Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.03.1984, Blaðsíða 10
HVAÐ ER AÐ GERAST URIHELGINA? Hart í bak og For- setaheimsóknin í síöasta sinn Leikfélag Reykjavíkur sýnir i kvöld leikritiö Gísl eftir Brendan Behan og er uppselt á sýninguna. Á morgun, laugardagskvöld, verö- ur sýning á bandaríska leikritinu Guö gaf mér eyra, eftir Mark Med- off. I aöalhlutverkum eru þau Berglind Stefánsdóttir og Siguröur Skúlason. Á laugardagskvöld veröur einn- ig enn ein aukasýning á gaman- leiknum Forsetaheimsókninni, sem sýndur er á miönætursýningu í Austurbæjarbiói. Leikrit Jökuls Jakobssonar, Hart í bak, veröur síöan sýnt i lönó á sunnudags- kvöld og er þaö 50. og síöasta sýn- ing. I stærstu hlutverkum þar eru Soffía Jakobsdóttir, Jón Sigur- björnsson, Kristján Franklín Magn- ús og Edda Heiörún Bachman. Borgarnes: Dúfnaveislan Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi hefur aö undanförnu sýnt leikrit Halldórs Laxness, Dufnaveisluna, i leikstjórn Kára Halldórs. Leikritiö veröur sýnt í síöasta sinn á laugardagskvöld og er sýningin í Samkomuhúsinu í Borgarnesi. Boöiö er upp á svo- kallaöa „Nýlagaða borgfirska blöndu", ferö frá Reykjavík þar sem gist og dansaö er á hótelinu og fariö á leikritiö. Þjóðleikhúsið: Tómasarkvöld í Þjóöleikhúsinu veröa tvær sýn- ingar, í kvöld og á laugardags- kvöld, á leikriti Bertold Brechts, Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni, meö söngvum eftir Hans Eisler. Meö hlutverk Sveyk fer Bessi Bjarnason, en leikstjóri er Þórhild- ur Þorleifsdóttir og hljómsveitar- stjóri Jón Hlööver Áskelsson. Amma þó!, barnaleikrit Olgu Guörúnar Árnadóttur, veröur á sunnudag kl. 15.00. Gamanleikur- inn Skvaldur, eftir Michael Frayn, veröur sýndur í 50. og allra síöasta sinn á sunnudagskvöld kl. 20.00. Leikstjóri er Jill Brooke Árnason, en niu leikarar koma fram í leikn- um. Tómasarkvöld nefnist dagskrá sem frumsýnd veröur á Litla sviö- inu á sunnudagskvöld. Dagskráin byggir á Ijóöum og æviatriöum Tómasar Guömundssonar skálds og hefur Herdis Þorvaldsdóttir um- sjón meö henni. Auk Herdísar koma sex leikarar fram í dag- MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 Verk eftir fjórmenningana. Talið að ofan f.v. Þór Vigfússon, Rúrí, Rúna Þorkelsdóttir og ivar Valgarðsson. Kjarvalsstaðir: Samsýning fjögurra listamanna LISTAMENNIRNIR ívar Valgarösson, Rúna Þorkels- dóttir, Þór Vigfússon og Rúri sýna nú verk sín á Kjarvalsstöðum, bæöi í Vestursal hússins og í Kjar- valssal. Eru á sýningunni verk unnin með blandaöri tækni, málverk, teikningar, skúlptúr og lágmyndir. Fjórmenningarnir hafa allir stundaö nám í Mynd- lista- og handíðaskóla Islands og síöar viö Lista- akademíur erlendis. Þá eiga þau öll aö baki einka- sýningar og samsýningar, innan lands sem utan, á síðastliönum 10 árum. Sýningin veröur opin um helgina frá kl. 14.00- 22.00, en henni lýkur nk. sunnudag. skránni, auk hljóðfæraleikara. Létt máltíö er innifalin í dagskránni. LA: Súkkulaðið í síðasta sinn Leikfélag Akureyrar sýnir leikrit- iö Súkkulaöi handa Silju, eftir Ninu Björk Árnadóttur, í síöasta sinn um helgina. Sýnt veröur aö vanda í Sjallanum og veröa sýningarnar í kvöld og á sunnudagskvöld kl. 20.30. Leikstjóri er Haukur J.Gunnarsson. Akranes: Spænsk gítar- MYNDLIST Nýlistasafnið: Verk Helmut Federles í Nýlistasafninu viö Vatnsstíg stendur nú yfir sýning svissneska listamannsins Helmut Federles. Á sýningunni eru teikningar frá sl. fimm árum, auk bókverka. Helmut Federle hefur sýnt verk sín víöa erlendis og á hann myndir á helstu söfnum í heimalandi sínu. Undanfarin ár hefur hann búiö í New York og unnið aö stórri myndaröö fyrir borgina þar. Fed- erle er nú gestakennari viö Mynd- lista- og handíöaskóla islands. Norræna húsið: Keramik j anddyri Norræna hússins sýnir nú dansk-íslenski listamaöurinn Snorre Stephensen nytjalist. Eru þaö ýmiskonar keramikmunir til daglegra nota, tesett, vasar, skálar og fleira. Sýningin stendur til 8. apríl. Hafnarborg: Málverk Gunnars grafíktækni s.s. steinprenti, ætingi, þurrnál og tréristu. 14 myndanna voru gefnar af Christian Gierlöff, rithöfundi og nánum vini málarans, auk þess sem Ragnar Moltzau, út- geröarmaöur, gaf safninu þrjár myndir 1951. Sýningin er opin á venjulegum opnunartíma safnsins, laugardaga, sunnudaga, þriöjudaga og fimmtu- dagafrá kl. 13.30—16.00. Akureyri: Listkynning j Alþýöubankanum á Akureyri stendur nú yfir listkynning á verk- um Siguröar Kristjánssonar. Aö kynningunni standa Alþýðubank- inn og Menningarsamtök Norö- lendinga. Gallerí glugginn: Verk Kristjáns E. Karlssonar Verk Kristjáns E. Karlssonar eru nú til sýnis í Gallerí glugganum, nýju galleríi á horni Vesturgötu og Garðastrætis. Sýningin er nokkuð sérstæö þar sem galleríiö er þann- ig gert aö sýningargestir skoöa verkin inn um glugga á húsinu Garöastræti 2. tónlist Gitarleikarinn Símon H. ívars- son heldur tónleika i Fjölbrauta- skólanum á Akranesi nk. sunnu- dag kl. 15.00. Á efnisskránni eru spænsk klassísk verk og flam- enco-tónlist, en sú tónlist hefur ekki verið skrifuö á nótur, heldur borist frá manni til manns í gegn- um tíöina. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu viö áhugafólk um lif- andi tónlist. íslenska óperan: Nóaflóðið og Rakarinn (slenska óperan sýnir í kvöld óperu Rossinis, „Rakarinn í Sev- illa", gamanóperu í tveimur þátt- um, kl. 20.00 og veröur hún einnig sýnd á sama tíma á sunnudags- kvöld. Barna- og fjölskylduóperan „Örkin hans Nóa" eftir Benjamin Britten veröur síöan sýnd á sunnu- dag kl. 15.00. Á. Hjaltasonar I Hafnarborg, menningar- og listastofnuninni í Hafnarfiröi, stendur nú yfir sýning á málverk- um listmálarans Gunnars Á. Hjaltasonar. Sýningin er 24. einkasýning Gunnars, en hann á auk þess fjölda samsýninga aö baki frá því aö verk hans voru sýnd í fyrsta sinn, áriö 1964. Gunnar stundaöi gullsmíðanám hjá Guömundi Guönasyni og Leifi Kaldal. Teikni- nám stundaði hann hjá Birni Björnssyni og Marteini Guö- mundssyni og í Handíöaskólanum. Sýningin í Hafnarborg veröur opin til 8. apríl. Listasafn íslands: Edvard Munch í Listasafni íslands stendur yfir sýning á grafíkverkum norska mál- arans Edvard Munch, sem eru í eigu safnsins. Eru þar sýndar 17 myndir, unnar meö margskonar Sólheimar: Myndir Guðmund- ar Ófeigssonar, síöasta sýningarhelgi í Sólheimum í Grímsnesi stend- ur yfir sýning á myndum og teikn- ingum Guömundar Ófeigssonar. Eru þar sýndar um 100 vatnslita- myndir og 40 teikningar. Sýning- unni lýkur eftir helgina. Guömundur, sem nú dvelur á elliheimili, var mörg sumur í SÓI- heimum og er hluti myndanna á sýningunni frá þeim tíma, m.a. eru margar myndir af Heklu. Listasafn ASÍ: Sjónarhorn I Listasafni AS( viö Grensásveg stendur nú yfir sýning á pastel- og vatnslitamyndum Vilhjálms G. Vilhjálmssonar, sem ber heitið „Sjónarhorn". Vilhjálmur G., sem er formaöur Félags heyrnarlausra, stundaöi nám í Myndlista- og handíöaskóla islands og útskrifaöist þaöan úr auglýsingadeild áriö 1977. Hann hefur einnig stundaö myndlistar- nám hjá Ragnari Kjartanssyni, Hring Jóhannessyni, Hannesi Flosasyni og í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Sýningin í Listasafni ASl er opin frá kl. 14.00—22.00 um helgar og frá kl. 16.00—22.00 alla virka daga. Mosfellssveit: Myndir Bjargar Atladóttur, síðustu sýningardagar í Héraösbókasafni Kjósarsýslu, Markholti 2, Mosfellssveit, hefur undanfarnar vikur staöiö yfir kynn- ing á verkum Bjargar Atladóttur, myndlistarmanns, og lýkur kynn- ingunni á morgun, laugardag. Á kynningunni eru myndir, aöallega gerðar meö blandaöri tækni, sáld- og skapalónsþrykki. Kynningin veröur opin í dag, föstudag, frá kl. 13.00—20.00 og á morgun, laugardag, frá kl. 14.00—18.00, þegar henni lýkur. Gallerí íslensk list: Verk Gunnars Arnar j Gallerí íslensk list á Vesturgötu 17 stendur nú yfir sýning á verkum Gunnars Arnar Gunnarssonar. Á sýningunni, sem er 15. einkasýning Gunnars Arnar, eru vatnslita- og monotypumyndir. Sýningin er opin um helgina frá kl. 14.00—17.00 og frá kl. 9.00—17.00, en henni lýkur á sunnudag. Kjarvalsstaðir: Höggmyndir Sæmundar Valdimarssonar Á Kjarvalsstööum stendur nú yf- ir sýning á verkum Sæmundar Valdimarssonar og lýkur henni nú um helgina. Á sýningunni eru 18 verk sem Sæmundur hefur unniö úr rekaviö og steinum. Verkin á sýningunni eru unnin á undanförnum árum, en Sæmundur hefur áöur sýnt verk sín í Gallerí SUM, á Kjarvalsstöðum og í mat- sal Áburöarverksmiöjunnar í Gufu- nesi, þar sem hann starfar. ísafjörður: Textíll í bókasafninu j bókasafninu á isafiröi stendur nú yfir sýning á textílverkum Sigur- laugar Jóhannesdóttur, en hún er kennari viö Myndlista- og handíöa- skóla íslands. Eru á sýningunni, sem er sölusýning, 12 verk unnin úr hrosshári. Sýningin veröur opin á venju- legum afgreiöslutíma safnsins fram til 3. april. Listmunahúsið: Afmælissýning Valtýs Péturssonar í Listmunahúsinu viö Lækjar- götu er nú sýning á verkum Valtýs Péturssonar, sem haldin er í tilefni 65 ára afmælis listmálarans. Á sýningunni eru 66 gouache-myndir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.