Morgunblaðið - 09.05.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
69
Hinn nýi Unimog Hjálparsveitarinnar.
Aðalfundur Hjálparsveitar Skáta í Reykjavík
Kölluð 14 sinnum
út á síðasta ári
arins/borgarinnar/þjóðfélagsins.
Hér hafa verið tekin dæmi af
ensku námsefni til að gefa hug-
mynd um það hvernig mætti
framkvæma friðarfræðslu í fram-
haldsskólum. Auðvitað myndu
kennarar og aðrir þeir sem að
námsefnisgerð standa hérlendis,
sjá um að útbúa það námsefni,
sem best þætti henta íslenskum
aðstæðum í samræmi við viður-
kennd markmið fræðslunnar. Er-
lendis hefur þessi fræðsla oft ver-
ið í nánum tengslum við kirkjur,
enda á siðfræði og friðarboðskap-
ur kristinnar trúar samleið með
markmiðum og viðleitni friðar-
fræðslu. Foreldrar hafa einnig
tengst þessari fræðslu og er þarna
vettvangur þar sem kjörið væri að
auka tengsl fjölskyldu og skóla.
Friðarfræðsla og
pólitík
Orðið friðarfræðsla er gildis-
hlaðið og e.t.v. óheppilegt, þar sem
það býður upp á vissa möguleika
til misskilnings. Sumir hafa látið í
ljósi ótta um, að friðarfræðsla
verði vettvangur einhliða áróðurs.
Nokkrir hafa látið sér detta í hug
að nú ætti að fara að kenna Stóra-
sannleik um alþjóðastjórnmál í
dagvistarstofnunum, eða þá að
spilla ætti saklausri bernsku
m.þ.a. fylla börn af ótta. Enn aðrir
hafa haldið því fram, að skólarnir
geti alls ekki kennt um slík mál,
til þess séu þau of pólitísk.
Nú ætla ég að vona, lesandi góð-
ur, að ljóst sé af skrifum mínum,
að ekki er ætlunin að kenna um
alþjóðastjórnmál á dagvistar-
stofnunum, né heldur að vekja
ótta með litlum börnum gagnvart
einhverju sem þau skilja ekki og
ráða ekki við. En því má ekki
gleyma, að hversu vel sem við vild-
um geta verndað börnin okkar, þá
kemur óttinn til þeirra úr um-
hverfinu fyrr en síðar. Sjónvarp,
myndbönd og kvikmyndir flytja
ofbeldi í auknum mæli að augum
og gljúpum hugum barna og ungl-
inga. Er það bæði í fréttum af át-
ökum og styrjöldum sem lýst er á
sífellt óvægnari hátt og einnig í
leiknum myndum þar sem’ ein-
staklingar beita hvor annan grófu
ofbeldi í návígi. Vitneskjan um
tortímingargetu kjarnorkuvopna
skilar sér líka fyrr en síðar og
henni fylgir ótti, vonleysi, van-
máttur og reiði gagnvart foreldr-
unum og hinum fullorðnu, sem
búa barninu svo brothættan og
ótryggan heim. Besta vörnin gegn
óttanum er þekkingin og það er
hún sem þarf að miðla í samræmi
við þroska og getu barna til að
skilja.
Hvað varðar hættu á einhliða
áróðri vil ég benda á, að áðurnefnd
markmið friðarfræðslu ættu ein-
mitt að koma í veg fyrir að ein-
staklingar verði einhliða áróðri að
bráð. Friðarfræðsla miðar að því
að auka víðsýni, umburðarlyndi,
skilning og þekkingu. Það er miklu
fremur þegar skilningur og þekk-
ing á málefni er fyrir hendi að
hægt er að draga sjálfstæðar
ályktanir og mynda sér skoðanir
óháð áróðri. Sú fullyrðing að skól-
inn geti ekki kennt þetta efni
vegna þess að það sé of pólitískt
finnst mér lýsa ósanngjörnu mati
á kennurum. Að þessari kennslu
hlýtur að verða staðið eins og ann-
arri, sem við treystum kennurum
fyrir að miðla til barna okkar og
unglinga. Ég sé ekki meiri ástæðu
til að vantreysta þeim í þessum
efnum en öðrum.
Hvað með þá kennslu í mann-
kynssögu, hagfræði, stjórnmála-
sögu, heimspeki og trúarbrögðum,
sem þegar er stunduð í fram-
haldsskólum landsins? Þar hlýtur
að vera óhjákvæmilegt að.fjalla
um ágreiningsmál, mál, sem eru í
eðli sínu pólitísk. Munur er þó
talsverður á því hvort slíkt er gert
af flokkspólitískri þröngsýni eða
hvort gætt er víðsýnis og hlutleys-
is til að tryggja það, að nemendur
fái yfirvegaða mynd af hverju
máli. Ég er þess fullviss, að við
getum treyst kennurum til þess
síðara og furða mig á því, að nokk-
ur skuli efast um hæfni þeirra til
að tryggja slíkt. Hitt er annað, að
það er stórpólitískt mál fyrir nú-
timamanninn að takast á við
sjálfan sig í því einvígi við eðli
sitt, sem tæknihyggja hans hefur
þvingað hann til. Hið sama verða
börn framtíðarinnar að gera og
það hlýtur að vera öllum foreldr-
um og uppalendum sameiginlegt
að vilja búa börnum sínum sem
best veganesti. til lífsgöngunnar.
Þess vegna getum við ekki stungið
höfðinu í sandinn í þeirri von að
sá ógnarvandi, sem hlýst af
óbreyttri stefnu okkar, fari
sjálfkrafa hjá. Skólinn hlýtur
ásamt foreldrum og öðrum uppal-
endum að þurfa að mæta því hlut-
verki að búa einstaklingana undir
lífið, undir það að takast á við þau
vandamál, sem blasa við og bíða
þeirra.
Af þessum skrifum má sjá, að
friðarfræðsla er nánast tvíþætt í
framkvæmd sinni. Jafnframt því,
sem hún stundar mannrækt,
stuðlar hún að umhverfisvernd.
Hjá ungum börnum miðar hún
fyrst og fremst að því að vernda,
efla og rækta frið í hinu innra um-
hverfi barnsins. Hjá þeim sem
eldri eru leitast hún við að styrkja
einstaklinginn til þess að varð-
veita frið í ytra umhverfi sínu.
„Friðarhugsunin og friðurinn
gerist ekki án fyrirhafnar," sagði
einn þingmanna í umræðum um
þetta mál á Alþingi. Þó að oft hafi
verið þörf er nú meiri nauðsyn en
nokkru sinni fyrr að efla frið milli
manna og þjóða. Þess vegna verð-
um við að halda áfram á hinni
fyrirhafnarsömu leið okkar til
friðsamlegra samskipta með öll-
um tiltækum ráðum.
Friðarfræðsla er að mínu mati
eitt af vænlegum ráðum til að ná
þessu marki.
b „Mannkyn, sem kann að smíða kjarn-
orkuvopn þarfnast friðarfræðslu", Guðrún
Avnarsdóttir, Mbl. 12/4 1984, bls. 26 og 27.
n' A Manual on Nonviolence and Children,
editor Stephanie Judson Nonviolence and
Children Program.
Friends Peace Committee
1501 Cherry Street,
Philadelphia, PA 19102, USA.
nI' Heport of a Working Party on Peace
Falucation
Kducation Ðepartment
County Hall, West Bridgford
Nottingham NG2 7QP
England.
(luðrún Agnarsdóttir er alþingis-
maður Krennalistans.
NÝLEGA var haldinn aðaifundur
Hjálparsveitar skáta Reykjavík. Á
fundinum var lögð fram skvrsla
stjórnar, en þar kom meðal annars
fram að sveitin var kölluð út 14 sinn-
um á síðasta ári, og þar af þrisvar til
aöstoðar vegna ófærðar á götum
borgarinnar.
Eins og undanfarin 17 ár hélt
sveitin námskeið í rötun og ferða-
mennsku fyrir almenning, en
námskeið þessi eru haldin á haust-
in áður en rjúpnaveiðitímabilið
hefst. Á síðasta ári náðist sá
merki áfangi að sveitin gat flutt
alla sína starfsemi í Skátaheimilið
að Snorrabraut 60 úr Ármúlaskól-
anum þar sem hún hafði verið með
fundaaðstöðu og birgðageymslur
en bílar sveitarinnar höfðu verið á
hrakhólum hingað og þangað síð-
ustu ár. Nú á næstunni er ætlunin
að taka formlega í notkun nýjan
Mercedes-Benz Unimog 1300L,
sem nýlokið er við að byggja yfir
og klæða. Mun bíllinn vera út-
búinn til sjúkra- og mannaflutn-
inga og taka 15 farþega í sæti eða
2 farþega og 4 sjúkrabörur, {
stjórn voru kjörnir: Jón Baldurs-
son, sveitarforingi, Eiríkur Karls-
son 1. aðstoðarsveitarforingi,
Kristinn Ólafsson 2. aðstoðar-
sveitarforingi, Magnús Pétursson,
gjaldkeri, Halldór Hreinsson, rit-
ari. Varastjórn: Benedikt Þ. Grön-
dal, Árni Árnason.
Frá Skólabrú til Gullinbrúvu
Undirbúningur hafin aö sögu- og
skipulagssyningu borgarinnar
Byggingarframkvæmdir í Nýja miðbænum.
Sögu-og skipulagssýning verður
haldin á Kjarvalsstöðum 12—21.
maí næstkomandi. Er markmið
hennar að sýna borgarbúum og
öðrum landsmönnum ýmsa þætti
úr skipuiagi Reykjavíkur og verður
henni skipt niður í sex aöalhluta:
Söguleg þróun byggðar, nýleg
skipulagsvcrkcfni, félagsmál og
frítímaiöja, íbúar og athafnalíf,
umferðarmál, framtíöarsýn.
Bjarna Reynarssyni skipu-
lagsfræðingi á Borgarskipulagi
Reykjavikur hefur verið falið að
sjá um framkvæmd og uppsetn-
ingu sýningarinnar og átti blm.
Mbl. viðtal við hann í síðustu
viku af þessu tilefni.
„Borgin hefur breyst og þanist
svo út á fáum árum að fólk nær
Bjarni Reynarsson skipulagsfræð
ingur sér um uppsctningu og fram-
kvæmd sýningarinnar.
ekki að fylgjast með og eldri
borgarar hafa margir hverjir
ekki komið í úthverfin," sagði
Bjarni. „Það er vilji borgaryfir-
valda að borgarbúar geti kynnt
sér sem best nýjustu skipulags-
verkefni og áætlanir í skipulagi
því áhugi og afskipti þeirra af
umhverfismálum fer ört vax-
andi.
Framundir þennan tíma hefur
skipulagsvinna aðalega falist í
því að skipuleggja ný hverfi en
athyglin beinist nú í vaxandi
mæli að endurskipulagningu
eldri hverfa borgarinnar. Mikil
þörf er því fyrir sýningu sem
þessa, þar sem dregin er fram
heildarmynd af þróun borgar-
innar svo menn skilji betur það
umhverfi sem einkenndi eldri
hverfi og kynnist því hvernig
staðið var að skipulagi þeirra.
Því að fortíð skal hyggja er
framtíð skal byggja.
Sýningin mun rekja í grófum
dráttum þróun borgarinnar úr
litlu sjávarþorpi í nútíma borg,
með kortum, ljósmyndum og
loftmyndum. Þá verða sýndir
helstu þættir í þróun nokkurra
þjónustustofnana borgarinnar
svo sem SVR, Æskulýðsráðs,
Reykjavíkurhafnar, Félagsmála-
stofnunnar, veitustofnana og
fleiri. Einnig er stefnt að því að
kynna stuttlega breytingar á
mannfjölda, athafnalífi og frl-
tímaiðju borgarbúa seinustu
áratugina.
Sem dæmi um nýleg skipu-
lagsverkefni sem kynnt verða er
Grafarvogsskipulagið, nýtt
skipulag á nýja miðbænum, til-
lögu að nýju skipulagi í vestur-
hluta Kvosarinnar og nýtt
skipulag í Sogamýri þar sem
blandað er saman útivistar- og
miðbæjarstarfsemi. Umferðar-
málum verða gerð ítarleg skil og
tillögur um nýtt leiðakerfi SVR
verða kynntar og líklega umferð-
arspá fyrir höfuðborgarsvæðið
árið 1990 svo dæmi séu néfnd.
Einnig verður skyggnst til fram-
tíðarinnar og þá sérstaklega
kynnt áætluð uppbygging í borg-
inni næstu fimm til tíu árin.
Til álita hefur komið að kalla
sýninguna „Frá Skólabrú til
Gullinbrúvu". En Gullinbrúva
heitir brúin sem áætlað er að
tengja við Grafarvog. Kristján
Ragnarsson arkitekt verður mér
til aðstoðar við uppsetningu sýn-
ingarinnar en hún verður opnuð
á laugardaginn 12. maí klukkan
tvö, og Guðni Pálsson hefur með
höndum umsjón veglegs kynn-
ingarbæklings sem gefa á út í
tengslum við hana.“