Morgunblaðið - 04.12.1983, Síða 48
HOLUWOðD
Opið
öll Kvöld
^ull & &ílfur b/f
LM'd.W'ECil :«> - KI-VKI.W ÍK • S 20620
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Útflutningur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna:
20% verðmætaaukning
fyrstu 10 mánuði ársins
Verðmætaaukning út-
fluttra fiskafurða á vegum
Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna fyrstu tíu mánuði
þessa árs er um 20% miðað
við fyrstu tíu mánuði síðasta
árs. Er þá miðað við meðal-
gengi Bandaríkjadollars.
Magnaukning á sama tíma
hefur verið um 10%, skv.
upplýsingum, sem Mbl. fékk
hjá Guömundi H. Garðars-
syni, blaðafulltrúa SH.
Guðmundur sagði að
veruleg aukning hefði orðið
í sölu til Evrópu á fyrstu
tíu mánuðum þessa árs.
Þannig hefðu verið seld í
gegnum söluskrifstofu
fyrirtækisins í Hamborg
5.340 tonn, sem væri 115%
magnaukning frá sama
tíma í fyrra. í Frakklandi
hefði magnaukningin orðið
61%, eða úr 2.631 tonni í
4.232 tonn. í Bandaríkjun-
um hefði sáralítil aukning
orðið á sölu hjá Coldwater,
dótturfyrirtæki SH; þar
hefði salan fyrstu tíu mán-
uði ársins verið 165,6 millj-
ónir dollara en hefði verið
165,3 milljónir dollara
fyrstu tíu mánuði síðasta
árs. Hann sagðist telja víst,
að sala ársins vestra yrði 1
ár um 200 milljónir dollara,
eða svipuð og undanfarin
ár.
Innréttingar í hús
Krabbameinsfélags:
Lægsta til-
boðið upp
á rúmar 9,3
millj. kr.
TILBOÐ í innréttingar í ný-
byggingu Krabbameinsfélags-
ins við Reykjanesbraut 8 voru
opnuð sl. miðvikudag. 18 til-
boð bárust í allt verkið, en
auk þess bárust 4 tilboð í
vissa verkhluta. Lægsta til-
boðið átti trésmíöaverkstæði
Erlends Péturssonar, en það
hljóðaði upp á rúmar 9,3 millj-
ónir króna, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá
Krabbameinsfélaginu í gær.
Næsta tilboð í röðinni var frá
Birni Traustasyni og hljóðaði það
upp á rúmar 9,6 milljónir króna.
Þriðja í röðinni var tilboð frá
fyrirtækinu Sköfur sf. upp á 9,9
milljónir króna. Hæsta tilboðið
sem í verkið barst hljóðaði upp á
14 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum fram-
kvæmdastjóra Krabbameinsfé-
lagsins mun byggingarnefnd fé-
lagsins taka afstöðu til tilboða á
næstunni, en stefnt er að því að
framkvæmdir við þennan áfanga
byggingarinnar geti hafist í janú-
ar næstkomandi.
Læknum fækkað á
Landspítalanum
ÚTLIT er fyrir að fækkað verði um
3—4 lækna á Landspítalanum á
næstunni og að vinna nokkurra ann-
arra lækna verði minnkuð sem svar-
ar 2—3 stöðugildum, að sögn Davíðs
Á. Gunnarssonar, forstjóra Ríkis-
spítalanna.
„Þetta er stjórnunarvandi hér
innanhúss og verður reynt að
leysa málið svo það valdi sem
minnstu ónæði og óþægindum
fyrir þá, sem í hlut eiga,“ sagði
Davíð í samtali við blm. Morgun-
blaðsins. „Hér er um að ræða
lækna, sem lausráðnir hafa verið
til afleysinga án fjárlagaheimilda
á undanförnum árum. Nú, þegar
engar aukafjárveitingar fást í
reksturinn, þá blasir við að við
þurfum að fækka. í flestum tilfell-
um reikna ég með að okkur takist
að leysa málið með því að minnka
vinnu í stað þess að láta menn
beinlínis fara,“ sagði Davíð.
Hann sagðist vona að þessar
ráðstafanir myndu á engan hátt
bitna á þjónustu sjúkrahússins.
„En hér er verið að ræða annað
mál og þessu óskylt, sem gæti haft
í för með sér einhvern samdrátt.
Fjárlagaforsendur gera ráð fyrir
2,5% samdrætti í launum og 5%
samdrætti á liðnum önnur rekstr-
argjöld. Þetta er verið að ræða hér
og það hlýtur að finnast fyrir því á
einhvern hátt, því þetta eru í
krónum reiknað um 50 milljónir.
Ég sé ekki að hægt verði að kom-
ast fram úr þessum mikla vanda
nema með gífulegu aðhaldi á öll-
um sviðum og einhverjum sam-
drætti, þótt stjórnarnefnd Ríkis-
spítalanna leggi mikla áherslu á,
að þjónusta skerðist á engan
hátt.“
Deildarmyrkvi
á sólu í dag
SÓLMYRKVI verður í dag, 4. desember. Þetta verður svokallaður
hringmyrkvi og sést hann þannig í Mið-Afríku. Hér á íslandi sést
deildarmyrkvi, en hann verður ekki mikill. Tungl hylur 8% sólu þegar
myrkvinn verður mestur, en sól er ekki hátt á lofti á þessum tíma árs.
Þar sem veður verður bjart
sést myrkvinn í Reykjavík kl.
11.08 og honum lýkur kl. 12.11.
Mestur verður myrkvinn klukk-
an 11.39. Á Hornafirði stendur
myrkvinn hins vegar frá kl. 11.23
til klukkan 12.10. Mestur verður
myrkvinn þar klukkan 11.46 og
hylur tunglið þá 4% af þvermáli
sólar. Tunglið gengur fyrir sól-
ina frá vestri til austurs og byrj-
ar myrkvinn að sjást neðarlega
hægra megin á sólkringlunni (kl.
16, ef sólinni er líkt við klukku-
skífu).
Þeir, sem vilja fylgjast með
myrkvanum, eru alvarlega var-
aðir við að horfa beint í sólina
með sjónauka eða berum augum,
nema ljósið sé mikið dreift, t.d.
með mjög dökku gleri. Ef notað-
ur er sjónauki er bezt að láta
hann varpa mynd af sólinni á
hvítt spjald, sem haldið er í dá-
lítilli fjarlægð, og stilla sjónauk-
ann, unz myndin verður skýr.