Morgunblaðið - 11.05.1984, Side 8
KIMIWASA
dulbúið
cefingakerji
feyfUist
Sif Björnsdóttir, Þórjón Pétursson og Haukur Þorsteinsson.
Hefur hópurinn haldið að meðaltali þrjár sýningar á viku
frá áramótum.
En á hverju byggist Kimiwasa, er það eitthvað svipað
Karete og Kung fu? Þessi spurning var með því fyrsta sem
blm. Mbl., er hann fékk að fylgjast meö einni æfingu hjá
hópnum, spuröi Hauk, annan höfund kerfisins.
„Kimiwasa er alíslenskt kerfi sem varö til hjá okkur á
tæpum tíu árum. Þegar viö komum með þetta fyrst sagði
einhver við okkur, í viðurkenningartón, að við heföum tekið
það besta úr öllum austurlensku bardagakerfunum og sam-
KIMIWASA heitir íslenskt bardagalistarkerfi sem tvíbura-
bræðurnir Haukur og Hörður Harðarsynir þróuöu fyrir rúm-
um tíu árum og kenncju um nokkurra ára skeið. Sjálfir hafa
þeir nú snúiö sér meira aö myndlist og hreyfilist en gamlir
nemendur þeirra haldiö áfram aefingum Kimiwasa. Nema
hvað KIZA-hópurinn, sýningarflokkur Kimiwasa sem hefur
það hlutverk aö kynna kerfið, hóf starf að nýju undir stjórn
Hauks um síöustu áramót eftir langt hlé. í hópnum eru auk
Hauks fimm nemendur hans sem lagt hafa stund á Kimi-
wasa í 3—6 ár, þau Kristján Jónsson, Snorri Jóhannesson,
einað Þaö vildi bara þannig til aö þegar viö sömdum okkar
kerfi þekktum viö ekkert til hinna og höföum ekki einu sinni
lesið okkur til um þau. En kerfi okkar hefur austurlenskt
yfirbragð og verður það eflaust til þess aö það minnir á hin
kerfin. Grundvallarmunurinn liggur hinsvegar í stuttu máli í
því að Kimiwasa er ekki bardagakerfi heldur bardagalistar-
kerfi, það er tvennt ólíkt. Eins og viö hugsum það og byggð-
um þaö upp er Kimiwasa einskonar dulbúiö æfingarkerfi fyrir
hreyfilist, sem við vildum plægja jarðveginn fyrir. Við þorðum
ekki að koma beint með hreyfilistina, eitthvað sem hafði þá
ekki sést áður. Nú vita flestir hvaö felst í orðinu hreyfilist en
1978 var þetta orð ekki til. Það hefur líka sýnt sig aö flestir af
okkar gömlu nemendum sem komu til að læra að berjast á
sínum tíma hafa farið út í hreyfilistina."
Er Kimiwasa flókið kerfi?
„Já, það er ég hræddur um. Líklega of flókið því okkur
viröist ekki ætla aö gefast tími til að kenna allt kerfið þannig
að aðrir geti tekiö við því af okkur. Það er byggt upp á
svokölluöum kötum, en hver kata inniheldur hundrað hreyf-
ingar sem tengjast saman. Svona byggjast mörg austur-
lensku kerfanna upp, til dæmis Chineese Mind-boxing, en þá
er oftast bara um eina kötu aö ræöa sem menn halda áfram
að þjálfa alla æfi. j Kimiwasa eru hinsvegar milli tuttugu og
þrjátíu kötur, hundraö hreyfingar hver, fyrir utan öll áhöld."
Áhöld?
„Já, við höfum hannað og smíðað 16 áhöld fyrir þetta
kerfi. Sverð, prik, hnífa og kylfur og gert hreyfingar við þau
öll, hundrað hreyfingar við hvert. Þannig að það má reikna
með að þaö taki a.m.k. 12 ár að læra allt Kimiwasa-kerfið.“
En hver er munurinn á Kimiwasa og hreyfilist?
„Þegar KIZA-hópurinn sýnir veröur allt að vera mjög vel
æft og fyrirfram ákveöiö því annars gætum við farið okkur að
voöa. I hreyfilistinni, sem hefur sínar eigin kötur, tengirðu
saman hreyfingu og tilfinningu og notar þaö vald sem þú
hefur yfir likamanum. Og á sýningum eru aöeins ákveðnir
fyrirfram nokkrir punktar, og síöan spunnið jafnóðum eftir
viðbrögðum sem þú færð frá þeim sem þú sýnir meö.