Morgunblaðið - 15.02.1984, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.02.1984, Qupperneq 6
Veljið ykkur réttan útbúnað Eitt af því allra mikilvægasta við skíðaiðkun er að hafa góðan útbúnað. En jafnframt að sníða sér stakk eftir vexti og velja sér ekki samskonar skíði. Sportvöruverslanir veita að sjálf- sögðu allar upplýsingar en við skulum nú samt sem áður glöggva okkur á stærðum skíðanna fyrir hvern aldursflokk. Góðir skíðaskór og öryggisbindingar eru líka öllum nauðsynleg. Fyrir smáfólkiö: Tveggja til þriggja ára börn geta auðveldlega athafnað sig á 70 sm skíðum með og án öryggisbind- inga. Þriggja til fimm ára börnum hæfa best ca. 90 sm löng skíði með öryggisbindingum og samsvarandi skíðaskóm. Barnaskíði 6—10 ára: Eldri börn, 6—10 ára, ættu að velja sér skíði sem næst jafnlöng þeim sjálfum, þó ívið lengri eftir getu og þyngd. Öryggisbindingar með skíðastoppurum og skíðaskór eru nauðsyn. Unglingaskíði: Það má gjarnan taka lítið eitt stærri en notandi er, ca. 10 sm lengri. Þegar þessum aldrei er náð, þurfa skíðin helst að vera fíb- erstyrkt með innfeldum stálkönt- um, vegna aukins álags. Skíði fyrir fullorðna: COMPACT-skíði eru ætluð fyrir hæga til meðalhraða skíðun, heppileg fyrir byrjendur og þá sem skíða ekki hratt. COMPACT- skíði 150—190 sm eru keypt sem næst jafnstór notanda, þó skiptir þyngd og geta nokkru máli, ca. 5—10 sm lengri eftir hæfni. MID-skíði eru kærkomin nýjung fyrir gott skíðafólk. MID-skíði eru fyrir hraðari og fjölbreyttari skíð- un. Henta vel bæði í hörðu og mjúku færi og gefa skemmtilega möguleika. MID-skíði skulu vera ca. 10—15 sm lengri en notandi. Gönguskíði eða touring-skíði: Gönguskíði eru jafnan tekin 20—30 sm lengri en notandi — breytilegt eftir breidd skíðanna. Svokölluð vax-frí skíði eru vinsæl- ust, þar eð þau þarf ekki að vax- bera. Besti árangur fæst þó á rétt smurðum gönguskíðum. SKÍÐAFERÐ TIL SVISS 20.—29. mars 10 dagar Ferðatilhögun: Brottför frá Keflavíkurflugvelli kl. 8.00. Flogiö til Genf, með millilendingu í Amsterdam. Ekið til dvalarstaöarins Crans-Montana. Dvaliö á hótel Mirabeau, 4 stjörnu hóteli, sem hefur notiö mikilla vinsælda farþega í fyrri ferðum okkar. Öll herbergi meö svölum, baöi, síma, sjónvarpi og minibar. í Crans-Montana bjóöast óþrjótandi möguleikar til skíöaiðkana, brekkur viö allra hæfi, um 40 skíðalyftur eru á svæðinu, skíöaskóli fyrir byrjendur og upp úr og einnig góöar göngubrautir. 29. mars er haldið aftur til Genf og flogið um Amsterdam til Keflavíkurflugvallar. Áætlaö- ur komutími kl. 20.15. Verö kr. 22.700. — (Gengisskráning 13. jan.’84) Góöur barnaafsláttur. Innifaliö í veröi: Flug, feröir frá flugvelli til dvalarstaöar og til baka, gisting í 9 nætur á hótel Mirabeau í 2ja m. herbergi, morgun- og kvöldverður. Leitiö nánari upplýsinga. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar h.f.: Borgartúni 34,105 Reykjavík. Sími: 83222.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.