Morgunblaðið - 09.05.1984, Síða 26
74
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984
ttCGAAIin
(| pe-tta. \Jar hörkupartý , Halli "
Ég vil fá að heyra hann tala, iður
en ég fer fram á móti honum.
HÖGNI HREKKVISI
. \
^ — N \
'O <30TT/... SJÁLF0ORAUPI ."
Um innheimtu
orkureikninganna
Sveinn Ólafsson skrifar:
Um síðustu mánaðamót
fékk ég reikning frá Rafveit-
unni fyrir ársuppgjör á hita-
veitureikningum að upphæð
10.212,- mínus fyrirfram-
greiðslu ársins kr. 4.259,-, mis-
munur kr. 5.953,-. Dagsetning
var 29/3 og eindagi 13/4.
Þann 7/4 fæ ég svo rukkun
frá sama aðila fyrir áætlaða
notkun raforku og heits vatns
samtals kr. 5.096,-. Eindagi er
þann 20/4.
Fyrri reikninginn borgaði
ég um mánaðamót, þótt
óþægilegt væri að vita ekki af
rukkuninni fyrr en ég var bú-
inn að skipuleggja allar mán-
aðargreiðslurnar um mánaða-
mótin.
Að fá svo nýja reikninga í
ofanálag, sem eiga að greiðast
áður en næsta útborgun kem-
ur um mánaðamótin, er nán-
ast kaffæring peningalega
fyrir mig. — Ég skil þörf
orkufyrirtækjanna fyrir
greiðslur, en spurningin er,
þarf að haga þessu svona?
Vita starfsmenn hjá inn-
heimtu (og tölvudeild) Raf-
veitunnar ekki að mikill meiri-
hluti fólks fær laun sín um
mánaðamót? — Og þurfa
menn þannig endilega að miða
eindaga reikninga við ein-
Gullkorn
Allir eru dæmdir eftir því sem
þeir sýnast vera, en enginn eins
og hann er.
— F. von Schiller
(1709-1805) var þýskt
akild -
hverja annarlega daga í mán-
uðinum, án tillits til greiðslu-
byrgðar gjaldenda og annarra
mannlegra sjónarmiða?
Ég hefi hitt marga sem eru í
sömu stöðu og ég hvað þetta
snertir og skilja ekkert í hver
orsök svona hugsunarleysis er.
— Eða er yfirmönnum Raf-
veitunnar gjörsamlega sama
hvort þeir beinlínis „hakka
menn í spað“ fjárhagslega eða
ekki?
Full ástæða virðist til að
einhver hugi alvarlega að
þessum atriðum og skoði hvort
ekki megi miða eindaga reikn-
inga orkufyrirtækja við mán-
aðamót — því það ætti ekki að
breyta miklu — þau ráða
hvort eð er sjálf hvenær þau
skrifa sína reikninga út, en
þetta er hagkvæmnisatriði,
sem snertir svo marga og veld-
ur svo miklum óþægindum
með þessari tilhögun að þessu
*
verður að breyta með hag
greiðenda í huga líka.
í von um að viðkomandi taki
málið til vinsamlegrar athug-
unar.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga
til fðstudaga, ef þeir koma þvf ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nðfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að hðfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér i
dálkunum.
„Auralítil þjóð í þröng“
„Gleðilegt sumar Velvakandi
minn.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma fer nú að líða að því að
bjórkrá verði komin á flest götu-
horn borgarinnar. En það er að
mínu viti stórum alvarlegra mál
en allir hundar hennar saman-
lagðir. Á þessum stöðum mun
verða hægt að fá íslenskt öl með
einhverju sterkara í bland. Af
þessu tilefni datt mér í hug eftir-
farandi:
Vill nú fólkið hér sem hjarir
heilsu mikla eignast lind.
Svo allir verði Islandsbarir
enskra pöbba líkust mynd.
Fýsir menn að fara á Stöng
og fmna gaukinn reifa.
Auralítil þjóð í þröng,
þar vill mjöðinn kneyfa.
Or því lýðir elska bland
enginn held ég voli.
Við næsta horn, þó nemi land
Njáll á Bergþórshvoli.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ein öldruð kvinna
0880 -4648.“