Morgunblaðið - 24.11.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Sovétmenn slíta viðræðunum í Genf:
„Óréttlætanleg ákvörðun“
„Þegar viöræðurnar hófust voru sovésku
SS-20-eldfIaugarnar 140, nú eru þær 360 og
enn verið að koma fyrir nýjum. Þrátt fyrir
það hafa Bandaríkjamenn haldið viðræðun-
um áfram“
London, Brttasel, Hug, Genf
og víðar, 23. nóvember. AP.
Ríkisstjórnir á Vesturlöndum
börmuðu í dag þá ákvörðun Sovét-
manna að hætta um ákveðinn (ima
samningaviðræðum við Bandaríkja-
menn um meðaldrægar eldflaugar.
Ákvörðun Sovétmanna er gerð f
hefndarskyni fyrir það, að vestur-
þýska þingið ákvað í gær að heimila
uppsetningu meðaldrægra eldflauga
í landinu, en vestrænir leiðtogar
benda á, að allan þann tíma, í fjögur
ár, sem Sovétmenn hafa verið að
beina æ fleiri kjarnorkuflaugum að
Vestur-Evrópu, hafi þeir aldrei sett
nein skilyrði fyrir viðræðum við Sov-
étmenn.
í yfirlýsingu breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði, að ákvörðun
Sovétmanna væri óréttlætanleg
með öllu og Michael Heseltine,
varnarmálaráðherra, sagði í sjón-
varpsviðtali í dag, að framferði
Sovétmanna væri óafsakanlegt
áróðursbragð. Sagði hann, að Sov-
étmenn hefðu lagt mótmælafólki á
Norskur sjávarútvegur:
Kröfur um
ríkisstyrk
23. nóvember.
UM þessar mundir fara fram við-
ræður milli stjórnvalda í Noregi og
Samtaka norskra sjómanna og út-
gerðarmanna um styrki stjórnarinn-
ar við útgerðina á næsta ári. í nýlegu
tölublaði af Fiskaren, sem fjallar um
sjávarútvegsmál, segir, að útgerð-
armenn og sjómenn telji sig ekki
komast af með minna en rúmlega
hálfan áttunda milljarð ísl. kr. á ár-
inu 1984.
t viðræðunum að þessu sinni
hafa samtök sjávarútvegsins beitt
nýrri aðferð við að reikna út fjár-
magnskostnaðinn við fiskveiðarn-
ar en hingað til hafa menn ekki
verið á eitt sáttir um hvernig
hann skuli meta. Nefna má sem
dæmi, að samtökin byggja nú út-
reikninga sína á opinberri skýrslu
um vinnutíma sjómanna og segja,
að án þess að taka tillit til hans sé
ekki hægt að meta raunverulega
fjárþörf atvinnugreinarinnar.
Á fyrsta viðræðufundinum, 10.
nóvember sl., náðist ekki sam-
komulag um reikningsaðferðina
og hefur það valdið mikilli óán-
ægju meðal sjómanna og út-
gerðarmanna, sem segja fulltrúa
stjórnvalda ekki hafa getað mælt
henni í mót með gildum rökum.
Vesturlöndum allt það lið, sem
þeir máttu, „og ef þeir hefðu ekk-
ert aðhafst núna hefðu þeir valdið
þessu fólki miklum vonbrigðum".
Leiðtogar 48 ríkja breska sam-
veldisins, sem nú eru samankomn-
ir í Nýju-Delhi, kváðust í dag
harma afstöðu Rússa, sem þó
hefði ekki komið þeim á óvart.
Talsmaður Margaret Thatcher
sagði Sovétmenn ekki geta afsak-
að sig á neinn hátt því að ákvörð-
un NATO-ríkjanna hefði legið
fyrir í fjögur ár. Bob Hawke, for-
sætisráðherra Ástralíu, kvaðst
búast við, að Sovétmenn tækju
aftur upp samningaviðræður á
næsta ári vegna þess, að vígbún-
aðarkapphlaupið væri að verða
þeim fjárhagslega ofviða. „Að lok-
um mun heilbrigð skynsemi verða
ofan á hjá þeim,“ sagði hann.
Káre Willoch, forsætisráðherra
Noregs, tók í líkan streng og
kvaðst vona, að Sovétmenn sæju
brátt að sér og hyrfu að samn-
ingaborðinu. Á því máli var einnig
Leo Tindemans, utanríkisráðherra
Belga. í yfirlýsingu hollensku
stjórnarinnar sagði, að það væri
„hörmulegt, að Sovétmenn skuli
hafa hætt viðræðunum með það að
yfirvarpi, að Vestur-Evrópa hafi
ákveðið að koma upp varnareld-
flaugum. Sú ákvörðun er orðin
fjögurra ára gömul".
Paul H. Nitze, aðalsamninga-
maður Bandaríkjanna í Genf, lét
frá sér fara yfirlýsingu eftir að
samningamenn Sovétríkjanna
höfðu slitið viðræðunum um ófyr-
irsjáanlegan tíma. Þar sagði, að
Sovétmenn gætu á engan hátt
réttlætt framferði sitt. Banda-
ríkjamenn hefðu haft frumkvæði
að viðræðunum og það á þeim
tíma þegar Sovétmenn hefðu verið
búnir að koma fyrir 140 SS-20-eld-
flaugum, nú væru þeir búnir að
fjölga þeim í 360 og væru enn að
koma fyrir nýjum. Þrátt fyrir það
hefðu Bandaríkjamenn haldið við-
ræðunum áfram og lagt sig alla
fram um að ná samkomulagi. Lögð
var áhersla á, að Bandaríkjamenn
vildu halda viðræðunum áfram
þar til samkomulag næðist.
Glðsqow
Merðfrd kr.8.202-
Ath. einnig ferðirnar til Eðinborgar.
Nðnari upplýsingar fást hjá Söluskrlf-
stofum Fluglelða umboðsmönnum og
ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
KLOSSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
ÖRYGGISSKÓR
A
H
•UOMZJ-JIM.-1 1 - 'TB——W
BORÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
OLÍUOFNAR
GASLUKTIR
OLÍUHANDLUKTIR
OLÍULAMPAR
10, 15, 20 LÍNA
ARINSETT
FÍSBELGIR
VIÐARKÖRFUR
•
SNJÓÝTUR
SNJÓSKÓFLUR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
BAUJULUKTIR
„AUTRONICA“
og allir varahlutir
BAUJUSTENGUR
ÁL, PLAST, BAMBUS
ENDURSKINSHÓLKAR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
BAUJUFLÖGG
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
TROLLLÁSAR
DURCO-PATENTLÁSAR
Vj“, %“,
FÓTREYPISKEÐJUR
Vt“, 'h“, W»“
Sími28855
Opið laugardaga 9—12.