Morgunblaðið - 04.12.1983, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
40
Ellefu smásögur
úr poppinu austan
hafsogvestan
Langt er um liöiö frá því
hljómsveitin Badfinger leiö
undir lok. Örlög meölima
sveitarinnar viröast hins veg-
ar ætla aö veröa nokkuö sér-
stök, en dapurleg um leiö.
Peter Ham, sem samdi lagiö
„Without You“ í samvinnu viö
Tom Evans, framdi sjálfs-
morö fyrir átta árum. Evans
fetaöi í fótspor félaga síns í
síðustu viku. Fannst hengdur.
Undanfarna mánuöi haföi
hann átt í lagaþrætum vegna
höfundarréttarins á áöur-
nefndu lagi. „Without You“
náöi feikilegum vinsældum í
flutningi Harry Nilson fyrir
áratug eöa svo.
Jobson hættur
Unnendur hljómsveitarinnar Yes
(og kannski miklu fleiri) hafa vafa-
lítiö tekiö eftir endurvakningu
sveitarinnar, svo og útkomu nýrrar
plötu, sem ber hiö óvenjulega nafn
90125. Til stóð, aö Eddie Jobson,
fiölarinn feikisnjalli, gengi til liös
viö Yes, en ekkert veröur nú af því.
Mun Jobson ætla aö halda óáreitt-
ur áfram eftir sólóbrautinni.
Endalaust basl
Þaö ætlar aö ganga erfiölega
hjá Michael Schenker aö halda
hljómsveit sinni saman. Þaö eru
ekki nema nokkrir mánuöir frá því
hann réö gítarleikara í flokkinn,
svona til þess aö styöja sig eilítiö á
meöan hann tók sólóin. Sá hét
Derek St. Holmes. Honum hefur nú
veriö spyrnt úr sveitinni án þess aö
nokkur skýring hafi veriö gefin.
MSG er nú á yfirreiö um Evrópu,
en annar gítarleikari hefur ekki
veriö ráöinn í staö Holmes. John
Verity, sem m.a. lék meö MSG í
Middlesbrough fyrir nokkru, neitar
þvt aö hann ætli aö ganga til liös
viö þann klikkaða og menn hans.
Plata bassa-
skallans
John McCoy, hinn hársnauöi og
fyrirferðarmikli bassaleikari Gillan,
vakti mikla athygli á meöan sú
sveit var og hét. Eftir aö flokkurinn
leystist upp héldu meölimir hans
hver í sína áttina. McCoy tók m.a.
aö sér upptökustjórn í Júgóslavíu
og varö vinsæll þar, en þessa dag-
ana er aö koma á markaö fyrsta
sólóplata hans. Hún er reyndar í
styttri kantinum, hefur aöeins aö
geyma fimm lög. Á meðal aöstoö-
armanna hans má nefna Colin
Towns, sem lék á hljómborö meö
Gillan undir þaö síöasta.
herrans tíö. E.t.v. engin furöa á
því, þaö tók Tom Scholz, höfuð-
paurinn, sjö ár aö berja efniö sam-
an. Önnur plata fylgdi tveimur ár-
um síöar, en síöan hefur ekki
heyrst múkk í þessari sveit. Sam-
kvæmt upplýsingum Járnsíöunnar
er hún þó alls ekki öll. Forráöa-
menn CBS í Bandaríkjunum munu
nú vera farnir aö þrýsta hressilega
á Scholz og félaga um aö hósta
upp þriöju skífunni. Hljómsveitin
geröi samning um þrjár þlötur, en
Scholz segir ekkert liggja á enn.
CBS hefur nú undirbúiö málsókn á
hendur sveltinni og segist láta til
skarar skríöa fari platan ekki aö
komast á lokastigiö. Scholz hefur
engar áhyggjur og segir CBS ekki
hafa staöiö viö skuldbindingar sín-
ar.
Eddie Jobson
Mark Knopfler
Big Country
bakaöir
Hljómsveitin Big Country hefur
aö undanförnu stækkað fylg-
ismannahóp sinn eins og snjóbolti
hleöur utan á sig á fullri ferö niöur
bratta fjallshlíö. Félagarnir í Big
Country fengu samt dulítiö sjokk
um daginn er þeim var att saman
viö Def Leþpard í svokallaðri
myndþandakeppni í MTV (Music
Television) stööinni í Bandaríkjun-
um. Þar er þaö siöur aö stilla upp
tveimur myndböndum hvoru á eftir
ööru og láta siöan áhorfendur
Dave Lee Roth, söngvari Van Halen
greiða atkvæöi um þaö hvort þeim
finnst betra. Def Leppard hefur
veriö ósigrandi stööinni undan-
farnar vikur og engin breyting varö
á í þetta sinnið. Big Country fókk
4.600 atkvæöi, Def Lepþard
94.800!
Boston lifir
enn en...?
Boston er nafn, sem komst á
allra varir fyrir einum 6—7 árum
viö útkomu samnefndrar plötu.
Öllum bar saman um aö þarna færi
einhver besta rokkplatan i háa
Af nýjum plötum
Neil Geraldo, eiginmaöur Pat
Benatar, hefur aö undanförnu set-
iö viö takkana í stúdíóinu og stýrt
upptökum á nýjustu plötu Steve
Forbert ... Christine McVie í
Fleetwood Mac hyggst senda frá
sér sólóplötu í janúar. Á meöal aö-
stoöarfólks má nefna Mick
Fleetwood, Eric Clapton og Ry
Cooder ... Von er á næstu plötu
bandarísku bárujárnsrokkaranna í
Van Halen um áramótin. Formleg-
ur útgáfudagur er reyndar 31. des-
ember. Nafn plötunnar er 1984.
Þaö eru því fleiri en Frakkarnir,
sem hugsa til George Orwell þessa
dagana ... Blue Oyster Cult sendir
frá sér nýja plötu innan skamms.
Heitir sú „Revolution by Night".
Sveitin er þessa dagana á tón-
leikaferöalagi um vesturströnd
Bandaríkjanna, m.a. til aö kynna
efni af henni...
Gamlir en gera
þaö gott
Grateful Dead og Band eru
hvort tveggja hljómsveitir, sem
maöur hélt aö væru löngu hættar.
Svo viröist þó ekki vera því í sam-
einingu boöuöu þær til tónleika í
borginni Syracuse í New York-ríki.
Þaö var eins og viö manninn mælt:
hver miöi seldist upp á svipstundu,
alls 33.000 eintök. Segi menn svo,
aö ekki lifi í gömlum glæöum.
Rokk ekki verk-
færi djöfulsins
Þeir eru margir, jafnt læröir sem
leikir, sem halda því statt og stöö-
ugt fram, aö rokk, og þá einkum
þaö af þyngri gerðinni, sé ekkert
annaö en verkfæri djöfulsins. Er
e.t.v. ekki aö undra þótt menn
kveöi upp slíkan dóm þegar kapp-
ar á borö viö Ozzy Osbourne
ganga lausir. Cliff Richard er þó
ekki þessarar skoöunar. Haft var
eftir honum í trúarriti nýveriö, aö
hann teldi þaö firru aö líta á rokk-
tónlist sem verkfæri hins illa.
„Rokkið hlýtur aö vera hluti af
sköpunarverki Guös. Hins vegar
höfum við leyft djöflinum afnot af
því á stundum,“ sagði Richard viö
blaðíð „Today“.
Sovésk rokkópera
Frá París bárust þær fregnir ný-
verið, aö þar heföi í fyrsta sinn
vestan járntjaldsins veriö sýnd
sovésk rokkópera, sem ber nafniö
„Junon et Avos“. Þaö tók tvö heil
ár aö fá leyfi hjá skrifstofubákninu
í Kreml til aö setja óperuna á sviö i
París, en verk þetta, sem er
tveggja stunda langt, hefur veriö
sýnt fyrir fullu húsi og viö taum-
lausan fögnuö áheyrenda í Kosmo-
pol-leikhúsinu í Moskvu á hverri
sýningu frá því þaö hóf göngu sina
1981. Óperan var áratug í smíöum
og í henni er aö finna allrahanda
tónlist: pönk, trúartónlist, og sov-
éska þjóölagamúsík. Þaö er skáld-
ið Andrei Voznesensku, sem er
höfundur þessa brautryöjenda-
verks sovéska rokksins.
Knopfler kvænist
Mark Knopfler, höfuöpaurinn í
Dire Straits, gekk í þaö heiiaga um
daginn. Brúöurin heitir Lourdes
Salamone og fór athöfnin fram á
skrifstofu fógeta í Chelsea-hverfi
Lundúnaborgar. Tíu ára aldurs-
munur er á þeim hjónunum,
Knoþfler 33 og þiö megiö geta
hvaö frúin er þá gömul. Þau skötu-
hjú flönuöu ekki aö neinu, höföu
búiö saman í fjögur ár áöur en þau
létu splæsa sig saman.
Hljómsveitin Centaur er é meöal þeirra, sem troða upp í kvöld.
Annar hluti Sólheimapopps
haldinn í Safari í kvöld
Annar hluti Sólheimapopps
veröur haldinn f kvöld. Fyrir þá,
sem ekki þekkja til, er rétt aö
geta þess aö heitiö Sólheima-
popp er nafngift Járnsíðunnar á
röö fimm tónleika, sem efnt er til
þessa dagana til styrktar upp-
byggingu húsnæöis fyrir félags-
lega aöstööu vistmanna á Sól-
heimum.
Tónleikarööin hófst meö tón-
leikum er báru yfirskriftina Al-
þýöutónlist í Gamla Biói á
fimmtudagskvöld (sjá nánari um-
fjöllun um tónleikana annars
staöar á Járnsíöunni). I kvöld er
efnt til tónleika í Safari kl. 21
undir yfirskriftinni Nýbylgjutón-
list.
Sveitirnar, sem fram koma í
Safari í kvöld, eru fjórar: Pax
Vobis, Kikk, Frakkarnir og Cent-
aur. Reyndar getur aöeins Pax
Vobis talist til nýbylgjusveita, en
hinar halda sig viö hrátt rokk og
fönk. Verö aögöngumiða í kvöld
er kr. 250,-, sem á alla tónleikana
í þessari söfnunarþerferó.