Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
Blaðburðarfólk
óskast!
55
n ik í
fréttum
Roger Moore áhyggjufullur:
Dóttir hans ást-
fangin af 57 ára
gömlum manni
+ Roger Moore og Luisa kona hans eru áhyggjufull og
áhyggjuefniÖ er dóttir þeirra, hin tvítuga Deborah,
sem leggur stund á tónlist í London en er öllum
öðrum stundum í París.
í París býr nefnilega vinur hennar, franski leikar-
inn Phillipe Leroy, og raunveruleg ástæða fyrir
áhyggjum foreldranna er að Phillipe er 57 ára gamall,
jafnaldri Moores.
Kunningi þeirra hjóna segir, að þau hafi margoft
fært í tal við hana þetta samband hennar við frans-
manninn en detti þó ekki í hug að banna henni eitt
eða neitt. Deborah er mjög glæsileg stúlka og á
marga vini meðal fína fólksins í Evrópu, hefur m.a.
verið í slagtogi með Albert Mónakóprins.
Roger Moore á reyndar dálitið erfitt með að ræða
þetta mál við dóttur sína því að á sínum tíma,
skömmu fyrir 1960, vakti hann mikla athygli og
hneykslan sumra, þegar hann kvæntist söngkonunni
Roger Moore með Deborah dóttur sinni.
Dorothy Squires, sem var miklu eldri en hann. „Það
var nú miklu frekar hnefaleikar en hjónaband," sagði
Moore síðar.
Hnefaleikakeppnin hélt áfram og harðnaði mjög
þegar Moore hitti ítölsku leikkonuna Luisu, sem hann
varð ástfanginn af. Dorothy Squires vildi hins vegar
ekki gefa honum eftir skilnaðinn og jafnvel ekki eftir
að þau Moore og Luisa voru búin að eiga Deborah
saman. Það gekk þó að lokum og síðan hefur ekkert
skyggt á hamingju þeirra þar tii nú, að dóttirin virð-
ist vera að daðra við sömu vitleysuna og faðirinn
áður.
Tony Curtis með konunni, sem bjargaði honum frá flöskunni.
Tony Curtis skil-
inn við flöskuna
— og kvæntur rúmlega tvítugri stúlku
+ Gamla Hollywood-leikaranum
Tony Curtis hefur nú loksins tek-
ist að losa sig úr klónum á brenni-
víninu og hann getur þakkað það
21 árs gamalli stúlku að nafni
Andria Savio. Tony, sem er 58 ára
gamall, kaus að þakka henni fyrir
með því að kvænast henni.
Tony Curtis var til meðferðar á
Betty Ford-sjúkrahúsinu ( Kalif-
orníu en það er nú orðið fínasta
afvötnunarstöð í Bandaríkjunum
og er skemmst að minnast þess, að
Elizabet Taylor var þar og margt
fleira frægt fólk.
„Nú er ég laus við áfengið og
ætla að nota tima minn m.a. til að
vara fólk við áfengisdrykkju og af-
leiðingum hennar," segir Tony.
„Nú er ég líka staðráðinn í að
hjónabandið endist eitthvað. Áður
fannst mér það bara undir kon-
unni komið hvernig því reiddi af.“
Andria Savio hefur ekki áður
gifst en þetta er fjórða hjónaband
Tony Curtis. Fyrri konur hans
voru þær Janet Leigh, Christine
Kauffman og Leslie AUen.
COSPER
Þau voru með ís í eftirrétt, og hún gaf okkur tvo skammta.
Læknir Michael
Jacksons:
Jackson ætlar
ekki að gerast
kynskiptingur
+ „Michael Jackson er ekki
kynvilltur og er ekki á sjúkra-
húsi til að gangast undir kyn-
skiptingu." Dr. Steven Hoefflin,
læknir stórstjörnunnar, sá sig
um daginn tilneyddan til að
gefa frá sér þessa tilkynningu
en þá var það altalað, að Jack-
son væri á sjúkrahúsi í ein-
hverjum öðrum tilgangi en upp
var gefinn, sem var að flytja
þyrfti til húð vegna þess að
hann brenndist illa við upptöku
á auglýsingamynd.
„Mér finnst það í meira lagi
skrýtið þjóðfélag þar sem menn
neyðast til að boða blaða-
mannafund til þess eins að til-
kynna hvað listamenn og frægt
fólk er ekki að gera í frftíma
sínum. Ástæðan fyrir þessum
fundi er sú, að í blaðinu Nation-
al Enquirer sagði, að innan
skamms myndi Jackson koma
fram á sviðinu sem stúlka og að
hann væri að gangast undir
kynskiptingu.
Ég hef þekkt Jackson-
fjölskylduna lengi og veit að
hún er vönd að virðingu sinni.
Ég vona bara að hún höfði mál
á hendur blaðinu og það mun
ekki standa á mér að vitna gegn
því,“ sagði dr. Steven.
Úthverfi
Blesugróf
Kynnum í dag
kl. 15—19 frábæru
kanadísku
R.C. rauðu Delicius-cplin
Venjulegar stærðir og risastór
Einnig
appelsínurnar sem
slegið hafa rækilega í gegn
í vetur „2 Cosas64 frá Spáni
Kynningarverð
„2 Cosas“
Verslunin
Skagaver hf.
Akranesi
/