Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 4

Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 Skíðatízkan: Skjólgóðar þægflegar og léttar flíkur hentugastar Þ að er með skíðafatnaðinn eins og aðrar flíkur, að ákveðnar línur eru markaðar í útliti hans fyrir hvert skíðaár. Þetta ári< ber mest á skíðasamfestingunum fyrir þá sem stunda svig- skíði. ' Það má geta þess að á markaðnum er svigskíðafatnaður, sem hægt er að hreyta í gönguskíðafatnað með því að fjarlægja legghlíf ar, sem eru á buxunum og þá eru komnar hnébuxur eins og göngu- skíðafólkið klæðist. Þetta er hentugt, því það eru alltaf einhverjir sem stunda bæði göngu og svig. Það fylgir því mikil vellíðan og ánægja að fara á skíði, láta sig renna mjúklega eftir fannbreið- unni eða fara á fulla ferð í hröðu svigi og að degi loknum leggjast til hvíldar, þreyttur eftir áreynslu dagsins. En það skiptir verulegu máli að vera rétt klæddur svo skíðaferðin heppnist sem best. Til er margvíslegur skíðafatnaður á markaðnum og fer það eftir þörf- um og smekk hvers og eins, hverju hann klæðist. Sú skíðaflík, sem nú er mest í tísku og þykir hentug er samfestingurinn. Hann er skjól- góður þar eða ekki næðir með samskeytunum. Það tekur aðeins örlítinn tíma að klæða sig úr og í gallann — og renna einum renni- lás. Ef fólk vill fækka fötum að ofan þá er hægt að klæða sig úr efri hluta samfestingsins og binda ermarnar um mittið. Samfest- ingana er hægt að fá með og án fyllingarefnis og í hinum ýmsu lit- um, bæði einlita og marglita, svo og með vesti í stíl. Margir kjósa að klæðast hinum eiginlegu skíðabuxum, sem eru „strets“-buxur og sumar eru með aukafóðri um hné og rennilás að neðan svo þær falli vel yfir skíða- skóna. Fara buxurnar vel og eru þægilegar. Við þær er gjarnan verið í léttri skíðablússu. Enn aðrir kjósa tvískipta vatt- galla, þar sem buxur og jakki eru í sama lit eða mismunandi lit. Undirfatnaðinn ber líka að velja vel. Gott er að klæðast ull- arfatnaði undir skíðagallann, sem heldur vel hita á mönnum og hleypir út raka er fólk svitnar í hita leiksins. Þá er smekklegt að klæðast rúllukragapeysu í stíl við skíðagallann. Sokkarnir skipta líka máli, en þar eð skíðaskórnir ná nokkuð upp á fótlegginn er gott að vera í sokkum sem ná upp að hné. En svo er það matsatriði hvernig hanska fólk kaupir sér. Svo vilja sumir vera með húfu á höfðinu annaðhvort úr dún eða prjónahúfu einlita eða með mynstri og öðrum finnst ómögu- legt að vera með höfuðfat og skíða berhöfðaðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.