Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 1

Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 1
80 SIÐUR STOFNAÐ 1913 270. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 Friðarviðræður í Genf: Brottganga Rússa mikið áróðursbragð 1 .. 11 . . 1 Genf, 23. nóvember. AP. Yuli Kvitsninsky aðalsamningamaður Rússa í Genf gengur af fundi eftir að Rússar höfðu slitið samningaviðræðum um fækkun meðaldrægra kjarnaflauga. Ráðamenn í V-Evrópu létu í Ijós mikil vonbrigði með brottgöngu Rússa og telja þá hafa með þessu aukið á hæítuna á kjarn- orkuátökum. AP/Símamynd. Genf, 23. nóvember. AP. RONALD REAGAN Bandaríkjaforseti sagðist vonsvikinn en þó ekki undr- andi á brottgöngu Sovétmanna úr viðræðunum um fækkun meðaldrægra kjarnorkuflauga í Genf, sem Michael Heseltine, varnarmálaráðherra Bret- lands, sagði mikið og óafsakanlegt áróðursbragð af hálfu Rússa. Rússar tilkynntu að þeir væru hættir þátttöku í viðræðunum að sinni en útilokuðu ekki að þeir kæmu inn í þær seinna meir. Diplómatar sem fylgst hafa náið með viðræðunum drógu í efa að Rússar fengjust að samningaborðinu í Genf í bráð, en Reagan hét því að gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma þeim þangað aftur. Ráðamenn hvarvetna í Vestur- Evrópu létu í ljós mikil vonbrigði vegna brottgöngu Rússa úr við- ræðunum í Genf og sendiherrar Atlantshafsríkjanna í höfuðstöðv- um NATO fordæmdu þá af sama tilefni. Káre Willoch, forsætisráð- herra Noregs, kvað brottgönguna „óskynsamlega" því Rússar hefðu vitað frá 1979 að nýjar kjarna- flaugar yrðu settar upp í Evrópu í árslok 1983 ef ekki yrði samið í Genf áður. Lennart Bodström, ut- anríkisráðherra Svíþjóðar, sagði brottgöngu Rússa „ákaflega sorg- lega“ og auka hættuna á kjarn- orkustyrjöld. Samningamenn Rússa í Genf gengu af fundi með bandarísku samningamönnunum eftir aðeins 25 mínútur í morgun. Rússar höfðu hótað að hætta viðræðunum ef vestur-þýzka þingið samþykkti eldflaugaáætlunina, en sú varð einmitt raunin í gærkvöldi, eftir tveggja daga heitar umræður. Aðalsamningamaður Banda- ríkjanna, Paul H. Nitze, sagði ákvörðun Rússa óafsakanlega og óheppilega. Bandaríkjamenn myndu hins vegar leggja allt í söl- urnar til að ná samkomulagi um fækkun meðaldrægra kjarna- flauga og yrðu því reiðubúnir að setjast að samningaborði við fyrsta tækifæri. Fyrstu Pershing II-kjarnaflaug- arnar komu til Vestur-Þýzkalands í dag en leynd hvílir yfir hvar þeim verður komið fyrir. Níu blaðamenn voru teknir fastir utan girðingar er umlykur bandarísku flugstöðina í Ramstein, en talið er að þangað hafi fyrstu flaugarnar verið fluttar. Sjá nánar ... „Óréttlætanleg ákvörðun“ ... á bls. 19 Arafat fellst á að yfirgefa Trípolí Moskvu, Trípolí, 23. nóvember. AP. YASSER Arafat skæruliöaleiðtogi hefur samþykkt áætlun sem gerir ráð fyrir að hann hverfi með bar- dagasveitir sínar frá Trípólí að sögn heimilda í Trípólí og Dam- askus í kvöld. Málamiðlunin ger- ir einnig ráð fyrir að andstæð- ingar hans, sem njóta stuðnings Sýrlendinga, hverfi á brott frá Trípólí. Einnig var fallist á mála- miðlunina á fundi fulltrúa Ara- fats og utanríkisráðherra Sýr- lands og Saudi-Arabiu í Damask- us í dag. Rússar hvöttu stríðandi fylk- ingar Palestínumanna í Líban- on til að hætta „heimskulegum og óeðlilegum átökum" sínum, því ágreining þeirra „er hægt og verður að jafna,“ að sögn TASS-fréttastofunnar. Yfirlýsingin var gefin út eftir fund Gromykos utanríkisráð- herra og Farouk Kaddoumi, ná- ins samstarfsmanns Arafats. Norskur sjávarútvegur: Styrktilboð tæpur þriðjungur kröfu Ostó, 23. nóvember. Frí P. Borg lund fréttnrilara Mbl. Samninganefnd ríkisins lagði í dag standandi ári, en samtals mun fram tillögu um að norskur sjávar- hún vera um 1,1 milljarður. Seg- útvegur yrði styrktur sem nemur ir samninganefndin að norskur G00 milljónum króna á næsta ári, sjávarútvegur sé ekki eins mikils en norska fiskifélagið hafði krafizt styrks þurfi á næsta ári og tveggja milljarða króna. þessu. Tilboðsupphæðin er lægri en sú upphæð sem norskur sjávar- nánar „Miklar kröfur um útvegur er styrktur með á yfir- ríkisstyrk“ á bls. 19. I Ekki var Arafat skæruliðaleið- I fylkinga Kremlarvina, sem togi nafngreindur í yfirlýsing- væru einungis til þess að grafa unni, en þar sagt að binda yrði undan málstað Palestínu- I endi á „fáránleg" átök tveggja manna. Kyrrt var að mestu í Trípolí í dag, en Arafat hét þó að sveitir sínar myndu berjast þar áfram ef þörf krefði. Var það áður en spurðist um að samkomulag hefði tekist um málamiðlun í deilu skæruliðanna. Hafði Ara- fat verið gefinn frestur til laug- ardags að hypja sig frá borg- inni. Sagði Arafat andstæðinga sína undirbúa tangarsókn inn í borgina innan tveggja sólar- hringa. Stjórnin í Beirút hefur ákveðið að slíta öllu sambandi við íran, sem neitað hefur að kalla heim um eittþúsund bylt- ingarverði frá austurhluta Lí- banons. Einnig var ákveðið að „frysta" stjórnmálasamband við Líbýu, vegna íhlutunar Lí- býumanna í líbönsk innanrík- ismál og vegna morðs á trúar- leiðtoga shíta 1978, sem Líbýu- menn báru ábyrgð á. Prentsmiðja Morgunblaðsins Smyslov sigraði Korchnoi - Kasp- arov jafntefli London, 23. nóvember. AP. VIKTOR Korchnoi og Gary Kasparov sömdu um jafntefli í annarri skák sinni í áskorenda- einvígi sínu, eftir mikla sókn- dirfsku af hálfu Korchnoi, sem er 32 árum eldri en Kasparov. Hins vegar sigraði Vassily Smyslov Ungverjann Zoltan Ribli í biðskák þeirra úr fyrstu umferð. Smyslov er, eins og Krochnoi, miklu eldri en and- stæðingur hans. Korchnoi lék óvenjulega hratt framan af og Kasparov reyndi að vera fljótur til svars. Luku þeir 11 leikjum á aðeins fimm mínútum, en þá neyddist Kasparov til að taka sér lengri umhugsunarfrest. Korchnoi kom á óvart með taflmennsku sinni. Sjá nánar skákskýringar á bls. 29. Nýir gámar finnast í Svíþjóð Stokkhólmi, 23. nóvember. AP. TOLLYFIRVÖLD skýrðu frá því í kvöld að fundist hefðu þrír nýir vörugámar sem grunur léki á að innihéldu „leynilegar bandarískar tölvur“. Gámarnir þrír fundust í Málmey (Malmö) og telja toll- yfirvöld að samband sé á milli þeirra og gámanna fjögurra, sem fundust í Helsingjaborg á dögunum og smygla átti til Sovétríkjanna, en þeir eru sagðir innihalda leynilegan rafeindabúnað til að stýra kjarnorkuflaugum. Gámarnir í Málmey reynd- ust við skoðun innihalda raf- eindatæki og beinist athygli yfirvalda að því hvort hér sé um leynibúnað að ræða, sem smygla átti til Sovétríkjanna. Gámarnir komu ekki til Malmö frá Suður-Afríku, eins og gámarnir í Helsingjaborg. í undirbúningi er nákvæm skoðun á gámunum fjórum í Helsingjaborg til að ganga úr skugga um hvort þar sé um að ræða „stríðstæki".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.