Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 Auglýsing til bænda Höfum nú fyrirliggjandi sérframleitt þaramjöl til fóö- urs. Pakkað í 25 kg pappírspoka og veröiö er kr. 8,00 pr. kg. Vinsamlegast geriö pantanir sem fyrst í símum 93-4740 eöa 91-16299. Þörungavinnslan hf., Reykhólum. 13. leikvika — leikir 19. nóv. 1983 Vinningsröð: 121 — 111 — 2XX — 1X1 1. vinningur: 12 réttir — kr. 43.300,- 1295(1/11) 36974(4/11) 45630(4/11) 86684(6/11K 12745 40617(4/11) 47111(4/11) 87852(6/11) 20685(2/11) 44861(4/11) 55770(4/11) 2. vinningur: 11 réttir — kr. 1.398,- 258 39810 50681 85803 89594 95170 341 40520 51022 86085+ 89675 95637 1266 40863+ 53065+ 86111+ 90926 95689+ 1314 41548+ 53808 86200+ 90953 95714+ 1552 42720 53877 86208+ 90972 95822 3392 45588 54270+ 86557+ 90986 95887 4395 46761 54697 86558 90986 96172+ 5399 47115 55303 86581 90987 180667 6098 47276+ 56142 86666+ 90988 1348* 6865 42277+ 57477 86675+ 91535 40497* 7471 47943+ 58094 86681+ 91613 46686*+ 13155 48320 58120 87153+ 92830+ 95416*+ 14725 49008+ 59261+ 87156+ 92963 8. vika: 16619 49082 60313+ 87785 92982+ 54353+ 20067 49530 61539+ 87897 93685 35711 49586 85537+ 87946+ 94872 36138 50323 85567 88423 95019+ 36232 ' = 2/11 50351+ 85745 89566 95047 Kærufrestur er til 12. desember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöð fást hjá umboösmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR — íþróttamiðstööinni — REYKJAVÍK Vetrartilboð! Við bjóðum ykkur Bridgestone snjódekk á felgum undir bílinn á sérstöku tilboðsverði. Greiðsluskilmálar: 25% útborgun og eftirstöðvar á 3 mánuðum. Tryggið öryggi í vetrarakstri og notið ykkur þetta hagstæða boð. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23 Sími 81265 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JOHN KIFNER. Frá átökum lögreglu og alþýðunnar skömmu áður en herlög voru sett í landinu. Þau virðast yfirvofandi á ný. Jaruzelski styrkir enn stöðu sína í Póllandi Wojciech Jaruzeiski, leiðtogi pólsku þjóðarinnar, styrkti enn stöðu sína í vikubyrjun þó svo hann segði formlega af sér embKtti varnarmálaráð- herra. I kjölfar stjórnarfarslegra breytinga, sem gerðar voru samhliða afsögn hans úr embætti varnarmálaráðherra, er hann eftir sem áður valdamesti maður þjóðarinnar. á hefur valdamikið vara- herráð verið sett á laggirnar og tekur það að vissu leyti við af Þjóðvarnarráðinu, sem fór með mikil völd á meðan herlög voru enn í gildi í landinu. Hið nýja ráð er enn valdameira og er reiðubúið að taka við yfirstjórn allra hermála, svo og stjórnsýsl- unnar, að beiðni Jaruzelski. Með tilkomu þessa nýja vara- herráðs má segja að völd Jaruz- elskis og annarra yfirmanna hersins séu nú nánast þau sömu og þau voru á meðan heriög voru enn í gildi í landinu. Þjóðvarna- ráðið var leyst upp þegar her- lögum var formlega aflétt í júlí á þessu ári. Lykilstaða Jaruzelski Þá voru ennfremur samþykkt lög í þinginu, án þess kæmi til nokkurra umræðna eða at- kvæðagreiðslu, um að setja á stofn sérstaka varnarmálanefnd. Nefndin, sem þingið ákvað á þriðjudag að skyldi verða undir forsæti Jaruzelski eins og við hafði verið búist, fær m.a. vald til þess að lýsa yfir neyðar- ástandi og stríði á hendur óvina- þjóðum ef þörf þykir krefja. Þessi nýja skipan mála gerir Jaruzelski kleift að grípa til að- gerða á skjótari hátt en áður. Fullvíst er talið, að varnarmála- nefndin sé sett á laggirnar ein- mitt nú til þess að pólsk yfirvöld, og þá sér í lagi Jaruzelski, séu betur í stakk búin til að takast á við mótmæli alþýðunnar, sem allar líkur eru taldar á að nái hámarki er fyrirhugaðar verð- hækkanir á nauðsynjavörum taka gildi í byrjun nýs árs. Mikil óánægja hefur ríkt á meðal almennings í Póllandi við fyrirhugaðar verðhækkanir. Stjórnvöld hafa sagt þær verða á bilinu 10—15 af hundraði eftir að hafa áður skotið öllum skelk í bringu með tilkynningu um 20% verðhækkanir. Lech Walesa hitti þá leiðtoga Samstöðu, sem enn fara huldu höfði af ótta við yfir- Woiciech Jaruzelski völd, á leynilegum fundi um helgina. Þar lagði hann m.a. til, að samtökin legðust gegn verð- hækkununum af öllum mætti. Jaruzelski, sem kjörinn var formaður Þjóðvarnaráðsins án mótatkvæða, fær með formanns- embættinu jafnframt æðsta vald yfir herafla landsins í hendur. Á meðan herlög voru í gildi gegndi Jaruzelski embætti flokksleið- toga, forsætisráðherra og for- manns herráðsins. Hin nýja skipan mála í landinu færir hon- um sambærilegt valdsvið. Auk þess má benda á, að þótt herlögum hafi formlega verið af- létt í júlí eru herforingjar og ofurstar enn í lykilstöðum víðs vegar um landið, mörgum af hæstsettu mönnum innan pólska kommúnistaflokksins til sárrar gremju. Breytingarnar í viku- byrjun virðast þjóna þeim til- gangi einum að styrkja stöðu hersins og leyniþjónustunnar. Bent hefur verið á eina skýringu þessa, þ.e. hina tiltölulega veiku stöðu kommúnistaflokksins í landinu. Verðhækkanir áhyggjuefni Væntanlegar verðhækkanir eru helsta áhyggjuefni stjórn- valda í Póllandi um þessar mundir. Þau eru þess vafalítið enn minnug, að sambærilegar hækkanir leiddu til ólgu í þjóð- lífinu, sem síðar reyndist undir- rót falls eða minnkandi valda stjórna landsins 1956, 1970 og 1980. Einn liðurinn í lögunum, sem sett voru á mánudag og tóku þegar gildi, hljóðaði á þá leið, að skráning nýliða í herinn yrði gerð stöðug allt árið og þeir nýttir í þágu óeirðalögreglunnar. f þessari lagasetningu felst greinilegur herstuðningur við innanríkisráðuneytið, sem hefur öryggismál landsins á sinni könnu. Til þess að undirstrika hann enn frekar sagði ennfrem- ur í lögunum, að „eins og staðan væri nú hefði innanríkisráðu- neytið ekki þann mannskap á sínum snærum, sem nauðsynleg- ur væri til þess að halda uppi lögum og reglu í landinu, ekki síst með tilliti til þeirra hótana, sem Samstaða hefði haft í frammi að undanförnu." Án þess að lýsa yfir neyðar- ástandi er váld hinnar nýju varnarmálanefndar geysilega öflugt. Hún hefur jafnframt leyfi til þess að skerast í málefni stjórnsýslunnar, svo og að vas- ast í fjármálum ríksins „með til- liti til tengsla hermála við heild- arstöðu efnahags þjóðarinnar," eins og það hefur verið orðað. Meðvituð um óánægjuna með verðhækkanirnar og andstöðu Samstöðu urðu yfirvöld að leita lengi vel í hugskoti sínu að ein- hverri leið til að geta lýst yfir „styrjaldarástandi". Varnar- málanefndin nýja var lausnin. Sömuleiðis urðu þau að endur- vekja Þjóðvarnaráðið til þess að halda utan um herlögin, verði þau sett á að nýju. Nú, þegar allt er komið í fastar skorður að nýju, virðist Jaruzelski betur í stakk búinn til þess að kæfa alla andspyrnu í fæðingu en um langt skeið. John Kifner er starfandi blaða- maður hjá New York Times News Service.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.