Morgunblaðið - 24.11.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.11.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 15 Svipmyndir úr ballettum Nönnu og Ingibjargar „Ballettinn er mitt starf 1 nánustu framtíöa — segir Einar Sveinn, sem dansar sem gestur Einar Sveinn Þórðarson dansar sem gestur í afmælissýningu dans- flokksins og milli æflnga gafst honum tími í stutt viðtal. „í byrjun nóvember var ég laus og kom þá heim til að æfa fyrir þessa sýningu. Flokkurinn er búinn að vera að vinna að henni síðan í september og hefði mér svo sem ekki veitt af meiri tíma til æfinga, því það er virki- lega krefjandi sem ég er að gera. Ég hef nú dansað í eitt ár með The Pennsylvania Ballet og hef nýlega undirritað samning sem gildir fram í júlí.“ Er ballettinn þitt framtíðar- starf? „Hann er allavega starf mitt í nánustu framtíð. Eg hef áhuga á mörgu öðru, en ákvað þegar ég lauk stúdentsprófi að gefa ball- ettinum nokkur ár óskipt og sjá hvernig mér líkaði. Að vera í ballettskóla er ólíkt því að vinna sem dansari, það er heimur út af fyrir sig, sem ég er nú reft að byrja að kynnast. Ég byrjaði í þessu sem pjakk- ur þegar ég var að leika í barna- leikritum í Þjóðleikhúsinu og var alltaf viðloðandi ballettskól- ann. Ég fór ekki að æfa af viti fyrr en ég var 14 ára og tveim árum seinna ákvað ég að fara í framhaldsnám. Fyrir tilstilli Helga Tómassonar fór ég á sumarnámskeið hjá School of American Ballet sem er í tengsl- um við New York City Ballet og var tekinn inn um haustið. Þarna var ég á fimmta ár, skól- inn er mjög góður og ég kunni vel við mig. Ég hafði svo verið að leita fyrir mér með vinnu í nokkra mánuði þegar Pennsyl- vania-flokkurinn bauð mér að koma til sín. Hann er með fjöl- breytta verkefnaskrá en er þó fyrst og fremst klassískur flokk- ur.“ Þú stefnir þá ekki að því að koma heim? „Ekki að svo stöddu, annars læt ég það ráðast. Hugurinn stefnir alltaf heim, það er gott að vera á íslandi og hér vil ég gjarnan búa. Mér er það því mik- ils virði að fá að koma og starfa með íslenska dansflokknum og vinnan fyrir þessa sýningu hefur verið góð reynsla. Ég hef heldur ekki unnið svona mikið með flokknum í lengri tíma, því ég hef yfirleitt ekki komið heim fyrr en nokkrum dögum fyrir sýningarnar sem ég hef tekið þátt í.“ Hvenær kemurðu svo næst? „Það stóð til að ég kæmi í mars og dansaði aðalhlutverkið í Öskubusku, ég meina prinsinn. En það ætlar ekki að ganga upp þar sem sýningin lendir saman við verkefni hjá mér úti. Ég er svolítið spældur yfir þessu, en vona að annað tækifæri til að koma heim og dansa gefist sem „Stórt skref að taka við þjálfun flokksins“ Nanna Ólafsdóttir hefur verið þjálfari dansflokksins í fjögur ár og er höfundur eins ballettanna sem flokkurinn sýnir í kvöld. „Þetta er þriðja verkið sem ég geri fyrir flokkinn," sagði Nanna. „Það heitir Turrangalila og er samið við þætti úr sam- nefndri sinfóníu eftir Olivier Messiaen. Efni ballettsins sæki ég í nafn tónverksins sem merkir allt í senn lofsöngur um ástina, gleðina, tímann, hreyfingu og hljóðfall, líf og dauða. Fyrsti kaflinn í dansinum er þungur og jarðneskur, annan kaflann hefur Messiaen nefnt „Garð ástar- svefnsins." Þetta er draum- kenndur hrifnæmur kafli um ástina í sínum ljúfustu myndum, en með lúðrablæstri erum við vakin upp af draumnum og verð- ur þá dansinn fullur af gáska, léttúð og lífskrafti." — segir Nanna Ólafsdóttir Þú varst einn af stofnendum dansflokksins Nanna, hvernig var að taka við stjórnun hans? „Það var stórt skref fyrir mig eftir að hafa verið einn af döns- urunum í mörg ár. En þetta hef- ur gengið nokkuð vel og ekki síst vegna þess hve félagar mínir úr flokknum voru jákvæðir á að láta þetta ganga vel. Það kom mér að miklu gagni að ég lærði á sínum tíma í Ballettakademí- unni í Leningrad. Með þann skóla að baki gat ég endurlífgað kunnáttu mína er ég tók við stjórn flokksins. Meðal annars fór ég til Leningrad og fékk að fylgjast með starfi Kirov-ball- ettsins í mánaðartíma. Það var mér ómetanlegt og hef ég síðan reynt að halda mér við með því að fara í fleiri svona ferðir og kynna mér það helsta í ballettn- um í dag. í þjálfuninni hef ég reynt að halda aðalsmerki Len- ingrad-skólans á lofti og miðla því besta. Ég hef lagt áherslu á adagio, línufegurð dansaranna og notkun á höfði og handleggj- um. Eins hef ég orðið fyrir áhrif- um af því að fylgjast með starfi Stanley Williams hjá School of American Ballet. Til að vinna með okkur að sýn- ingum höfum við fengið mikið af góðu fólki erlendis frá, svo sem Anton Dolin, John Gilpin og Birgit Cullberg. Það hefur verið lærdómsríkt fyrir mig og mikill fengur fyrir dansflokkinn og ekki síður hefur verið gaman að fá hingað sem gesti dansara eins og Niklas Ek og Per Arthur Seg- erström. me. /Eflng, ballett unninn af dansflokknum, sýnir daglegt líf dansarans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.