Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
55
Leikfélag Blönduóss
frumsýnir Spanskfluguna
„l»etta eru góð gleraugu."
„Augun standa út úr þeim. I»ú
verður að hafa þau neðar á nefinu,
Jón.“
„Ég hcld ég hafi aldrei leikið með
gleraugu áður.“
Við erum stödd á aefingu á
Spanskflugunni eftir Arnold og
Bach hjá Leikfélagi Blönduóss, en
verkið verður frumsýnt föstudag-
inn 30. þ.m. Leikstjórinn er ungur
Skagfirðingur, Eyþór Árnason að
nafni. Þó að þetta sé hans fyrsta
verk sem hann setur upp er
greinilegt að hann hefur áunnið
sér traust leikaranna.
Góður andi sveif yfir hópnum
og þegar Eyþór leikstjóri brá sér
frá mátti heyra farið um hann
viðurkenningarorðum: „Ég held
ég hafi aldrei lært jafnmikið af
neinum leikstjóra," og annað í
þessum dúr og leikgleðin og kátín-
an skein úr hverju andliti.
Reyndar hafði staðið til hjá
leikfélaginu að taka Skugga-Svein
Matthíasar til sýninga en sú
fyrirætlun fór út um þúfur þegar
aðalleikarinn slasaðist og ekki
reyndist unnt að fá annan í skarð-
ið með þetta litlum fyrirvara. Því
var það að eftir nokkrar vanga
veltur og fundahöld að ákveðið
var að reka Skugga-Svein á fjöll
og taka upp Spanskfluguna í hans
stað.
Það er að sjálfsögðu úrvalsfólk
sem færst hefur í hendur að setja
stykkið á fjalirnar, en meðal leik-
ara mætti nefna Brynju Sigurð-
ardóttur, Jón Inga Erlendsson,
Svein Kjartansson og Þorleif
Óskarsson.
Leikstjórinn Eyþór Árnason.
Þegar kaffihlé varð á æfingunni
ræddum við lltillega við leikstjór-
ann Eyþór Arnason: „Ég lauk
námi úr Leiklistarskólanum síð-
astliðið vor. Undi mér heima í
sveitinni í sumar sem leið, stund-
aði búskapinn og fór í göngur.
Reyndar er ég alltaf heima I
Blönduhlíðinni á sumrin, ég er
svoddan sveitavargur í aðra rönd-
ina.
1 haust fór ég síðan suður og
byrjaði nám í Söngskólanum. Svo
höfðu Húnvetningar samband við
mig og ég lét slag standa. Mér
finnst nú nokkur bíræfni hjá þeim
að hafa samband við strákpjakk
sem þeir hvorki þekkja haus né
sporð á. Þeir hafa kannski treyst
mér af því að ég er Skagfirðing-
ur.“
Aðspurður sagði Eyjólfur að sér
fyndist mesta furða hve vel Hún-
vetningar létu að stjórn. „Mér
hefur fallið mjög vel að vinna með
þeim. Þetta fólk skilar ótrúlegu
starfi. Mætir í vinnu klukkan átta
á morgnana og kemur síðan rak-
leiðis á æfingu að loknum vinnu-
degi. Alveg ódrepandi áhugi og
vilji. Fæstir hafa því tíma til að
hugsa um hlutverkin sín á daginn,
það er því ekkert skrýtið þótt einn
og einn geispi þegar komið er
fram undir miðnætti ...
Þetta er erfitt leikrit, með þeim
erfiðari. Það er útbreiddur mis-
skilningur að svona verk séu auð-
veld. Spanskflugan er alvörufarsi,
miklar sveiflur og nákvæmar
tímasetningar og ef ekki tekst að
gæða verkið lífi, gengur dæmið
ekki upp. Takmarkið hjá okkur er
fjör og meira fjör.
Já, það er misskilningur að
farsar séu auðveldir í uppsetn-
ingu, að vísu eru engin leikrit auð-
veld og það er vel þess virði fyrir
leikfélag að taka þetta verk til
sýninga. Það reynir sannarlega á
fólk og það er gaman að æfa það
með þessu fólki. Það hefur mikinn
metnað fyrir sig og leikfélagið."
— Hvernig stóð á því að þú
ákvaðst að gera leiklistina að þínu
ævistarfi? spyrjum við.
„Þetta var búið að brjótast I
mér lengi,“ svarar Eyþór. „Ég lék
í skolanum og heima í Skagafirð-
inum. Einn vetur var ég á leiklist-
Hamagangur á sviðinu á æfingu.
arbraut í lýðháskóla í Svíþjóð.
Þessi fjögur ár í leiklistarskólan-
um voru mjög skemmtilegur tími.
Allt snerist um leiklist eins og
gefur að skilja. Ég var giftur
Þalíu og verð það vonandi áfram,
já þetta er farsælt hjónaband þótt
á ýmsu gangi en skilnaður kæmi
aldrei til greina.
Það er mjög lærdómsríkt að
skipta um sæti eins og ég geri
núna. Fara ofan af sviðinu og
fram í salinn, það er tvennt ólíkt
að leika eða leikstýra."
Til að forvitnast aðeins um
•hvernig leikurunum er innan-
brjósts, fengum við einn þeirra,
Brynju Sigurðardóttur, til að
segja okkur hvernig henni líkaði
að æfa með leikfélaginu.
„Það er stórkostlegt ævintýri að
taka þátt i þessu. Undirbúningur-
inn og allt í kringum æfingarnar.
Ég lék í skólaleikritum forðum
daga og nú fæ ég aftur tækifæri.
Já, þetta er skemmtilegt. Ég hef
líka kynnst fólkinu hérna betur og
það kemur sér vel fyrir mig þar
sem ég er nýsest að hérna á
Blönduósi."
Við svo búið kvaddi fréttaritari
og á leiðinni út glumdu við hlátra-
sköllin þegar Eyþór var að leið-
beina Brynju í léttúðugu atriði:
„Beraðu leggina betur!"
IBMPC
FIMM SPENNANDITÖLVUDAGAR 1 TÓNABÆ
Sérfræöingar Skrifstofuvéla hf. munu annast kynningu á möguleikum
hinna fjölbreyttu forrita sem unnin hafa verið fyrir IBM PC einkatölvuna
- tölvu ársins 1983.
Möguleikar hvers og eins forrits eru sýndir í klukkustund í senn og til
að auka svigrúmið verðum við með tvær tölvur í gangi alla sýningardag-
ana með ólíkum forritum hverju sinni.
Með skipulagðri dagskrá gefum við öllum sem áhuga hafa á að kynnast
einstökum möguleikum IBM PC, kost á að ganga að sínu áhuga- eða
sérsviði á ákveðnum tímum, hvort sem það er bókhald, kennsla, Kynntu þér þinn tíma og komdu sem fyrst - þú vilt áreiðanlega líta við
áætlanagerð eða ritvinnsla. aftur.
MI6vlkud. 28/3 Ritvinnsla Áætlanagerð
kl. 15.00-16.00 (Word frá Microsoft) (Lotus 1-2-3)
Aætlanagerd Aætlanagerð
kl. 16.00-17.00 (Multiplan frá Microsoft) (IFPS Personal)
Gagnagrunnur Aætlanagerð
kl. 17.00-18.00 (dBase 1 1) (IFPS Personal)
Ritvinnsla Ðókhald
kl. 18.00-20.00 (Word frá Microsoft) (Plús frá Islenskri forritapróun s/f)
Ðókhaldiö Fyrir skólana
kl. 20.00-22.00 (Hagvangur) (Waterloo frá Waterloo University)
Flmmtud. 29/3 kl. 15.00-18.00 Gagnagrunnur (dBase 1 1) Bókhaldlö (Plús frá Íslenskrí forritapróun s/f)
kl. 16.00-17.00 Bókhaldið Aætlanagerð
(Hagvangur) (IFPS Personal)
kl. 17.00-18.00 Ritvinnsla (Word frá Microsoft) Áætlanagerð (IFPS Personal)
kl. 18.00-19.00 Ritvinnsla (Word frá Microsoft) Fyrir skólana (Waterloo frá Waterloo University)
kl. 19.00-20.00 Gagnagrunnur (dBase 1 t) Bókhaldiö (Forritaþróun s/f)
kl. 20.00-21 -OO Gagnagrunnur (dBase 1 1) Fyrir skólana (Waterloo frá Waterloo University)
kl. 21.00-22.00 Ritvinnsla (Word frá Microsoft) Bókhald (Plús frá (slenskri forritapróun s/f)
Föstud. 30/3 Aætlariagerð
kl. 15.00-17.00 Ritvinnsla
(Word frá Microsoft) (IFPS Personal)
kl. 17.00-18.00 Bókhaldiö Fyrir skólana
(Hagvangur) (Waterloo frá Waterloo University)
kl. 18.00-19.00 Gagnagrunnur Bókhald
(dBase 1 1) (Plús frá Islenskri forritaþróun s/f)
kl. 19.00-20.00 Rítvinnsla Fyrir skólana
(Word frá Microsoft) (Waterloo frá Waterloo University)
kl. 21.00-22.00 Gagnagrunnur Bókhald
(dBase 1 1) (Plús frá islenskri forritaþróun s/f)
Laugard. 31/3 kl. 10.00-12.00 Ðókhaldiö Aætlanagerö
(Hagvangur) (Lotus 1 -2-3)
kl. 12.00-13.00 Ritvinnsla Fyrir skólana
(Word frá Microsoft) (Waterloo frá Waterloo University)
kl. 13.00-14.00 Aætlanagerð Aætlanagerö
(Multiplan frá Microsoft) (IFPS Personal,
kl. 14.00-15.00 Gagnagrunnur Bókhald
(dBase t 1) (Plús frá Islenskri forritapróun s/f)
kl. 15.00-16.00 Ritvinnsla Ðókhald
(Word frá Microsoft) (Plús frá íslenskri forritapróun s/f)
kl. 16.00-18.00 Aætlanagerð Aætlanagerð
(Multiplan frá Microsoft) (IFPS Personal)
kl. 18.00-20.00 Ðókhald Aætlanagerö
(Hagvangur) (Lótus 1-2-3)
kl. 20.00-22.00 Ritvinnsla Skólar
(Word frá Microsoft) (Waterloo frá Waterloo University)
Sunnud. 1/4 Ritvinnsla Fyrir skólana
kl. 10.00-12.00 (Word frá Microsoft) (Waterloo frá Waterloo University)
Gagnagrunnur Aætlanagerö
kl. 12.00-14.00 (dBase 1 1) (Lotus 1 -2-3)
Ritvinnsla Ðókhald
kl. 14.00-15.00 (Word frá Microsoft) (Plús frá Islenskri forritapróun s/f)
Gagnagrunnur Bókhald
kl. 15.00-16.00 (dÐase 1 1) (Plús frá islenskri forritapróun s/f)
Ritvinnsla Aætlanagerö
kl. 16.00-18.00 (Word frá Microsoft) (IFPS Personal)
Ðókhald Fyrlr skólana
kl. 18.00-20.00 (Hagvangur) (Waterloo frá Waterloo University)
Aætlanagerð Bókhaldiö
kl. 20.00-22.00 (Multiplan frá Microsoft ) (Plús frá Islenskri forritapróun s/f)
Authorized IBM Dealer - IBM Personal Computer
T/
3?
Hverfisgötu 33 — Sími 20560
Pósthólf 377