Morgunblaðið - 24.11.1983, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
Borg í Grímsnesi:
Tónleikar Kristinns Sigmundsson-
ar og Jónasar Ingimundarsonar
ÞEIR Kristinn Sigmundsson, söngvari, og Jónas Ingimundarson,
píanóleikari, halda í dag tónleika að Borg í Grímsnesi.
Á efnisskránni eru lög og aríur eftir Árna Thorsteinsson, Karl Ó.
Runólfsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Bizet, Ives, Schubert, Verdi
og Wagner.
Þeir Kristinn og Jónas hafa áður haldið tónleika saman á liðnu
hausti, bæði í Reykjavík og úti á landi. Tónleikar þeirra í kvöld
hefjast kl. 20.30.
Alltaf á föstudögum
<r>
$
>
T
5
Föstudagsbluðiö er gott forskot á helgina
Fyrsta handarágræöslan
á íslandi
— sagt frá aögerö Rögnvaldar Þorleifs-
sonar, sem gerö var í Borgarspitalanum
fyrir rúmum tveim árum, í máli og mynd-
um.
„Erum á móti feimnis-
málum í blaöamennsku“
— segja ritstjórar Helgarpóstslns.
Nýjar neglur
— Rachel Rose heimsótt, en hún býr til
neglur eftir máli!
Mótmæli sjómanna vegna loðnusýnatöku:
Verða að taka málið
upp í Verðlagsráði
— okkar fyrirmæli koma þaðan, segir Björn Dagbjarts-
son forstjóri Rannsóknastofnunar fikiðnaðarins
„Framleiðslueftirlit sjávarafurða
tekur sýnishornin samkvæmt fyrir-
mslum verðlagsráðs, en sam-
kvæmt þeim skal taka sýnishornin
í löndunartæki verksmiðju. Okkur
hjá eftirlitsstofnunum er nákvæm-
lega sama hvar við tökum sýnin, en
ef menn eru ekki ánægðir með það
verða þeir að taka málið upp í verð-
lagsráði á ný“, sagði Björn Dag-
bjartsson forstjóri Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins í viðtali
við Mbl. í tilefni af mótmælura sjó-
manna við töku loðnusýna til fitu-
mælinga. Sjómenn hafa krafist
þess að sýnin verði tekin um borð í
skipunum, en ekki úr löndunar-
tækjum.
Björn sagði að sú aðferð hefði
verið viðhöfð síðast þegar veidd
var loðna, að taka sýnin um borð.
Sýnatakan hefði þá verið komin
út í hálfgerða vitleysu og enginn
hefði vitað í raun hvar þau voru
tekin og því hefðu mælingar ver-
ið algjörlega ósambærilegar.
Umrædd breyting hefði orðið
vegna skriflegrar kröfu sjó-
manna og útvegsmanna í verð-
lagsráði þess efnis að sýnishorn- þetta, þá verða þeir að taka mál-
in skyldi taka í löndunartæki ið upp í verðlagsráði, því okkar
verksmiðju, eins og nú væri gert. fyrirmæli koma þaðan,“ sagði
„Ef menn eru ekki ánægðir með hann að lokum.
Jazztónleikar í Norræna húsinu
JAZZTÓNLEIKAR verða f Norræna húsinu í kvöld og hefjast kl. 20.30. 10
manna hljómsveit og kvartett Stefáns S. Stefánssonar frumflytja tónsmíðar
og útscndingar eftir Stefán, en hann útskrifaðist sl. haust frá Berklee
College of Music í Boston, Mass. USA, eftir 4ra ára nám í tónsmíðum,
útsetningum og hljóðfæraleik.
Flytjendur á tónleikunum auk Stefáns verða: Ásgeir Steingrímsson
trompet, Sveinn Birgisson trompet, Sigurður Þorbergsson básúna,
Vilhjálmur Guðjónsson altsaxófónn, Þorleifur Gíslason tenórsaxófónn,
Reynir Sigurðsson víbrafónn, Björn Thoroddsen gítar, Ámi Scheving,
bassi, Skúli Sverrisson bassi og Steingrímur Óli Sigurðsson trommur.
Akureyri:
Stefnir í að Slippstöð-
in smíði togara fyrir ÚA
Akureyri, 23. nóvember 1983. lags Akureyringa hf. átt með sér sex
AÐ UNDANFÖRNU hafa stjórnir viðræðufundi varðandi smíði á nýj-
Slippstöðvarinnar hf. og Útgerðarfé- um togara fyrir útgerðarfélagið.
Itölsk söngkona
leysir Ólöfu af
TIL LANDSINS er komin Jean Benn-
ett, óperusöngkona frá Ítalíu, mun hún
syngja hlutverk Violettu í þremur sýn-
ingum íslensku óperunnar á La travi-,
ata og kemur í stað Ólafar Kolbrúnar
Harðardóttur sem nú heldur til Þýska-
lands sem fulltrúi íslands á íslenskum
menningardögum i Berlín og Köln.
f frétt frá lslensku óperunni segir:
„Jean Bennett er amerísk að þjóð-
erni, en býr og starfar einkum á ít-
alíu. Hún lærði söng hjá Linu Pagli-
ughi, og lauk síðan prófum frá Tón-
listarháskólanum í Pesaro. Hún hef-
ur unnið til margra verðlauna, og
árið 1980 var henni veittur styrkur
úr sjóðum Rossini-stofnunarinnar.
Hún vann til úrslita í alþjóðlegri
keppni Achilles Peri og í keppni
Lucianos Pavarotti árið 1981.
Jean Bennett hefur sungið í óper-
um og haldið tónleika víða um lönd,
um Ítalíu þvera og endilanga og
einnig í Belgíu, Frakklandi og
Bandaríkjunum. í febrúar á þessu
ári söng hún sem gestur í San
Jean Bcnnett
Carlos-leikhúsinu í Portúgal. Hún
hefur sérhæft sig í ítölskum „bel
canto“-söng. Næsta verkefni hennar
verður eitt helsta hlutverk í „bel
canto“, titilhlutverkið í óperu Doniz-
ettis Lucia di Lammermoor. Það
mun hún syngja í Verona á Ítalíu
hinn 10. desember næstkomandi."
Fundir þessir hófust eftir að tilboð
þau, sem bárust í nýsmíði fyrir félag-
ið, höfðu verið samræmd og stjórn
ÚA hafði kynnt sér smíðalýsingar
Slippstöðvarinnar.
Áð sögn heimildamanna Morg-
unblaðsins hafa fundir þessara
aðila gengið vel og virðist ýmislegt
benda til þess að af samningum
geti orðið. Það mun þó vera háð
skilningi stjórnvalda og bæjarfé-
lagsins á vanda útgerðarfélagsins.
Ljóst er að miklir hagsmunir eru í
húfi fyrir bæjarfélagið að þessi
tvö fyrirtæki nái samningum og
jafnvel er um það rætt að Akur-
eyrarbær ætti að brúa að ein-
hverju leyti það bil, sem virðist
vera á lægsta tilboði erlendis frá
og því sem Slippstöðin treystir sér
að bjóða.
Stjórnir félaganna hafa unnið
mikið starf að undanförnu í sam-
bandi við þetta mál og skv. heim-
ildum Mbl. má vænta þess, að eftir
fund þeirra rfiorgun liggi nánar
fyrir hver verði úrslit málsins.
— G. Berg.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
JEtrgnitiMítíiib
Er tölvuvæðingin orðin aðkallandi? Rafrás réttir þér hjálparhönd
RAFRÁS aðstoðar við val á þeim búnaði sem best hentar íhverju tilfelli. RAFRÁS sér um uppsetningu og gerir tillögur um
besta nýtingu búnaðarins. RAFRÁS annast reglulegt eftirlit með öllum búnaði frá fyrirtækinu. Líttu við hjá okkur að
LA UGA VEGI 168 eða hringdu ísíma 27333 og kynntu þér hvaða aðstoð við getum veitt við tölvuvæðinguna.
^ÞU-CféiuF reitt þig a