Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Ljóst að fólk vill
mikið á sig leggja
— segir Ásmundur Stefánsson
„ÞAÐ ER útilokað fyrir mig að segja mikið án þess að hafa skoðað niður-
stöður könnunarinnar og forsendur, en ég þykist þó geta fullyrt, að því fer
fjarri að nær 2/j hlutar þjóðarinnar séu reiðubúnir að axla kjaraskerðingu á
þeim einhliða forsendum, sem ríkisstjórnin ætlar launafólki," sagði Ásmund-
ur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, aðspurður um niðurstöður
skoðanakönnunar Hagvangs, þar sem fram kemur að rúmlega 65% þjóðar-
innar eru tilbúin að taka á sig kjaraskerðingu, ef það hefur áhrif til lækkunar
á verðbólgu.
„Það er ljóst að fólk vill mikið á
sig leggja til að ná verðbólgunni
niður, en ég held líka að einsýnt sé
að fólk hljóti jafnframt að gera
kröfur til þess að allt það sem gert
er, sé innan ramma heildstæðrar
efnahagsstefnu," sagði Ásmundur
ennfremur.
Steingrímur Hermannsson:
Fer til Siglufjarðar
„ÉG FER TIL Siglufjarðar eins og til allra annarra flokksfélaga á landinu
sem biðja mig að koma,“ sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, er Mbl. spurði hann í gær, hvort hann ætlaði að fara til
fundar við flokksfélaga sína í Siglufirði, en eins og Mbl. skýrði frá í gær
neituðu framsóknarmenn í Siglufirði að kjósa á kjördæmisþing flokksins,
svo fresta varð kjördæmisþingi sem halda átti sl. sunnudag.
Siglfirskir framsóknarmenn
segjast hvorki kjósa né mæta á
kjördæmisþing fyrr en formaður
flokksins hefur útskýrt fyrir þeim
af hverju hann heimilaði Ingólfi
Guðnasyni og félögum að bjóða
fram í nafni Framsóknarflokksins
undir listabókstöfunum BB.
Steingrímur sagði í gær, að
Siglfirðingarnir hefðu haft sam-
band við sig sl. fimmtudag og far-
ið fram á að hann kæmi á fund til
Þrír sækja um
Óháða söfnuðinn
ÞRJÁR umsóknir bárust um
prestsembætti við Óháða söfn-
uðinn í Reykjavík, en séra Em-
il Björnsson lætur af störfum
um næstu áramót. Umsækj-
endur eru: Baldur Kristjáns-
son, sem lýkur kandidatsprófi
frá guðfræðideild í vor, Sigurð-
ur Arngrímsson, starfandi
prestur í Árskógsstrand-
arprestakalli við Eyjafjörð og
Örn Bárður Jónsson, sem lýkur
kandidatsprófi frá guðfræði-
deild Háskóla fslands að ári
liðnu, en hann er vígður djákni
að Grensássókn i Reykjavík.
Kunze kemur
ekki til íslands
KKINEK Kunze, þýska skáldiö, sem
átti aö lesa úr verkum sínum á þýsku
bókasýningunni að Kjarvalsstööum í
kvöld kemur ekki til landsins að
þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum þeirra
sem að komu hans stóðu féll niður
flug frá Mið-Evrópu til fslands í
gærmorgun vegna veðurs. Fyrir þá
sök röskuðust ferðaáætlanir skálds-
ins svo að aflýsa varð íslandsferð-
inni að þessu sinni.
þeirra daginn eftir, eða sl. föstu-
dag. Hann hefði ekki getað komið
því við með svo stuttum fyrirvara.
„Ég hef verið í stöðugu sambandi
við þá og það er allt mjög vinsam-
legt á milli okkar. Ég hef ekki
ákveðið ennþá hvenær ég fer til
Siglufjarðar en mun ákveða það í
samráði við þá.“ Steingrímur
sagðist ræða þessi mál frekar við
Siglfirðinga og flokksbræður sína
í kjördæminu, þegar hann færi
norður.
Ástæða þessarar kröfu Siglfirð-
inganna er samkvæmt heimildum
Mbl. niðurstaða kjörs kjördæmis-
þingsfulltrúa í Framsóknarfélagi
Vestur-Húnavatnssýslu á
Hvammstanga sem fram fór um
miðja síðustu viku, en á þeim
fundi beittu BB-listamenn afli at-
kvæðameirihluta og felldu marga
helstu stuðningsmenn Páls Pét-
urssonar og B-listamanna.
Góöur
loðnuafli
SAUTJÁN skip höfðu tilkynnt um
loönu afla til loðnunefndar seinnipart-
inn í gær, samtals 8.650 lestir frá því á
miðnætti. Til samanburðar tilkynntu
aöeins þrjú skip um afla sólarhringinn
á undan, samtals 1940 lestir.
Þessi skip eru: Skírnir með 420
lestir, Ljósfari 500, Huginn 550,
Svanur 600, Sæbjörg 220, Víkurberg
500, Gísli Árni 630, Þórður Jónasson
500, Albert 600, Hrafn 650, Skarðs-
vík 350, Harpa 100, Örn 500, Þórs-
hamar 500, Gígja 680, Grindvíking-
ur 950, Helga II 400, Fífill 600,
Hákon 820, Hilmir II 520.
Samtals eru nú komin á land
rúmlega 35 þúsund lestir af loðnu.
Helstu hafnirnar sem bátarnir fóru
með aflann til eru Siglufjörður, Bol-
ungarvík og Raufarhöfn. Aflinn
fékkst út af Húnaflóa.
Emil Hjartarson, forstjóri Trésmiöjunnar Meiðs, sýnir lögregluþjóni skemmdirnar sem urðu á bifreið hans.
Morgunblaðið/ Júlíus.
Hrossið braut rúðuna og rak
snoppuna í andlit bílstjórans
„ÉG VISSI ekki fyrr en að hrossið kom inn úr
rúðinni og rak snoppuna í andlit mér,“ sagði Emil
Hjartarson í samtali við Mbl. í gær, en á Suður-
landsbraut gengt Álfabrekku hljóp hross utan í
bifreið hans og dældaði. Það rak snoppuna í gegn
um hliðarrúðuna og í andlit Emils. Atvikið átti sér
stað laust eftir klukkan 14 í gær. Sex hross höfðu
verið sett á haustbeit í girðingu við Álfabrekku,
gegnt veitingahúsinu Sigtúni. Girðingin var ekki
traustari en svo, að öll sluppu hrossin út.
„Ég reikna með að þetta sé frekar fátítt og sem
betur fer fór allt vel. Ég var á hægri ferð vestur
Suðurlandsbraut þegar atvikið átti sér stað. Ég er
ánægður með að sleppa jafn vel og raun ber vitni
og eins að hrossinu varð ekki meint af — rúðan fór
í salla og ég slapp án þess að hljóta skrámur.
Hrossið hljóp svo út á víðan völl og þar með er
sagan öll,“ sagði Emil.
Eignaskattsprósent-
an úr 1,2% í 0,95%
Eignaskattsprósentan á aö lækka
úr 1,2% í 0,95% samkvæmt tillögum
til breytinga á lögum um tekju- og
eignaskatt, sem verið hafa til með-
feröar í þingfiokkum stjórnarliöa og
stefnt er að afgreiðslu á á ríkis-
stjórnarfundi árdegis. Þá er reiknað
meö samsvarandi breytingu á tekju-
sköttum, þannig aö skattstigar verði
lægri og persónuafsláttur hærri.
Stefnt er aö jöfnun ráðstöfunar-
tekna þannig aö tekjuskattar á lág-
tekjufólki lækki, en hækki aftur á
móti á tekjum yfir u.þ.b. 450 þús. kr.
Skattvísitalan verður 54%.
Áðurgreindar breytingar valda
því, samkvæmt heimildum Mbl.,
að tekjur ríkissjóðs verða um 600-
700 millj. kr. lægri en hefði orðið
ef skattvísitalan hefði einvörð-
ungu breyst. Reiknað er með að
persónuafsláttur hækki nokkru
meira en nemur skattvisitölunni
og að barnabætur verði hækkaðar.
Samkvæmt heimildum Mbl.
stefnir ríkisstjórnin að því að
leggja fram frumvarp þessa efnis
öðru hvoru megin við helgi. Helstu
röksemdir með breytingunum eru,
að með minnkandi verðbólgu og
þeirri stefnu að peningalaun
hækki ekki meira á næsta ári en
ríkisstjórnin hefur gert ráð fyrir,
þá hefði að óbreyttu komið til um-
talsverðrar skattahækkunar frá
því sem búið var að ákveða með
bráðabirgðalögunum í ár. Ef ein-
yörðungu hefði komið til ákvörð-
unar skattvísitölu upp á 54%, en
ekki breytinga á skattstigum, þá
hefðu skattaálögur miðað við laun
á greiðsluári orðið verulega
þyngri.
Hæstiréttur:
Dæmdur í 2Vi árs
fangelsi fyrir
fíkniefnamisferli
Tíkarleg handtaka
MYNDARLEGUR seppi á Akureyri liggur nú sneyptur og sár upp á vatnið
eitt í hundafangelsi lögreglunnar þar í bæ. Er haft fyrir satt, aö hann telji
glæsitík eina þar eiga litlar þakkir skildar fyrir daður og fláræði.
Hundahald er bannað á Akur-
eyri en engu að síður halda
margir bæjarbúar hunda. Lög-
reglunni hafa að undanförnu
borist fjölmargar kvartanir
vegna ágengni hunda, einkum
frá tíkareigendum, enda hefur
náttúran hagað þvi svo til, að
óvenju margar akureyrskar tík-
ur eru tilkippilegar þessa dag-
ana. í fyrrakvöld fékk Akureyr-
arlögreglan enn eina kvörtun yf-
ir áðurnefndum seppa. Þegar
yfirvaldið kom á staðinn sást
seppi skjótast á milli húsa og var
greinilega var um sig þegar
verðir laganna voru annars veg-
ar. Þótti ljóst, að hann bar ekk-
ert sérstakt traust til hvítu koll-
anna.
Voru nú góð ráð dýr enda ekki
vitað um húsbændur hvutta. En
þar í grenndinni var einmitt
glæsitíkin, sem áður er getið, og
var ekki að sjá á henni að hún
teldi lögregluþjónana eins vara-
sama og „kavalér" hennar gerði.
Fengu lögregluþjónarnir tíkina
umsvifaiaust í lið með sér og leið
ekki á löngu þar til seppi kom
snúflandi þar að. Stóðst hann
ekki daður tíkarinnar nema ör-
stutta stund enda leyndi sér ekki
blikið í augum hennar og kank-
víslegt bros.
Köld eru kvennaráð, er fullyrt
að seppi hafi hugsað þegar
vasklegir lögregluþjónar spruttu
úr felum og handsömuðu Jiann
umsvifalaust í þann mund sem
hann taldi nóg komið af léttúð-
arhjali. Var hann færður í lög-
reglubíl á stöðina og varpað í
einn af þremur hundafangaklef-
um Akureyrarlögreglunnar. Sat
hann þar í gærkvöld og fékk ekk-
ert nema vatn að drekka á með-
an þess var beðið, að eigendurnir
vitjuðu hans.
Af glæsitíkinni er það að
frétta, að hún fór hin hróðugasta
heim eftir handtökuna enda mun
annar hundur, ekki síður glæsi-
legur, eiga hug hennar og hjarta
þar í hverfinu.
HÆSTIRÉTTUR kvaö í gær upp dóm yfir Siguröi Þór Sigurössyni og var
hann dæmdur í 2Vi árs fangelsi fyrir fíkniefnamisferli og 20 þúsund króna
sekt. Hæstiréttur klofnaði í afstöðu sinni; þrír dómarar, Þór Vilhjálmsson,
Guömundur Jónsson og Halldór Þorbjörnsson mynduöu meirihluta. Ármann
Snævarr skilaði séráliti, sem var efnislega samhljóöa áliti meirihluta, en
hann vildi milda refsinguna í 2 ár. Sigurgeir Jónsson skilaöi og séráliti
samhljóöa meirihluta en hann vildi dæma Sigurð Þór í 3 ára fangelsi.
Fyrir tæpu ári var Sigurður Þór liðlega 1 kíló af hassi. Hann situr
dæmdur í 3% árs fangelsi í Saka- nú inni í v—þýzku fangelsi.
dómi í ávana- og fíkniefnamálum
og var það þyngsti fíkniefnadómur
sem kveðinn hefur verið upp hér-
lendis. Sigurður Þór var handtek-
inn í gistihúsinu „De Fem Svaner"
í Kaupmannahöfn í marz 1979.
Lagt var hald á 20 grömm af kóka-
íni og 30 grömm af hassi, en jafn-
framt 139 þúsund krónur danskar,
tæpar 80 þúsund krónur sænskar
og 20 þúsund krónur norskar. Um
var að ræða ágóða af fíkniefna-
sölu.
Fyrir skömmu hlaut Sigurður
Þór þungan fíkniefnadóm í
V—Þýzkalandi, en hann var hand-
tekinn í V—Þýzkalandi í vor með
Útför Tómasar
Guðmundssonar
gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag
ÚTFÖR Tómasar Guömundsson-
ar, skálds, verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
kl. 13.30. Sr. Karl Sigurbjörns-
son jarðsyngur.
Útförin fer fram á vegum
Reykjavíkurborgar í virð-
ingarskyni við hinn látna.