Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 13
61
SÍS og Co. í reynd meðlög, —
neikvæða skatta.
Stoltir forstjórar
í greinargerðinni um vinnslu-
stöðvar var gerð lausleg áætlun
um vinnslukostnað í vel reknu
sláturhúsi. Byggt var á upplýsing-
um um tiltölulega nýtt hús, bæði
um stofnkostnað og rekstrar-
kostnað. Niðurstaðan var eins og
fyrr er frá greint, að slátur- og
heildsölukostnaður eins og hann
er ákveðinn af sexmannanefnd og
ríkisstjórn hafi verið allt of hár.
Auðvelt ætti að vera að lækka
hann um þriðjung.
Til samanburðar má hafa í
huga, að sláturkostnaður á íslandi
reiknast nær fjórfaldur hliðstæð-
ur kostnaður á Nýja Sjálandi.
Nefnd, sem starfaði á vegum
rannsóknarráðs fyrir nokkrum ár-
um og fjallaði um þróun landbún-
aðar, komst að svipaðri niður-
stöðu.
A.m.k. eitt vel rekið sláturhús á
íslandi hefur ekki hærri kostnað
en hér um ræðir, nánar tiltekið
um tvöfaldan hliðstæðan kostnað
á Nýja Sjálandi.
Eins og rækilega hefur verið
undirstrikað hér að framan hefur
verðbólga og vaxtakjör og ofrausn
alþingismanna fært vinnslustöðv-
um fjármuni, sem nema um 40%
af „löggiltum" slátur- og
heildsölukostnaði, sem þýðir 40%
hækkun tekna fyrir sláturhús.
Samt halda sumir forstjórar
vinnslustöðva þvi fram, að allt
standi í járnum, svo ekki sé meira
sagt. Þessar vinnslustöðvar ættu
því að vera með kostnað, sem er
fimm- til sexfaldur kostnaður á
Nýja Sjálandi. Engin þeirra hefur
boðist til að hætta rekstri, sem
gæti þó komið sér vel fyrir önnur
fyrirtæki í greininni. Segir það
ekki sína sögu?
Það vekur þó mesta athygli, hve
stoltir sláturhúsaforstjórarnir eru
af háu kostnaðarreikningunum
sínum.
Bjóöa ætti slátrun út
Eitt sláturhús ætti jafnan að
standa sexmannanefnd til reiðu til
útboða.
í dæmigerðu útboði í Reykjavík
á sl. ári (sem snerti þó ekki slátr-
un) fengust 11 tilboð. Tilboðs-
upphæðir námu frá 70% upp í
120% af kostnaðaráætlun. Lægsta
tilboði var auðvitað tekið og njóta
íbúar Reykjavíkur góðs af.
í vinnslustöðvum landbúnaðar-
afurða gildir önnur regla. Eftir
því, sem „bjóðendur" sýna hærri
kostnað, verður áætlun sexmanna-
nefndar hærri. Allir „bjóðendur"
fá verkið á eins konar meðaltaxta,
þótt sumir þeirra gætu unnið það
fyrir verulega lægra verð og haft
af því hagnað. Fyrirtækin eiga þó
aldrei að sýna hagnað heldur tap,
þá eru líkur á því, að sexmanna-
nefnd hækki áætlanir sinar næsta
ár.
Fyrir nokkru kom Magnús Frið-
geirsson forstjóri búvörudeildar
SÍS fram í útvarpi. Hann var
þeirrar skoðunar, að áætlun um
vinnslukostnað, sem hér hefur
verið kynnt, myndi standa og falla
með upplýsingum, sem væri að
finna í reikningum SÍS-slátur-
húsa. Hann bauð undirrituðum
því að velja tvö hús úr sláturhúsa-
keðju SÍS og skoða „prívat og per-
sónulega alla reikninga". Þetta er
gott boð, ef í því felst heimild til
að kanna öll fylgiskjöl, dagbókar-
færslur, bankareikninga, við-
skiptareikninga bænda og við-
skiptamanna o.s.frv. Boðið verður
þegið og gengið að því verki, þegar
tími og aðstæður leyfa.
Vel rekin vinnslustöð ver ein-
ungis um tveimur þriðju hlutum
af „löggiltum" slátur- og heild-
sölukostnaði í vinnslu. Það er
staðreynd. Reikningar lakar rek-
inna fyrirtækja sanna ekkert,
nema það sem vitað er — að auð-
veldast af öllu er að sóa í rekstri.
Boð Magnúsar Friðgeirssonar
hljómar því eins og kvörtun verk-
taka, sem ekki hefur fengið verk,
af því tilboð hans var of hátt.
Hann sættir sig ekki við niður-
stöðuna og hrópar um götur og
torg; mér er ekki sýnd sanngirni,
tor.r T / T.iT CTT^ * r;TT it rr\ r r ;\r. , i i / r , ^-tr\*s
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. MAI 1984
komið og sjáið reikningana mína,
ég gæti gert verkið mun dýrara.
Munchhausenkerfiö
Kerfið, sem íslendingar búa við,
hvað varðar vinnslu landbúnaðar-
afurða, er sannkallað Múnchhaus-
enæfintýri. Eins og greifinn dró
sjálfan sig og merina upp úr keld-
unni á eigin hári geta vinnslu-
stöðvar „halað upp“ afkomu sína
með því að framvísa nógu háum
eigin reikningum.
Aðeins einn þáttur vinnslunnar
stenst samanburð við erlenda
reynslu. Duglegt fólk, sem fer
hamförum í sláturtíðinni á haust-
in, skilar afköstum, sem eru
sambærileg við það, sem gerist
best erlendis, en fær lægra kaup
eins og flestir á þessu landi. Það
breytir kind á fæti í matvöru í
frysti. Sú vinna telst minna en
einn þriðji af „löggiltum" kostn-
aði. Síðan hefst æfintýrið. Allt
annað er óheyrilega dýrt.
Sjálfsagt er að reikna með því,
að þeir sem reka vinnslustöðvar
séu mismunandi vel hæfir til að
sinna hlutverki sínu, rétt eins og
verktakarnir, sem keppa um verk í
útboðum. Það ber því að bjóða
slátrun út til að finna þá hæfu.
Múnchhausenkerfið veldur því,
hve sláturhúsagreifar eru stoltir
af, láta sér annt um og vekja
mikla athygli á verðbólgnum
kostnaðarreikningum. Hár kostn-
aður tryggir þeim sjálfkrafa
hærri áætlun sexmannanefndar.
Það er rétt, sem ólafur Sverr-
isson segir í grein sinni í Morgun-
blaðinu, að verðbólgan hafi reynst
mörgum fyrirtækjum þung í
skauti á síðustu árum, en það á
ekki við um þau fyrirtæki, sem hafa
búið við sérstök lánakjör og þegið að
auki stórfelldar gjafir í svokölluðum
niðurgreiðslum vaxtakostnaðar, sem
aldrei var neinn í reynd. Slík fyrir-
tæki hafa verið á drjúgum meðlög-
um öll þessi ár. Vinnslustöðvar
sauðfjárafurða hafa í þessu efni
haft algjöra sérstöðu meðal ís-
lenskra fyrirtækja sl. fimm ár.
Það hefur þurft hrikalega vit-
lausar fjárfestingar til að eyða
slíkum hlunnindum. Ekki skortir
þó dæmi þess. Það er hin hliðin á
Múnchhausenkerfinu.
Þorvaldur Búason ér eðlistræding-
ur.
Sumarstarf fyrir
börn og unglinga
Bæklingurinn „Sumarstarf fyrir
börn og unglinga 1984“ er kominn
út og var honum dreift til allra ald-
urshópa í skólum Reykjavfkurborgar
fimmtudaginn 3. maí sl.
f bæklingi þessum er að finna
upplýsingar um framboð félaga og
borgarstofnana á starfi og leik
fyrir börn og unglinga í borginni
sumarið 1984.
Starfshættir þeir sem um getur
í bæklingnum eru fyrir aldurinn
2—16 ára. Flest atriði snerta
íþróttir og útivist, en einnig eru
kynntar reglulegar skemmtisam-
komur ungs fólks. Útgjöld þátt-
takenda vegna starfsþáttanna eru
mjög mismunandi.
Foreldrar, sem hug hafa á að
hagnýta sér framboð borgarinnar
og félaganna fyrir börn sín, eru
hvattir til þess að draga ekki inn-
ritun þeirra.
Sumar
starf
börn og unglinga
lj Sfl
JmuuEswne
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbarðasölum um land allt
Bridgestone radial og diagonal sumarhjólbarðar.
Óbreytt verð frá í fyrrasumar!
Sölustaðir:
Reykjavík og nágr.
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24
Hjólbarðastöðin s/f, Skeifan 5
Höfðabekk h/f, Tangarhöfða 15
Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar, Ægissíðu 104
Hjólbarðaviðgerð Otta Sæmundssonar, Skipholti 5
Dekkið, Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði
Landsbyggðin:
Hjólbarðaþjónustan, Brekkubraut 23, Akranesi
Hjólbarðaþjónustan, Dalbraut 13, Akranesi
Hjólbarðaviðgerðin h/f, Suðurgötu 41, Akranesi
Vélabær, Bæ Borgarfirði
Bifreiðaþjónustan, v/Borgarbraut, Borgarnesi
Hjólbarðaþjónustan, Borgarbraut 55, Borgarnesi
Hermann Sigurðsson, Lindarholti 1, Ólafsvík
Hjólbarðaþjónusta Grundarfjarðar,
(Þórarinn Sigurðss.), Borgarbr. 2
Nýja Bílver h/f, v/Ásklif, Stykkishólmi
Dalverk s/f, Búðardal
KF. Hvammsfjarðar, Búðardal
Bílav. Guðjóns, Þórsgötu 14, Patreksfirði
Vélsmiðja Tálknafjarðar, Tálknafirði
Vélsmiðja Bolungarvíkur, Bolungarvík
Hjólbarðaverkst. v/Suðurgötu, ísafirði
Staðarskáli, Stað Hrútafirði
Vélaverkstæðið Víðir, Víðidal, V-Hún
Hjólið s/f, v/Norðurlandsveg, Blönduósi
Vélaval s/f, Varmahlíð, Skagafirði
Vélsmiðjan Logi, Sauðármýri 1, Sauðarkróki
Verzl. Gests Fanndal, Siglufirði
Bifreiðav. Kambur, Dalvík
Bílaverkst. Dalvíkur
Bílav. Hjalta Sigfússonar, Árskógarströnd
Hjólbarðaþjónustan, Hvannarvöllum 14B, Akureyri
Kaupfélag Svalbarðseyrar, Svalbarðseyri
Sniðill h/í, Múlavegi 1, Mývatnssveit
Foss h/f, Húsavík " 96-41345
KF. Þingeyingja, Húsavík " 96-41444
sími 81093 KF. N-Þing., Kópaskeri " 96-52124
" 33804 KF. Langnesinga, Þórshöfn " 96-81200
" 85810 KF. Vopnfirðinga " 97-3209
" 23470 Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði " 97-2300
" 14464 Dagsverk, v/Vallarveg, Egilstöðum " 97-1118
" 51538 Hjólbarðaverkst. Brúarland, Egilstöðum " 97-1179
KF. Héraðsbúa, Egilstöðum " 97-1200
Hjólbarðaverkstæðið Fellabæ, Egilsstöðum " 97-1179
sími Sildarvinnslan h/f, Neskaupsstað " 97-7500
" 93-1777 Benni og Svenni, Eskifirði " 97-6499
" 93-1379 Verzl. Elíasar Guðnasonar,
" 93-7102 Útkaupstaðabr. 1, Eskifirði " 97-6161
" 93-7192 Bifreiðaverkstæðið Lykill, Reyðarfirði " 97-4199
" 93-7658 Bíla og Búvélav. Ljósalandi, Fáskrúðsfirði " 97-5166
93-6195 Verzl. Djúpið Djúpavogi Bílav. Gunnars Valdimarssonar, 97-8967
" 93-8698 Kirkjubæjarklaustri " 99-7030
" 93-8113 Víkurklettur, við/Smiðjuveg, Vík í Mýrdal " 99-7303
" 93-4191 Erlingur Ólafsson, Hvolsvelli " 99-8190
" 93-4180 KF. Rangæinga, Hvolsvelli " 99-8113
" 94-1124 KF. Rangæinga, Rauðalæk " 99-5902
" 94-2525 Hjólbarðaverkstæði Björn Jóhannssonar,
" 94-7370 Lyngási 5, Hellu " 99-5960
" 94-3501 Hannes Bjarnason, Flúðum, Hrunamannahr. " 99-6612
" 95-1150 Vélav. Sig. H Jónssonar, Túnsbergi, Hrunam.hr. " 99-6769
" 95-1592 Gúmmívinnustofan, Austurvegi 56-58. Selfossi " 99-1626
" 95-4275 Bílaverkstæði Bjarna, Austurmörk 11, Hveragerði " 99-4535
" 95-6118 Bifreiðaþjónusta Þorlákshafnar,
" 95-5165 Unubakka 11, Þorlákshöfn " 99-3911
" 96-71162 Hjólabarðastofan Flötum, Vestmannaeyjum " 98-1523
" 96-61230 Smur og hjólbarðaþjónusta, Vatnsvegi 16. Keflavik " 92-2386
" 96-61122 Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur 92-8397
" 96-63186 m
96-22840 96-25800 BILABORG HF
" 96-44117 Smiðshöföa 23 simi 81299