Morgunblaðið - 09.05.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
l\r iijvui aur ujn/ ~il II
Þessir hringdu . .
Þakkir til Árna
Johnsen fyrir
baráttu hans í
öryggismálum
sjómanna
Unnur Benediktsdóttir, Hvera-
gerði, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar að
þakka Árna Johnsen fyrir hans
óeigingjörnu baráttu fyrir bætt-
um öryggistækjum í skipum sem
stuðla að bættu öryggi á þeim
vinnustað.
Sem sjómannskona finnst mér
við standa í mikilli þakkarskuld
við Árna og það er óafsakánlegt
hvað við konur erum lítið fyrir
að koma þakklæti okkar á fram-
færi opinberlega til þeirra
manna sem hafa unnið örygg-
ismálum sjómanna ómetanlegt
gagn.
Árni hefur í áraraðir unnið
markvisst að því að benda ráða-
mönnum þeim er með öryggis-
mál sjómanna eiga að fara, á ný
og bætt tæki. En því miður hefur
verið dembt yfir okkur þvílíkum
skrifum og sparðatíningi til að
rýra manndóm Árna að furðu
vekur. Ég tek heils hugar undir
þau orð áhafnarinnar á Bergey
VE 544 að í þessum æsiskrifum
gleymist kjarni málsins en það
eru öryggismál sjómanna.
Á meðan við eigum menn eins
og Árna Johnsen, sem metur sjó-
menn einhvers og ber umhyggju
fyrir lífi þeirra og limum, höfum
við ekki alveg glatað náunga-
kærleikanum.
„Skörin er farin
að færast
upp í bekkinn"
Kona hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mér finnst
ástæða til að vekja athygli á
þætti Alberts Guðmundssonar,
fjármálaráðherra, varðandi
landbúnaðarmálin. Hann er
fyrsti ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins sem þorir að taka af
skarið gegn Framsóknarflokkn-
um og SÍS. Við skattgreiðendur í
þéttbýli munum fylgja honum
fast að málum og taka vel eftir
því hvaða þingmenn veita hon-
um lið. Skörin er farin að færast
upp í bekkinn þegar heimtað er
að við hendum árlega 500 millj-
ónum sama sem í sjóinn í út-
flutningsbætur á landbúnaðar-
afurðum.
Sannleikurinn er sá að bænd-
ur hafa haft nægan tíma til að
aðlaga sig breyttum aðstæðum
en þeir hafa þverskallast við.
Það eru áratugir síðan gáfaðir
og framsýnir stjórnmálamenn,
t.d. Gylfi Þ. Gíslason, margbentu
á í hvílíkan vanda stefndi. Al-
þýðuflokkurinn hefur ítrekað
reynt að sýna fram á að þessi
stefna muni enda með ósköpum
eins og komið er á daginn og öll-
um almenningi er nú ljóst. Fyrir
vikið voru þeir kallaðir ljótum
nöfnum af bændaforystunni og
Tímanum.
Skammsýni og fyrirhyggju-
leysi í þessum málum hefur orð-
ið þjóðinni dýrt spaug. Fyrir 500
milljónir getum við íslendingar
t.d. á einu ári byggt þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða og minni-
máttar. Það þurfum við að gera
og það viljum við gera í stað þess
að leggja peningana í útflutn-
ingsuppbætur. Enginn þarf að
segja okkur að vá sé fyrir dyrum
þó kjöt og smjör nái ekki endum
saman árið út. Við erum upplýst
fólk og vitum að í öllum ná-
grannalöndum okkar, að undan-
skildum Færeyjum, hrannast
upp offramleiðsla landbúnaðar-
vara sem við getum keypt ef
okkur liggur á.
Er nokkuð verið að vorkenna
þéttbýlisfólki þótt röskun og
jafnvægisleysi verði í þeirra
störfum. Hvað t.d. með rakara-
stéttina þegar ungir menn hættu
að láta klippa sig og rakarar
misstu atvinnuna. Hljóp ríkis-
sjóður þá undir bagga með
þeim? Og svona mætti lengi
telja.
Hvað er orðið af stolti bænda
að þeir skuli árum saman
heimta ölmusu af opinberu fé til
að geta gefið útlendingum afurð-
ir sínar. Eitt er víst, mælirinn er
fullur og við tökum það ekki í
mál lengur að ansa ólýðræðis-
legum peningakröfum sem þess-
um.
„Á Friðrik vaða
veður hörð“
Indriði G. Þorsteinsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Það fer ekki hjá því að mér renni
þessi umræða til rifja sem orðið
hefur um formann Sjálfstæðis-
flokksins, eftir fund á Seltjarn-
arnesi og það sem síðan misrit-
aðist í Morgunblaðinu um stall-
inn góða. Og af þessu tilefni varð
til þessi vísa:
Á Friðrik vaða veður hörð
varla að „stallinn” finni
en Steini er lagstur lágt með jörð
í leit að grasrótinni.
Mishermi
Athugasemd við
greinina: Upphaf
verkalýðsbaráttu
í Bolungarvík
Hjalti Jóhannesson skrifar:„ í
Morgunblaðinu 1. maí sl. birtist
grein eftir fréttaritara blaðsins um
stofnun alþýðusamtaka í Bolunga-
vík. Greinin er sögð byggð á saman-
tekt hins mæta manns, Finnboga
Bernódussonar, á sögu verkalýðs-
mála í Bolungavík. Ekki er um stór-
vægilegt mishermi að ræða en ná-
kvæmninnar vegna tel ég rétt að
eftirfarandi komi fram.
í fyrrnefndri grein segir: „En ólga
var eigi að síður og átti síðar eftir
að hitna betur í kolunum, en það var
1932 þegar Hannibal Valdimarsson
kom hingað til Bolungavíkur til að
ræða ástand og
horfur í þessari
deilu að hann var
tekinn og fluttur
til ísafjarðar og er
sú saga löngu orð-
in öllum vel kunn.“
Á 50 ára afmæli
ASÍ 1966, átti
Magnús Kjartansson samtal við þá-
verandi forseta sambandsins,
Hannibal Valdimarsson, og birtist
það í Þjóðviljanum. Þetta samtal er
einnig birt í bókinni Ár og Dagar
(útg. 1967) eftir Gunnar M. Magn-
úss. Hannibal rifjar þar upp minn-
isverða atburði úr verkalýðsbarátt-
unni og segir m.a.: „Ekki var það af
neinum ásetningi mínum sem ég
blandaðist svo harkalega inn í Bol-
ungavíkurdeiluna. Ég skrapp þang-
að einn sunnudaginn í friðsömum
hugleiðingum ásamt söngkór, sem
ætlaði að halda skemmtun í Bol-
ungavik og síðar um daginn i Súða-
vík. Verkfallið var þá hafið fyrir
nokkru, og ég heimsótti einn af
stjórnarmönnunum, Ágúst Elías-
son, að spyrja tíðinda hjá honum í
góðu yfirlæti við kaffidrykkju ...“
Eigi verður þetta samtal rakið
nánar. En það er ljóst, að Hannibal
fór ekki til að ræða ástand og horfur
í þessari deilu ...“ heldur var þetta
skemmtiferð. Eins og kemur fram í
samtalinu, þá tók Hannibal hús á
einum stjórnarmanna og að þjóðleg-
um sið boðið í kaffi. I rabbi við
stjórnarmanninn hugðist hann ein-
ungis spyrja tíðinda af umræddri
deilu. En lyktir urðu þær að Hanni-
bal var fluttur með valdi til ísa-
fjarðar.
Lögfræðiskrífstofa
Hef opnaö lögfræðiskrifstofu aö Suöurlandsbraut 6,
Reykjavík. Viötalstími eftir hádegi.
Skúli Bjarnason hdl.,
sími 68-78-50.
34. leikvika — leikir 5. maí 1984
Vinningsröð: XXX — 112 — X12 — 1 1 X
1. vinningur: 12 réttir — kr. 23.875,-
1424<2/11) 41259(4/11K 47276<4/11) 86952(6/11K
4141(3/11)+ 41409(4/11) 48380(4/11) 87470(6/11)+
37966(4/11) 44700(4/11) 50949(4/11) 88659(6/11>+
39659(4/11)+ 45611(4/11)+ 85148(6/11) 93728(6/11)+
2. vinningur: 11 réttir — kr. 708,-
1265 16686 53967+ 86953+ 93576 46995*
1268 17198 55592+ 86956+ 93588 47561*
1280 18704 57908 86957+ 93674+ 54213*
2278 35421 58269+ 87353 93701+ 59437*
3411 36561 58605 87587 93719+ 60472*
4121+ 37368 58815 87774 93729+ Úr 31. viku:
4138+ 37512+ 59485+ 87957 93730+ 61997+
4220+ 39592+ 59842 88267+ 93731+ Úr 32. viku:
4245+ 39596+ 60070 88305 93734+ 86714+
4308+ 39655+ 60138 88967+ 93737+ 86718+
5059 39672+ 85216 89115 181060+ 90512+
6245 39680+ 85373 90202 36188+* Úr 33. viku:
6296 39692+ 85414 91295 36594* 10234+
8325 39700+ 85431+ 91297 37167* 10444+
10242 39711+ 85449+ 91298 37757+* 10489+
10622+ 39777 85452 91502+ 40890* 10491+
10767 40196 85695+ 91673+ 40892* 11101+
11113+ 40318 85849+ 91837 41989+*
11175 51930+ 85919+ 92325 44910*
11292+ 52137 86692+ 93299+ 44929*
11345+ 52386 86919+ 93349+ 44930*
11836 53947+ 86923+ 93502 46499* * = 2/11
Kærufrestur er til 28. maí kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og á skrif-
stofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur
veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiðstööinni — REYKJAVÍK
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
Vikuskammtur af skellihlátri
AUGi.YSINGASTOFA KRfSTINAR HF