Morgunblaðið - 24.02.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
51
Mótmæli vegna
öryggishjálma
London, 21. febrúar. AP.
FRED Hill, 74 ára gamall fyrrver-
andi stærðfræðikennari, sem sat 31
sinni inni fyrir að neita að nota ör-
yggishjálm við bifhjólaakstur, var
borinn til grafar í dag í Royston í
Cambridgeskíri. Hann lést af völd-
um hjartaáfalls í Pentonville-fang-
elsinu í London í síðustu viku, en
þar afplánaði hann 60 daga fanga-
vist eftir að hafa neitað að greiða
sekt fyrir að nota ekki hjálm.
Á sama tíma og útförin fór
fram efndu um eitt hundrað bif-
hjólaeigendur til útifundar í vest-
urhluta London þar sem dómnum
yfir honum var mótmælt.
Fred Hill neitaði að nota örygg-
ishjálm frá árinu 1976, en þá kvað
dómstóll upp þann úrskurð að
shikar væru vegna trúarbragða
sinna undanþegnir skyldu til að
nota hjálm. Hill kvaðst ekkert
hafa út á shika að setja, en sömu
lög ættu að gilda fyrir alla þegna
ríkisins.
Árið 1973 voru sett lög í Bret-
landi sem gerðu notkun öryggis-
hjálma að skyldu fyrir alla bif-
hjólamenn, en shikar mótmæltu
þeim og kváðust ekki geta hugsað
sér að setja hjálm yfir höfuðbúnað
sinn, vefjarhött, þar sem hann
væri hluti af guðsdýrkun þeirra.
Þeir ráku málið fyrir dómstólum
og unnu umdeildan sigur.
Fanga sleppt
í Póllandi
Varejá, 21. febrúar. AP.
PÓLSK yfirvöld hafa fallist á að láta
lausan starfsmann Sameinuðu þjóð-
anna, sem setið hefur í fangelsi í
Póllandi í tæp fimm ár vegna dóms
um njósnir í þágu Vesturveldanna.
„Ég er hamingjusöm yfir því að
vera komin heim til foreldra
minna. Þau hafa þurft að þjást
meira en ég,“ sagði Alicja Wesol-
owska, hinn fertugi starfsmaður
sem um er að ræða, í viðtali við
AP.
Alicja er látin laus í tilefni af
heimsókn de Cuellar fram-
kvæmdastjóra SÞ til Póllands, en
hún starfaði á vegum samtakanna
í New York og var handtekin í
orlofi sínu í ágúst 1980. Hún var
fundin sek um að njósna fyrir er-
lend ríki og herréttur dæmdi hana
í sjö ára fangavist.
Ragnar Bjarnason og
félagar í essinu sínu í
kvöld.
Jm flb i Þuríöur Sig-
H \ urðardóttir lít-
S Wj urinnkl. hálf
JB, j ellefu og syng-
Éjr ’ ur ölíhressu
If v löginsín.
<æ>KOTSL#
Þeir skemmta eingöngu matargestum okkar.
Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
Diskótek í Stjörnusal
Húsiö opnaö kl. 19.
Miöa- og boröapantanir í dag frá kl. 2. í
síma 86220.
Veitingahúsið Glæsibæ
Elg]g]!Í]E]E]gE]E]g)E]E]E]gE]E]E]E]E]E][5l
I Sigtóti |
Bl i
Bl DISKOTEK 0
01
B1
Opiö í kvöld kl. 10—3. Aögangseyrir kr. 100. ®
Bl
G]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]G]E]E]
Frakkarnir
meö dansleik i kvöld
Hotel Borg
10—03.
Frakkarnir halda uppi fjörinu i kvöld, ásamt þeim Björg
vini Gíslasyni og Ásgeiri Óskarssyni.
Verð aðeins 150 kr. Hótel Borg, sími 11440
i;iMi:j;iiimóK|
STAOUR ÞEIRRA, SEM AKVEÐNIR ERU I ÞVI AÐ SKEMMTA SÉR
Mánarokkarinn
Labbv
fékka mjög góðar móttökur hjá
okkur í gærkvöldi, honum tekst
frábærlega að túlka gömlu
góðu rokklögin frá
Mánatímabilinu.
Hljómsveitin Crystal sér um dansinn á efstu hæðinni og hinir
ráðagóðu plötusnúðar okkar um restina, góða skemmtun.
77 rn 33 ÍÍS 7 Tt
| STAÐUR ÞEIRRA, SEM ÁKVEÐNIR ERU í ÞVÍ AÐ SKEMMTA SÉR