Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
37
dóttir miðilsins, og Toby hinn
mállausi eru að rísla sér þegar frú
Flóra — öðru nafni Baba — kem-
ur og öll hefjast þau handa við að
undirbúa miðilsfund. Móníka
klæðist hvítum serk og setur á sig
hvíta slæðu og Toby gengur úr
skugga um að brúðuleikhús, sem
stendur í einu horninu og gegnir
þýðingarmiklu hlutverki á fund-
unum sé í lagi. Skjólstæðingar
koma og dásama miðilinn. Ljósin
eru slökkt og fundurinn hefst.
Miðillinn stynur þungan og smám
saman birtist Móníka, sveipuð
daufbláu ljósi, og ákallar móður
sína. Einn fundargesta sannfærist
um að þar sé framliðin dóttir hans
komin. Móníka líkir eftir barns-
hlátri, en skyndilega æpir miðill-
inn frávita af ótta: „Hver snerti
mig?“ Fundurinn leysist upp og
miðillinn vísar gestum sínum á
dyr.
Miðillinn er á valdi óttans og
skellir skuldinni á Toby sem gefur
til kynna að ekkert óvenjulegt hafi
borið við. Miðillinn telur sig heyra
raddir en Toby tekst ekki heldur
að gefa skýringu á þeim. í örvænt-
ingu fellur miðillinn á kné og gjör-
ir bæn sína.
II ÞÁTTUR
Nokkrir dagar eru liðnir frá
greiða fólkinu það fé sem hún hef-
ur af því haft en það neitar að
taka mark á orðum hennar. Það
grátbiður miðilinn um fund og að
lokum missir Baba þolinmæðina
og rekur það burt með harðri
hendi. Þrátt fyrir bænir Móníku
flæmir hún Toby burt líka.
Eftir situr svikamiðillinn og
raddirnar heyrast á ný. í örvænt-
ingu sinni leitar Baba á náðir
Bakkusar, en ótti og móðursýki ná
tökum á henni, en loks sofnar hún
úrvinda af mæðu og þreytu.
Toby snýr aftur. Hann felur sig
í stofunni en Baba hrekkur upp og
hrópar: „Hver er þar?“ Hún fær
ekkert svar. Hún dregur upp
skammbyssu og skýtur á leiktjöld-
in. Eftir skamma stund kemur í
ljós blóðblettur og miðillinn segir:
„Ég hef drepið drauginn." Tjöldin
láta undan þunga liksins og það
steypist fram á gólfið, en miðillinn
endurtekur í sifellu: „Ég hef drep-
ið drauginn."
SÍMINN
Gamanóperan Sfminn fjallar
um hið eilífa þríeyki ástarinnar,
en hér er það ekki manneskja sem
ruglar tvo elskendur í ríminu
heldur síminn. Sviðið er heimili
Lúsiar. Ben kemur og færir Lúsí
gjöf og segist þurfa að ræða við
hinum örlagaríka miðilsfundi.
Móníka situr fyrir framan brúðu-
leikhúsið og horfir á Toby leika
listir sínar. Hann dansar og dans-
inn verður tjáning um þá ást sem
hann ber til Móníku. Baba nálgast
og Móníka forðar sér. Baba yfir-
heyrir Toby, var það hann sem
lagði þvala hönd á háls hennar á
miðilsfundinum? Það fer á sömu
lund og fyrr — hann kannast ekki
við neitt slíkt. í bræði sinni tekur
miðillinn svipu og lætur dynja á
piltinum.
Dyrabjallan hringir. Inn koma
tveir fastagestir. Er ekki fundur í
kvöld? Miðillinn segir að það verði
engir fundir eftirleiðis. Þetta var
svikamylla. Hún ætlar að endur-
hana mikilsvert mál og hafi
skamma stund til að ljúka erind-
inu. Hann er að komast að efninu
er síminn hringir. Samtalinu er
ekki fyrr lokið en síminn hringir
aftur og í þriðja símtalinu deilir
Lúsí við óþekktan aðdáanda. Þeg-
ar því símtali lýkur hringir Lúsí í
vinkonu sína ti) að trúa henni
fyrir vandamálum sínum og Ben
verður úrkula vonar um að honum
takist að koma erindinu til skila í
eigin persónu. Hann fer út og
hringir í Lúsí úr símaklefa. Þá
loksins tekst honum að ná athygli
hennar. Hann ber upp bónorðið og
Lúsí tekur þvi á stundinni. Hún
setur aðeins eitt skilyrði — að
hann gleymi ekki símanúmerinu
hennar.
mín vildi að við hefðum vetrar-
setu í Mílanó, svo við færum ekki
á mis við þá menntun sem völ
var á í stórri borg.“
Skömmu eftir að Menotti hóf
nám við Curtis-stofnunina
kynntist hann Samuel Barber og
hefur vinátta þeirra haldizt síð-
an. Um árabil héldu tónskáldin
saman heimili og studdu hvort
annað með ráðum og dáð.
Um Menotti hefur Barber
sagt: „Gian Carlo er miklu gáf-
aðri en fólk gerir sér grein fyrir.
Það var ein ástæðan fyrir því að
mér geðjaðist að honum þegar í
stað. Hann er bezti tónlistar-
gagnrýnandi sem ég hef kynnzt
og hann er afar sjálfstæður í
skoðunum. Hér áður fyrr var
hann vanur að leita ráða hjá mér
og yfirleitt voru mínar ráðlegg-
ingar neikvæðar. Til dæmis má
nefna að ég sagði honum að
söguþráður Miðilsins gæti ekki
vitlausari verið og að undirtekt-
irnar yrðu eftir því. En það fór á
aðra lund. Munurinn var sá að
Gian Carlo sá verkið fyrir sér í
heild en ég ekki.“ Frá fyrstu tíð
var ég afbrýðisamur í garð Gian
Carlos. Afbrýðisamur vegna
velgengni hans. En ég er nú af-
brýðisamur í garð allra sem eiga
velgengni að fagna. Jafnvel
minnsta klausa neðanmáls í The
New York Times kemur mér úr
jafnvægi. Og það er erfitt að
keppa um hylli Gian Carlos við
allt það fólk sem hann er ævin-
lega umkringdur. Þegar hann er
ekki umkringdur þessu fólki þá
eigum við saman góðar stundir.
En þegar Miðillinn sló i gegn
kepptist fólk við að ná hylli Gian
Carlos, og hann vissi svo sann-
arlega hvernig hann átti að not-
færa sér alla þessa athygli."
Meðal óperuverka Menottis
eru Ahmal og næturgestirnir,
fyrsta ópera sem samin var fyrir
sjónvarp, Konsúllinn, Amelía fer
á dansleik, Dýrlingurinn í
Bleecker-Stræti og Maria Golo-
vin. Allar óperur Menottis eru
samdar fyrir litla hljómsveit og í
langflestum verkum hans er ekki
gert ráð fyrir kór, svo sem tíðast
er í óperum. Libretto — eða
óperutexta — semur hann jafn-
an sjálfur. Hann hefur hlotið
margvíslega viðurkenningu fyrir
verk sín, þ.á m. Pulitzer-verð-
laun tvívegis. Hin síðari ár hefur
hann verið búsettur í Skotlandi.
(Ileimild: Ævisaga Menottia eftir John (>ruen.)
Gyðingar
heftir
AÐEINS 58 gyðingar 'fengu að
flytja frá Sovétríkjunum í nóv-
embermánuði og er það lægsta
mánaðartala allar götur síðan yf-
irvöld í Rússlandi hófu að leyfa
gyðingum að flytjast úr landi, en
það var árið 1971.
Aðeins 1224 gyðingar hafa feng-
ið að hverfa frá Rússlandi á 11
fyrstu mánuðum þessa árs, en til
samanburðar má geta að árið 1979
fengu 51.330 gyðingar að flytja.
Frá því árið 1971 hafa 250.764 gyð-
ingar flust frá Sovétríkjunum,
rúmlega helmingur þeirra til ísra-
els.
Hættum
að reykja
Keflavík — námskeið
Námskeið fyrir þá sem vilja hætta aö reykja hefst
sunnudagskvöldið 4. des. kl. 20.00 í safnaðarheimili
Sjöunda-dags aðventista Blikabraut 2, Keflavík.
Innritun í símum 1705 og 1232. Einnig er hægt að innrit-
ast viö byrjun námskeiösins. Þátttökugjald er kr. 450,-
og greiðist fyrsta kvöldið.
Krabbameinsfélag Suðurnesja og Sjöunda-dags aö-
ventistar — íslenska Bindindisfélagið — standa sam-
eiginlega að námskeiðinu.
Læknar Keflavíkur fræða um skaðsemi reykinga. Jón
Hjörleifur Jónsson leiöbeinir og stjórnar námskeiðinu.
íslenska Bindindisfélagið
Krabbameinsfélag Suöurnesja.
'unmrs
Nú er komin hljómplata með
tónlist eftir Gunnar Thorodd-
sen, fv. forsætisráðherra.
Hljómplatan hefur að geyma I4 lög í
flutningi margra þekktra listamanna.
Þeir eru: Kristinn Sigmundsson, Sigríður
Ella Magnúsdóttir, Einsöngvarakvartett-
inn, Karlakórinn Stefnir, Dómkórinn,
Gunnar Kvaran sellóleikari, Gísli Magn-
ússon píanóleikari, Smári Ólason orgel-
leikari, o.fl. Auk þess leikur Gunnar heit-
inn sjálfur á píanó 7 stutt lög sem hann
kynnir sjálfur á plötunni.
Á plötuumslagi segir Ólafur Ragnarsson
meðal annars:
„Dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi
forsætisráðherra, kom mönnum oft á
óvart á longum ferli sínum á vettvangi
þjóðmála. Einn þáttur hæfilcika hans fór
þó hljótt, en er nú kynntur alþjóð. Það er
tónlistargáfan. Viðfangsefni hans á tón-
listarsviðinu voru nánast einkamál hans
og fjölskyldunnar og stundirnar við
píanóið aðallega notaðar til þess að öðlast
hvíld frá crli dagsins.
Rætt hafði verið við Gunnar um að gefin
yrði út á veguni Fálkans hljómplata mcð
lögum hans. Skömmu fyrir andlát sitt
hafði Gunnar í því skyni valið nokkur
sýnishorn þeirra tónsmíða, sem hann
hafði fengist við um árabil.
Undirbúningur útgáfunnar var síðasta
verkefnið sem Gunnar vann að, og lagði
hann sig allan fram við það verk eins og
annað scm hann fékkst við um dagana.
Hann færði lögin úr huga sér yfir á
nótnablöð, vann með útsetjurum, valdi
flytjcndur og ræddi við þá um túlkun
laganna. Gunnar lifði það ekki að sjá
þetta verkefni sitt komast í höfn, og er
hljómplatan nú gefin út í minningu
hans ..."
FALKINN
Suðurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Austurveri.