Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984
79
Seláshverfi:
Væri ekki hægt að
leysa vandann
á raunhæfan hátt?
ir hrintídu
Leiðinlegar sög-
ur í útvarpinu
Sigríður Helgadóttir hringdi og
haföi eftirfarandi að segja:
— Mér finnst sögurnar sem
lesnar eru í útvarpinu alveg
fyrir neðan allar hellur. Bæði
síðdegissögurnar og kvöldsög-
urnar eru bara leiðinlegar, í
einu orði sagt. „Laundóttir
hreppstjórans" heitir ein saga
sem lesin er á kvöldin og mér
finnst hún hræðilega leiðinleg
og ég veit um marga sem
finnst þessi saga ekki boðleg.
Það er ekkert gaman að kynn-
ast svona fólki eins og sögu-
persónunum í þessari sögu.
Ég myndi heldur vilja fá
léttar og skemmtilegar sögur,
eins og þær sem maður las í
dönsku blöðunum hérna í eina
tíð. Það eru skemmtilegar og
meinlausar sögur, sem gaman
væri að heyra í útvarpinu."
Hvernig er
stillimyndin
sett saman?
„Gónir hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja:
— Það væri gaman að fá
hjá sjónvarpinu skýringu á
stillimyndinni.
Á einum stað á stillimynd-
inni er lítið mjótt og svart
strik, ég tel að það hafi ein-
hverja þýðingu og mig langar
meðal annars að vita hvað
þetta táknar. Eins er með lit-
ina, gaman væri að vita hvaða
litir eiga saman og svo fram-
vegis.
Guðlast
Einn 10 ára hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
- Ég var að lesa bókina
„Látum oss hlæja" og nýlega
var sjónvarpið kært vegna
þátta Dave Állen á þeim for-
sendum að í þeim væri guðlast.
Mér finnst að í „Látum oss
hlæja" sé jafn mikið guðlast og
í þáttunum hans Dave Allen,
svo mér finnst að það megi al-
veg eins kæra útgefendur þeirr-
ar bókar.
Djúpt liggja
rætur
Högni Torfason hringdi og
óskaði eftir að koma eftirfar-
andi athugasemd á framfæri:
Hinn 7. febrúar sl. birti
Morgunblaðið ágæta grein eftir
Jón Karl Helgason í tilefni af
áttræðisafmæli Ragnars Jóns-
sonar í Smára.
Ég hnaut um eitt atriði f
þeirri grein. I 'kafla með yfir-
skriftinni Bókmenntir segir
m.a.: „Útgáfa á fornsögum á
nútíma stafsetningu á rætur
sínar að rekja til Helgafells er
Ragnar fékk Halldór Laxnes f
lið með sér um útgáfu Lax-
dælu.“
Orka kann tvímælis hvað átt
er við með hugtakinu „nútíma-
stafsetning". Fornsögurnar
voru að sjálfsögðu ritaðar „á
nútíma stafsetningu". En slepp-
um því.
En þá er þess að geta, að árið
1889 kom út Saga Hávarðar ís-
firðings á ísafirði, „prentuð í
Prentsmiðju Isfirðinga á henn-
ar kostnað".
Sérstaka athygli vekja þessi
orð í eftirmála útgáfunnar:
„Vér göngum að því sem vfsu,
að sumir af vorum lærðu mál-
fræðingum muni hneikslast á
því, að vér höfum fært stýlin
(sic) til nútíöarmáls...“ Svo
djúpt liggja rætur.
Er ekki kominn tími til að leysa
vetrarvanda Selásbúa á einhvem
raunhæfan hátt? Nú er ekki leng-
ur um einstakan viðburð að ræða,
heldur árvissan, ef vetur verður í
framtíðinni eins og verið hefur nú
ár eftir ár. Þarna eru nú stór
hverfi einbýlishúsa með þröngar
lokaðar götur (botnlanga) og vfða
fleiri en einn bíli á heimili. Hvert
eiga bíleigendur að fara með bíla
sína, þegar göturnar eru ekki
ruddar og okkur algjörlega lokað-
ar þótt á vel búnum bílum séum?
Þarna er hvergi hægt að komast
út af götu vegna snjóhryggja og þá
er eina ráðið, sem menn hafa, að
leggja bílum sfnum meðfram
Rofabæ, Selásbraut og Hraunsás.
Þetta er auðvitað neyðarúrræði,
sem öllum er til ama, ekkert síður
bíleigendum en ökumönnum snjó-
ruðningstækja. En við getum bara
ekki sagt hókus-pókus og látið bíl-
inn hverfa. Þarna er um að ræða
slikan fjölda af bílum, að ekki er
Til Velvakanda.
„Hver var olíukostnaður Hita-
veitu Reykjavíkur f frostakaflan-
um nýverið? Mig langar gjarnan
að vita það, ef t.d. hitaveitustjór-
inn í Reykjavík gæti upplýst
hversu miklu fé hafi verið varið f
olíukostnað við að skerpa á vatn-
inu.
Hefði ekki verið skynsamlegra
að takmarka vatnsmagn til
sundstaða eins og t.d. að hafa bara
sturturnar á morgnana? Það nær
ekki nokkurri átt að sundstaðirnir
taki svona mikið af heita vatninu
nokkur leið að hafa þau ráð ein að
hóta bíleigendum öllu illu og bjóða
ekki fram neina lausn. Það eru
einfaldlega ekki til stæði fyrir all-
an þennan bílaflota annars staðar
í hverfinu. Þess vegna verður að
finna önnur úrræði. Hvernig væri
að byrja á því að ryðja íbúðargöt-
ur svo himinlifandi bíleigendur
geti komið bílum sínum heim að
húsunum og hætti þannig að
hindra snjóruðningstæki við að
opna strætisvagnaleiðina?
Mætti ekki líka ryðja snjó af
opnu völlunum tveimur við Rofa-
bæinn og leyfa Selásbúum að
skilja bíla sína eftir þar þegar þeir
komast ekki heim á þeim?
Við erum orðin dauðþreytt á að
liggja sífellt undir ámæli fyrir að
skilja bílana okkar eftir á ak-
brautum (þar sem við höfum auð-
vitað áhyggjur af þeim) þegar við
höfum engin önnur ráð og götur
eru ekki ruddar svo dögum skiptir.
Selásbúi.
þegar fólk getur varla haldið á sér
hita.
Getur það verið rétt sem opin-
ber starfsmaður sagði mér, að
borgarstjórinn í Reykjavík hafi
fyrirskipað að hefja kyndingu með
olíu? Ef svo er finnst mér hann
hafa gert rangt og er ég ekki þar
með að kasta rýrð á borgarstjóra
fyrir störf hans almennt. Mér
þætti mjög vænt um að fá grein-
argóð svör við þessum athuga-
semdum mínum.
Virðingarfyllst
Gunnar Halldórsson
Hver var olíukostnaður
Hitaveitu Reykjavíkur?
Litmyndir
samdægurs
Filman inn fyrir kl. 11.
Myndirnar tilbúnar kl. 17;
Sími 85811.
.JOSMYNDAÞJONUSTAN HF
LAUGAVEGI 178-P O BOX 5211-125 REYKJAVIK
Duo 328 170-200
Kr. 4.590,00.
Duo 728 170-200
Kr. 6.335,00.
Quatro 175—205
Kr. 7.635,00.
^YYULNSft
SKÍÐI Á HAGSTÆÐU
STÖKK FRAM Á VIÐ
Nýju Duo og Quatro
skíöin slá í gegn.
CmuF
Glæsibæ, simi 82922.
SmiTH
v\t’. Músík og sport, Hafnarfiröi.
Útilíf, Glæsibæ.
Sproti, Keflavík.
Sporthúsið, Akureyri.
Sporthlaöan, ísafirði.
Kaupfélag Héraösbúa, Egilsstööum.
Jón Halldórsson, Dalvík.
K.Þ. Hljóö og sport, Húsavík.
Einar Guöfinnsson, Bolungarvík.
PHIL OG STEVE MAHRE
NOTA AÐEINS ÞAÐ BESTA
SmiTH
skíðagleraugu
Einkaumboö: Gleraugnaverslun Keflavíkur