Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 24

Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 23 Tómas Guðmundsson hefur bent okkur á svo margt, sem er fagurt og satt, að í dag þegar hann er borinn til grafar, sameinast öll þjóðin í þakklæti til hans. Þegar hann var ungur voru kvæði hans um ástina og hina fögru veröld. Ljóð hans gæddu lífið fögnuði. Hann brá birtu á umhverfi sitt og opnaði augu okkar fyrir töfrum fugla, stjarna og blóma. Hann kunni líka að breyta ýmsum hlutum hins gráa hversdagsleika í ljóð á þann veg, að það varð „aftur hlýtt og bjart um bæ- inn“. Þegar aldurinn færðist yfir, orti hann enn um ástina og veröldina, en ekki bara um fegurð veraldarinnar, heldur líka það, sem hrópar á alla með hreint hjarta og krefst þess, að böl sé bætt. „Og vei þeim, sem ei virðir skáldskap þann, sem veruleikinn yrkir kringum hann ..." Það lék aldrei á tveim tungum, hvar í fylkingu Tómas Guðmundsson stóð, þegar tekist var á um hin miklu lífsverðmæti: „En vit, að öll þín arfleifð, von og þrá, er áskorun frá minning, sögu og Ijóðum, að ganga af heilum hug til liðs við þá, sem heiminn vilja byggja frjálsum þjóðum." Hann trúði á frelsi mannsins til orða og athafna og lagði fram krafta sína þeirri hugsjón til eflingar. Ævi hans var eins og ljóð hans, fögur og einlæg. Blessuð sé minning hans. Eiginkonu hans og fjölskyldu er vottuð innileg sam- Ragnhildur Helgadóttir Mér er ekki ljóst hvaða slembilukka réði því, að sá góði kjörviður, sem var í öndveg- issúlum Ingólfs flaut að landi í Reykjavík. Mér er næst að trúa því sama og Ingólfur gerði, að þar hafi einkum guðirnir átt hlut að máli, þótt ljóst sé að báðir trúðum við ekki á sömu guðina. Hversu góð sem sú tilgáta kann að vera, er hin enn öruggari að forsjónin ein gat því ráðið að Tómas Guðmundsson, sem fæddur er í fagurri sveit, innan um óðinshana og önnur skáld, skyldi einna fyrstur skálda taka ást við höfuðstaðinn og gefa borgarbúum og landsmönnum öllum hlutdeild í þeirri ást. Afstaða listamanna til Reykjavíkur hef- ur verið misjöfn gegnum tiðina. Löngum sóttu allir reykvískir listmálarar sínar fyrirmyndir út fyrir borgina. Þeir máluðu einkum landslagsmyndir sem gáfu horf- inni sveitarómantík nýtt líf. Sama má segja um rithöfundana. Þeirra yrkisefni voru sótt út á land. Fegurðina, hreinleik- ann og fagra drauminn var að finna í ís- lenskri sveitasæiu. Einkenni Reykjavíkur voru önnur. Þar var harkan, sollurinn, bit- urleikinn, aurinn og forarpyttirnir. Allt er þetta sem betur fer að breytast. Snjallir málarar hafa síðustu ár og áratugi sýnt að þeir hafa ekki lengur ímugust á borginni sinni. Og nútimasagan á lögheimili í Reykjavík og afstaða höfundanna er öll önnur og vinsamlegri, en forðum var. Tómas Guðmundsson lagði öðrum skáld- um til nýja ásýnd Reykjavíkur. Enginn gerði meir til þess að breyta ímynd borg- arinnar og opnaði augu heimamanna og gesta fyrir hinu góða og fagra í bænum. Hann opnaði ekki bara sýn til ytra um- hverfis Reykjavíkur og þeirrar stórbrotnu myndar, sem hvarvetna blasir við frá henni. Hann horfði vinaraugum inn á við. Hlý, viðfelldin augu borgarskáldsins skynjuðu borgina á nýjan hátt. Um þetta segir Kristján Karlsson á einum stað: „Síðari kynslóðir þurfa tæplega að fara í grafgötur um það, hvers vegna Reykjavík fagnaði Tómasi Guðmundssyni svo ákaft sem sínu skáldi og bæjarstjórnin braut blað í sögu sinni að veita honum sérstök verðlaun með fararstyrk til suðurlanda. Fullyrða má, að enginn listamaður hefur átt jafn ríkan þátt f að móta hugmyndir landsmanna um Reykjavíkurborg sem nú- tímaborg með stórborgarlífi langt umfram stærð sína, né vekja skyn þeirra á fegurð hennar. Þar sem önnur skáld höfðu ein- kum ort um útsýnina frá Reykjavík yrkir Tómas um útsýnina inn á við í bænum. Fyrir daga hans ortu menn um Reykjavík sem sögustað í fögru umhverfi, en bæinn sjálfan sem hæpinn fegurðarauka. Enda þótt flest skáld landsins á síðari tímum hefðu búið langvistum í Reykjavík, voru þau grunsamlega fáorð um bæinn og enn efldi vissulega eftir af gömlum hugmynd- um um Reykjavík sem einhvers konar út- lenda sódómu í sakiausu íslensku þjóðlífi. Það var ekki ýkja langt síðan, að skáldinu Einari Benediktssyni hafði þótt nauðsyn- legt að staðhæfa að: „Með Fróni er Víkin dygg og trygg og sönn.“ Enginn maður hafði stórbrotnari hugmyndir á sínum tíma um framtíð Reykjavíkur en Einar Benediktsson, en samt hét hún ennþá Vík- in. Það mætti vera ofurlítill mælikvarði á skilning manna og tungutaki, hugmyndum og smekk Tómasar Guðmundssonar, að þeir fyndu hve óhugsandi væri. að hann talaði nokkurn tíma um Víkina. I stað þess að yrkja um sögu Reykjavíkur og afsaka nútíð hennar yrkir Tómas bæði fagnandi lofsöngva og ástúðlega gagnrýni um borg- ina eins og hún er. Og hann yrkir ekki einungis um þá nýju fegurð, sem stræti hennar, höfn, malbik og garðar hafa að Við fráfall Tómasar Guðmundssonar, er horfið af sjónarsviði ástsælasta skáld ís- lendinga. Ljóðrænir töfrar kvæða hans unnu hug og hjörtu fólks, allt frá fyrstu ljóðabók hans „Við sundin blá“. Þegar svo „Fagra veröld" kom út seldist hún upp í þremur útgáfum á örskömmum tíma, sem sannaði á ótvíræðan hátt, að upp var risið með þjóðinni skáld, sem fólkið vildi lesa og eiga bækur eftir. Upp frá því hefur skáld- skapur Tómasar búið með þjóðinni og mun lifa á vörum hennar um ókomin ár. Tómas Guðmundsson var einn helsti forgöngumaður að stofnun Almenna bóka- félagsins. Á stofnfundi félagsins 1944 var hann kosinn í bókmenntaráð þess, og 1960 varð hann formaður ráðsins og gegndi því erfiða og vandasama hlutverki þar til um haustið 1982, að hann óskaði að vera leyst- ur frá störfum sakir vanheilsu. Þeim sem stunda bókaútgáfu af menn- ingarlegum metnaði er ljóst að mesti vandinn við bókaútgáfu felst í því að velja þau verk, sem út eru gefin hverju sinni. í Almenna bókafélaginu er það umfram allt formaður bókmenntaráðsins, sem ber þungann af þessu vandasama verkefni. Og ari miklu varúð var einfaldlega sú, að hann vildi ekki skilja neitt við sig í rituðu máli, sem hann sjálfur var ekki viss um að væri eins vel skrifað og hann hefði kosið, bæði að efni og stíl. Hinsvegar var hann ófeiminn við að láta munnlega skoðun sína skýrt og skorinort í ljós á bókmennta- ráðsfundum, við mig persónulega eða aðra starfsmenn Almenna bókafélagsins, eða við höfunda um álit hans á þeim handrit- um eða bókum sem hugsanlega komu til greina sem útgáfubækur. Þá fólst ekki lítil vinna í að lesa yfir og leiðrétta þýðingar, sem unnar voru á vegum Almenna bókafé- lagsins. Og gjarnan annaðist hann lestur prófarka af útgáfubókum félagsins. Auk alls þessa stundaði hann ritstörf sín og las kynstrin öll af bókum, sem á engan hátt tengdust útgáfustarfi Almenna bókafé- lagsins. Tómas var manna fyndnastur og ákaf- lega skemmtilegur er hann sagði frá. En á bak við glettni hans í frásögn og tilsvörum bjó ákaflega alvörugefið skáld, sem bar mikla umhyggju fyrir samborgurum sín- um og þjóð sinni allri. Framtíð íslands var honum einkar hugleikið viðfangsefni. Tómas Guðmundsson flytur ræðu á mótmælafundi vegna innrásar Rússa í Ungverjaland 1956. geyma, heldur einnig um athafnalíf henn- ar, örlög og hætti bæjarbúa. Segja má, að tími hafi verið til kominn, og að Tómas hafi komið á réttum tíma. Reykjavík var u.þ.b. orðin borg og þurfti að mynda sér hugmyndir um sjálfa sig. Eins og hjá ungl- ingi á gelgjuskeiði voru hugmyndir hennar um útlit sitt dálítið óvissar. Hvað var þá meira virði en uppgötva hreina nýja feg- urð í því, sem helst þótti ábótavant í nýrri stórborg." Þetta verður ekki betur sagt en Kristján gerir. Aðeins er hinu við að bæta, að nýjar kynslóðir, sem ekki þekktu það áhugaleysi, jafnvel kala sem stundum bar á í viðmóti manna við höfuðstaðinn unga, eiga enn í dag létt með að taka undir með löngu ortum ljóðum Reykjavíkurskáldsins. Það má auðvitað ekki misskilja það, að þótt mér sé tamt að minnast Tómasar Guð- mundssonar sem borgarskálds eða Reykja- víkurskálds er mér ljóst, að við sem hér búum, erum aðeins hluti aðdáenda hans og vina. Þjóðskáldsnafnbót er sennilega æðsti stórkross sem íslenska þjóðin getur hengt á nokkurn mann og hún er ekki eins útbær á hana og önnur tignarmerki. Það voru ekki margir menn á þessari öld, sem sú nafnbót fór betur en Tómasi Guðmunds- syni. Reykjavíkurborg vottar ekkju og sonum skáldsins samúð og virðingu. Davíð Oddsson því forystustarfi gegndi Tómas fyrir Al- menna bókafélagið í 22 ár af stakri ár- vekni og þeirri miklu vandvirkni, sem framar öðru einkenndi vinnubrögð hans. í þau 16 ár, sem ég var framkvæmda- stjóri Almenna bókafélagsins, árin 1960—76, var Tómas Guðmundsson sá af forystumönnum félagsins, sem ég átti nán- asta samvinnu við. Mér hlotnaðist því sú gæfa að kynnast einkar vel hvílíkur öðl- ingsmaður Tómas var. Kurteisi hans og hlýleg framkoma komu manni ætíð í gott skap, og viðræður við hann voru ætíð með eindæmum skemmtilegar, og í hvert sinn sem Tómas kvaddi tók ég að hlakka til næstu endurfunda. En einnig kynntist ég þvi hversu atorkusamur og afkastamikill Tómas var í störfum sínum. Ég undraðist oft hver firn af handritum og erlendum bókum hann komst yfir að lesa og þó hitt meir, hvernig honum vannst tími til að rita niður oft á tíðum ítarlegar athuga- semdir um þau verk, sem honum þóttu áhugaverð til útgáfu. En þessar athuga- semdir afhenti hann mér sjaldnast, né öðr- um svo að ég viti. Hann las þær oft upp fyrir mig eða aðra starfsmenn útgáfunnar, en aldrei lét hann mér þær í té nema til stutts yfirlestrar og beið þá gjarnan með- an ég las þær yfir. Yfirleitt voru þessar athugasemdir jákvæðar, a.m.k. það sem ég sá eða heyrði, en allt að einu vildi hann ekki skilja þær við sig. Ástæðan fyrir þess- Hann hafði mikla trú á æsku þessa lands. Hún myndi búa íslandi framtíðarinnar þá menningarlegu reisn sem landi og þjóð dygðu í viðsjálum heimi. Fyrir ekki alls löngu ræddum við Tómas þetta efni og sagðist hann þá eiga sér þá ósk að Almenna bókafélaginu auðnaðist að gefa út, fyrr en seinna, flokk bóka eftir íslenska vísinda- og menntamenn sem hvettu íslendinga til að nýta þann auð, sem í landi og þjóð býr, til farsældar kom- andi kynslóðum þessa lands. Megi sú ósk Tómasar verða sem fyrst að veruleika. Og nú við fráfall Tómasar Guðmunds- sonar, skálds, er okkur í Almenna bókafé- laginu, stjórn þess, bókmenntaráði og starfsfólki öllu, efst í huga einlægt þakk- læti fyrir að hafa átt kost á forystu Tóm- asar í öll þess ár, einstaklega góðu sam- starfi við hann, en framar öllu öðru að hafa átt hann að vini og samherja í hart- nær þrjá áratugi. Fáum hefur sú gæfa fallið í skaut. í nóvember 1982 kaus Almenna bókafé- lagið Tómas Guðmundsson fyrsta heiðurs- félaga sinn. í minningu okkar verður hann ávallt sá hugþekki heiðursmaður sem við unnum með í öll þessi ár og áttum að trún- aðarvini. Við vottum eftirlifandi konu hans, son- um og ástvinum öllum, dýpstu samúð. Baldvin Tryggvason, formaður Almenna bókafélagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.