Morgunblaðið - 09.12.1983, Side 13

Morgunblaðið - 09.12.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983 61 Gler og textíl í Nýlistasafninu Pia Rakel Sverrisdóttir og Ragnheiöur Hrafnkelsdóttir opna á morgun, laugardag kl. 20, sýningu á gler- og tekstilverkum í Nýlistasafninu, Vatnstíg 3b. Þær luku báöar námi vió Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn voriö '82. Pia Rakel sem nú stundar nám vió Kunstakademiuna í Kaupmannahöfn, sýnir verk unnin úr rúðugleri, ýmist brædd í form eða slípuð og sandblásin. Ragnheiöur, sem hefur stundaö nám við Gerrit Rietvelt Akademie í Amsterdam undanfarið eitt og hálft ár, sýnir textilverk sem byggjast á samspMi mismunandi efnis og efnisþráða. Sýningin er opin kl. 14—22 daglega. Síðasti sýningardagur er sunnudaginn 18. desember. Þetta er fyrsta sýning Píu Rakelar og Ragnheiöar hérlendis. fyrstu einkasýningu Bjargar að ræða. Ákveðiö hefur verið aö fram- lengja sýninguna til 18. desember. Verður hún opín á verslunartíma og sunnud. kl. 2—5. Málverkasýning Guðnýjar Sigurðardóttur ÍBÚR Guöný Siguröardóttir heldur nú málverkasýningu í sal saltfiskverk- unar BÚR, þar sem hún starfar. Guöný byrjaði aö mála áriö 1959, hætti því um tíma, en byrjaöi í sumar aö stunda listina af fullum krafti aftur. Á myndinni er Guöný ásamt einu verkanna sem eru á sýning- unni. Safnaöarheimili Kársnessóknar: Málverkasýning Benedikts Gunnarssonar Málverkasýning Benedikts Gunnarssonar, listmálara, stendur yfir þessa dagana í Borgum, safn- aðarheimili Kársnessóknar, Kast- alageröi 7, Kópavogi. Á sýningunni eru 37 málverk og teikningar frá ýmsum tímum. Þetta er 18. einkasýning Benedikts. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlend- is sl. 30 ár, síöast átti hann verk á alþjóölegu listsýningunni í Rostock sl. sumar. Benedikt stundaöi listnám í Reykjavík, Kaupmannahöfn, París og Madrid. Hann var kennari í 8 ár viö Myndlista- og handíöaskóla ís- lands og er nú lektor í myndlist viö KHÍ. Næstkomandi laugardagskvöld kl. 21.00 mun skólakór Kársnes- og Þinghólsskóla syngja jólalög á sýningunni undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sóknarnefnd Kársnessóknar sér um veitingasölu á kvöldin meöan á sýningu stendur. Akureyri: Listsýning í Sjallanum I Sjallanum á Akureyri stendur nú yfir listsýning Sigrúnar Jóns- dóttur í Mávasal. Á sýningunni eru vefnaöarmunir, glerskreytingar og kirkjumunir. Sýningin er opin frá kl. 16.00—19.00 alla daga, nema sunnudaga frá kl. 16—22.00. FEROIR Feröafélag íslands: Gönguferð á Helgafell Feröafélag íslands fer á sunnu- dag 11. desember í göngu á Helgafell í Mosfellssveit, sem er 215 m hátt, þaöan um Skammadal og á Æsustaöafjall og komiö niöur í Mosfellssdal, þar sem bíllinn bíö- ur. Brottför frá Umferðarmiðstöö- inni og veröur komiö í bæinn um kl. 17. Til athugunar fyrir feröafólk veröur 3ja daga áramótaferö Feröafélagsins farin 30. desember til 1. janúar 1984. NVSV: Kynnisferð um Kópavogsland Kynnisferö verður um Kópa- vogsland og í hina nýju Náttúru- fræöistofu Kópavogs, laugardag- inn 10. desember kl. 13.30 frá Nor- ræna húsinu. Leiösögumenn: Adolf Petersen, fræöimaöur, Agn- ar Ingólfsson, dýrafræöingur, og Jón Jónsson, jaröfræöingur. Öku- ferö, en þeir sem vilja geta fariö örstuttar gönguferöir. Útivist: Gönguferð um Reykjanes Útivist fer kl. 13 á sunnudaginn í gönguferö. Ekiö veröur aö Hval- eyrarvatni fyrir sunnan Hafnarfjörö og gengið þaöan yfir um Nýja- hraun aö Geröi hjá Straumsvík. Meöal annars verður kíkt í Kapell- una í hrauninu sem svo er nefnd. Brottför er frá bensínsölu BSÍ (í Hafnarf. v/kirkjug.). Heimkoma er um fimmleytiö. Þá er áramótaferð- in i Þórsmörk 30. des. LEIKHÚS Alþýðuleikhúsið: Kaffitár og frelsi Alþýöuleikhsúiö sýnir laugar- daginn 10. des. leikrit Fassbinders „Kaffitár og frelsi“ í Þýska bóka- safninu, Tryggvagötu 26, (gegnt skattstofunni), kl. 16.00. Leikhús- gestir vinsamlegast athugi breytt- an sýningartíma. Leikendur í Kaffitár og frelsi eru: Jórunn Siguröardóttir, Pálmi Gestsson, Borgar Garöarsson, Sigurveig Jónsdóttir og Bjarni Ingvarsson. Leikritiö fjallar um óvenjulega frelsisbaráttu ungrar konu í Brem- en á fyrri hluta síöustu aldar og byggir á sannsögulegum heimild- um. Þjóöleikhúsið: Síðasta sýning- arhelgi fyrir jól Síöasta sýningarhelgi í Þjóö- leikhúsinu fyrir jól er nú hafin. í kvöld veröur gamanleikurinn Skvaldur eftir Michael Frayn sýnd- Norræna húsið: Færeysk myndlist í Norræna húainu verður opnuð sunnudaginn 11. desember sýn- ing é færeyskri myndlist. Hér er um að ræða stærstu farandsýningu é færeyskri myndlist, sem fariö hefur um Noröurlöndin. Norræna listamiöstöðin á Svea- borg stendur fyrir sýningunni í samvinnu við listasafnið í Þérshöfn, Föroya Listasavn, en þaðan er mikill hluti verkanna fenginn að léni. Sænski myndlistargagnrýnandinn Mats Arvidsson hefur vaiið verkin á sýninguna og hann er jafnframt umsjónarmaður hennar, og er hann staddur hér á landi af þessu tilefni. Á sýningunni verða alls 108 verk eftir 16 listamenn. Þeirra á meðal eru einnig látnir listamenn, eins og S.J. Mikines (1906—1979), sem var fyrsti meiriháttar listmálarinn í Færeyjum og Ruth Smith (1913—1958), sem var fremst meðal kynsystra sinna í málaralistinni í Færeyjum. Torben Poulsen, menntamálaráöherra Færeyja, opnar sýninguna í Norræna húsinu og færeysku listamennirnir Amariel Noröoy, Bárður Jákupsson, Hans-Pauli Olsen, Torbjörn Olsen og Tróndur Patursson koma til landsins og verða viöstaddir opnunina. Bárður Jákupsson, forstöðumaður Föroya Listasavn, hekfur fyririestur um færeyska list í Norræna húsinu, mánudagskvöldið 12. desember kl. 20.30. ur í 26. sinn. Návígi, leikrit Jóns Laxdal um dagdrauma andspænis bláköldum veruleika, veröur sýnt á laugardagskvöld. Á sunnudag veröur Lína langsokkur á dagskrá kl. 15.00 og á sunnudagskvöld veröur leikrit Svövu Jakobsdóttur Lokaæfing sýnt á Litla sviöinu. Sýningar Þjóöleikhússins hefj- ast síðan aftur meö frumsýningu á Tyrkja-Guddu eftir Jakob Jónsson frá Hrauni á annan í jólum. Þá ber aö geta þess aö sýningin á leikriti Jóns Laxdal, Návígi, á laugardagskvöld, veröur sú allra síöasta á því verki. LA: Síðustu sýn- ingar á My Fair Lady fyrir jól Leikfélag Akureyrar hefur nú sýnt söngleikinn My Fair Lady 27 sinnum og hefur veriö uppselt á allar sýningarnar og fyrri sýn- ingarmet leikfélagsins slegin. í sýningunni taka þátt um 50 manns, tíu leikarar, 15 söngvarar úr Passíukórnum og fimmtán manna hljómsveit. Síöasta sýn- ingarhelgi fyrir jól veröur nú um helgina, en My Fair Lady fer síöan aftur á fjalir leikhússins á annan í jólum. Leikfélag Kópavogs: Síðasta sýn- ing á Gúmmí Tarsan fyrir jól Söngleikurinn Gúmmí Tarsan veröur sýndur á morgun, laugar- dag. í Kópavogsbíóí. Er þaö síð- asta sýning fyrir jól. LR: Síðasta sýn- ingarhelgi fyrir jól Leikfélag Reykjavíkur sýnir nú um helgina fjórar sýningar, en þetta er síöasta sýningarhelgi fyrir jóL I kvöld er allra síöasta sýning á leikritinu Úr lífi ánamaökanna og á laugardagskvöld er 28. sýning á leikriti Jökuls Jakobssonar, Hart í bak. Einnig er á laugardagskvöld miönætursýning á gamanleiknum Forsetaheimsóknin í Austurbæj- arbíói. Leikritið Guö gaf mér eyra er síöan á sviðinu í lönó á sunnu- dagskvöld, en þaö er nýjasta verk- efni Leikfélags Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.