Morgunblaðið - 09.05.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1984
77
Mbl./Sigurgeir.
• Vestmanneyingar eignuöust í vetur tvö 1. deildarliö í handboltan-
um. Svo skemmtilega vill til aö þrír leikmenn Þórs eiga eiginkonu eöa
unnustu í liði ÍBV og því ánægjan tvöföld hjá þessum pörum á mynd-
inni. Til vinstri eru hjónin Karl Jónsson og Guörún Aöalsteinsdóttir, þá
Sigmar Þröstur Óskarsson og unnusta hans, Vilborg Friðriksdóttir og
Ragnar Hilmarsson og unnusta hans, Margrét Kristjánsdóttir.
Tvö lið úr
Vestmannaeyjum
leika í 1. deild
„í r )i ái n< Sl i 9' ði r ai i vera
CD k kí i iy fi ia| pró faðir"
„ÞAD RÍKIR mikil óánægja meöal
íslenzku frjálsíþróttamannanna
hér í Kaliforníu að sendimaöur
lyfjanefndar ÍSÍ skyldi ekki koma
einnig hingað og taka af okkur
lyfjapróf, heldur aöeins fara til
Texas og Alabama," sagöi Þor-
valdur Þórsson grindahlaupari úr
ÍR í samtali viö Mbl.
„Eitt blaöanna heima hefur
reynt aö brennimerkja okkur sem
lyfjaneytendur, sem stangast á viö
reglur íþróttahreyfingarinnar.
Vegna þessara skrifa var rokið
hingað vestur og tekin þvagprufa
af nokkrum íslenzkum frjáls-
íþróttamönnum, sem eru viö
bandaríska háskóla, hluta þeirra
sem eru í Texas og Alabama, en
engum hér, og erum viö óánægöir
meö aö fá ekki tækifæri til aö fá
hreinsun af þeim grun, sem lætt
hefur verið inn hjá fólki.
Þaö getur ekki veriö af fjárhags-
ástæöum, sem viö vorum látnir af-
skiptir. Maöurinn var kominn
hingaö vestur á annað borö og
aukakostnaöur viö aö koma
hingaö þaö litill aö hlægilegt er ef
það er notaö sem ástæöa fyrir aö
koma ekki hingaö til Kaliforníu,"
sagöi Þorvaldur.
Þorvaldur sagði þaö úr algjör-
lega lausu lofti gripiö, sem haldiö
heföi verið fram í skrifum um lyfja-
mál viö bandaríska háskóla, aö
íþróttamenn þar fengju kennslu í
meöferö hormónalyfja.
„Fyrrverandi félagi minn hér í
San José, Norömaðurinn Bo
Breigan, var borinn fyrir þessu, en
mér er algjörlega óskiljanlegt
hvernig hann hefur látiö ummæli af
þessu tagi sér um munn fara. Þjálf-
ararnir hér hafa aldrei minnst á
hormónalyf eöa önnur lyf viö okkur
í þessi ár, enda yröu þeir reknir
samstundis ef upp kæmist. Þeir
myndu ekki einu sinni lána okkur
fimm dollara seðil ef okkur vant-
aöi, því þaö mega þeir ekki, yröu
látnir taka poka sinn ef spyrðist,
og þaö get ég sagt þér aö í skólun-
um eru sérstakir menn, njósnarar,
sem fylgjast meö því aö ínenn
hegöi sér innan þess ramma sem
þeim er settur. Það er nóg af fínum
þjálfurum um hverja stööu viö há-
skólana, og því láta menn ekki
hanka sig á smámunum. Þetta tal
um aö þjálfararnir skammti
íþróttamönnum hormónalyf er út í
hött, a.m.k. á þaö ekki viö um
skóla minn,“ sagöi Þorvaldur.
Að lokum sagði Þorvaldur aö
gremja ríkti meðal allra frjáls-
íþróttamanna vestra vegna þess
meö hvaöa hætti reynt heföi verið
aö læöa því inn hjá fólki aö þeir
misnotuöu lyf sér til framdráttar
viö íþróttaiökun sína. Þeim heföi
ekki verið gefiö tækifæri til aö tjá
sig í viökomandi fjölmiðli. jþrótta-
mennirnir heföu þó ekki stórar
áhyggjur, en þætti verst hvernig
þetta heföi komiö viö vini og
vandamenn. ágás
Vestmannauyjum, 2. maí.
í FYRSTA skipti munu Vestmann-
eyingar eiga liö í 1. deild í hand-
boltanum þá keppni hefst á ís-
landsmótinu í haust og það frek-
ar tvö liö en eitt, Þór í 1. deild
karla og ÍBV í 1. deild kvenna.
Þetta varö árangurinn af ánægju-
legri handknattleiksvertíö og
sýnir þær miklu framfarir sem
hafa átt sér stað í handboltanum
í Eyjum á þeim fáu árum síðan
Eyjamenn eignuöust fullkomna
aöstöðu fyrir inniíþróttir.
Þórarar voru sem kunnugt er
með yfirburöaliö í 2. deildinni í vet-
ur. Þorbergur Aöalsteinsson,
landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi, tók
viö liöinu um mitt síöasta ár og
undir hans stjórn hófust strax
strangar æfingar og stefnan sett á
aö vinna sæti í 1. deild þar sem lið
frá Eyjum hefur ekki áður leikiö.
Þorbergur náöi frábærum árangri
meö liðið í vetur, leikmenn æföu
meira og betur en dæmi eru um
áöur hjá íþróttamönnum hér í Eyj-
um, góöur andi var í liðinu og bar-
áttuþrekiö ómælt.
Af öllu þessu mikla álagi og
vinnu uppskáru Þórarar ríkulega,
leika í 1. deild næsta keppnistíma-
bil. Áhorfendur studdu dyggilega
viö bakiö á liösmönnum Þórs í vet-
ur og ekki er aö efa aö þeir munu
ekki láta sitt eftir liggja næsta vet-
ur.
Þorbergur Aðalsteinsson hefur
nú yfirgefiö lærisveina sína og
haidiö aftur til Reykjavíkur eftir
eina fengsæla vertíö í Eyjum. Eru
Þórarar nú þessa dagana aö leita
Mbl./Sigurgeir.
• Fyrirliöi Þór*. Þór Valtýsson,
og þjálfari liösins, Þorbergur Aö-
alsteinsson.
sér aö þjálfara og hafa mikinn hug
á því aö fá til sín fyrrum landsliös-
þjálfara, Januz Cherwynsky, sem
nú hefur til athugunar tilboö Þórs
og mun gefa Eyjamönnum ákveðið
svar síöar i þessum mánuöi. Ekki
er á þessari stundu annaö vitaö en
allir leikmenn liösins aörir en Þor-
bergur veröi meö í 1. deildarslagn-
um. Þá hefur Þórsliöinu þegar
bæst nýr liösmaöur, Steinar Tóm-
asson, einn af lykilmönnum Aftur-
eldingar í Mosfellssveit, hefur
ákveöiö aö leika meö Þór næsta
vetur. Vitaö er að Þórarar hafa hug
á því aö fá til'sín góöa skyttu til
þess aö taka við hlutverki Þor-
bergs. Hafa netin víöa verið lögö
en ekki dregin enn.
Stúlkurnar í mfl. ÍBV komu
skemmtilega á óvart í vetur og
unnu sér sæti í 1. deild næsta
keppnistímabil ásamt Þórsstúlkun-
um frá Akureyri. Þjálfari liösins var
Ingibergur Einarsson og er reiknað
meö aö hann veröi áfram meö liöiö
í 1. deildinni í vetur. Kvennahand-
boltinn hefur hér sem víðar átt
nokkuö erfitt uppdráttar og athygli
forystumanna og annarra fremur
beinst aö karlaliðunum. Sem dæmi
má geta þess aö stúlkurnar sjálfar
uröu aö fjármagna rekstur liösins
aö mestum hluta og þaö geröu
þær með sóma. Ofan á æfingar,
leiki og feröalög þurftu dömurnar
aö standa í allslags fjáröflunar-
starfi en þær komu frá vetrinum
meö glans og tryggt sæti í 1. deild.
Veröur aö ætlast til þess aö
íþróttaforystan i Eyjum standi bet-
ur viö bakið á liöinu næsta vetur i
hinn höröu baráttu í 1. deild svo
stúlkurnar geti ótruflaöar af fjár-
málaáhyggjum einbeitt sér að því
aö tryggja sæti sitt í deildinni.
Hvaö um það. Handboltaáhuga-
fólk í Vestmannaeyjum er þegar
fariö aö hlakka til vetrarins og
átakanna í 1. deild karla og
kvenna. Takist knattspyrnuliöi (BV
svo ætlunarhlutverk sitt í sumar,
aö vinna aftur sæti sitt í 1. deild,
koma Vestmanneyingar til meö að
eiga þrjú iiö í bestu deildum þess-
ara tveggja vinsælustu íþrótta-
greina á islandi og ekki eru margir
bæirnir á landinu sem geta státaö
af slíku. En það kemur í Ijós meö
tíö og tíma.
Mbl./Sigurgeir
• Mfl. kvenna ÍBV. Liðið leikur í 1. deild næsta vetur. F.v. Eygló Kristinsdóttir, Ólöf Heiða Elíasdóttir, Dóra
Brynjarsdóttir, Hafdís Hannesdóttir, Vilborg Friöriksdóttir, Rakel Óskarsdóttir, Hafdís Siguröardóttir, Ragna
Birgisdóttir, Eyrún Sigþórsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Sóley Stefánsdóttir, Lilja Tómasdóttir. Á myndina
vantar Guörúnu Aðalsteinsdóttur, Unni Sigmarsdóttur og önnu Dóru Jóhannsdóttur.
• Þórarar voru með yfirburðalið í 2. deildini í handknattleik í vetur. Liðiö leikur i 1. deild næsta keppnis
tímabil og er þaó í fyrsta skipti sem liö úr Vestmannaeyjum keppir í 1. deild karla í handknattleik.