrra voru þeir 35.
— hkj.
INNLENT
Heyrnarsér-
fræðingar
á ferð um
Austfirði
EINAR Sindrason háls-, nef- og
eyrnalæknir, verður ásamt öðrum
sérfræðingum Heyrnar- og talmeina-
stöðvar íslands á ferð um Austur-
land dagana 31. október til 3. nóv-
ember næstkomandi.
Rannsökuð verður heyrn og tal
og útveguð heyrnartæki. Farið
verður á eftirtalda staði: Reyð-
arfjörð 31. október, Eskifjörð 1.
nóvember og Egilsstaði 2. og 3.
nóvember.
Tekið er á móti tímapöntunum á
viðkomandi heilsugæslustöð og er
fólki bent á að panta tima sem
fyrst.
(FrétUtilkynning)
Séð yfir hinn nýja veitingasal Gullna hanans.
Gullni haninn tekur
við af Halta hananum
HALTI haninn, veitinga-
staðurinn með þessu nafni
innst á Laugveginum, hefur
verið lagður niður og í stað
hans tekið til starfa nýr
staður, sem hlotið hefur
nafnið Gullni haninn.
Allar innréttingar hafa verið
endurnýjaðar í ljósum lit og
staðurinn fengið leyfi til vín-
veitinga, en áður var rekinn
þarna grillstaður. Ætlunin er
að reka þarna miðlungs dýran
veitingastað.
„Ég get ekki verið annað en
ánægður," sagði Birgir Jónsson
eigandi Hanans um þessar
breytingar. „Þeir sem þekktu
gamla hanann vita að það er
ekki hægt að líkja þeim saman,
gamla hananum og þeim nýja,
og ég held að þessi staður sam-
eini flesta þá hluti sem staður
sem þessi eigi að bjóða upp á
bæði hvað snertir veitingar og
umhverfi.
Gullni haninn tekur 30
manns í sæti með góðu móti, en
hægt er að koma þar fyrir 50
manns ef þurfa þykir. Hægt
verður að fá staðinn leigðan út
til einkasamkvæma, en hann
verður opinn frá kl.
11.30-15.00 og 18.00-23.30
nema sunnudaga frá
17.00-23.30.
Brynjar Eymundsson veitir
eldhúsi staðarins forstöðu.
Guðbjörn Gunnarsson sá um
innréttingar, en smíðavinna og
uppsetning var í höndum Beyk-
is sf. Aðeins 15 daga tók að rífa
niður gömlu innréttinguna og
koma þeirri nýju upp.
Aðstandendur Gullna hanans. Talið frá vinstri: Brynjar Eymundsson
matreiðslumeistari, Birgir Jónsson, eigandi staðarins, kona hans, Stein-
unn Pétursdóttir, og Tómas Kristinsson kjötiðnaðarmeistari, sem sér
staðnum fyrir hráefni. Morgunblaðið/ ól.K.M.
Sauðárkrókur:
Deliríum
Búbónis
í Bifröst
SauAárkróki, 24. október.
LEIKFÉLAG Sauðárkróks
frumsýndi í gærkvöldi gam-
anleikinn Deliríum búbónis
eftir Jónas og Jón Múla
Árnasyni. Leikstjóri er Guð-
jón Ingi Sigurðsson, en
leikmynd gerði Jónas Þór
Pálsson.
Leikendur eru Kristján Skarp-
héðinsson, Elsa Jónsdóttir, Hall-
fríður Bára Jónsdóttir, Haukur
Þorsteinsson og Guðbrandur Ægir
Ásbjörnsson, Helga Hannesdóttir,
Bragi Haraldsson, Óttar Bjarna-
son og Sverrir Valgarðsson.
Samkomuhúsið Bifröst var þétt-
setið áhorfendum, sem tóku leikn-
um forkunnarvel. Næstu sýningar
verða á miðvikudag og föstudag.
— Kári.
Sólarljóð
í nýrri
sænskri
þýðingu
NÝLEGA voru Sólarljóð gefin út
í Svíþjóð í nýrri sænskri þýð-
ingu. Bókaútgáfan Anthropos
gaf bókina út og hefur verið
vandað vel til útgáfunnar.
Þýðinguna gerði sænska ljóð-
skáldið og bókmenntafræðingur-
inn Gunnar D. Hansson og hefur
hann einnig ritað eftirmála og
skýringar við ljóðin.
Sólarljóð komu áður út í Svíþjóð
árið 1956 í þýðingu Áke Ohlmarks.
Gagnrýnendur í Svíþjóð hafa
lokið lofsorði á bókina, bæði þýð-
inguna og myndskreytingarnar,
sem eru eftir sænska listamann-
inn Roj Friberg, en hann tekur
þátt í sýningu FÍM sem nú stend-
ur yfir á Kjarvalsstöðum.
Bókin er nú til sýnis og útláns í
bókasafni Norræna hússins.
Frétutilkynning.
Tillögu í borgarstjóm vísað til íþróttaraðs:
Aðstaða til vetrar-
íþrótta verði bætt
TILLÖGU um bætta adstöðu til iðk-
unar vetraríþrótta í Reykjavík var
vísað til nánari umfjöllunar íþrótta-
ráðs borgarinnar á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur á fimmtu-
dagskvöld, en tillagan var frá borg-
arfulltrúum Alþýðubandalagsins.
í tillögunni kemur fram, að sett
verði skíðalyfta í Ártúnsbrekku,
svokölluð toglyfta, og að aðstaða
gönguskíðaiðkenda verði lagfærð.
Verði það gert með þvi að troðnar
verði göngubrautir við Ártúns-
brekku, í Laugardal og í Foss-
vogsdal, þegar aðstæður verðu til
vegna veðurs.
Þá var og lagt til að Tjörnin yrði
aftur gerð nothæf til skautaiðkana
þegar þannig viðraði.
Bæjarstjórn Akureyrar heimil-
ar framkvæmdir í Hlfðarfjalli
Akureyri, 19. oktiber.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær, að heim-
ila framkvæmdir í Hlíðarfjalli, sem
íþróttaráð Akureyrar hafði lagt til að
ráðist yrði í sérstaklega með tilliti til
þess að á næsta vetri á Skíðamót ís-
lands að fara fram í Hlíðarfjalli auk
tveggja annarra stórmóta.
Þær framkvæmdir sem um er að
ræða, eru smíði á 5 mark- og
starthúsum, lagfæringar á
stökkbraut og dómarapöllum.
Einnig merking sérstakra göngu-
brauta. Áætlaður heildarkostnaður
við framkvæmdir þessar er kr.
485.000,-.
GBerg.
ÁRÉTTRI
,upplausntil
abyrgðar
LEIÐ
Patreksfjörður
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn föstu-
daginn 28. okt. kl. 20.30 í félagsheimilinu.
Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráöherra ræðir störf
og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þingmenn flokksins í
kjördæminu mæta ennfremur á fundinn.
Allir velkomnir. Sjálfstæðisflokkurinn