Morgunblaðið - 09.12.1983, Side 21

Morgunblaðið - 09.12.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983 69 one s' le plusN 'Jruunfih BÓMULLARUNDIRFATNAÐUR Mýkri og þægilegri Nýtt útlit TANGA MINI MIDI MAXI HHQQ VERSL. LINDIN Selfossi vetði .áþewrrn í tíu ár hafa HAPPY húsgögn notið mikilla vinsælda hér á landi, enda þekkt fyrir mikil gæði og hagstætt verð. Nú bjóðast þessi húsgögn í ódýrari útgáfu en áður, og samt eru gæoin áfram þau sömu. Eins manns bekkurinn kostar frá kr. 4.985. Tveggja manna bekkurinn kostar frá kr. 6.990. Skrifborðin kostafrá kr. 3.848. Auk þess fást í þessari útgáfu bókahillur, borð, stereobekkiro.fi. Leitið ekki langt yfir skammt. HAPPY húsgögnin bjóða uppá óendanlega marga möguleika á verði sem allir ráða við. OPIÐ UM HEIdNA MSm Guðmundar Reykjavíkurvegi 64 Hafnarfirði s. 54499 Nönnugötu 16 Reykjavíks. 22890 Félagsbréf FF á Akureyri Frímerki Jón A 'alsteinn Jónsson Á stundum hef ég vikið að því, aö ég fái ekki oft fréttir norðan yfir heiðar af starfsemi frímerkjasafnara á þeim slóö- um. Nýlega barst mér svo í hendur Félagsbréf Félags frí- merkjasafnara á Akureyri, nóv- ember 1983, og sendi ég þeim þakkir fyrir. Segir þar, að tveir fundir hafi verið haldnir og fundarsókn verið sæmileg. Þá er birt í Fréttabréfinu yfirlit yfir fundarsókn veturinn 1982—’83, en haldnir voru átta fundir. Flestir voru 22 á fundi, en fæstir sex. Meðaltalan eru um 16 í hverjum fundi. Það verður aö telja góða fundarsókn, því að félagsmenn eru víst tæplega fjörtíu. Enda þótt fundarsókn hjá F.F. hér í Reykjavík hafi ver- ið mjög góð í haust, megum við heröa okkur vel til þess aö ná hlutfalli þeirra noröanmanna. Þá hefur mér verið sagt, aö fé- lagar utan Akureyrar sæki sér- lega vel fundi og skáki þar inn- anbæjarmönnum. Ljóst er af Fréttabréfinu, aö þeir ræöa um fleira en frímerki á fundum sínum og ekki dregur þaö úr fundarsókn. Einn félags- manna fræddi fundarmenn um íslenzka seöla og sýndi seöla úr útgáfum allt frá landssjóösseöl- um um síöustu aldamót og allar götur til seöla Seðlabanka is- lands. Er minnzt á þaö í bréfinu, aö gangverö sumra seöla sé svimandi hátt, sem sé ekki á allra færi aö reiöa af höndum. Þaö eru víst orö aö sönnu. Jólamerki Árni Friðgeirsson ritar grein um jólamerki. Segir hann fyrst frá upphafi jólamerkja í Dan- mörku, en þar kom fyrsta jóla- merki heims út áriö 1904. Kost- aöi þaö tvo aura, og söfnuöust fyrsta áriö 74 þúsund krónur. Hefur upplag dönsku jólamerkj- anna stækkaö mjög og tekjur aukizt um leiö verulega. Segir í greininni, aö jólamerkjanefndin danska ráöi yfir fjórum barna- eöa heilsuhælum, en auk þess hefur hún styrkt aðrar líknar- stofnanir verulega. Árni rekur þaö svo samkv. dönskum jólamerkjalista 1981, aö útgefendur jólamerkja séu 89 í Danmörku, 20 í Sviþjóö, 18 á Islandi, 8 í Noregi, 2 í Finnlandi, einn í Færeyjum og einn í Græn- landi. Tilgangur þessara útgef- enda flestra er aö safna fé til líknarmála. Síöan segir greinar- höfundur orörétt: „Hitt er svo önnur saga, aö útgefendur jóla- merkja eru orðnir of margir. Þó á þaö ekki viö um Grænland, Fær- eyjar og Finnland. Hérlendis væri nóg, að útgáfuaöilar væru 4—5. Þaö er auövitaö undir velvilja manna komið hvaö mikiö selst. Grun hef ég um, aö mun minna af jólamerkjum sé límt á bréf nú en áöur. Hjá mörgum fyrirtækj- um og einstaklingum lenda merkin niöur í skúffu og hafna að lokum í sorpinu.“ Svo mörg eru þau orö, og ég ætla þaö rétt hjá Árna, aö menn noti jólamerki al- mennt minna en áöur. Má vera, aö mörgum þyki útgáfurnar of margar. Þaö er hér sem í mörgu ööru, aö markaöurinn er ekki óþrjótandi. En Árni heldur hug- leiöingum sínum áfram og segir: „En svo er önnur hlið á málinu, þar sem eru safnararnir. Þeir halda merkjunum til haga. Og viti menn, jólamerkin eru skráö í bækur eins og frímerki, birtar myndir af þeim, gjarnan fylgir texti, — upplýsingar um merkiö og svo rússínan í pylsuendanum, veröskráningin. — Þar með er jólamerkið búiö aö hasla sér völl viö hliö frímerkisins. En einhvern veginn finnst mér samt, aö jóla- merkiö sé olnbogabarnið, aö viröulegir frímerkjasafnarar líti jólamerkjasöfnun hálfgerðu hornauga. En eru frímerkin nokk- uö æöri? Þetta eru pappírsmiöar hvort tveggja.“ Þessu næst er sagt nokkuö frá jólamerkjum Thorvaldsens-fé- lagsins, en þaö félag hóf þessa útgáfu hér á landi áriö 1913. Þar sem eitt ár féll úr, er þaö 69. jólamerkiö, sem út kemur fyrir þessi jól. Aó endingu er greint frá upphafi jólamerkja á Akureyri, en sjálft upphafsáriö er ekki öruggt. Sumir hallast aö árinu 1934. Öll er grein Árna Friögeirsson- ar hin fróölegasta, og vil ég enda umsögn mína um hana meö orö- réttri tilvitnun og taka um leiö undir þau orö: „Meö því aö kaupa jólamerkin styöja menn góö málefni og um leiö gefa þeir, meö því aö setja þau á jólapóst- inn, bréfum sínum hlýlegri blæ og jólalegri svip.“ Muniö eftir að eignast seinni NORDIU-örkina fyrir áramót Þar sem þessi þáttur verður aó öllum líkindum hinn síöasti á þessu ári, sakar ekki aö minna lesendur enn á NORDIU-örkina, sem út kom í október síöastliön- um. Ég vona, aö öllum sé þaö vel Ijóst, aö hún veröur ekki til sölu á pósthúsum landsins eftir næstu mánaöamót. En aö sjálfsögöu heldur hun fullu gildi til buröar- gjalds eins og fyrri örkin. Ugg- laust eru þær báöar fáanlegar í frímerkjaverzlunum, en eðlilega hækka þær í veröi frá nafnveröi sínu í samræmi viö veröbólgu og verzlunarálagningu. Vafalítiö eru þaö aö mestum hluta safnarar, sem kaupa þess- ar sérstæöu arkir eöa blokkir. Um leið og þeir eignast þannig frímerki, sem veröa góöir safn- aragripir meö tímanum, stuðla þeir jafnframt aö þvi, aö NORDIA 84 geti fariö fram af reisn, þar sem yfirveröiö rennur til sýn- ingarinnar. Hér má og gjarnan minnast þess, aö allt er þetta liður í því aö styrkja hollt og nytsamt tómstundastarf. Sakir rúmleysis í blaðinu verö ég aö hafa þennan þátt í styttra lagi. Ég sendi lesendum beztu jóla- og nýársóskir og vona, aö áriö 1984 veröi frímerkjasöfnur- um sem og öörum landsmönnum gleóiríkt. NORD| A ^ NORRÆN FRÍMI RKJASY NINC. REYKJAVÍK I984 VERD KR 30,00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.