Morgunblaðið - 09.12.1983, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
J, í 6\2>A6ba föiHÓlfmr, éy er SMimmab-
uWhk. oQ pú ert brl&guminn. VíÓ qekum
ekjci skipt!"
... að hlusta — já hlusta
á hana tala.
TM Rag. U.S. Pat. Off -alt rights resamd
«1983 Loa Angalas Thnaa Syndicata
Ég hélt ég hefði gleymt gamla
ostinum!
Hvernig er tilfinningin þegar þú
ert fluga?
HÖGNI HREKKVlSI
Aríðandi að ríkisstjórnin
láti ekki skammsýna þrýsti-
hópa hrekja sig af leið
Þorkell Hjaltason skrifar 22.
nóv.:
„Landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins lauk í byrjun nóvembermánað-
ar. Var hann einn hinn fjölmenn-
asti frá upphafi landsfundahalds.
Á annað þúsund fulltrúa sótti
fundinn og hefur flokkurinn aldrei
verið sterkari og samhentari en
nú, og er það vel eftir sundrung
síðustu ára. Geir Hallgrfmsson
skilar flokknum af sér heilum og
sterkum í friðarhöfn. Ég óska
nýkjörnum formanni og varafor-
manni til hamingju og vona að
þeim takist að stjórna málefnum
flokksins vel og með hagsmuni
heildarinnar fyrir augum. í
trausti þess styð ég Sjálfstæðis-
flokkinn eindregið.
En við mikinn vanda var að etja
eftir hina löngu svartnættisgöngu
Alþýðubandalagsins, með Svavar
og Hjörleif sem fararstjóra. Sem
betur fer hefur nú verið bundinn
endi á brölt þeirra félaga. Á ann-
an dag jóla verður hin nýja ríkis-
stjórn búin að stjórna málefnum
ríkisins í rétta 6 mánuði og hefur í
flestum tilvikum tekist vel. Mjög
er áríðandi, að ríkisstjórnin láti
ekki skammsýna þrýstihópa
hrekja sig af réttri leið. Stein-
grímur sagði i upphafi ferils síns í
embætti forsætisráðherra, að
hann ætlaði sér að stjórna, en ekki
láta þrýstihópa gera það. Það er
ósk mín og von, að Steingrími tak-
ist þetta áform sitt. Þá mun verða
vel fyrir öllu séð.
Varð fljótt og vel
við tilmælum mínum
Ég hefi nú um skeið ekki skrifað
Þorkell lljaltason
neina pistla í Velvakandadálka
Morgunblaðsins, hef ekki talið
þess þörf, þar sem þegar hafa ver-
ið gerðar viðeigandi ráðstafanir
eftir óstjórnartíð allaballanna síð-
ustu ár.
Nú langar mig til að víkja að
atriði alls óskyldu yfirstandandi
stjórnmálaþrasi, Lofsöng Matthí-
asar, Ó, Guð vors lands. Hinn 30.
sept. 1982 skrifaði ég smágrein i
Velvakanda og bar hún heitið:
„Enn um þjóðsönginn". í þeirri
grein tilfærði ég m.a. orð Jóns
Þórarinssonar úr grein hans í Mbl.
skömmu áður. Þar sagði: „Af-
skiptaleysi menntamálaráðherra
um þetta tvennt, hljómplötuna og
sjónvarpsauglýsinguna, verður
ekki skilið öðruvísi en sem yfirlýs-
ing hans um það, að hann telji
sæmdarréttarákvæði höfundalag-
anna markleysu eina og að engu
hafandi.”
Þessi voru hin tilfærðu orð Jóns
Þórarinssonar. Síðar í greininni
segi ég: „Tel ég því tilgangslaust
að reyna að tala við daufdumbana
í menntamálaráðuneytinu og sný
því máli mínu til forsætisráð-
herra, dr. Gunnars Thoroddsens,
sem sjálfur er músíkmaður mikill
og lagahöfundur meðal annars. Ég
trúi því, að forsætisráðherra komi
þessu máli um þjóðsönginn heilu i
höfn, svo að Islendingar þurfi
aldrei að óttast afskræmingu á
þessum þjóðardýrgrip sínum.
Þjóðsöngurinn eins og þjóðfáninn
er og verður ávallt helgi- og sam-
einingartákn þjóðarinnar um alla
framtíð."
Já, svo sannarlega varð forsæt-
isráðherra fljótt og vel við tilmæl-
um mínum. Nokkru síðar sendi
hann mér tvö bréf með nokkurra
daga millibili varðandi lögvernd-
un þjóðsöngsins, og málið var
komið í höfn.
Á meðan dr. Gunnar var enn á
lífi, skrifaði ég smágrein í Velvak-
anda (28. nóv. ’82) og tjáði honum
þakklæti mitt. Greinin bar yfir-
skriftina: „Öll þjóðin tekur undir
þakkir til forsætisráðherra". Ég
hef sannar fregnir af því, að
Gunnar hafi glaðst yfir þessum
fáu þakkarorðum mínum, og er ég
þakklátur fyrir það. Blessuð sé
minning hins mikla þjóðmálaskör-
ungs, dr. Gunnars Thoroddsen."
Ótímabært og óviðeigandi
að birta slíkar fréttir
Séra Hannes Guðmundsson,
Fellsmúla, Rangárvallasýslu,
skrifar:
„I Morgunblaðinu 30. nóv. sl.
birtist frétt, sem mér þótti vægast
sagt afar ósmekkleg. Er Albert
fjármálaráðherra að gæla við þá
hugmynd að bjóða sig fram til for-
seta öðru sinni, þegar kjörtfmabili
núverandi forseta lýkur?
Ennþá hefur ekkert heyrst um
það opinberlega, hvort Vigdís for-
seti ætlar að gefa kost á sér aftur
eða ekki, og er þvf ótímabært og
blátt áfram óviðeigandi gagnvart
þjóðhöfðingjanum að birta slíkar
fréttir í stærsta og viðlesnasta
dagblaði landsins, ekki síst eftir
framúrskarandi vel heppnaða för
til Evrópulanda nú nýverið.
Flestum Iandsmönnum er ljóst,
að aðdáendum Alberts undan-
skildum, að ferill Vigdísar í emb-
ætti forseta hefur aukið hróður Is-
lands og varpað ljóma á land og
þjóð. Hvar sem Vigdís hefur kom-
ið, jafnt utanlands sem innan, hef-
ur hún hrifið fólk með glæsilegri
framkomu sinni og persónutöfr-
um. Nægir hér að nefna Ameríku-
för hennar og er árangurinn af
þeirri ferð þegar að koma í ljós.
Gefi Vigdís forseti kost á sér til
endurkjörs, sem ég vona, verður
frétt Morgunblaðsins til góðs, þvf
að þeir sem bera skyn á hæfileika
hennar í þessu embætti og kunna
að meta það þýðingarmikla starf
sem hún hefur þegar unnið fyrir
land og þjóð, munu fylkja sér fast
um hana til sigurs. Ég vona ein-
læglega, að ekki þurfi að koma til
kosninga og þjóðin þakki forseta
sínum vel unnin störf með því að
hún verði sjálfkjörin."
Aths. ritstj.
Hvað sem öðru líður er það
frétt, ef Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra (eða einhver
annar) íhugar forsetaframboð á
næsta ári og skylda dagblaðs, sem
um það er kunnugt, að skýra frá
því. Við búum í lýðfrjálsu landi,
þar sem frjálsir fjölmiðlar hafa
hlutverki að gegna. Það getur
aldrei verið „ótfmabært" eða
„óviðeigandi" að birta slíkar frétt-
ir. Er þetta að sjálfsögðu sagt með
allri virðingu fyrir forsetaemb-
ættinu og frú Vigdísi Finnboga-
dóttur.
HEILRÆÐI
Á heimilunum eru slys á börnum algengust. Unnt hefði
verið að komast hjá mörgum þessara slysa með meiri
fyrirhyggju og aðgát. Við jólabaksturinn og matseldina
verður að gæta þess vel að hrærivélin sé ekki í gangi og
heldur ekki hakkavélin, þurfi að bregða sér frá. Lítil
hnáta og lítill hnokki geta sem best klifrað upp á eld-
húskollinn og fest litlar hendur í þessum heimilistækj-
um. Njótum undirbúnings jólanna með slysalausum dög-
um.