Morgunblaðið - 18.11.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1983
39
Bækur
stjórn vitsmunanna en tremur
kuldaleg og kemur í Ijós hvenær
sem þér mislíkar við fólk eöa aö-
stæöur.
S. de B. Já, þaö er satt.
A.S. Ég þekki mörg dæmi þess
aö þegar kona leyfir sér aö vera
ákveðin og setur ekki Ijós vits-
muna sinna undir mæliker, þá er
henni hegnt fyrir. Hefur þú ein-
hvern tímann fundið fyrir því?
S. de B. Nei.
A.S. Þór hefur aldrei þótt freist-
andi að jafna upp meö því aö leika
„hina veikburöa konu“?
S. de B. Nei, nei, alls ekki. Ég
var vinnandi kona og þar aö auki
haföi ég Sartre. Og ef eitthvaö átti
aö gerast, þá geröist þaö, en ég
sóttist ekki eftir því, t.d. þegar ég
varö ástfangin af Algren í Banda-
ríkjunum, af því aö ég var'í fram-
andi landi, vegna töfra hans, vegna
þess hvernig hann var... ja, hann
varö líka ástfanginn af mér.
A.S. Hefur kynferöisleg löngun
þín alltaf veriö i tengslum viö til-
finningar þínar?
S. de B. Já, þaö held ég. Ég hef
aldrei þráö karlmann ef hann hefur
ekki þráö mig. Þaö var fremur þrá
hans sem laöaöi mig aö honum.
A.S. Varst þú mjög varfærin?
S. de B. Já, ég læt mig kannske
dreyma, en ég man nú ekki eftir
neinum karlmanni sem hefur haft
sterk áhrif á mig án þess aö fyrst
hafi komiö til djúp vinátta.
A.S. Ekkert nafnlaust kynlíf.
Engin löngun bara eftir því sem
hægt var aö fullnægja meö hverj-
um sem var?
S. de B. Nei, nei. Slíka löngun
hef ég aldrei haft. Þaö var mér eins
fjarlægt og hugsanlegt er. Ef til vill
er þaö þúritanismi eöa kannske er
þaö vegna uppeldis míns, en þessi
löngun hefur aldrei nokkurn tím-
ann komiö yfir mig. Þó ég stæöi
ekki i neinu ástarsambandi, sem
þýddi aö ég haföi ekki notiö kynlífs
í talsveröan tíma, datt mér heldur
aldrei í hug aö fara út og leita mér
aö karlmanni.
A.S. Þú talar bara um karlmenn
þgar viö ræöum kynlíf þitt. Hefur
þú einhvern tíma fundiö til kynhrifa
gagnvart konu?
S. de B. Nei, aldrei. Ég hef átt
góöar vinkonur og milli okkar hef-
ur ríkt ástúö og við höfum jafnvel
sýnt hvor annarri blíöuhót, en kon-
ur hafa aldrei vakiö kynhneigö
mína.
A.S. Hvers vegna ekki?
S. de B. Ég er viss um aö þaö er
vegna uppeldis míns. Allt uppeldi
mitt, ekki aðeins heima heldur
einnig öll kennsla sem viö hlutum
sem börn, sveigöi okkur í þá átt aö
hneigjast að gagnstæöu kyni.
A.S. En hugmyndin sjálf, getur
þú fallist á hana?
S. de B. Vissulega. Algerlega.
Konur ætti ekki aö móta þannig aö
þær þrái aöeins karlmenn. Ég held
aö allar konur séu svolítiö hómó-
sexúal. Konur eru líka meira aölaö-
andi en karlmenn.
A.S. Hvers vegna?
S. de B. Af því aö þær eru lag-
legri, mýkri og hörund þeirra er
ánægjulegra viökomu. Þær eru
bara almennt meira aölaöandi.
Maöur finnur þetta hvaö eftir ann-
aö meö pör, konan er áhugaverö-
ari, jafnvel vitsmunalega, líflegrl,
meira aölaðandi, skemmtilegri.
A.S. Eru þetta ekki svolitlir for-
dómar?
S. de B. Nei, vegna þess aö
þetta er líka afleiöing mótunar og
mismunandi raunveruleika sem
kynin hrærast í. Á karlmönnum er
oft þessi fáránlega hliö sem Sartre
kvartaði svo oft undan.
A.S. En mér sýnist konur einnig
hafa ýmsa galla. Og upp á síökast-
iö eru þær farnar aö stæra sig af
þeim.. . Eimmitt nú sjáum viö í
Þýskalandi, og ekki aðeins þar,
endurreisn „kveneölisins" hins
svokallaöa nýja kveneölis. En þaö
er alveg þaö sama og gamla
„kveneöliö" sem því miöur felur í
sér ánægju meö kvenhlutverkiö;
tilfinningar án vitsmuna, tllfinn-
inganæmi án baráttuvilja, blekk-
inguna að þaö aö veröa móöir sé
skapandi verknaöur o.s.frv. Þú
sem sagöir í „Le deuxieme sexe"
aö „kona fæðist ekki, hún er búin
til“, hvaö finnst þér um þetta aft-
urhvarf sumra kvenna til þess sem
þær kalla kveneðli sitt?
S. de B. Ég held að þaö sé aft-
urhvarf til kvennakúgunar. Þaö
þýöir ekki aö sérhver kona sem
verður móöir sé þar meö orðin
þræll. En almennt talaö, þá er
staöan þannig aö barneignir gera
konur að eins konar þrælum. Ef
barneignir eiga aö vera aöalviö-
fangsefni konu, þá getur hún ekki
tekiö þátt í stjórnmálum, tækni-
þróun og hún mun ekki berjast
gegn yfirráöum karlmanna. Aö
koma meö þetta allt aftur er þaö
sama og aö þrýsta konum aftur
niður á þaö stig sem þær voru á
áöur...
A.S. Þetta er kærkomiö á tímum
efnahagskreppu í heiminum.
S. de B. Auövitaö. Af því aö það
er ekki hægt aö segja konum aö
þaö sé göfugt starf aö þvo potta,
þá er þeim sagt aö þaö sé göfugt
starf aö ala upp börn. En barn-
eignir tengjast einmitt pottaþvotti
aö því aö þær þvinga konuna til aö
vera heima. Þaö er leiö til aö koma
konum aftur í þá stööu aö vera
afstæöar verur, annars flokks ver-
ur.
A.S. Þá hefur kvennabaráttan
brugöist, a.m.k. aö hluta til?
S. de B. Eg tel, aö ennþá hafi
kvennabaráttan aöeins haft djúp
áhrif á fáar konur. Ákveöin bar-
áttumál hafa náö til fjölda kvenna,
t.d. baráttan fyrir frjálsum fóstur-
eyöingum. En þar sem kvennabar-
áttan felur í sér vissa ógnun fyrir
fjölda fólks einmitt núna, vegna at-
vinnuleysis og forréttinda karla, þá
bregöast menn við kvennabarátt-
unni meö því að höföa til tilfinninga
sem flestar konur bera í brjósti,
vegna þess aö þær hafa haldiö
áfram aö vera konu-konur. Kven-
eöliö fær aftur ákveöiö hugmynda-
fræöilegt gildi og síðan er þrýst á
aö fá fram aftur ímyndina, sem
kvennabaráttan eyöilagöi, af hinni
veikbyggðu konu, afstæðu kon-
unni sem lætur undan o.s.frv.
A.S. Hvaöa leiö er út úr þessum
ógöngum? Hvaöa leiö getur hjálp-
aö konum aö losna úr þessum
vítahring? Höfum viö kvenréttinda-
konur gert mistök?
S. de B. Þaö er erfitt aö segja.
Það er þó einhvers viröi aö hafa
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Fallegt, eldfast gler, einföld og sUlhrein hönnun.
Hentugt notkunargildi. Svona eiga góöir hlutir aö vera
Eigum fyrirliggjandi hin vinsælu
Irish Coffee“-glös kr. 198 stk
Einnig eldfastar skálar og fleiri
fallegar vörur frá
Boda-verksmiöjunum
KOSTA BODA
Bankastræti 10
^upplausnti
abyrgðar
A RETTRI LEIÐ
AUSTURLAND
Almennir stjórnmálafundir veröa haldnir sem hér segir:
Djúpavogi í dag, föstudaginn 18. nóv., kl. 21.00 í barna-
skólanum.
Stöðvarfirði laugardaginn 19. nóv. kl. 21.00 í Hótel Blá-
felli.
Höfn Hornafirði sunnudaginn 20. nóv. kl. 21.00 í Hótel
Höfn.
Á fundina mæta Matthías Bjarnason samgönguráöherra
og Egill Jónsson alþingismaöur.
Allir velkomnir. Sjálfstæöisflokkurinn.