Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
31
Úttekt á stöðu láglaunafólks — fjórða vaxtalækkunin í desember:
Verðbólgan þegar lækkað
um rúm 100 prósentustig
— segir forsætisráðherra, og kynnir jákvæðar niður-
stöður skoðanakönnunar um launastefnu stjórnvalda
Ríkisstjórnin lætur nú vinna út-
tekt á stöðu láglaunafólks í landinu.
Annarsvegar er þessi úttekt byggö á
skattaframtölum, en hinsvegar hefur
Kjararannsóknarnefnd verið falið að
vinna eins konar vettvangskönnun á
þessu sviði. Þessi úttekt getur komið
að gagni, bæði í fyrirsjáanlegum við-
ræðum aðila vinnumarkaðarins —
og hugsanlega aðgerðum af hálfu
ríkisvaldsins til að rétta hlut þeirra
verst settu í þjóðfélaginu. Þetta kom
m.a. fram í raáli Steingríms Her-
mannssonar, forsætisráðherra, er
hann mælti fyrir launafrumvarpi rík-
isstjómarinnar (bráðabirgðalögum) í
síðari (efri) þingdeild.
Yfirgnæfandi meirihluti
samþykkur launastefnunni
Forsætisráðherra sagði Hag-
vang hf., að eigin frumkvæði, hafa
kannað viðhorf fólks til tíma-
bundinnar kjaraskerðingar, ef
hún geti haft áhrif til lækkunar á
verðbólgu. Spurt hafi verið: „Ef
kjaraskerðing getur haft áhrif til
lækkunar á verðbólgu ert þú
sjálf(ur) tilbúin(n) eða ekki til-
búin(n) að launahækkanir verði
ekki umfram það sem ríkisstjórnin
hefur boðað á næstu 12 mánuðum?“
Staðreyndakennsla víki
ekki fyrir viðhorfakennslu
— sagði menntamálaráðherra á Alþingi
Ólafur Þ. Þórðarson (F) spurði
menntamálaráðherra á Alþingi sl.
þriðjudag: „Hefur ráðherrann lagt
blessun sína yfir þá ákvörðun
skólarannsóknadeildar að hætt
verði að mestu leyti að kenna ís-
landssögu í skólum landsins?"
Kveikjuna að þessari fyrirspurn
sagði hann vera í grein Mbl.,
„íslandssagan umrituð", og viðtal
við Erlu Kristjánsdóttur, náms-
stjóra í samfélagsfræði, sem bar
yfirskriftina „Gömlu námsbæk-
urnar eru hlutdræg túlkun á ís-
landssögunni".
Sagan breytist ekki, sagði Ólaf-
ur, þó tækni og vísindum fleygi
fram; spurningin er aðeins, hvort
við teljum að hún sé þess virði að
hún sé kynnt uppvaxandi þegnum
landsins. Sú saga, sem kennd hef-
ur verið, hefur tíundað samfellda
þjóðarsögu, og lagt áherzlu á sam-
stöðu þjóðarinnar og mikilvægi
einstaklingsins í þróun samfélags-
ins.
Undirstaða sjálfsvitundar
okkar sem þjóðar
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, þakkaði þann
áhuga, sem spurningin bæri vott
um, og svar sitt væri: „Nei, öld-
ungis ekki. Ég tel sögukennslu,
byggða á samfelldri rás atburða
fslandssögunnar, mikilsverða
undirstöðu sjálfsvitundar okkar
sem þjóðar.“
Ráðherra vitnaði í námsskrá,
þar sem fjallað væri um svo-
nefnda samþættingu I sögu og
landafræði og greinargerð deild-
arstjóra skólarannsókna, þar sem
segði m.a.: „Námsefni það sem
kennt var hefur verið að mestu
óbreytt hvað inntak varðar í
marga áratugi og í nokkrum til-
vikum hefur sama námsefnið ver-
ið notað lítið breytt frá því á
fyrstu áratugum þessarar aldar."
Ög síðar: „Rétt er að benda á að
aðeins lítill hluti þess námsefnis,
sem áætlað var í íslandssögu, er
komið út, og ekki var ákveðið
nema í grófum dráttum um gerð
þes efnis, sem eftir er að semja og
gefa út. Allar áætlanir um nýtt
námsefni eru stöðugt til skoðunar
og lögð mikil áherzla á að fá fram
athugasemdir kennara eða ann-
arra, sem áhuga kunna að hafa á
viðkomandi námsgrein."
Ráðherra vitnaði enn til grein-
argerðar deildarstjórans: „Það er
fjarri öllum sanni að dregið hafi
verð vísvitandi úr kennslu ís-
landssögu fyrir tilverknað skóla-
rannsóknadeildar ..."
Orðrétt sagði menntamálaráð-
herra:
„Ég vil láta þess getið að ég tel
þekkingarmiðin eiga að sitja í
fyrirrúmi. Ég tel það markmið
kennslunnar að efla sjálfstæða
hugsun nemenda, byggða á miðlun
staðgóðrar þekkingar, byggða á
staðreyndum. Ég tel að varast eigi
að láta staðreyndakennslu víkja
fyrir viðhorfakennslu. Þetta tel ég
meginatriði og er sammála fyrir-
spyrjanda, að staðreyndir, svo vel
sögulegar staðreyndir sem aðrar
staðreyndir, haldi áfram að vera
staðreyndir, þó þjóðfélagið breyt-
ist.“
„Atburöir og einstaklingar
eigi áfram sinn sess
Helgi Seljan (Abl.) sagði sögu-
kennslubækur sannarlega mega
breytast. Sögukennsluna sömu-
leiðis; páfagauksþulur séu ekki
lofsverðar. Þessu mátti breyta.
„Eflaust hefur um sumt verið far-
ið offari í þessum efnum ... en ég
vil vara við fordæmingu, þó að það
þurfi vel að gaumgæfa þetta og
glata ekki þræðinum við almenna
sögu þjóðarinnar ... Líf fólksins
og kjör í aldanna rás þurfa að vera
aðalatriðið ... “ .
Svavar Gestsson (Abl.) kvaðst
sammála Helga Seljan um „hinar
þurru staðreyndaupptalningar,
sem voru notaðar hér um árabil“,
Ragnhildur Helgadóttir
þær hafi mjög gengið sér til húð-
ar“. Meginmarkmiðið sé að stuðla
að virðingu nemenda fyrir menn-
ingararfinum, og hlutleysismark-
miðin megi ekki vera svo ríkjandi
„að þetta sé óheimilt".
„Ég er þeirra skoðunar," sagði
Svavar, „að það hafi tekizt á um-
liðnum árum að ná furðu langt í
því að draga í rauninni úr áhuga
fólks á þessum meginforsendum
okkar þjóðfélags ..."
„Ekki nógu vel að sér
um einföldustu staðreyndir“
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, sagði fara vel á því
að þessi mál væru rædd á Alþingi.
Þau varði ekki einvörðungu kenn-
ara og nemendur, heldur hvern
einasta mann í landinu.
Námsskráin, ramminn um
námsefnið, er til endurskoðunar
og ákvörðunar á nokkurra ára
fresti, og drög að aðalnámsskrá
grunnskóla eru nú til meðferðar í
menntamálaráðuneytinu. Ég ætla
að dreifa þessum drögum meðal
þingmanna — og ég væri þakklát
ef þingmenn vildu gaumgæfa þau
og koma ábendingum á framfæri.
Það er tímabært að umræða um
þekkingarmiðlun í skólum eigi sér
stað hjá þingi og þjóð. Nágranna-
þjóðir hafa af því þungar áhyggj-
ur að skólanemendur eru ekki
nógu vel að sér um einföldustu
staðreyndir, sögulegar og landa-
fræðilegar, er varða þjóð þeirra og
land, eða næstu nágranna. Það er
þessi hætta sem fylgir of mikilli
áherzlu á svonfnda — „tema-
kennsluaðferð".
Steingrímur
Kostur var gefinn á fjórum
svörum: 1) Já, 2) Nei, 3) Ef allir
gerðu það, 4) Veit ekki.
Yfirgnæfandi meirihluti eða
65,4% svaraði spurningunni ját-
andi, aðeins 16% neitandi, 11,4%
svöruðu „ef allir gerðu það“ og
óákveðnir („veit ekki“) voru 7,2%.
Á höfuðborgarsvæðinu svöruðu
60,6% játandi, í þéttbýli úti á landi
71,3% játandi og í strjálbýli 74,4%
játandi.
Árangur þegar skilað sér
Forsætisráðherra sagði frum-
varpið hafa tekið breytingu í neðri
deild. Að tilhlutan ríkisstjórnar-
innar hafi verið fellt úr því bann
við frekari grunnlaunahækkun, en
hinsvegar staðið fast á vísitölu-
skerðingu, eða afnámi vísitölu-
kerfis, sem allir hafi í raun verið
sammála um, að væri bæði úrelt
og skaðlegt.
Það var talið óhætt að fella út
grunnlaunaákvæðið, þar eð það
hefði þegar þjónað tilgangi sínum.
Sýnt er, að verðbólgan næst niður
fyrir 30% áður en árið er á enda,
þ.e. niðurskurður verðbólgu um
meira en 100 prósentustig. Bygg-
ingarvísitala hefur raunar lækkað
enn meira. Vextir hafa verið lækk-
aðir þrisvar og fjórða vaxtalækk-
unin verður framkvæmd, að
óbreyttu, um miðjan næsta mán-
uð.
Þrátt fyrir þennan árangur, sem
forðað hefur stöðvun undirstöðu-
atvinnuvega og komið í veg fyrir
fjöldaatvinnuleysi, sem hvort
tveggja blasti við í vor, eru horfur
í efnahagsmálum verri en oftast
áður. Þetta byggist fyrst og
fremst á nýjum niðurstöðum fiski-
fræðinga og tillögum um 200 þús-
und tonna þorskafla 1984, sem er
meira en helmingi minna afla-
magn en fyrir aðeins tveimur ár-
um. Það er því þörf áframhald-
andi aðhalds, samráðs og sam-
stöðu.
Fyrirspurnir og ný þingmál:
Grisjun laga — fíkniefnavandinn
NauÖsynlegt að
grisja lagaskóginn
Árni Gunnarsson (A) Birgir ísl.
Gunnarsson (S) Stefán Bene-
diktsson (BJ), Davíð AAalsteins-
son (F) og Guðrún Agnarsdóttir
(Kvl.) hafa lagt fram svohljóð-
andi tillögp til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar, að skora á
ríkisstjórnina > að skipa fimm
manna nefnd er undirbúi hreins-
un úreltra ákvæða úr núgildandi
lögum, geri tillögur um laga-
bálka sem engum tilgangi þjóna
lengur og fella má úr gildi og um
greinar gildandi laga sem eðli-
legt er og nauðsynlegt að sam-
ræma. í nefndinni eigi sæti einn
fulltrúi frá Dómarafélagi ís-
lands, einn frá lagadeild Há-
skóla íslands og einn frá Lög-
mannait.I_gi íslands. Þá kjósi
Alþingi tvo þingreynda menn til
setu í nefndinni."
Kannsókn á ilmenit
(Titansteind)
Stefán Guðmundsson og Páll
Pétursson, þingmenn Framsókn-
arflokks hafa endurflutt svo-
hljóðandi tillögu:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta fara fram
frekari rannsóknir á þeim ilm-
enitsvæðum, sem þekkt eru í
Húnavatnssýslum, og leita nýrra
svæða þar sem titanríkt basískt
berg kynni að vera í verulegum
mæli.
Skal rannsóknin beinast að
magni titans og annarra verð-
mætra efna í berginu og vinnslu-
hæfni þeirra.
Niðurstöðum rannsóknarinnar
skal fylgja frumáætlun um arð-
semi, vinnslu, mannaflaþörf,
fjárfestingarkostnað, markaðs-
horfur svo og önnur atriði sem-
rannsóknaraðilar telja máli
skipta."
Fyrirspurnir til ráöherra
★ Björn Dagbjartsson (S) hefur
lagt fram svohljóðandi spurn-
ingu til landbúnaðarráðherra:
„Hvað líður framkvæmd þings-
ályktunar frá 27. apríl 1982 um
eflingu kalrannsókna"?
★ Kjartan Jóhannsson (A) spyr
viðskiptaráðherra: „Hvað er
fyrirhugað um löggjöf og reglu-
gerðarsetningu varðandi útgáfu
svonefndra kreditkorta?"
★ Gunnar G. Kchram (S) spyr
menntamálaráðherra: 1) Hyggst
ráðherra gera ráðstafanir til
þess að auka fræðslu í skólum
um skaðsemi fíkniefna vegna
mjög vaxandi neyzlu þeirra með-
al unglinga? 2) Er ætlunin að
hefjast handa á næstunni um
gerð hljóðvarps- og sjónvarps-
efnis þar sem fjallað er um það
vandamál sem fíkniefnaneyzla
er orðin í íslenzku þjóðfélagi?
★ Þórður Skúlason (Abl.) hefur
lagt fram spurningar til félags-
málaráðherra um endurskoðun
tekju- og verkefnaskiptingar
ríkis og sveitarfélaga; hvenær
athugun ljúki á þessu verkefni,
hverjir vinni að athuguninni, og
hver verði meginatriði fyrirhug-
aðrar tekju- og verkefnatil-
færzlu.
★ Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
spyr menntamálaráðherra,
hvaða horfur séu á að Náms-
gagnastofnun geti fullnægt þörf-
um skóla fyrir námsgögn á
næstunni og sinnt lögboðnu
hlutverki með tilliti til fjárlaga-
frumvarps 1984?
Lífeyrissjóöur bænda
Fram hefur verið lagt stjórn-
arfrumvarp um lífeyrissjóð
bænda. Meginatriði frumvarps-
ins fjalla um sjálfstæðan líf-
eynsrétt maka bænda. breyttar
reglur um makalífeyri, stiga-
útreikning til að ákvarða
lifeyrisréttindi sjóðfélaga, sjóðs-
aðild launþega í landbúnaði o.fl.
Nýting bújaröa í
þágu aldraöra
Helgi Seljan o.fl. þingmenn Al-
þýðubandalags flytja þings-
ályktunártillögu til áskorunar á
ríkisstjórn „að láta fram fara
könnun á þeim möguleika að
nýta bújarðir (ríkisjarðir sér-
staklega) í nánd þéttbýlis með
góða heilsugæzluaðstöðu sem
dvalarheimili fyrir aldraða."
Framhald samninga-
viðræðna í Genf
Stefán Benediktsson (Bj) og
aðrir þingmenn, úr fimm þing-
flokkum, ílytja tillögu til þings-
ályktunar um stöðvun uppsetn-
ingar kjarnaflugvopna og fram-
hald samningaviðræðna í Genf.
Tillagan felur ríkisstjórninni, ef
samþykkt verður. að beita sér
fyrir. á vettvangi Evrópuríkja,
að viðræðum um takmörkun
kjarnavopna í Genf verði fram
haldið og frekari uppsetning
kjarnaflugvopna stöðvuð í næstu
6 mánuði, sem nýttir verði til
áframhaldandi viðræðna um
fækkun slíkra vopna.