Morgunblaðið - 24.11.1983, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
43
Enn um innrásina á Grenada
— eftir Einar
Hjörleifsson
Staksteinahöfundur sýnir mér
þann heiður að leggja út af grein
minni um „innrás og áróðurslygi",
sem birtist í Mbl. 9. nóv. sl. Mér
finnst , tvennt athyglisvert við
Staksteinaskrifin. í fyrsta lagi er
engin alvarleg tilraun gerð til þess
að svara gagnrýni þeirri, sem ég
setti fram í grein minni. í öðru
lagi tilraun greinarhöfundar til
þess að afgreiða undirritaðan sem
„frammámann í vináttufélagi ís-
lands og Kúbu“ og láta þar með að
því liggja, að skoðanir mínar á
Grenada hljóti að vera með öllu
marklausar.
Tökum hið síðara fyrst. Ég er
ekki meðlimur í Vináttufélagi ís-
lands og Kúbu. Þótt ég hafi verið
fenginn til þess að segja frá Nicar-
agua á fundi félagsins nú fyrir
skömmu, landi sem ég hef kynnst
af eigin raun, er það ekki rökrétt
afleiðing að ég sé einn af frammá-
mönnum félagsins. Kúbutengslin
vcrða því að flokkast undir
skammhlaup í hugsanaferli
Staksteinahöfundar.
Ég vil leggja á það áherslu, að
grein mín 9. nóv. er ekki skrifuð til
þess að bera blak af Kúbu-
mönnum. Hún er skrifuð til þess
að mótmæla erlendum yfirgangi
gagnvart fullvalda þjóð, Grenada,
og til að fella ofan af þeim áróð-
ursflaumi, sem skipar Kúbu-
mönnum í aðalhlutverk innrás-
arsjónleiksins, íbúum Grenada í
hlutverk statista en Bandaríkja-
mönnum í björgunarhlutverkið.
Kúbumenn koma þessu máli lítið
við, nema í áróðri Bandaríkja-
stjórnar, sem notar þá til að rétt-
læta eigið ofbeldi.
Staksteinahöfundur ber mér á
brýn, að ég verji innrás Kúbu-
manna á Grenada. Það hef ég ekki
gert, einfaldlega vegna þess, að
um slíka innrás hefur aldrei verið
að ræða. Dæmið um flugvallar-
gerðina talar skýru máli um þetta
og rökstyð ég það nánar í fyrri
greininni. Dettur annars nokkrum
í hug, að ríkisstjórn Thatchers
veiti 6 milljón punda ríkisábyrgð
fyrir láni til flugvallar, sem er
kúbanskt víghreiður?? (Sjá grein
Magnúsar Torfa Ólafssonar í
Helgarpósti 3. nóv. og The Sunday
Times.)
Eins og búast mátti við, dregur
Staksteinahöfundur Afghanistan
upp úr pokahorninu og danglar í
höfuðið á undirrituðum, svo að
blóðsletturnar dreifast í allar átt-
ir. Ég get ósköp vel skilið, að
Staksteinahöfundi þyki sárt að
vera krafinn um sams konar for-
dæmingu á bandarísku innrásinni
og þá, sem Mbl. birti í leiðara sín-
um um sovézka íhlutun í Afghan-
istan á sínum tíma. Ég vil endur-
taka ummæli mín frá því 9. nóv.:
„Vissulega eru hernaðaríhlutun
Sovétríkjanna í Afghanistan og
innrásin á Grenada ekki fyllilega
sambærileg mál, en kjarninn í
þeim báðum er þó hinn sami. Stór-
veldi telur í sínum verkahring að
ráðskast með málefni sjálfstæðs
ríkis og sjá með því sínum eigin
hagsmunum borgið." Þetta er
kjarni málsins. Innrás ber að for-
dæma, en ekki reyna að bera í
bætifláka fyrir hana, t.d. með
bollaleggingum um, að Banda-
ríkjamenn séu „bjargvættir"
eyjarskeggja, fremur en her-
námslið. Flotaæfingin „Ocean
Venture" í ágúst 1981, þar sem
bandarískir hermenn æfðu m.a.
innrás á Grenada, og ummæli
bandaríska sendiherrans í París
um að innrásin hafi verið undir-
búin hálfum mánuði fyrir valda-
rán hersins á Grenada, bera „frið-
arvilja" Bandaríkjastjórnar ófag-
urt vitni.
Stakstein-
um svarað
Að lokum: Staksteinahöfundur
beitir enn fyrir sig blóðidrifnum
Kúbumönnum og Sovétmönnum,
„hulduher, sem var að færa
Grenadabúa í fjötra fátæktar og
kúgunar í nafni Karls Marx“ (bein
tilvitnun). Hvernig kemur þetta
heim og saman við jákvæða um-
sögn Alþjóðabankans um Grenada
frá síðasta ári, þar sem stjórn-
völdum var hrósað fyrir góðan
árangur í efnahagsmálum?? Árið
1982 varð hagvöxtur á Grenada
5,5%, sem telja má umtalsverðan
árangur í heimi, sem á við djúpa
efnahagskreppu að stríða. Sú al-
hliða uppbygging, sem fram fór á
Grenada, með stuðningi úr mörg-
um áttum stöðvast um sinn, með-
an Reagan Bandaríkjaforseti velt-
ir því fyrir sér, hvar best sé að
halda áfram löggæslunni. Sunday
Times hefur það eftir bandarísk-
um og evrópskum diplómötum, að
innrás sé fyrirhuguð í Nicaragua
fyrir árslok, og nýjustu fregnir
herma, að mikill herafli frá
Guatemala og Honduras sé nú
samankominn á landamærum
þessara ríkja og E1 Salvador, í
þeim tilgangi að ganga milli bols
og höfuðs á þjóðfrelsisöflunum í
samvinnu við stjórnarherinn. Inn-
rásin á Grenada er því ekkert ann-
að en prófsteinn á væntanleg alls-
herjar átök á Mið-Ameríku-
svæðinu, átök sem Bandaríkja-
stjórn kyndir undir, bæði leynt og
ljóst.
Reykjavík, 10. nóv. ’83,
Einar Hjörleifsson,
Aths. ritstj.
Lesendur Staksteina 10. nóv-
ember sl. sáu að þar var ekki verið
að svara grein Einars Hjör-
leifssonar „Innrás og áróðurslygi"
heldur var lagt út af einni setn-
ingu í greininni: „Morgunblaðið
virðist telja það skipta höfuðmáli
hver stendur á bak við hernaðar-
íhlutun, ekki hvað í henni felst."
Jafnframt var í Staksteinum vak-
in athygli á því að Einar Hjör-
leifsson flutti ræðu á aðalfundi
Vináttufélags íslands og Kúbu 5.
nóvember síðastliðinn og af því
tilefni var sagt að hann væri
„frammámaður" í félaginu og
hann kallaður „Kúbuvinur". Nú
kemur fram að Einar er ekki í vin-
áttufélaginu við Kúbú en geta aðr-
ir en „Kúbuvinir" talað á fundi
þessa vináttufélags? Athyglisvert
er að í svari sínu tekur Einar
Hjörleifsson ekki afstöðu til þess
sem um var rætt í tilefni af grein
hans í Staksteinum 10. nóvember,
hvort menn hefðu þrek til að gera
upp á milli stjórnkerfa í lýðræð-
isríkjum og kommúnistaríkjum.
Skortir Einar þetta þrek?
Furðulegt er hve vinstrisinnaðir
andmælendur innrásarinnar á
Grenada halda lengi í þá röksemd
til að styrkja málstað sinn að
Vesturlöndum hafi veitt fé til
flugvallargerðar á Grenada og
þess vegna hafi verið í góðu lagi að
þar væru við störf „6—700 létt-
vopnaðir (!) kúbanskir verka-
menn“ svo að vitnað sé til orða
Einars Hjörleifssonar frá 9. nóv-
ember. Vestrænn fjárstuðningur
við stjórnvöld I kommúnistaríkj-
um er alkunnur og er ekki unnt að
nota hann sem neina mælistiku á
hvers eðlis einstakar framkvæmd-
ir eru. En hverjir lögðu til fé til
þessa flugvallar á Grenada?
Fréttastofan Inter Press Service
segir að flugvöllurinn hafi verið
fjármagnaður með eftirfarandi
hætti: Kúba greiddi helming
kostnaðarins, Alsír gaf sex millj-
ónir dollara, Irak fimm milljónir,
Efnahagsbandalag Evrópu þrjár
milljónir, Sýrland tvær milljónir,
Líbýa milli þrjár og fimm milljón-
ir dollara en framlag Venezuela
nam 10 þúsund tunnum af elds-
neyti.
Einar Hjörleifsson ræddi að
eigin sögn um Nicaragua á fundi
Kúbuvina og hann telur innrásina
á Grenada „prófstein á væntanleg
allsherjar átök í Mið-Ameríku,
átök sem Bandaríkjastjórn kyndir
undir bæði leynt og ljóst". En
hvað um Nicaragua? Hvers vegna
efndu Sandinistar ekki til kosn-
inga þar á meðan þeir nutu enn
vinsælda með þjóðinni? Til þess
höfðu Sandinistar stuðning
Bandaríkjastjórnar sem veitti
þeim 125 milljóna dollara aðstoð
fram til 1981 þegar henni var
hætt. „Jafnvel þótt Sandinistar
gætu ekki sætt sig við aðstoð úr
þessari átt,“ segir breska vikuritið
The Economist nýlega „þá voru
stjórnvöld í Mexíkó, Venezuela og
ýmsum Evrópuríkjum reiðubúin
til að leggja fram 100 milljónir
dollara á ári. En þess í stað sneri
stjórn Nicaragua sér til Sovét-
manna og bað þá um hjálp. Fram
til þessa hafa Sovétmenn veitt 500
milljóna dollara aðstoð og lofað
200 milljónum dollara að auki í ár,
um 1000 Nicaragua-búar eru nú í
tækni- og vísindaþjálfun í Sovét-
ríkjunum." Menn verða einnig að
hafa þrek til að átta sig á þessum
staðreyndum þegar þeir ræða um
Nicaragua. Það er ekkert markmið
í sjálfu sér að losa þjóð undan
hægrisinnuðum einræðissegg til
að svíkja hana undir vinstrisinn-
aða einræðisseggi, eins og marx-
istarnir á Kúbu og í Nicaragua eru
— ef menn hafa þá þrek og
sjálfsvirðingu til að viðurkenna
það. Sagan hefur sýnt, að við
hægrisinnaða einræðisseggi er þó
hægt að losna, t.a.m. á Kúbu,
Spáni, í Nicaragua, Argentínu,
Portúgal, Grikklandi og Tyrklandi
en alls ekki einræðisofbeldi
kommúnista.
Áttunda bók
Mary Stewart
ÚT ER komin hjá Iðunni sagan
Óvænt endalok eftir Mary Stewart
og er þetta áttunda bók hennar.
Efni nýju bókarinnar er kynnt
svo á kápubaki: „Jennifer Silver er
komin í sumarleyfi upp í Pyrenea-
fjöllin og hyggst njóta lífsins í
Frakklandi, fjarri skarkala um-
heimsins. Nú ætlar hún að hitta
frænku sína í Gavarnie. Þegar
þangað kemur grípur hún- í tómt!
Frænkan er horfin, og Jennifer
verður þess áskynja að ekki er allt
með felldu um örlög hennar.
Jennifer neitar að trúa þeirri sögu
að frænkan sé látin og tekur
ótrauð að kanna málið. Það dregur
dilk á eftir sér og von bráðar er
Jennifer hrifin inn í æsilega at-
burðarás. Hún kynnist líka manni,
sem verður henni býsna kær. En
Saga eftir Heinz G. Konsalik
ÚT ER komin hjá Iðunni sagan
Eyðimerkurlæknirinn eftir þýska
höfundinn Heinz G. Konsalik. Ánd-
rés Kristjánsson þýddi.
Efni sögunnar er- svo kynnt í
frétt frá útgefanda: „Læknirinn
Ralf Vandura er í miklu uppáhaldi
hjá kvenþjóðinni. Dag nokkurn er
ung kona borin inn í læknastofu
hans í yfirliði. Það reynast vera
þáttaskil í lífi hans. Innan
skamms stendur Vandura frammi
fyrir því að vera grunaður um
morð. Honum reynist erfitt að
sanna sakleysi sitt og flýr úr landi
til Mið-Austurlanda, þar sem
hann gerist læknir hjá arabískum
skæruliðasveitum. Og þar hittir
hann hina fögru og grimmlyndu
Lailu...“
I frétt útgefenada segir um höf-
undinn: „Heinz G. Konsalik er ein-
hver mesti metsöluhöfundur sem
nú er uppi og í tölu afkastamestu
höfunda. Hann semur allt upp í
fjórar bækur á ári og sögur hans
hafa selst í nærfellt þrjátíu millj-
HEINZ G. KONSALIK
tÐUNN
ónum eintaka í mörgum þjóðlönd-
um. Á íslensku hefur áður komið
eftir hann sagan Hjartalæknir
Mafíunnar."
Eyðimerkurlæknirinn er 184
blaðsíður. Oddi prentaði.
leitin að hinni horfnu frænku
reynist örðug og háskaleg í meira
lagi...“
Inga Huld Hákonardóttir þýddi
Óvænt endalok. Bókin er 183 blað-
síður. Oddi prentaði.
UÖS&ORKA
OSRAM
Ag i low_______________________
Laglegur og stílhreinn vegg, borð - eða
loftlampi sem gefur góða birtu.
Gott lestrar- og vinnuljós.
Hentugur lítill lampi sem alls
staðar má koma fyrir á augnabliki.
Póstsendum