Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
13
Ráðstefna ungra
sjálfstæðismanna
um sjávarútveg
SAMBAND Ungra Sjálfstæðismanna og Félög Ungra Sjálfstæöismanna
í Hafnarfiröi, Keflavík og Njarðvík halda nk. laugardag ráðstefnu um
sjávarútvegsmál. Fer ráðstefnan fram að Hólagötu 15 í Ytri-Njarðvík.
Stendur ráðstefnan frá kl. 13.00—18.00.
Á ráðstefnunni verða flutt fjög-
ur erindi m.a. um sjávarafurðir,
fiskafurðir, fiskgæði og skipa-
smíðar. Erindin flytja þeir ólafur
G. Einarsson, alþingismaður,
Guðmundur H. Guðmundsson,
blaðafulltrúi, dr. Jónas Bjarnason
og Jónas I. Ketilsson. Þá gefa álit
sitt þeir dr. Vilhjálmur Egilsson,
hagfræðingur, Einar Kristinsson,
útgerðarmaður, Sigurður Garð-
arsson, útgerðarmaður og Páll
Axelsson, útgerðarmaður.
Ráðstefnustjórar verða Stefán
Tómasson, Grindavík, og Þórarinn
J. Magnússon, formaður Stefnis í
Hafnarfirði.
Myndin „The Day After“ sýnd í sjónvarpi í Bandaríkjunum:
Yirðist hafa vakið
fólk til umhugsunar
— segir Reynir Eiríksson
„ÞETTA var í einu orði sagt hrika-
legt og ég er ekki hissa á því að
sjónvarpsstöðin hafi varað fólk við
fyrir sýningu myndarinnar. Tilkynnt
var að börn mættu alls ekki horfa á
hana, og fólki var ráðlagt að vera
ekki einsamalt við sjónvarpstækin
meðan á sýningu stæði,“ sagði Reyn-
ir Eiríksson, sem stundar nám við
háskólann í Boulder í Colorado, í
samtali við blm. Morgunblaðsins
vegna myndarinnar „The Day Aft-
er“, Daginn eftir, sem sýnd var í
sjónvarpi þar í landi um helgina.
Myndin var gerð af ABC-sjón-
varpsstöðinni, og fjallar um
kjarnorkusprengingu og afleið-
ingar hennar. Sagði Reynir að um
'h hluti þjóðarinnar hefðu horft á
myndina: 70 til 80 milljónir
manna.
Reynir sagði að myndin virtist
hafa fengið nokkuð á fólk og vakið
það til umhugsunar um vígbúnað-
arkapphlaupið því mikið hefði
verið rætt um hana síðan hún var
sýnd.
Myndin gerist í Kansas City,
þar sem aðalskotstöðvar Banda-
ríkjamanna eru. Þeir senda kjarn-
orkuflaug til Sovétríkjanna, og
Sovétmenn svara í sömu mynt. I
myndinni er síðan sýnd afleiðing
sprengingarinnar. „Það var hrika-
legt að sjá hvernig fólk dó úr
geislun. Það brann upp á hundr-
aðshlutum úr sekúndu — gufaði
bara upp — og borgin hreinlega
hvarf,“ sagði Reynir.
Tónlistarhá-
tíð MS á morgun
Tónlistarhátíð Fjölbrautaskólans
á Suðurnesjum verður haldin á
morgun, föstudag. Að vanda er hátíð
þessi hin fjölbreyttasta og þekktar
hljómsveitir koma þar fram.
Með nöktum, Qtsjí, Qtsjí, Qtsjí,
Box, Jasskvartett Guðmundar
Ingólfssonar, auk kórs og klass-
ískrar tónlistar er á meðal þess,
sem boðið verður upp á.
Sumar þessara sveita hafa þeg-
ar aflað sér traustra fylgismanna-
hópa, aðrar eru að feta sig eftir
framabrautinni.
Fyrirtæki óskast
Höfum kaupendur aö ýmsum tegundum fyrirtækja
t.d.
★ smásöluverslun
★ heildverslun
★ fyrirtæki í framleiösluiönaöi
★ söluturni
Önnumst kaup og einkasölu fyrirtækja og aöra þjón-
ustu í því sambandi.
Fyrirtækjasala
Þóröar S. Gunnarssonar hrl.,
Óöinsgötu 4, 3. hæö, sími 19080.
Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans
á mótum Sogavegar og Réttar-
holtsvegar.
Aukin þjónusta við íbúa nærliggj-
andi hverfa og þá sem leið eiga hjá.
í Réttarholtsútibúinu fara
fram öll almenn bankaviðskipti.
Við leggjum sérstaka áherslu
á persónulega þjónustu og ráðgjöf;
— t.d. um þau mismunandi inn-
og útlánsform sem henta
hverju sinni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og reynið þjónustuna.
Iðnaðarbankinn
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3, sími 85799
Aukatónleikar
í Austurbæjarbíói laugardaginn 26. nóv. 1983
kl. 14.30.
Dorrie’t Kavanna, sópran
Kristján Jóhannsson, tenor
Maurizio Barbacini, píanó
Fjölbreytt efnisskrá.
Miöasala í ístóni, hjá Sigfúsi Eymundssyn og Lárusi Blöndal.
Tónlistarfélagiö