Morgunblaðið - 18.11.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1983
49
fólk í
fréttum
Gagnsæ vortíska
+ Karlmennirnir hafa fulla ástæöu til að fara aö hlakka til vorsins
ef treysta má franska tískukónginum Yves Saint-Laurent. Hann
lofar því nefnilega, aö í vor veröi tískan gagnsæ og til sanninda-
merkis sýndi hann þennan fallega kjól í París nú fyrir nokkrum
dögum. Nú er bara að vona að vorið veröi gott því, aö skjólgóð er
flíkin ekki og dálítið hætt við gegnumtrekki.
+ Fyrir nokkru sögðum við í Morgunblaðinu frá lengsta staðarheiti á
Bretlandseyjum, velskri járnbrautarstöð á Öngulsey, og nú hefur
okkur áskotnast mynd með nafnspjaldinu, sem er hvorki meira né
minna en 2 metra langt. Um langan aldur hafa lestirnar ekki stöðvast
á stöðinni til annars en að leyfa farþegunum að skoða skiltið og þess
vegna hefur nú verið ákveðið að leggja hana niður. í nafninu eru 58
bókstafir og merkingin er heil saga út af fyrir sig.
Dapurlegur eltingar-
leikur við æskuna
+ George Harrison,
einn af bítlunum, er svo háður
tónlistinni, einkum þó bítla-
lögunum, að hann getur ekki einu
sinni verið án hennar á klósettinu.
Hann hefur því látið koma fyrir
hljómflutningstækjum þar og þeg-
ar setunni er lyft berast út í loftið
Ijúfir tónar frá „Lucy in the Sky
with Diamonds“.
+ Hvort er það móðirin eða dótt-
irin, sem á við það að stríða, sem
kallast unglingavandamál?
Það er ástæða til að spyrja
þessarar spurningar, þegar þær
mæðgurnar eru annars vegar,
Britt Ekland, 41 árs og Victoria,
sem er 18 ára. Victoria, sem er
ljósmyndafyrirsæta og dóttir
Peter Seller, er ósköp venjuleg,
amerísk stúlka, lífsglöð og lag-
leg, en mesta rólyndismann-
eskja. Það verður hins vegar
ekki sagt um móður hennar.
Britt Ekland, sem er 41 árs að
aldri, lítur helst út eins og ráð-
villltur og uppreisnargjarn ungl-
ingur. Hún kaupir sér án aflás
ný og ný föt, en öll eru þau af því
taginu, sem fólki á hennar aldri
dettur ekki í hug að klæðast. Nú
nýlega kom hún til London og
var þá til reika eins og sjá má á
myndinni. í skræpóttum buxum
og skyrtubol með mynd af rokk-
hljómsveitinni Stray Cats. Til að
bæta um betur var hún ofhlaðin
ósamstæðum skartgripum en
kórónan á smekkleysinu þóttu
þó hanskarnir, snjáðir og rytju-
legir.
Eins og kunnugt er þá sækist
Britt helst eftir samneyti við sér
miklu yngri menn og allt stafar
þetta af því að hún er að reyna
að höndla æskuna á nýjan leik,
en það er ekki hægt eins og allir
vita.
riautahakk í
5 kg pakkningum
149oo kr. kg.
AÐ SUMMkN
Jógúrt[500 gr.
aöeins 2890
Mandarinur
3 7°° kr. kg.
Epli 35°° kr. kg.
Foldaldahakk
7200 kr. kg.
Smjörvi
59°° kr. kg.
Ófrosiö, mátulega hangið
nautakjöt af nýslátruöu,
eins og þaö gerist best.
1, 2, 3 og 4 daga hangið
dilkakjöt, læri og
hryggir.
Folaldakjöt — ófrosið —
af nýslátruöu.
------:-s-------
------————......
Helgarrétturinn
PIPARBUFF
19°° kr. stk.
E
EUPOCARD.
Opió til w r kl. 22:00
ÁRMÚLA 1a EÐISTORG111