Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
Bandalag kvenna:
Sjúkrahúsprest og kap-
ellu þarf í sjúkrahúsin
BANDALAG kvenna í Reykjavík
hélt aðalfund sinn nýlega. Kftirfar-
andi ályktun var gerð:
Aðalfundurinn fer þess á leit við
fjármálaráðuneytið að fjármagn
verði veitt á næstu fjárlögum til
ráðningar sjúkrahúsprests.
Aðalfundurinn vill vekja at-
hygli opinberra aðila, arkitekta og
forstöðumanna sjúkrastofnana, þá
er hannaðar eru sjúkrastofnanir,
að strax í upphafi verði gert ráð
fyrir kapellu eða athvarfi til
bænastunda í byggingunni.
Aðalfundurinn styður fram-
komnar blaðagreinar og erindi,
þar sem mótmælt er sýningum á
ofbeldis- og hryllingsmyndum,
hvort heldur þær eru sýndar í
kvikmyndahúsum eða af mynd-
böndum. Skal hér vakin athygli á
grein Guðjóns Magnúsar Bjarna-
sonar framkvæmdastjóra Barna-
verndarráðs fslands í Morgun-
blaðinu 13. janúar sl.
Hjá okkur fáið þið orginal
pústkerfi í allar gerðir MAZDA
bíla á mjög hagstæðu verði.
Dæmi um verd á komplett pustkerfum:
í
í
í
MAZDA 929 árg. ’74-’78 kr. 3.338
MAZDA 929 árg. ’79-’81 kr. 3.249
MAZDA 626 árg. ’79-’81 kr. 3.123
MAZDA 323 árg. ’77-’80 kr. 2.894
MAZDA 323 árg. ’81-’84 kr. 3.158
MAZDA 818 allar árg. kr. 2.509
MAZDA 616 allar árg. kr. 2.934
ísetnmgarþjónusta á staðnum.
Patreksfjörður:
Slysavarnardeildin Unnur 50 ára
PMrekgfirAi.
SLYSAVARNADEILDIN Unnur
hélt upp á 50 ára afmæli með veg-
legu kaffisamsæti í Félagsheimili
Patreksfjarðar. Samsætið hófst
með því að formaður IJnnar, Þór-
dís T. Olafsdóttir, bauð gesti vel-
komna. Deildinni barst fjöldi árn-
aðaróska á þessum tímamótum.
Formaður deildarinnar af-
henti Björgunarsveit Patreks-
fjarðar kr. 50.000 og veitti for-
maður Björgunarsveitar, Har-
aldur Karlsson, gjöfinni mót-
töku og færði deildinni þakkir
fyrir hönd björgunarsveitarinn-
ar.
Hilmar Jónsson, sparisjóðs-
stjóri og varaoddviti, færði
deildinni að gjöf frá Patreks-
fjarðarhreppi kr. 30.000 og Ing-
ólfur Arason, formaður spari-
sjóðsstjórnar, afhenti deildinni
fyrir hönd Eyrarsparisjóðs kr.
20.000. Þórdís formaður Unnar
þakkaði hinar höfðinglegu gjaf-
ir.
Fimm konur voru heiðraðar og
voru þrjár þeirra stofnfélagar,
þær Magndís Magnúsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir og Oddný
Karlsdóttir. Elínborg Þórarins-
dóttir og María Jóakimsdóttir
voru heiðraðar fyrir langt starf í
stjórn deildarinnar.
í fjarveru Maríu veitti dóttir
hennar, Heiga Guðjónsdóttir,
heiðursskjalinu viðtöku. Þórdís
T. Ólafsdóttir formaður flutti
ávarp og rakti í stórum dráttum
sögu deildarinnar.
Tildrög að stofnun deildarinn-
ar voru þau að nokkrar konur
undir forustu Andreu Andrés-
dóttur ákváðu að stofna slysa-
varnadeild. Konurnar fóru með
lista um þorpið og skrifuðu 122
konur á listann.
Þann 22. febrúar 1934 var síð-
an haldinn stofnfundur og sátu
hann 67 konur og var fyrst.i
formaður kosinn Elín Bjarna-
dóttir. Deildinni voru sett lög á
næsta fundi og jafnframt ákveð-
ið nafn deildarinnar, Únnur.
Fyrstu árin beitti deildin sér
fyrir fjársöfnun til björgunar-
skútu Vestfjarða.
Árum saman stóð deildin fyrir
leiksýningum, sem var í raun
merkileg menningarstarfsemi.
Fjölmörg verk voru sett á svið
t.d. Skugga-Sveinn, Maður og
kona og Deleríum búbonis. Þótti
þetta kærkomin tilbreyting og
mikill menningarauki í einangr-
uðu byggðarlagi.
Basar hefur deildin haidið svo
að segja árlega síðan 1938. Frá
árinu 1976 hefur deildin á hverju
hausti fært yngri og eldri borg-
urum staðarins endurskins-
merki, merkt nafni deildarinnar.
Árið 1978 fór deildin af stað með
jólakortasölu og hafa kortin ver-
ið sérstaklega hönnuð fyrir
deildina, sala þeirra hefur geng-
ið vel.
Árið 1941 bar Steinvör Gísla-
dóttir fram tillögu um að deildin
beitti sér fyrir byggingu sund-
laugar á staðnum. Var tillagan
samþykkt og unnið ötullega að
fjáröflun næstu árin. Árið 1945
var sundlaugin síðan afhent
Patreksfjarðarhreppi og er enn í
notkun. Auk þess sem áður er
taiið hefur deildin beitt sér fyrir
og stutt mörg mál, sem of langt
yrði upp að telja.
Árið 1978 var tekin upp sú
nýbreytni, að félagskonur voru
hvattar til að mæta til guðsþjón-
ustu í kirkjunni ásamt fjölskyld-
um sínum, áður en aðalfundur
hæfist. Hefur þessi góði siður
síðan verið haldinn og á vonandi
eftir að haldast áfram.
Meðfylgjandi mynd var tekin í
afmælishófinu.
FrétUriUri
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Galvaniserað
plötujárn
ST 02 Z DIN 17162
Notið eingöngu EKTA MAZDA
VARAHLUTI eins og fram-
leiðandinn mælir fyrir um.
ÞAÐ MARGBORGAR SIG.
BÍLABORG HF. ■
Smiðshöfða 23
Símar: Verkstæði 81225 —Varahlutir 81265
Plötuþykktir:
Plötustærðir:
og
0.5-2mm
1000 x 2000 mm
1250 x 2500 mm
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
Alsjálfvirk-einföld -
Kodak Diskmyndavélinni.
Hún hugsar íyTir öllu, þú
smellir bara aí.
ENDURBÆTT
DISKFILMA
Vel á minnst, hefur þú
hugsað fyrir ferminggr-
gjöfinni?
Kodak Diskur 3500 1990 kr
Kodak Diskur 4000 2400 kr.
Kodak Dlskur 6000 3200 kr
Kodak Diskur 8000 4200 kr
HfiNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI (
'SIBÆ AÚSTURVERI UMBOÐSMENN UM LAND ALLT